Tíminn - 02.06.1978, Síða 1
Fyrsti fundur
Borgarstjórnar
— Bls. 5
t
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík * Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 * Kvöldsímar 86387 & 86392
Almennur
stjórnmála-
fundur á Hvoli:
Baldur
hafði
lítið
erindi
Almennur stjórnmálafundur
var haldinn á Hvolsvelli á mið-
vikudagskvöld aö tillagi kjör-
dæmissambands framsóknar-
manna á Suðurlandi. Framsögu-
menn á fundinum voru Jón
Helgason, Seglbúöum, Þórarinn
Sigurjónsson, Hilmar Rósmunds-
son, Sváfnir Sveinbjörnsson og
Garðar Hannesson.
Fundurinn var allfjölsóttur og
að loknum framsöguerindum
fjórmenninganna hófust almenn-
ar umræöur. Er þær voru hafinar
birtist þar Baldur nokkur öskars-
son erindreki Alþýðubandalags-
ins, sté i pontu og hafði i frammi
gifuryrði um slæma landsstjórn.
Að sögn eins fundarmanns þótti
einsýnt, að koma Baldurs á fund-
inn væri i þeim tilgangi einum
að veiða atkvæöi með þvi að slá
fram stóryrðum. Þegar svo fariö
var að rökræða við Baldur og
hann krafinn sagna um Urræði i
málum þeim er bar á góma eins
og t.d. efnahagsmálum, kom á
daginn, aðhann hafðilitið til mál-
anna aö leggja annað en stóryrðin
og var þvi nánast kveðinn I kUt-
inn. Voru fundarmenn á þvi, aö
litinn árangur hefði Baldur haft i
atkvæðaveiðunum þetta kvöld.
Það voru ekki amalegar
móttökur, sem Adda Bára
Sigfúsdóttir fékk hjá hátt-
virtum fyrrverandi meiri-
hlutamanni i borgarstjórn,
Albert Guömundssyni, á
fyrsta fundi nýkjörinnar
borgarstjórnar að SkUIatúni
2 f gær, en ekki er þó ólíklegt
að einhvern tima á næsta
kjörtimabili eigi eftír að slá I
brýnu milli þeirra, þegar
farið verður að takast á um
hin ýmsu málefni borgarinn-
ar. Guðrún Helgadðttir
horfir brosandi á.
Timamynd Róbert.
Ólafur Jóhannesson í viðtali við Tímann:
Launajöfnun og atvinnu-
öryggi meginstefnumálin
„Lögin um efnahagsráðstafanir og sérstak-
lega bráðabirgðalögin nú hafa verið afflutt
með ósvifnum hætti i pólitiskum tilgangi. Orðið
„kauprán” hefur hljómað i eyrum þjóðarinnar
eins og hvert annað slagorð án allra skýringa
bæði á ástæðunum fyrir ráðstöfununum og eins
á þvi i hverju þær hafa verið fólgnar”, segir
ólafur Jóhannesson ráðherra meðal annars i
itarlegu viðtali um efnahags- og atvinnumál
sem birtist á bls. 6 i blaðinu i dag.
í viðtalinu segir ólafur Jóhannesson enn-
fremur:
„Mikilvægasta atriðið i stefnu rikisstjórnar-
innar hefur verið atvinnuöryggisstefnan og
launajöfnunarstefnan. t raun og sannleika er
það alveg ósannað hvort aðgerðir rikis-
stjórnarinnar hafa leitt til kjaraskerðingar eða
ekki. Með bráðabirgðalögunum er stigið stórt
og stefnumarkandi spor i launajöfnunarátt.
Snúist fyrirsvarsmenn t.d. Verkamannasam-
bandsins gegn þvi og taki upp baráttu fyrir
óskertri prósentuhækkun á öll laun þá sé ég
ekki betur en launajöfnunarstefnan sé dauða-
dæmd fyrir tilstyrk launþegasamtakanna.”
Fyrsti borgarstj órnarfundur eftir kosningar:
Málefna-
samningur
meiri-
hlutans
á leiðinni
— Albert
óþolinmóður
SSt— Sigurjón Pétursson nýkjör-
inn forseti borgarstjórnar
Reykjavikur kvaddi sér hljóðs á
fundi borgarstjórnar i gær og las
eftirfarandi yfirlýsingu frá meiri-
hluta borgarstjórnar: „Alþýðu-
bandalag, Alþýöuflokkur og
Framsóknarflokkur hafa ákveöið
að hafa samstarf um kosningu i
borgarráö og kjör forseta borgar-
stjórnar.
Um málefnasamning og önnur
atriðier varða stjórn borgarinnar
eru nú að hefjast viðræöur milli
þessara flokka og verða niöur-
stöður þeirra kynntar bráðlega.
Eftir að Sigurjón hafði lesið
yfirlýsinguna bað Albert Guö-
mundsson um orðið og lýsti yfir
undrun sinni yfir að borgar-
stjórnarmeirihlutinn kæmi til
fundar án þess að hafa gengið frá
málefnasamningi sinum og
spuröi til hvers viöræðutimi
meirihlutaflokkanna fram aö
fyrsta fundi borgarstjórnar hefði
verið notaður. Þessu var ekki
svarað.
SIGURJÓN KOSHMN FORSETI
SSt—SigurjónPétursson borgar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins var
kosinn forseti borgarstjórnar
Reykjavikur á fyrsta fundi henn-
ar eftir kosningar, sem fram fór
að Skúlatúni 2 i gær. Var hann
kjörinnmeö Satkvæðum, en Ólaf-
ur B. Thors hlaut 7 atkvæði.
Tveir varaforsetar voru einnig
kjörnir. Fyrsti varaforseti var
kjörinn Björgvin Guðmundsson
meö 8 atkvæðum, en Albert Guð-
mundsson hlaut 7 atkvæði. Anriar
varaforseti var kosinn Kristján
Benediktsson með 8 atkvæöum,
sjálfstæðismenn skiluðu auðu.
Þá var gengið til kosningar i
borgarráðog stóð meirihlutinn að
kosningu þeirra Sigurjóns
Péturssonar, Björgvins Guð-
mundssonar og Kristjáns Bene-
diktssonar, en minnihlutamenn
að kosningu þeirra Birgis Isleifs
Gunnarssonar og Alberts Guö-
mundssonar. Til vara i borgarráö
voru kosin af meirihluta Adda
Bára Sigfúsdóttir, Þór Vigfússon
og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, en af
minnihluta Magnús L. Sveinsson
og Markús örn Antonsson.
Þá fór fram kosning tveggja
skrifara borgarstjórnar og voru
þeir Þór Vigfússon og Magnús L.
Sveinsson kosnir, en varaskrifar-
ar Guðmundur Þ. Jónsson og
Markús öm Antonsson.
Kosning borgarstjóra var á
dagskrá þessa fundar, en eins og
fram hefur komið hafa fulltrúar
meirihlutaflokkanna lýst þvi yfir,
að auglýst verði eftir
framkvæmdastjóra fyrir borgina,
og var þvi samþykkt að fresta þvi
máli, og fór reyndar svo um flest-
ar þær kosningar sem fram áttu
að fara á þessum fundi eða dag-
skráratriði frá 5-36.
Húsfyllir var á áhorfenda-
bekkjum að Skúlatúni 2 þegar
fundurinn hófst, en hann setti
Kristján Benediktsson sem
aldursforseti. Nokkur önnur mál
' voru á dagskrá, þar á meöal bar
Davið Oddsson fram tillögu um
17. júni dansleik i miðbænum en
þá sömu tillögu hafði Sigurjón
Pétursson boriö fram 23. mai og
hafði henni verið visað frá. Varð
' nokkurt karp vegna framkominn-
ar tillöguDaviðsog var henni vis-
aöfrá. Fundurhófst kl. 17 og lauk
eftir rúma klukkustund.
Atta fulltrúar nýja borgarstjórnarmeirihlutans. Sá niundi á myndinni er Albert I bakherbergi. Tlmamynd GE.