Tíminn - 02.06.1978, Blaðsíða 11
Föstudagur 2. júnl 1978
imimfðs
Unniö viö hina nýju tölvusamstæöit. sem kostaöi litlar 75 millj-
ónir króna.
Myndiðjan Ástþór:
Tekur tölvur í
sína þjónustu
ESE — Myndiðjan Astþór h.f.
hefur nýlega tekið i notkun sér-
staka litgreiningartölvu, sem að
sögn forráðamanna Myndiðjunn-
ar mun koma til með að valda
tæknibyltingu i gerð litmynda
hérlendis.
Að sögn Astþórs Magnússonar,
framkvæmdastjóra Myndiðjunn-
ar, er þessi tölva sú fullkomnasta
sem völ er á i heiminum i dag og
kostar hún og annar tækjabúnað-
ur sem notaður er við fram-
köllunina, liðlega 75 milljónir
króna. Tölvusamstæðan, sem
keypt er frá hinu þekkta fyrirtæki
GRETAG I Sviss, tekur við film-
unni eftir að hún hefur verið
framkölluð og fer hún fyrst i svo-
kallaðan „filmuscanner” þar
sem filman er skoðuð og hverri
mynd skipt niður i 100 ferhyrn-
inga. Upplýsingar fara svo
jafnóðum i' sérstaka kasettu sem
fer meðfilmunni i kóperingu. Eft-
ir þeim upplýsingum sem er að
finna á kasettunni vinnur siðan
tölvan og getur hún jafnvel lagað
mistök sem hafa orðið við
myndatöku. Tölvan sem skoðar
hverja mynd er ótrúlega afkasta-
mikil og getur hún hæglega
skoðað um 20 þúsund myndir á
klukkustund.
Jafnhliða þessari nýju þjónustu
mun Myndiðjan Ástþór bjóða upp
á sérstaka nýjung sem ekkert
annað fyrirtæki á Norðurlöndum
býður upp á, en það eru litmyndir
sem eru um 30% stærri en venju-
legar litmyndir, og mun auka-
kostnaður við framköllun á þeim
ekki vera hærri en 20 krónur á
mynd. Einnig býður Myndiðjan
viðskiptavinum sinum upp á nýja
filmu, sem ekki hefur áður verið
seldhérlendis,en það er filma frá
iapanska fyrirtækinu Sakura, en
sú filma er sérstaklega ljós-
Sumar-
áætlun
SVK
Mánudaginn 5. júni 1978 gengur
I gildi sumaráætlun Strætisvagna
Kópavogs. Verður þá ekið á 15
min. fresti i stað 12 minj vetrar-
áætlunj akstur um helgar og á
kvöldin er óbreyttur.
Það er orðin venja hjá S.V.K.
að breyta áætlun yfir sumar-
mánuðina og hefur það verið gert
þrjú undanfarin sumur og gefizt
nokkuð vel.
Farþegar geta fengið
„SUMARAÆTLUN” i vögnunum
og á Skiptistöðinni i Kópavogi.
[ Tíminner
peníngar
j Auglýsidí S
| í Tímanum:
næm, þannig að ekki þarf að nota
leifturljós við myndatöku innan-
húss.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var i gær i tilefni þessarar
nýju þjónustu sem Myndiðjan
býður upp á, kom fram^að undan-
farið ár hefur fyrirtækið rekið
dótturfyrirtæki i Danmörku, Ra-
bat Film, og hefur rekstur þess
gengið framar vonum. Rabat
Film hefur tekið á móti filmum i
Danmörku, sem siðan eru sendar
til Reykjavikur, þar sem þær eru
framkallaðar og sendar aftur til
Danmerkur, og fær viðskipta-
vinurinn myndirnar i hendur um
viku eftir að hann sendi þær inn.
Nú vinna um 25 manns hjá Mynd-
iðjunni Ástþór h.f. en með til-
komu hinna nýju tækja var unnt
að fækka starfsfólki til muna. Að
sögn Astþórs Magnússonar verð-
ur kappkostað i framtiðinni sem
hingað til að veita sem bezta
þjónustu, og til þess að koma til
móts við óskir viðskiptavina
Myndiðjunnar hefur verið ákveð-
ið að gefa fólki kost á að fá filmur
framkallaðar og stækkaðar á ein-
um sólarhring.
© Ráðstefna
Eftirfarandi upplýsingar komu
fram á fundi nefndar sem fjallar
um samskipti Islands og Vest-
ur-Islendinga með blaðamönnum
i gærdag en hún heyrir undir
utanrikisráðuneytið.
Tilgangur fundarins var að
geragrein fyrir störfum nefndar-
innar þessa 18 mánuði sem hún
hefur starfað og ráðstöfun á þvi
opinbera fjármagni sem hún hef-
ur til umráða.
Nefndin er á vissan hátt af-
sprengi þingsályktunartillögu
sem samþykkt var árið 1975 á Al-
þingi og fjallaði um aukin tengsl
hins islenzka þjóðarbrots vestan-
hafs við heimalandið. Nefndina
skipa Heimir Hannesson for-
maður, Árni Bjarnarson og séra
Barði Friðriksson, en Þorsteinn
Ingólfsson deildarstjóri i utan-
rikisráðuneytinu er ritari hennar.
Formaður hafði orðið fyrir
nefndinni og sagði að nærri 80%
af umráðafé hennar sem var 5
millj. kr. á árinu 1977 en er áætlað
7 millj. kr. á þessu ári færi til
greiðslu kostnaðar vegna rit-
stjórnar Lögbergs-Heimskringlu,
en það er eina blaðið sem kemur
út á islenzku utan Islands.
Ekki væri þó gert ráð fyrir þvi
að ritstýring Lögbergs-Heims-
kringlu yrði aðal verkefni
nefndarinnar i framtiðinni. Upp-
haflega hefði verið um
björgunarráðstöfun að ræða til að
koma i veg fyrir að útkoma blaðs-
ins legðist niður, þar sem það er
oft á tiðum eina h'ftaugin i sam-
skiptum íslendinga þar vestan
hafs.
Eitt meginverkefni nefndarinn-
ar næstu árin auk ráðstefnunnar
sem minnzt var á hér að framan
er að stefna að Utvörpun islenzks
efnis þar vestra. Þegar hafa farið
fram óformlegar viðræðurum is-
lenzka dagskrá i útvarpsstöð i
Winnipeg en ekki er enn ljóst
hvernig þær fara. Hins vegar er
ljóst að slík starfsemi er afar
kostnaðarfrek og kemur hún þvi
ekki til greina nema með stuðn-
ingi þarlendra yfirvalda.
Auk þeirrar starfsemi sem þeg-
ar hefur verið minnzt á hefúr
nefndin veitt nokkra styrki til
ýmissamálefnasemeiga að auka
menningartengsl milli Islands og
Vesturheims og varðveita upp-
lýsingar um ýmsan fróðleik sem
hætta er á að fari forgörðum.
Kaupmenn
Kaupfélög
POLLUX
SVEFN-
POKINN
einangraður með
ullarkembu
Heildsala - Smásala
SPORTVAL Hlemmtorgi
I Simar (91) 1-43-90 & 2-66-90
+
Þökkum innilega samúð og hluttekningu við andlát og út-
för
Sigrúnar Guðbrandsdóttur
frá Heydalsá
Torfi Sigurðsson, Rún Torfadóttir,
Ragnheiður Torfadóttir,
Sigurður Kristinn Finnsson, Ulfar Guðjónsson,
Stefán Torfi Sigurðsson, Sigrún Arna Úlfarsdóttir,
Finnur Sigurðsson, Drifa Úlfarsdóttir,
Ármann Viöar Sigurðsson.
11
K-í r-T'
?L*
V,
Lögtök |
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjald-
heimtunnar i Reykjavik og samkvæmt
fógetaúrskurði, uppkveðnum 1. þ.m.
verða lögtök látin fara fram fyrir ógoldn-
um fyrirframgreiðslum opinberra gjalda 2,-
sem féllu i gjalddaga 1. febrúar, 1. marz 1. '
april 1. mai og 1. júni 1978.
Lögtök til tryggingar fyrirframgreiðslum í?y
framangreindra gjalda ásamt dráttar- ,yi
vöxtum og kostnaði verða hafin að 8 dög- fyi
um liðnum frá birtingu þessarar aug- <
lýsingar verði tilskyldar greiðslur ekki 0
inntar af hendi innan þess tima. &
Reykjavik 1. júni 1978
Borgarfógetaembættið.
Félagsmálaráðuneytið 31. mai 1978.
Laus staða
Frestur til að sækja um áður auglýsta
stöðu rikissáttasemjara framlengist til 15.
júni 1978.
Sveitarstjóri
Hreppsnefnd Gerðahrepps auglýsir starf
sveitastjóra tíl næstu fjögurra ára.
Umsóknir sendist hreppsnefnd fyrir 15.
júni 1978 er greini aldur, menntun og fyrri
störf ásamt meðmælum.
Hreppsnefnd Gerðahrepps,
Melbraut 3, Garði.
Loftpúða-garðsláttuvélin
Eigum nú til þessar
vinsælu loftpúða-
garðsláttuvélar
með 4 ha mótor 48
cm. vinnslubreidd.
Rafmagnsvél,
38 cm vinnslubreidd
Margra ára reynsla
Margra ára
reynsla
Svífur léttilega.
Aðeins 14 kg.
Samband islenzkra samvinnufelaga
VÉLADEILD Ar mula 3 Reykjavik simi 38900