Tíminn - 02.06.1978, Side 3
Föstudagur 2. júni 1978
3
Sjómannadagurinn í Reykjavík:
Mátt
eiga
hann
ef þú
getur
hvolft
honum
— möguleiki
á að eignast
13 feta
plastbát
Kás — Tilgangur Sjómanna-
dagsins er fyrst og fremst að
treysta samstöðu hinna ýmsu
starfsgreina sjómannastéttar-
innar, minnast látinna sjó-
manna og heiðra gamla sjó-
menn sem skilað hafa góðu og
löngu dagsverki. Siðast en ekki
sizt er hlutverk hans að kynna
almenningi lifsbaráttu sjó-
mannsins og störf hans á sjón-
um, sagði Pétur Sigurðsson for-
maður Sjómannadagsráðs, á
fundi sem ráðið boðaði til með
blaðamönnum i gær, til að
kynna dagskrá Sjómannadags-
ins, sem að þessu sinni er nk.
sunnudag, 4. júni.
Sjómannadagurinn verður
með heföbundnu sniði. Hann
hefst kl. 8 með þvi að fánar
verða dregnir að hún á skipum i
Reykjavikurhöfn, en kl. 11 verð-
ur sjómannamessa i Dómkirkj-
unni. Siðdegis verða aðal-
hátiöarhöldin i Nauthólsvik og
hefjast þau kl. 14.
Að vanda verður þar margt
til skemmtunar, m.a. kappróð-
ur skipshafna og vinnuflokka i
landi, og keppni i kvennaflokki.
Koddaslagur
Slysavarnardeildin Ingólfur
sýnir ýmis atriði úr starfi sinu,
en eins og kunnugt er, er Slysa-
varnafélag íslands 50 ára á
þessu ári. Var það upphaflega
stofnað til að veita hjálparþjón-
ustu vegna sjóslysa. Þá verður
keppt i koddaslag og stakka-
sundi.
Það nýmæli verður að þessu
sinni, að sýndir verða bátar og
snekkjur á hátiðarsvæöinu, auk
annars sem við kemur útivist.
Einnig verður þar á staðnum
bátur á floti, og má sá eiga hann
sem fyrstur getur hvolft honum.
Um er að ræöa eigulegan 13 feta
plastbát, og sjálfsagt verða
margir sem hugsa sér gott til
glóðarinnar.
A undan skemmtiatriðunum
verða fluttar ræður. Þær flytja
þeir Matthias Bjarnason
sjávarútvegsráöherra sem' full-
trúi rikisstjórnarinnar, Agúst
Einarsson hjá LIO sem fulltrúi
útgerðarmanna og Guðmundur
Hallvarðsson nýkjörinn for-
maður Sjómannafélags Reykja-
vikur. Að ávörpunum loknum
mun Pétur Sigurðsson formaður
Sjómannadagsráðs sæma
aldraða sjómenn heiðursmerki
sjómannadagsins.
Að vanda verður selt merki
Sjómannadagsins og Sjómanna-
dagsblaðið, sem er mjög vandaö
aö þessu sinni. Strætisvagna-
ferðir verða frá Hlemmtorgi og
Lækjartorgi á 15 min. fresti frá
þvi kl. 13.
A timabilinu kl. 15-17 verður
nýja Hrafnista i Hafnarfirði til
sýnis fyrir almenning. Veröur
gestum boðið upp á kaffi og kök-
ur, en allur ágóöi kaffisölunnar
rennur til skemmti- og ferða-
sjóðs vistmanna heimilisins.
Pétur Sigurösson ræddi i lok
fundarins um það uppbygg-
ingarstarf sem unniö hefur ver-
ið á vegum Sjómannadagsráös
sl. ár, fjáröflun þeirra fram-
kvæmda, og nýjungar sem á
döfinni eru. Sagði hann að i ár
heföi fengizt i fyrsta skipti
byggingarstyrkur frá Alþingi til
þessarar starfsemi.
Ræddi hann sérstaklega um
Hrafnistu i Hafnarfirði, þar sem
ýmislegt nýtt væri fyrirhugaö.
T.d. yrði boðið upp á dagheimili
fyrir aldrað fólk, þar sem þaö
hefði aðgang aö bókasafni,
heilsuræktaraðstöðu, og fleiru
þvi um liku.
Þá ræddi hann fyrirhugað
samstarf við nágrannasveitar-
félögin þar i kring, og sagði að'
ef það kæmist á, gæti það orðið
öllum aðilum til hagsbóta, þvi
ofviða væri litlum sveitarfélög-
um að standa fyrir fullkominni
þjónustu á þessu sviði, ein sér.
Jón Sólnes lætur
af störfum sem
framkvæmda-
stjóri Kröflu-
nefndar
GEK— Að beiðni Jóns G. Sólness
heftir iðnaðarráðherra samþykkt
að leysa hann frá embætti fram-
kvæmdastjóra Kröflunefndar frá
og með 1. júni að telja, en Jón
gegnir áfram formennsku i
Kröflunefnd. Akveðið hefur verið
að Einar Tjörvi Eliasson yfir-
verkfræðingur taki við starfi
framkvæmdastjóra Kröflunefnd-
ar.
1 tilkynningu, sem iðnaðar-
ráðuneytið semdi frá sér i gær
vegna þessa, segir meðal annars:
Byggingaframkvæmdum viö
Kröfluvirkjun er nú að miklu leyti
lokið og raforkuframleiðsla hafin
fyrir nokkru. Hlutverk Kröflu-
nefndar og umsvif hafa þvi
minnkað að mun og eru nú eink-
um rekstrarlegs eðlis.
— Ef menn halda að þetta sé
einhver uppgjöf af minni hálfu þá
er þaö mesti misskilningur, —
sagði Jón Sólnes i samtali við
Timann i gær.
— Eins og tilkynning iðnaöar-
ráðuneytisins ber með sér, þá eru
framkvæmdirnar einfaldlega
komnar á það stig, að ekki er þörf
fyrir að halda úti sérstökum
framkvæmdastjóra nefndarinn-
ar. Hlutverk Kröflunefndar er nú
einkum rekstrarlegs eðlis þar eð
Jón Sólnes
framkvæmdum á hennar vegum
er þvi sem næst lokið.
Það þýðir vist ekki aö tala um
aðm eö þessu sé veriö að spara, —
sagði Jón — þvi okkur á vist að
vera alls varnað i þeim efnum. —
Aðspurður um hvort ekki hefði
verið timafrekt að gegnai senn
starfi formanns og framkvæmda-
stjóra Kröflunefndar og sitja auk
þess á Alþingi, sagði Jón, að yist
hefði það veriö.
— Menn halda að það sé eitt-
hvert sældarlif að standa i þessu
en það er öðru nær. Það eru ófáar
nætur og helgar sem maöur hefur
þurft að eyða vegna þessarar
virkjunar. Það getur fjölskylda
min aö minnsta kosti staðfest”,
sagði Jón G. Sólnes að lokum.
Beðið eftir svari
Inga R.
Helgasonar
GEK—Svo sem kunnugt er skrif-
aði Ingi R. Helgason lögmaður
Alþýðubankans rikissaksóknara
bréf fyrir nokkru siöan, þar sem
hann fór fram á að opinber rann-
sókn yröi gerð á störfum hans
fyrir Alþýðubankann. Tilefni
þessarar óskar voru ummæli sem
birtust i einu dagblaðanna fyrir
skömmu varðandi Alþýðubanka-
málið svonefnda.
Aö sögn Þórðar Björnssonar
rikissaksóknara, hefur mál Inga
R. Helgasonar ekki verið afgreitt
frá embætti hans ennþá, en núer
beðið eftir þvi að lögmaðurinn
svari bréfi rikissaksóknara þar
sem farið var fram á ákveðnar
upplýsingar varðandi málið.
— Þar til svar Inga R. Helga-
sonar hefur borizt, mun mál hans
biða á borðinu hjá mér, sagði
Þórður Björnsson rikissaksókn-
ari i samtali við blaðamann Tim-
ans i gær.
Barnakórakeppni Norðurlanda:
í siðasta skipti hér
á landi
— kostnaður illviðráðanlegur
Kás—Fyrirtólf árum hófst sam-
starf norrænna útvarpsstööva um
að örva og styrkja starfsemi
barna- og unglingakóra, og var
það markmið með þessari starf-1
semi að Norðurlöndin gætu eign-
azt kóra á þessu sviði á borð við
þá beztu i Evrópu.
Rikisútvarpið hefur tekið þátt i
þessari starfsemi, og á þessum 12
árum hafa tveir islenzkir kórar
verið þátttakendur i þessari
keppni, Kór öldutúnsskóla ogKór
Menntaskólans i Hamrahlið. Er
óhætt að segja að þessi keppni
hafi markað þáttaskil i allri starf-
semi beggja kóranna og orðið
lyftistöng í starfsemi annarra
barna- og unglingakóra, sem i
auknum mæli eru farnir að bera
sig saman við þessa tvo kóra.
Að þessu sinni verður barna-
kórakeppni Norðurlandanna
haldin hér á landi hinn 13. júni
nk., og er það jafnframt i siðasta
sinn sem þessi keppni er haldin. 1
tengslum við keppnina munu nær
200 norræn ungmenni dvelja hér-
lendis dagana 12.-18. júni við
samkeppni i kórsöng og söng-
skemmtunum fyrir almenning.
M.a. munu kórarnir taka þátt i
þjóðhátiðarhátiöarhöldunum 17.
júnl og koma fram á skemmtun-
inni á Arnarhóli.
Kórarnir sem taka þátt i keppn-
inni eru: Kór öldutúnsskóla i
Hafnarfirði, stjórnandi Egill
Friðleifsson, frá Noregi stúlkna-
kór Nöklevannskóla, stjórnandi
Per Skjölsvik, frá Danmörku
Danski drengjakórinn, stjórnandi
Jörgen Bremholm, frá Sviþjóð
stúlknakór tónmenntadeildanna i
Stokkhólmi, stjórnandi Bo
Johansson, og frá Finnlandi
Kontulan Lapsikuoro, stjórnandi
Eila Lepistö. Dómari i keppninni
fyrir Islands hönd er Þorgerður
Ingólfsdótlir,
Dagana 14.-16. júni munu
norrænu kórarnir dvelja i Skái-
holti i boði Kórs öldutúnsskóla,
en þar munu færustu söngstjórar
Norðurlandanna þjálfa þá sam-
eiginlega og samræma þá söng-
tækni, sem beztan árangur hefur
gefið.
Eins og áður er getið er þetta i
siðasta sinn sem keppnin verður
haldin. Bæði hefur kostnaður
vegna hennar farið árlega vax-
andi, svo illviðráðanlegur hefur
orðið, og eins hitt að árangur
þessarar samvinnu norrænna út-
varpsstöðva er orðinn svo mik-
inn, að menn eru sammála um aö
beztu barnakórarnir séu orðnir
það góðir, aö erfitt muni reynast
að bæta þar um.
veiðihornið
Mjög góð veiði á
1. degi i Norðurá
í gærmorgun hófst lax-
veiðin i Norðurá, þ.e. á
svæði II ofan við Laxfoss
og Norðurá IV frá veiðisvæði
neðan Stekks að Norðurárbrú
við Hauga. Það var að venju
stjórn Stangveiðifélags
Reykjavikur sem hóf veiðina
og veiddu þeir 19 laxa á fyrsta
degi. — Við megum vera
ánægð ef þetta heldur svona
áfram i sumar, sagði Ingi-
björg i veiðihúsinu við
Noröurá er Timinn haföi tal af
henni. Stærsti laxinn . sem
fékkstúr Norðurá i gær var 13
pund, en laxarnir voru frá 8-13
pund að stærð.
A öðrum svæðum i Norðurá
hefst veiðin sem hér segir:
Norðurá I 3. júni og Norðurá
III22.júni. I Norðurá veiddust
alls 1470 laxar árið 1977.
Laxveiðin 1977
Sumarið 1977 veiddust hér á
landi alls 64.575 laxar að
heildarþunga 230 þúsund kiló
samkvæmt upplýsingum
Veiðimálastofnunar. Hlutfall
stangarveiði i allri laxveiöinni
var 66%, og er það heldur
lægra hlutfall en verið hefur
undanfarin ár, þegar hlutur
Laxeldisstöðvar rikisins i
Kollafirði og Lárósstöðvarinn-
ar hefur verið dreginn frá
heildarveiðinni. Veiöin varð
8% betri en sumarið 1976.
Fjórða bezta
laxveiðiárið
Laxveiðin var um 10 þúsund
löxum yfir meðaltali sföustu
10 ára, og var þetta 4. bezta
laxvei'iiárið hér á landi, en
laxafjöldinner svipaður og ár-
in 197,‘í og 1972, sem voru ann-
að og þriðja bezla laxveiðiárið.
Hins vegar veiddust 74 þúsund
laxar metlaxveiðiárið 1975 og
verður trúlega einhver biö á
þvi að það met verði slegið, en
þó er aldrei að vita nema þaö
geristá næstu árum, ef marka
má þann ótrúlega stiganda
sem verið hefur i laxveiði hér
á landi siðustu áratugi.
Þannig jókst meöalveiöin um
helming á fimm ára timabili
frá 1970-1975 frá þvf sem verið
hafið fimm árin þar á undan.
Veiðin breytileg
Netaveiðin var yfirleitt góð
og mjög góö á vatnasvæöi
Ölfusár-Hvitár, en þar fengust
að þessu sinni rúmlega 11 þús-
und laxar. Þá var skinandi góð
veiði i Þjórsá og varö þetta
langbezta veiði þar. I Hvitá i
Borgarfiröi fengust rúmlega 6
þúsund laxar i netin, og i heild
varð veiöin á vatnasvæði Hvit-
ár alls 12.558 laxar og þvi rúm-
lega 6þúsundá stöngina. Varö
veiði þvi svipuð I heild á
Ölfusár-Hvitársvæðinu og á
Hvitársvæðinu i Borgarfirði,
en fyriTgreinda svæöið hafði
vinninginn með tæplega 13
þúsund laxa.
Stangarveiðin var i heild
góð, en nokkuð misskipt eftir
landshlutum. Þannig var að
jafnaði metveiði i laxveiðiám
á vestanveröu Norðurlandi og
i ám I Þingeyjarsýslum og i
Vopnafirði og i Breiödalsá i
Suöur-Múlasýslu. Sömu sögu
er ekki að segja af veiöi á
Suöurlandi, Vesturlandi og
Vestfjörðum, þó að undan-
tekning sé frá þvi. Þannig
varð metveiði i Þverá i
Borgarfirði og þar veiddist
stærsti stangarveiddi laxinn,
svo að vitað sé, og var það 28
punda lax. Þá er vitaö um tvo
28 punda laxa, sem veiddust i
net i ölfusá frá Laugadælum.
Laxá i Aðaldal
bezta laxveiðiáin
Bezta stangarveiðiáin var
Framhald á bls. 23