Tíminn - 02.06.1978, Side 12
12
ílliJíSíIf
Föstudagur 2. júni 1978
llHflhullO
áburðardreifarar
Eigum á lager Bögballe 325/B _
Verö kr. 87.852,—
Einnig Gandy
mönduldreyfara 12 feta
KaupSélögin IaI
UM AIXTIAND L^J
Samband islenzkra samvmnufélaga
VELADEILD
Ármula 3 Reykjavik simi 38900
Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti
/
Athygli skal vakin á þvi að auglýstar hafa
verið kennarastöður við Fjölbrautaskól-
ann i Breiðholti og er umsóknarfrestur til
15. júni n.k.
Umsóknareyðublöð fást i menntamála-
ráðuneytinu, fræðsluskrifstofu Reykja-
vikur og á skrifstofu skólans.
Einkum er um að ræða kennarastöður i
raungreinum svo og við kennsludeildir
verknáms þ.e.a.s. málmiðnadeild, raf-
iðnadeild og tréiðnadeild.
Þá vantar kennara i viðskiptagreinum,
félagsgreinum, tónmenntum, iþróttum og
mynd og handmenntum. Skólameistari
verður til viðtals i skólanum við Austur-
berg fyrir væntanlega umsækjendur frá
mánudegi 5. júni til fimmtudags 8. júni, -
9—12 alla dagana og kl. 15—18 (3—6), mið-
vikudaginn 7. júni og fimmtudaginn 8.
júni.
Skólameistari
Utankjörfundarat-
kvæðagreiðsla
í Kópavogi
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla i
Kópavogi vegna alþingiskosninganna 25.
júni 1978 hófst mánudaginn 29. mai og
verður fram á kjördag hinn 25. júni.
Opið verður eins og hér segir:
Mánudaga til föstudaga kl. 10—15 og kl.
18—20, laugardaga kl. 10—12,13—15 og kl.
18—20 og sunnudaga kl. 10—12.
Atkvæðagreiðslan fer fram á lögreglu-
stöðinni að Auðbrekku 57, 1. hæð.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Vorkappreiðar Fáks:
„Við verðum
- eldri, &f þvi.-
við erum
hestamenn”
Fáksmenn létu geöstiröa
veðurguöi ekki aftra sér frá að
halda vormót sitt á Viöivöllum
27. mai s.l. A vormóti eru ein-
göngu háðar kappreiöar, og
auövitað er lftil von um mikinn
árangur i roki og rigningu eins
og var mótsdaginn. 1 upphafi
mótsins var Þorgeir Jónsson i
Gufunesi heiðraður fyrir þátt-
töku sina i mótum Fáks i fimm-
tiu ár. Guðmundur Clafsson^for-
maður Fáks, afhenti Þorgeiri
silfurbikar frá félaginu og Þor-
geir þakkaði fyrir með stuttu
ávarpi. Hann sagði m.a.: „Það
er oft sagt við mig að ég eigi að
hætta þessu af þvi að ég sé orð-
inn of gamall. En ég svara aö ég
verðialdrei of gamall til að fara
á hestbak. Og ég er viss um að
við verðum eldri en aðrir, af þvi
að við erum hestamenn”. Þor-
geir lagði Þór, hestinn sem hann
keypti fyrir tiu trippi af Andrési
á Kviabekk, og það kom I ljós að
Þór ætiar ekki að verða dóm-
greind Þorgeirs til skammar,
hann rann skeiðið á 24,0 sek.
sem er ágætur timi hjá 7 v. hesti
meö litla keppnisreynslu. Til
samanburðar má geta þess að
timi Þórs er sá sami og Leiknir
sigraði á I Evrópumótinu I Dan-
mörku i fyrra. Ég tel vist að all-
ir hestamenn, og kannski marg-
ir aðrir, taki undir með mér og
samgleðjist Þorgeiri með að
hafa enn einu sinni komið fram
með vekring i fremstu röð og
ætli það geti ekki verið að Þór sé
beztur þeirra allra?
Skeiðið tókst betur nú en á
hvitasunnukappreiöunum, fleiri
hestar skiluðu heilum spretti og
árangur varð jafnari. Fannar er
hinn öruggi sigurvegari þótt
hann hafi aðeins skilaö öörum
sprettinum á þeim tvennum
kappreiðum sem hann hefur
tekið þátt i i ár. Timinn var 23,1
sek. Aðalsteinn bað mig reynd-
ar að athuga vel hvort Fannar
færi ekki örugglega á skeiði, en
ekki tölti eins og mér sýndist
Hjörvar gera hjá honum á
hvitasunnunni. Ás lá báða
sprettina á 23,7 sek. og varð
annar, en Vafi varð þriðji á 23,8
sek. Hrannar sannaði að hann
er óumdeilanlega meðal þeirra
allra beztu, hann hljóp fyrri
sprettinn á 24,0 sek. og þann
seinni á 23,5sek., en rétt áður en
hann fór yfir marklinuna varð
hann fyrir truflun og hljóp upp.
öfugt við skeiðhestana gekk
brokkurunum mun verr nú en á
hvitasunnunni. Enginn þeirra
brokkaði alla leið i seinni um-
ferð,en fimm af fjórtán i skrá
skiluðu brokki allan fyrri
sprettinn. Blesi sigraði á 1:45,0
min., annar varð Léttir á 1:50,4
min. og þriðji Faxi á 1:51,4 min.
Faxi var einn þeirra sem hljóp
upp i báðum ferðum og mér
sýndist ekki fritt viö að hann
hlffði fæti.
Stökkkeppnin var nokkuö jöfn
og spennandi I öllum hlaupum.
Þróttur og Blákaldur hlupu nú
800 m. Ég gæti trúað að það
hentaði Þrótti betur, en Blá-
kaldur virðist vera nokkuð jafn-
vigur á allar vegalengdir, hann
er oftast framarlega, en nær
sjaldan að sigra. Jerimias hljóp
illa og lenti i sjötta sæti með lé-
legan tima en Björn Baldursson
hleypti lika Gusti og náði öðru
sæti á honum. Þjálfi virðist al-
veg öruggur með að sigra þá
hesta sem keppt hafa við hann I
vor, hann varö fyrstur nú á 65,1
sek. Þriðji varð Ægir á 66,5 sek.
Þorgeir f Gufunesi var heiöraður
fyrir hálfrar aldar þátttöku i
mótum Fáks.
og fjórði Þróttur á 66,9 sek.
Frfða Steinarsdóttir sat sigur-
vegarana i 350 m stökki og ung-
hrossahlaupi. Friða situr mjög
vel og er óumdeilanlega i
fremstu röð knapa. Einhver
haföi orð á þvi við Sigurbjörn
Bárðarson (mann Friðu) að nú
gæti hann séð hvaða afbragðs
konu hann ætti, en hann lét eins
og hann hefði alltaf vitað það.
Glóa varð sjónarmun á undan
Loku ímark;báðar hlupu 350 m
stökkið á 25,0 sek. Þriðji varð
Bleikur, 9 v., úr Borgarfiröi,
eigandiPétur Lárusson. Bleikur
þessi hljóp á hvitasunnukapp-
reiðum bæði i fyrra og I ár, án
verulegs árangurs, 30,0 sek. i
fyrra en 29,0 f ár. Nú hafði veriö
skipt um knápa; Aðalheiður
Einarsdóttir, dóttir Kolbrúnar
Kristjánsdóttur, sat hann og
hefur sýnilega erft knapahæfni
móður sinnar. 1 úrslitum hljóp
Bleikur á 26,4 sek. en 26,3 I
undanrás. Guðrún Fjeldsted
tekst ekki jafnvel með Lottu og
Þjálfa. Lotta er ákaflega ör og
ókyrr á rásmarki og eyðir þar
mikilli orku og hefur þvi af
minna að taka i hlaupinu. Hún
náði þó 26,4 sek. i undanrás, og
komst i úrslit, en þar brást hún
og varð siðust á 27,5 sek.
1 unghrossahlaupinu hlupu
þrjú hross á sama tima, 19,0
sek., og knaparnir urðu ásáttir
um að fara aukasprett um röð-
ina. Þá varð Reykur fyrstur,
Framhald á bls. 23 .
As liggur, en Vafi og Þór eru hlaupnir upp.
Brokkarinn Blesi og eigandinn, Valdimar
Guðmundsson.
Þau horfast hýrlega i augu, Aðalheiður og
Viihjálmur, við verölaunaafhendinguna fyrir
350 m stökk. Frá vinstri; Bleikur, Loka og Glóa.
. Augnabliki eftir að myndin var tekin hljóp
Hrannar upp, en Hofstaða- Jarpur var kominn
á stókk.
Crslit 1800 m stökki. Frá vinstri; Þjálfi, Þróttur, Gióa og Loka hlupu á sama tima, en Glóa vann á
Gustur, Ægir, Kóngur * og Jeremias. sjónarmun.