Tíminn - 07.06.1978, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.06.1978, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 7. júni 1978 I18,tölublað—62. árgangur Meginverkefnið að ráðast gegn Bls. verðbólgunni 9 Slðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Smokie og hirð í Reykjavík 13-14% hækk- un fiskverðs GV — Yfirnefnd VerMagsrá&s sjávarútvegsins ákvaö á fundi sinum i gærkvöldi nýtt fiskverð, sem gildir frá 1. júni til 30. seþtember n.k. Nýtt fiskverð er um 13.5-14% hærra en það verð sem gilti til maíloka. Þorskur hækkar um 12.7%, ýsa um Í2.6%, ufsi um 26,9%, karfi um 15,3% og steinbitur um 18.6%. Nánar verður greint frá fiskverðshækkuninni i blaðinu á morgun. íslending- ur kemst í tæri við færeyska réttvisi — dæmdur í 3 mánaða fangelsi í fyrir ávisana- fals, þjófnaði og fl. íslendingur einn, sem verið hefur i FærQfjum siðan 30. april siðastliðinn, var nýlega dæmdur þar i þriggja mánaða fangelsi. Hann var sekur fundinn um skjala- og ávisanafalsanir og þjófnaði. Einnig kom i ljós, þegar farið var aö kanna feril þess manns, að hann hafði ekki land- gönguleyfi i Danaveldi, honum hafði verið visað úr landi i Danmörku og gildir það til 1. júli 1981, en þar sem honum var ekki kunnugt um, að bannið gilti einn- ig i Færeyjum var hann sýknaður af þessu ákæruatriði, að þvi er segir í frétt i færeyska blaöinu 14. september. Meðal þess, sem hann var dæmdur fyrir, var að framselja islenzka ávisun i færeyskri verzlun. Var hún úr stolnu islenzku tékkhefti. Hafði hann falsað undirskrift á hana, strikað út nafn Islenzka bankans og skrif- að Föroya Banki á hana I stað- inn. Þá hafði hann framselt fals- aða ávisun i annarri verzlun að upphæð 100 kr. færeyskar og fengið hana útborgaða. Hann var einnig sekur fundinn um úlpu- og húfustuld á Hótel Færeyjum og minni háttar þjófnaði aöra. Auk þriggja mánaða fangelsis- dóms var honum gert að greiða viðkomandi aðilum alls 550 færeyskar krónur og allan máls- kostnað. Hann hefur nú afplánað einn mánuð i fangelsi, en sem stendur er verið að athuga hvort unnt verði að láta hann taka út refsinguna hér á landi. Þetta eru meölimir popp- hljómsveitarinnr „Smokie”, sem unga fólkið i Reykjavik bíður væntanlega eftir með óþreyju, en hljómleikar þeirra verða i Laugardalshöll i kvöld. „Smokie” kom I gær til Kefla- vikur ásamt 20 manna fylgd- arliði og voru þeir nokkuð SSt -pFullar visitölubætur á laun borgarstarfsmanna hafa veriö á dagskrá hjá okkur, og ýmissa gagna þar að lútandi verið aflað, en engin ákvörðun um hvað gert verði i þeim efnum hefur verið tekin ennþá. Ég hef lýst þvi yfir áður, og get endurtekið það nú, aö ég mun ekki verða til fyrirstööu i þvl máli,” sagði Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi hressir eftir atvikum, — alla vega ekkert likir „Strangiers” forðum daga. Rétt þótti þó að stöðva farangur þeirra i tollin- um oggrandskoða hann. Ekk- ert höfðu þeir hugsað um, hvar þeir verðu fyrsta kvöld- inu, — ætluðu I öllu falli ekki að hlusta á Rostropovitch, — sagði Kristján Framsóknarflokksins, I samtali við Timann i gær aöspurður um hvort nýi meirihlutinn væri búinn að taka endanlega afstööu til vlsi tölubótanna, en þaö mun kosta um 700 milljónir að greiða fullar vísitölubætur á laun borgar- starfsmanna til ársloka. Fundur var hjá borgarráöi I gær, og sagði Kristján að þaö hefði einungis veriö venjulegur afgreiðslufundur. sem þeir höfðu aldrei heyrt minnzt á. Prógrammið, sem þeir verða með i Lauga rdalshöll, er hið sama og þeirhafa flutt á popp- hátiðum á Norðurlöndum und- anfarið viö góðan orðstir. Timamynd: G.E. fullar ekki Benediktsson Kristján vildi litiö segja um málefnasamning meirihlutans annað en þaö, að „verið væri að rabba um hann”. Hvort meirihlutinn væri farinn að lita alvarlega^ I kringum sig eftir borgarstjóra, sagði Kristján svo ekki vera, og ,,ég vona að Reykvikingar geti veriö án formlegs borgarstjóra I nokkrar vikur eöa svo,” sagði Kristján aö lokum. LÚÐVÍK SLÆR í ALLAR ÁTTIR Lúövik Jósepssyni þykir ekki mikið koma til kosninga- sigurs Alþýðubandalagsins i Reykjavik. I grein sem hann skrifar i Þjóðviljann sl. sunnu- dag hefur hann þaö meira að segja að millifyrirsögn aö „Ihaldið féll i Reykjavik vegna þess aö þar voru engin smáflokkaframboð”. Með þessu er Lúðvik vænt- anlegaað gefa flokksmönnum sinum i höfuðborginni merki um að þeir skuliekki reyna að setja sig á háan hest innan flokksins. Eftir þvi var reynd- ar tekið dagana eftir kosning- arnar að þeir fóru sér undra hægt og báru þvi við að ekkert væri hægt að gera strax vegna þess aö „Lúðvik er ekki kom- inn i bæinn”. Það hefur ekki vakið minni athygli að i grein sinni telur Lúðvik Jósepsson það núver- andi rikisstjórn einkum til vanza að hafa haldið áfram framkvæmdastefnu vinstri- stjórnarinnar varðandi Kröfluvirkjun og verksmiðj- una á Grundartanga. Lúðvik kallar þessa stefnu hvorki meira né minna en „fjármála- afglöp”. Auðvitað lætur Lúðvik þess ekki getið að hann sat s jálfur i vinstristjórninni og átti fullan þátt i ákvörðunum hennar. Hann getur þess vitanlega ekki heldur, aö Ragnar Arnalds, fyrrum formaöur Alþýðubandalagsins, hefur allan timann setið viö hliö Jóns Sólness og fleiri i Kröflu- nefnd sem kunnugt er. Og náttúrulega nefnir Lúðvik þaö ekki að Magnús Kjartansson vopnabóðirhans var á þessum árum ráðherra iðnaöar- og orkumála og beitti sér hvaö ákafast fyrir báöum þessum framkvæmdum. Lúðvik Jósepsson er með öðrum oröum ekki aðeins aö snupra flokksbræöur sina i Rey kjavik i þessari grein, sem hann sjálfur segir að sé opin- ber yfirlýsing sin um upphaf kosningabaráttunnar. Fyrst og fremst er hann að kasta hnútum til Ragnars Arnaids, sem hrökklázt hefur af formannsstóli fyrir offorsi Lúðviks, og til Magnúsar Kja rtanssonar, en sá þáttur málsins ber ekki vitni mikilli háttvisi eða hlýju bróðurþeli. Ungur maður handtekinn fyrir innbrot og nauðgun bls. 3. Sleppur fálkafangar- inn úr landi i kvöld? Sjá bls. 24 Opnar Gunnlaug ur Elliðaárnar? Flest virðist nú benda til þess að óformlegur borgar- stjóri, Gunnlaugur Pétursson, opni Elliöaárnar næstkomandi laugardag, en þá hefst veiði I ánum, að þvi er Friðrik Stefánsson hjá Stangaveiði- félagi Reykjavikur tjáði blaðinu I gær. Venjan hefur verið sú und- anfarin ár,að borgarstjóri veiði I ánum fyrsta veiöidag hvers sumars, en þar' sem enginn „ekta” er nú til staðar veröur það að öllum likindum varamaður hans, sem veiðir fyrst i ánum. Myndin hér fyrir ofan var tekin fyrir réttum þremur árum og sýnir Birgi ísleif Gunnarsson þáverandi borgarstjóra nýbúinn að landa einum. Rainbow Warrior eltir hvalveiði- skip á heimleið — sjá baksiðu Skipverjará hvalveiðaskipum urðu fyrst varir viö Rainbow Warrior er skipið elti einn hvalveiðabátinn i gær. For- svarsmenn Greenpeace-sam- takanna um borð t Rainbow warrior sendu Kristjáni Eld- járn forseta fslands boð, þar sem krafist var 10 ára hval- veiðabanns. Skipverjar á Rainbow Warrior bíða nú svars frá yfirvöldum, en munu næst hafa samband við skip- verjaá hvalbátunum islenzku. Kristján Loftsson sendi skip- verjum skeyti i fyrradag og hótar að kæra skipið og skip- verja ef þeir hafi einhver af- skipti af hvalbátum Hvals hf. Sjá nánar á baksiðu, þar sem yfirlýsing skipverja á Rain- bow Warrior er birt. „Ákvörðun um vísitölubætur tekin ennþá”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.