Tíminn - 07.06.1978, Side 24
Sýrð eik er
sígiid eign
A IIUfcCiÖCiH
// 1 /7 \\ TRÉSMIDJAN MEIDUR
'\|// W SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Gagnkvæmt
tryggingaféfag
GIST1NG
MORGUNVERDUR
1 lUOARÁRSTÍG 18| HmLil l[ .I ^ 1 1^0 *
Miðvikudagur7. júní 1978 118.tölublað—62. árgangur
Sleppur fálka-
fangarinn
úr landi?
Mál hans sent ríkissaksóknara í gær
GEK — Mál þýzka fálkaveiöi-
mannsins, Konrads Chicielskys,
sem veriö hefur til meöferöar
hjá embætti lögreglustjórans I
Reykjavik frá þvf hann var
leiddur til yfirheyrslu sl. sunnu-
dag, var I gær sent saksóknara
rikisins til ákvöröunar um frek-
ara framhald.
Svo sem fram hefur komiö,
var Þjóöverjinn eingöngu yfir-
heyrður um ferðalag sitt um
landiö I sföustu viku, en vitaö er
til þess aö hann hefur veriö hér
á ferö aö minnsta kosti tvö
siöustu ár.
i biaöaviðtölum hafa þeir dr.
Finnur Guömundsson fugla-
fræöingur og Birgir Thorlacfus
ráöuneytisstjóri báöir látiö f
ljósi áhuga á aö Þjóöverjinn
veröi yfirheyröur um fyrri ferö-
ir sinar hér, og þá einkanlega
hvort hann hafi skiliö eftir
fálkaungana 5, sem fundust i
flugstööinni I Keflavik fyrir
tveimur árum.
Blaöamaöur Timans spuröi i
gær Wiiliam Möller, fulltrúa
iögreglustjórans i Reykjavik af
hverju Konrad Chicielsky heföi
ekki veriö spuröur út I fyrri
feröir sinar um iandiö þegar
hann var yfirheyröur á sunnu-
dag.
Sagöi William, aö ekki heföu
legiö fyrir neinar skýrsiur um
fyrri ferðir mannsins hér þegar
yfirheyrslurnar fóru fram, utan
óijósar og óstaöfestar lausa-
fregnir.
Meö hliðsjón af þvi, og einnig
hinu, aömaöurinn gaf loforö um
aö yfirgefa ekki Reykjavik án
þess aö tilkynna þaö, heföi ekki
þótt ástæöa til annars en aö
sleppa manninum þegar yfir-
heyrslum lauk um klukkan 10 á
súnnudaeskvöldið.
Sagöi Wiliiam, aö siöar heföu
þeir fengiö nánari vitneskju um
fyrri ferðir Þjóöverjans hér á
landi og heföu þau plögg veriö
send embætti rikissaksóknara
ásamt skýrslum lögreglustjóra-
embættisins um yfirheyrslurn-
ar. Þess má aö lokum geta, aö
Konrad Chidielský og sonur,
hans sem verið hefur meö
honum I þessari ferö, eiga bókaö
far meö m.s. Mánafossi sem
lætur úr höfn i Reykjavik I
kvöld.
Greenpeace- samtöKin:
Kref jast 10 ára hval-
veiðibanns við ísland
• Hvalur hf. hefur hótað að kæra Rainbow Warrior
GV—Við komu Rainbow Warrior
á hvalaslóöir i fyrradag, sendu
skipverjar forseta Islands
Krstjáni Eldjárn, skeyti þar sem
þeir óskuöu eftir þvi aö sett veröi
á 10 ára h valveiöibann viö Island
og biöa skipverjar nú eftir
viðbrögöum yfirvalda. Þá hefur
KristjánLoftsson, forstjóri Hvals
hf., sent skipverjum skeyti þar
sem hann hótar að kæra
skipverja á Rainbow Warrior ef
þeir hafi einhver afskipti af veið-
um hvalbátanna. Þetta kemur
frairi I yfirlýsingu Green peace
samtakanna, sem skipverji á
Rainbow Warrior las upp fyrir
blaðamanni Timans i gær, og^er
yfirlýsingin birt hér siðar i frett-
inni.
— Viö munum biöa og sjá hvað
setur, og þaö fer eftir þvi hvernig
málin þróast hve lengi við verö-
um hér, sagöi skipverjinn á
Rainbow Warrior, er hann var
spurður um hvort þeir ætluöu aö
láta til skarar skriða á næstunni
og gera alvöru úr þvi aö sigla i
skotlinu hvalveiöaskipanna á
gúmbátum. Það næsta, sem
skipverjar á Rainbow Warrior
hyggjast gera, er að senda
skipverjum á hvalbátunum
islenzku persónuleg boö. Blm-
spuröi hver efnisatriði þeirra
boöa væru og var svariö aö þau
fjölluðu um hvali. Rainbow
Warrior var i gær staddur
skammt undan Akranesi.
Yfirlýsing skipverja á Rainbow
Warrior: Islenzkur floti hval-
veiðaskipa stundar veiöar á
hverju sumri a hvalaslóðum,
sem eru vestarlega á landgrunni
Islands. Strax eftir komu togara
Greenpeace samtakanna,
Rainbow Warrior, var sent skeyti
til Kristjáns Eldjárn, forseta
Islands, þar sem óskaö var eftir
10 ára hvalveiöibanni i samræmi
við kröfu alþjóölegra visinda-
manna og Umhverfisverndar-
áætlunar Sameinuöu þjóöanna.
íslenzka stjórnin hefur ekki enn
látiö neitt frá sér heyra en i gær
(mánudag) fengum viö boö frá
Hr. Kristjáni Loftssyni, forstjóra
Hvals hf., sem gerir út hvalbát-
ana fjóra og rekur hvalstöðina
islenzku. Kristján Loftsson er
einnig fulltrúi i Alþjóöa hvalveiöi-
ráöinu, sem var stofnaö af helztu
hvalveiöaþjóöum heims, til að
standa vörö um „skipulega þróun
hvaliðnaðarins.” Kristján
Loftssonhótaöi þvi, að kæra „alla
togara, þar meö talinn Rainbow
Warrior, sem ráögera eöa
framkvæma einhver afskipti” af
hvalveiðaskipunum hans.
Kristján Loftsson skýröi einnig
frá þvi aö hann muni haida skip-
inu sem tryggingugegn greiðslu á
ölium skaöa, sem veröur á
fjárhagslegum hagsmunum hans,
ogað hann afsali sér allri ábyrgö
á þeim skaöa, sem kynni aö
henda Rainbow Warrior eða
áhöfn hans viö afskipti af
hvalbátunum.
Forsvarsmenn Greenpeace
samtakanna um borö I Rainbow
Warrior kaila viöbrogð Kristjáns
Loftssonar við heimsókninni
„óviðeigandi þorskastriðsfram-
komu og algjörlega ófullnægjandi
hátt á viðureigninni viö hval-
vandamálið, sem allri veröldinni
er orðið meir og meir umhugaö
um.”
Rainbow Warrior mun halda
áfram aö fara sinu fram á
alþjóölegu hafsvæði við tsland
óvissir um frekari framvindu
mála, eftir aö hafa fylgt fyrsta
hvalveiðiskipi Kristjáns Lofts-
sonar á heimleiö, meö tvo dauða
reyðarhvali, án þess að kæmi til
aögeröa af hálfu hvorugs aöilans.
Sellóleikarinn
Lynn Harrel
kominn
Bandariski selióleikarinn
Lynn Harrel, var spotzkur á
svip og léttklæddur, þegar
hann kom tii landsins i gær, en
hingaö er hann kominn á veg-
um Listahátiðar. Lynn Harrel
er vei þekktur i heimalandi
sinu og hefur hvarvetna hlotiö
lof, þar sem hann hefur leikiö.
Hann er aðeins þritugur að
aldri, en hefur nú þegar unnið
til margra verölauna, m.a.
hinna eftirsóknarveröu Avery
Fisher- verðlauna I janúar
1975.
Lynn Harrel verður I
Laugardalshöil n.k. föstu-
dagskvöld og leikur þá ásamt
israelska fiðluleikaranum
Itzhak Perlman einleik með
Sinfoniuhljómsveit tslands.
Stjórnandi veröur Ashkenazy.
Á efnisskrá er m.a. Konsert
fyrir fiölu, celló og hljómsveit
I a-moll op. 102 eftir J.
Brahms.
Timamynd: G.E.
Hrauneyjarfossvirkjun
26 milljarða lán
Fyrri vélasamstæða á að vera komin í rekstur 1981
t frétt frá Landsvirkjun kem-
ur fram, að framkvæmdir við
Hrauneyjarfossvirkjun séu nú
aö hefjast.ogað i ráðisé að taka
að láni til verksins 103 milljónir
Bandarik jadollara hjá
Hambrosbanka og fleiri lána-
stofnunum, en þetta mun nema
um 26.8 milljörðum Islenzkra
króna. Heildarstofnkostnaður
mun hins vegar vera um 127
milljónir Bandarikjadala, eö
rúmir 33 milljaröar. Verður
mismunurinn fjármagnaöur
með fé úr rekstri Landsvirkjun-
ar og framlögum eigenda.
Nettó skuldaaukning Lands-
virkjunar á byggingartima
Landsvirkjunar áætlast hins
vegar ekki hærri en um 38 millj-
ónir dollara, sem er jafnvirði
10 milljaröa Isl. króna.par sem
afborganir á sama tima áætlast
um 65 milljónir dollara, eða
jafnvirði 17 milljaröa isl. króna.
Gröftur fyrir stöövarhúsi
Framhald á bls. 16
Lúðvík vildi skera
niður útflutnings-
bæturnar
Alþýðubandalagsmenn hafa
reynt aögefa sig út fyrir aö vera
miklir vinir bænda upp á sið-
kastiö. Söluvandamál landbún-
aöarins segja þeir aö ekki séu
fyrir hendi. örðugleikarnir sem
steðja aö Islenzkum bændum
segja þeir að séu þvi einu um að
kenna aöforystumenn bænda og
landbúnaöarráðherra hafi ekki
staöiö sig.
Með töfrasprota i hönd hyggj-
ast þeir auka sölu landbúnaöar-
afurða, og nægi aö „réttir”
menn veljist i ,rétta” stóla á
„réttum” tfma.
Þegar þessi áróöur þeirra er
hugleiddur vekur það óneitan-
lega mikla furöu aö Lúövik
Jósepsson haföi þaö eitt fram að
færa i veröbólgunefndinni I
vetur að skera útflutningsbætur
á landbúnaðarafurðir stórkost-
lega niöur.
Þaö væri ekki úr vegi að Þjóð-
viljinn reyndi nú að rekja þess-
ar tillögur Lúðviks i verðbólgu-
nefndinni og gera grein fyrir
áhrifum þeirra á hag Islenzkra
bænda.
Bændastéttin hefur vafalaust
áhuga á aö vita til fulls hvers
konar skollaleikur það er sem
Alþýöubandalagið er aö leika I
landbúnaöarmálunum.