Tíminn - 30.06.1978, Side 6

Tíminn - 30.06.1978, Side 6
6 Föstudagur 30. júnl 1978 Við þurfum að byggja flokkinn upp að nýju — segir Alexander Stefánsson í Ólafsvík, nýkjörinn þingmaður Framsóknarflokksins í Vesturlands- kjördæmi Alexandcr Stefánsson Alexander Stefánsson er aö þessusinni éini nýliöinn I þingliöi Framsóknarflokksins. Alexander hefur raunar veriö varaþingmaö- ur frá þvi 1971, en hefur ekki komiö inn á þing siöan 1973. Starfsvettvangurhans hefur fyrst og fremst veriö sveitarstjórnar- mál. Hann hefur veriö oddviti og sveitarstjóri i Ólafsvik siöan 1966. Hann er i stjórn Sambands is- lenzkra sveitarfélaga og Hafna- sambands sv eitarf élaga . Alexander er fyrsti formaöur Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi. Hann hefur veriö varaformaöur bankaráös Otvegsbankans frá þvi i ársbyrj- un 1977. Nýjar aðferðir i áróðurstækni — Kosningabaráttan var mjög hörð og Framsóknarflokkurinn i erfiöri varnarstööu á Vesturlandi eins og viöar, —■ sagöi Alexander Stefánsson þegar Timinn ræddi viö hann aö loknum kosningum. — Það voru vonbrigöi, þvi flokk- urinn hefur haft ábyrga afstööu til mikilvægra mála að okkar mati og ekki sizt barizt fyrir efl- ingu byggöa i landinu og atvinnu- öryggi. Ég held aö aöalorsök þessara óvæntu úrslita sé i fyrsta lagi nýj- ar aöferöir i áróöurstækni og þar á ég viö slödegisblööin, sem virö- astafásettu ráöi hafa beint spjót- um sinum aö Framsóknarflokkn- um i þvi skyni aö br jóta hann nið- ur, án þess aö flokksforystan hafi tekiö upp rétt vinnubrögö til varnar. 1 öðru lagi tel ég að efnahags- ráöstafanir rikisstjórnarinnar i vetur haf i veriö rangt Utfæröar og ekki settar fram á þann hátt, sem að var stefnt til launajöfnunar. Ráðstafanir til aö hefta þá miklu veröbólgu, sem geisar i þjóö- félaginu hafa ekki verið nægilega beittar og fólk hefur eðlilega kennt stjórnarflokkunum um. Fái tækifæri til að láta verkin tala Niöurstaða kosninganna var á þann veg, aö ég tel eölilegt aö sigurvegararnir, Alþýöuflokkur- inn og Alþýöubandalagiö, sem sögöu þaö beinum oröum, aö þeir heföu ráö til aö leysa efnahags- vanda þjóöarinnar, fái nú tæki- færi til aö sýna þetta I verki meö þvi að mynda rikisstjórn. Þíátt fýrir þessi vonbrigði meö fylgistap Framsóknarflokksins, er ég persónulega bjartsýnn meö framtiöina. Ég tel aö viö veröum aö snúa okkur aö þvi aö byggja flokkinn upp aö nýju með nýjum aöferðum oglæraaf mistökunum. Þaö eru nýir timar og þaö þarf aö átta sig á þeim i pólitik eins og ööru. Min áhugamál 1 sambandi viö væntanlegþingstörf eru margvis- leg. Ég vil fyrst og fremst reyna aö hafa áhrif á alhliða byggöa- þróun, eflingu byggöar um land allt. t þvi sambandi vil ég leggja áherzlu á framleiöslustefnu, þ.e. aukningu útflutningsframleiöslu og þar með þjóðartekna, sem er náttúrulega undirstaöa atvinnu- öryggis i landinu. Ég tel, aö leggja beri sérstaka áherzlu á sjávarútveg og bendi á aö útflutningsframleiöslan fer aö mestu leyti fram úti um land og kemur þar meö inn I dæmiö um byggöastefnuna. Einn stór þáttur i lausn efna- hagsmála er aö koma upp kjara- ráði, sem fulltrúar launþega, at- vinnurekenda og rikisvalds standi að. Og móti kjararáö stefnu i kjaramálum, sem allir geta treyst. Sjálfvirkt visitölu- kerfi er þjóöarvandi, sem veröur aö breyta. Vegakerfi og atvinnu- «PPbygging Málefni Vesturlands eru marg- vísleg. Samgöngumál eru mér einna efst i huga. Þar eru mikil óleyst verkefni, þrátt fyrir stör- virki eins og Borgarfjarðarbrú. Ég á saéti i samgöngunefnd Vesturlands, sem er aö raöa upp forgangsverkefnum til margra ára til aö byggja upp stofnbrautir og þjóövegakerfi Vesturlands. Jafnframt þarf aö gera skipulagt átak í atvinnuuppbyggingu. Kemur þar inn i efling iönaðar á Vesturlandi. — Éghef þá skoðun, aö Vestur- land eigi mikla framtiö fyrir sér sem gott búsetusvæði. Ég mun beita mérfyrir samstööu á breiö- um grundvelli til þess aö ná árangri á þvi sviöi. — Þaö er viðburöur út af fyrir sig, að vera allt i einu oröinn þingmaður, og ég mun reyna aö gera þaö sem í minu valdi stendur til þess að vera trausts kjósenda verður. Þaö er llfsskoöun min að reyna að vinna vel aö hverju þvi hlutverki, sem mér hefur veriö faliö um dagana. SJ Adolf K. Valberg fæddur 4. júli 1923 dáinn 24. júni 1978. Þegar okkur, vinum og sam- starfsmönnum Adolfs, barst siöast liöinn laugardag, fregnin um, aö hann heföi þá snemma morguns hafiö sina hinztu för, er við öll munum aö lokum ganga, var sem ský drægi skjótt fyrir sólu, er aldrei þessu vant skein i heiði og hugir okkar fyiltust siScn- uöi yfir góöum vini og starfsfé- laga, er viö myndum eigi fá notiö frekari samvista viö. Adolf hóf störf hjá Samvinnu- tryggingum 7. júni 1967 og vann þar alla tiö viö bifreiöatjón, einkum afgreiöslu og aöstoö viö tjónþola. Nýttust þar vel beztu eiginleikar hans, hjálpsemi, tillitssemi og kurteisi en þessum kostum var Adolf búinn I rikum mæli. Samvizkusemi og snyrti- mennsku hans var og viö brugðiö og bera skjalageymslur Bifreiöa- deildar þess órækust vitni. Adolf var mjög félagslyndur og lét sig sjaldan vanta þá er starfs- félagar komu saman til gleö- skapar og var þá hrókur alis fagnaöar. Eigum viö margar góöar minningar frá slíkum stundum og ekki aöeins i hugum okkar, heldur einnig áþreifan- legar, þvi Adolf var afkastamikill ljósmyndari og óspar bæöi á að taka myndir og gefa þær. Erum við margir, er eigum mikið af myndum frá liönum tima og stöndum I mikilli þakkarskuld viö hann fyrir að hafa hjálpað okkur viö aö veröveita á pappir liðnar gleöistundir. Er góöur drengur kveöur, hljóta ávallt aö vakna spurningar um þaö, hvort viö höfum gert jafn mikiö fyrir hann, og hann geröi fyrir okkur. Þessi reikningsskil veröa sjálfsagt aldrei endanlega uppgerö, en mér býöur I grun, aö skuldin sé okkar, er eftir sitjum. Þá skuld getum viö bezt greitt meö því aö rækta meö okkur beztu eiginleika hans, hjálpsemi, kurteisi og tillitssemi i mannleg- um samskiptum. Viö vinir og samstarfsmenn kveöjum Adolf meö virðingu og þakklæti ogmunum ætiö minnast hans þannig. Viö sendum ást- vinum hans dýpstu samúöar- kveðjur. Samstarfsmenn Kartöflurækt í Pykkvabæ: Grös koma seint upp — ekki þó öll von úti Kás—„Þaö má segja, aö liöanin hjá okkur sé litiö betri en hjá þeim.sem töpuðu kosningunum”, sagöi Sigurbjartur Guöjónsson bóndi i Hávaröarkoti, þegar viö spjölluöum viö hann i gær, og ræddum um útlit meö kartöflu- uppskeruna þetta áriö I Þykkva- bænum. Hann sagði, aö aö visu heföi hlýnaö undanfarna daga, en grös væru samt komin anzi skammt á leiö. „Ekkert veröur hægt aö segja meö vissu um uppskeruna fyrr en lengra er liöið á sumarið, en af þvi sem komið er má sjá aö grös eru sein til, og er þaö fyrst og fremst um aö kenna kuldum, og þá sérstaklega á næturna. Hér er t.d. enginn maöur byrjaöur aö slá, og spretta er mjög litil. Þaö mætti segja, aö ástandiö væri ekki ósvipaö þvi, sem þaö var á sama tima I fyrra, en þaö ár var uppskera I algjöru lágmarki. Ef sama sagan endur- tekur sig i ár, er þaö i f jóröa skipti sem uppskeran bregzt, og aldrei hefur liöið svo langt á milli góö- æra hjá okkur. Samt sem áöur er ekki öll von úti ennþá. Ef júli og ágúst veröa hagstæöir, þ.e. veöurfar gott og ekki næturfrost, þá gæti oröið af- bragösuppskera þrátt fyrir allt”, sagöi Sigurbjartur aö lokum. Leiðrétting Herra ritstjóri, Þ. 14. þ.m. birtist i heiðruðu blaöi yöar frétt um Landakots- spitala. Er hún tekin upp úr árs- skýrslu spitalans fyrir áriö 1977: er þar allt rétt hermt. En fyrirsögn fréttarinnar var: „Framkvæmdir einkenndu 75. starfsár Landakotsspitala. Rekstrarhalli yfir 90 milljónir króna.” Fyrirsögnin er meö stóru letri og hlýtur aö gefa ókunnugum þá hugmynd aö betur mætti standa aö rekstri spitalans. Nú er þaö út i hött aö tala um haila eða ábata af rekstri sjúkra- húsa landsins. Kostnaöurinn er greiddur af almannafé, og hefir sá háttur veriö haföur á undan- förnum árum, aö yfirvöld hafa ætlað þeim daggjöld. Væru þau ekki nóg var mismunurinn greiddur, yröi afgangur gengi hann upp I kostnaö næsta árs. Þaö eina, sem skiptir máli er kostnaöur á legudag. 1 Reykjavik eru þrjú stærstu sjúkrahús landsins og eru þau 1 öllum aöalatriöum sambærileg. Ariö 1977 var kostnaöur á legu- dag i kr St. Jósefsspitala 20.942.00 Borgarspitala 24.604.00 Landspitala 25.511.00 Þaö ár voru 62.818 legudagar í St. Jósefespitala og sparaði hann þá landsmönnum 287 milljónir króna miöaö viö kostnaö I Lafid- spltala, en 230 milljónir króna sé Borgarspitali tekinn til saman- buröar. Mér finnst þetta umtalsveröar fjárhæöir og bera þvi vitni aö stjórn sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspitala haldi i horfinu með þá hagsýni I rekstri, sem ætiö hef- ir rikt i Landakotsspitala Viröingarfyllst, Bjarni Jónsson 40 sicfur sunnui

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.