Tíminn - 12.07.1978, Qupperneq 9
Miövikudagur 12. júli 1978
9
á víðavangi
Mbl. ekki eins áhrifa-
mikið og það áður var
i sunnudagsblaöi Mbl. birt-
ist grein eftir Birgi isleif
Gunnarsson borgarstjóra, þar
sem hann hélt þvl fram, ab
áhrifavaid Morgunblaösins
væri ekki sllkt sem áöur sök-
um tilkomu sjónvarps og siö-
degisblaöa. Mbl. svaraöi
þessu I forustugrein sama
dags og þótti gagnrýni Birgis
óréttmæt. Hann svaraöi Mbl.
aftur I þriöjudagsblaöinu. Þar
segir m.a. á þessa leiö:
„Frambjóöendur og for-
ystumenn flokksins geta ekki
lengur lagt þaö I hendur rit-
stjóra Morgunblaösins og VIs-
is aö skrifa og móta hinn póli-
tlska áróöur. Þeir veröa sjálf-
ir aö leggja þar meira af
mörkum en áöur.
Meginmarkmiö greinar
minnar var aö benda á þetta.
Ekkert var á þaö minnst I
greininni, hvort þetta væri til
góös eöa ills og I þessu fólst
engin gagnrýni á Morgunblaö-
iö. Hér er um aö ræöa ákveöna
þjóöfélagslega þróun, sem
bregðast veröur viö á réttan
hátt. Sjálfur hef ég notiö
dyggilegs og drengilegs stuön-
ings Morgunblaösins meöan
ég var borgarstjóri og I kosn-
ingabaráttu fyrir tvennar
borgarstjórnarkosningar og
þaö sama geta forystumenn
flokksins á sviöi landsmála
sagt. Þennan stuöning blaös-
ins vib Sjálfstæöisflokkinn á
örlagastundum met ég mikils
og vonast ég til aö flokkurinn
og forystumenn hans megi
njóta hans áfram. Þaö breytir
hins vegar ekki þeirri staö-
reynd, aö Morgunblaðiö er
ekki eins áhrifamikiö I skoö-
anamyndun fólks eins og áö-
ur var. Um þaö er ekkert aö
sakast viö Morgunblaöiö.
Blaöiö hefur veriö brautryöj-
andi I frjálsræöisátt I Islenzkri
blaöamennsku og nýtur þess I
þvi aö þaö er útbreiddasta og
mest lesna blaö landsins og
Birgir lsleifur Gunnarsson
uppiag þess vex stööugt.
Morgunblaöiö þarf þvl ekki aö
sýna þá viökvæmni, sem birt-
ist i leibaranum, þótt á þaö sé
bent, aö almenningur lætur nú
I vaxandi mæli einnig aöra
fjölmiöla hafa áhrif á skoöanir
slnar”.
„Frjálsa
pressan”
Birgir isleifur Gunnarsson
segir ennfremur:
„Auövitaö væri þaö auö-
veldast fyrir okkur Sjálf-
stæöismenn aö hafa þetta meö
gamla laginu og sjálfur verö
ég aö viöurkenna, aö þaö er
áhyggjuefni I hvaöa átt hin
svokallaöa „frjálsa pressa”
hefur veriö aö fara á Vestur-
löndum á undanförnum árum.
Þaö er nefnilega mikiö til I þvi,
sem fram kom I ræöu hjá Solz-
henitsyn, er hann hélt viö Har-
Guörún Helgadóttir
vardháskóla á dögunum, þeg-
ar hann sagöi aö yfirborös-
mennska og fljótfærni væru
ein megin sjúkleikamerki
tuttugustu aldarinnar á
Vesturlöndum og birtust þau
hvergi meö gleggri hætti en I
„pressunni”. Slöan sagöi
hann: „Blöðin eru oröin öflug-
asta valdiö I vestrænum lönd-
um, valdameiri en löggjafar-
valdiö, framkvæmdavaldið og
dómsvaldiö. Þess vegna spyr
maöur: Til hvaöa laga sækir
þetta afl vald sitt, hver hefur
kosiö þaö og gagnvart hverj-
um ber þaö ábyrgö”. Þessi orö
eru umhugsunarverð, ekki slzt
fyrir þá, sem blaðamennsku
stunda og úr þeim hópi hér á
landi tel ég aö slödegisblöðin
eigi hvab helzt aö hugleiöa
þessi orö skáldsins”.
Nýir
fjölmiðlar
Vissulega er vald blaöanna
mikiö til góös og ills, en rangt
er þaö þó hjá Soizhenitsyn, aö
þaö sé meira nú en áöur.
Morgunblaöiö er ekki eitt um
þaö aö dregiö hafi úr áhrifa-
valdi þess. Þetta gildir um
blöö aimennt, einnig siðdegis-
blöö. Með tilkomu útvarps og
sjónvarps hafa blööin eignazt
sterka keppinauta, sem hafa I
mörgum tilfellum meiri áhrif
á almenningsálitið en blööin.
Hljóövarpiö átti t.d. mikinn
þátt I hinum miklu vinsældum
Roosevelt forseta. Það var þá
nýkomiö til sögunnar og
Roosevelt kunni betur aö nota
þaö en keppinautar hans. Þvi
kom ekki aö sök, þótt hann
heföi nær öli blöðin á móti sér.
Sjónvarpiö er vafalltiö enn
áhrifameiri fjölmiöill en
hljóövarpiö. Sennilega væri
Birgir lsleifur Gunnarsson
enn borgarstjóri I Reykjavfk,
ef Guörún Helgadóttir heföi
ekki leikib hlutverk sitt á móti
honum eins hressilega og raun
varö á I sjónvarpsþættinum,
þegar þau leiddu saman hesta
sina. Birgir stóö sig þó alveg
þokkalega. Þrátt fyrir þetta,
er og veröur áhrifavald blaö-
anna mikið, en rangt er aö
gera sér ekki grein fyrir þvl,
aö þab er ekki slikt og þaö var
áöur en útvarp og sjónvarp
komu til sögunnar.
Þ.Þ.
KVERNELAND
Gnýblásarar
T. KVERNEIAND S. SBNNER flS
Áratuga reynsla Gnýblásaranna hér á
landi hefur sýnt og sannað ágæti þessara
tækja, sem ollu byltingu við heyskapinn.
Gnýblásarinn er nú aftur fyrirliggjandi.
Vegna afgreiðslutregðu verður mjög tak-
markað magn fáanlegt i sumar og þvi
vissara fyrir bændur að tryggja sér biás-
ara sem fyrst. Áætlað verð með einu
blástursröri, sogröri, dreifistýri og
drifskafti kr. 361,000,-
Greiðsluskilmálar.
Auglýsið í Tímanum
^^%irgardti
SÍMAR: 1-69-75 & 1-85-80
Auk þess að vera með verzlunina fulla af
nýjum húsgögnum á mjög góðu verði og
greiðsluskilmálum höfum við i
ÚTSÖLU-HORNINU:
Sófasett (velútlítandi) kr. 115,000,-
Svefnsófasett (velútlitandi) - 110,000,-
Sófasett (velútlítandi) - 85,000,-
Svefnsófi 2ja manna 55,000,-
Símastólar 25,000,-
Sófaborð teak 28,000,-
Sófaborð teak 32,000,-
Eins og þú sérð
EKKERT VERÐ