Tíminn - 01.08.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 01.08.1978, Blaðsíða 6
6 Þriðjudagur 1. ágúst 1978 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæindastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigur&sson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Si&umúla 15. Simi 8Ö300. Kvöldsimar bla&amanna: 80502, 80405. Eftir kl. 20.00: 80387. Verö I lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á mánuöi- Blaöaprent h.f. Úrræðaleysi og ósam- komulag sigurvegara Þótt viðræðurnar um myndun vinstri stjórnar undir forustu Benedikts Gröndal bæru ekki tilætlað- an árangur hafa þær eigi að siður verið gagnlegar að þvi leyti, að þær hafa veitt mikilvægar upplýs- ingar. í fyrsta lagi er það ljóst, að sigurvegararnir i kosningunum, Alþýðuflokkurinn og Alþýðubanda- lagið, hafa ekki upp á nein sérstök úrræði að bjóða, eins og margir héldu fyrir kosningarnar. 1 öðru lagi er ljóst, að milli þeirra er ekki nein samstaða, sem geri það mögulegt, að þeir vinni saman i stjórn, hvort heldur væri um meirihlutastjórn eða minni- hlutastjórn að ræða. Tillögur beggja flokkanna til lausnar efnahags- málunum fela ekki i sér neitt nýtt, heldur eru gamalþekkt úrræði, sem ekki hafa þótt gefast vel. Alþýðuflokkurinn byggir sina lausn á gengisfell- ingu, en Alþýðubandalagið á millifærsluleið, sem var reynd hér á árunum frá 1946-1960, og þótti reyn- ast allt annað en vel. Báðum þessum leiðum fylgir kjaraskerðing fyrir launþega, þótt Alþýðubanda- lagið reyni að dylja það með þvi að gera hvort tveggja i senn, að benda á vafasamar skattheimtu- leiðir og láta vanta mikið upp á þá fjárhæð, sem þarf til millifærslunnar, ef hún á að koma að tilætl- uðum notum. Alþýðuflokkurinn leggur hins vegar til, að gengisfellingu fylgi það, að verðhækkun á er- lendum vörum af völdum hennar, verði haldið utan við visitölubæturnar. Þótt báðir flokkarnir létust vilja fá kjarasamn- ingana strax i gildi, létu þeir fylgja þann viðauka, að launþegar yrðu sviptir þeim kauphækkunum, sem þvi fylgdi. Alþýðuflokkurinn vildi gera það með þeim hætti, að verðhækkun erlendra vara yrði tekin út úr visitölunni, eins og áðursegir.Alþýðubandalag- ið vildi gera það á þann hátt, að hækka tekjuskatt- inn og láta rikið þannig taka af launþegum þá kaup- hækkun, sem fylgdi þvi að samningarnir tækju gildi. Betur geta þessir flokkar ekki staðfest það, að þeir meintu ekkert með loforðum sinum fyrir kosn- ingarnar um gildistöku samninganna ef hún átti að verða annað og meira en hreint formsatriði. Jafn- framt viðurkenna þeir með þessu, að efnahagslögin hafi verið nauðsynleg eins og á stóð. Jafnframt þvi, sem það hefur þannig komið i ljós, að Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn hafa ekki upp á nein sérstök úrræði að bjóða, heldur troða gamalkunnar leiðir, hefur það verið upplýst til við- bótar, að þeir geta ekki komið sér saman um leiðir til að leysa efnahagsvandann. Tilraunin til að mynda vinstri stjórn strandaði á þessum ágreiningi milli þeirra. Af sömu ástæðu virðist hugmyndin um minnihlutastjórn þeirra með stuðningi eða hlutleysi Framsóknarflokksins vera úr sögunni. Afstaða Framsóknarflokksins til þessara mála hefur verið ljós og ákveðin frá upphafi. Flokkurinn taldi það eðlilegustu afleiðingu kosningaúrslitanna, að stefnt yrði að vinstri stjórn á þann hátt, að sigur- vegararnir mynduðu minnihlutastjórn, sem Fram- sóknarflokkurinn styddi. Þegar ekki var jarðvegur fyrir slika stjórnarmyndun, gaf flokkurinn kost á þvi að verða þátttakandi i vinstri stjórn. Það strandaði ekki á honum að sú tilraun fór út um þúf- ur, heldur á ágreiningi milli Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins. Þótt enginn beinn árangur hafi náðst, er þjóðin fróðari og rikari af reynslu eftir en áður. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Viðurkennir Carter stjórn Bolivíu? Sovétríkin hafa þegar gert það CARTER forseti stendur nú frammi fyrir þeim vanda, hvort hann eigi aö viöurkenna stjórn Pereda Asbún hers- höföingja, sem brauzttil valda, i Boliviu fyrir nokkrum dögum á þann hátt aö steypa öörum hershöföingja, Hugo Banzer Suares, sem hefur fariö meö völd siöustu sjö árin og þótt takast allvel. t augum Banda- rikjastjórnar haföi Banzer Suarez gert sér þaö til ágætis aö efna til forsetakosninga, sem fóru fram 9. júli siöastl. Til undirbúnings þeim kosn- ingum haföi pólitiskum föng- um veriö sleppt úr haldi, út- lögum leyft aö koma heim og hömlum létt af starfsemi stjórnmálaflokka, sem taldir vorulýöræöislegir. Þrátt fyrir þetta höföu Banzer Suarez og félagar hansi hernum gert sér vonir um, aö frambjóöandi þeirra myndi vinna sigur i kosningunum, en hann var enginn annar en Pereda Asbún, sem nú hefur steypt Banzer Suarez af stóli. Svo fór lika aö Pereda Asbún fékk langflest atkvæöi, eða um helming greiddra atkvæða, en andstæðingar han's héldu strax fram, aö þessi úrslit væru ekki aö marka, þvi aö gróflegum fölsunum heföi verið beitt af hálfu hersins. Þetta kom llka í ljós, þvi að samkvæmt endanlegri taln- ingu höföu rúmlega 50 þús. fleiri greitt atkvæöi en voru á kjörskrá. Yfirkjörstjórnin sá sér þvi ekki annaö fært en aö ógilda kosninguna. Þessu vildu Pereda Asbún og sam- herjar hans ekki una, heldur gerðu uppreisn og steyptu Banzer Suarez af stóli. Pereda Asbún tók sér siðan forseta- vald og lýsti yfir þvi, aö hann myndi stjórna án þings fyrst um sinn. FYRIR Bandarikin er erfitt að sætta sig viö þessi úrslit, þar sem þau höfðu beitt áhrif- um sinum til aö knýja fram kosningarnar 9. júli. Sovétrik- in höfðu hins vegar ekki neitt við þetta aö athuga, heldur viöurkenndu strax stjórn Per- eda. Sama geröu helztu ein- ræðisriki Suður-Ameriku eins og Argentina, Brasilia, Uru- guay og Paraguay. Chile- Juan Pereda Asbiin stjórn þykist hins vegar oröin svo lýöræðissinnuö, aö hún ákvaö aö biöa átekta um sinn. Fyrir Bandaríkjastjórn er þetta sérstakt vandamál vegna þess, aö hún hefur veitt Boliviu hlutfallslega meiri efnahagsaðstoö en nokkru öðru riki latnesku Ameriku. Arlega hefur Bólivia fengiö frá Bandarikjunum um 100 millj. dollara siöustu árin, ýmist sem lán eöa bein fram- lög. Carter á erfitt meö aö halda þessum framlögum áfram, ef stjórn Boliviu veröur ekki viö óskum hans um að viðurkenna lýöræöi og önnur mikilvæg mannréttindi. Þaö var vafalitiö mest fyrir atbeina Bandarikjanna, aö þær breytingar voru geröar i Boliviu, sem leiddu til kosn- inganna 9. júli, þ.e. aö sleppa pólitiskum föngum lausum, leyfa útlögum aö koma heim og draga úr hömlum á starf- semi stjórnmálaflokka. Liklegast þykir nú, að Bandarikjastjórn muni óska svara við ákveönum spurn- ingum áöur en hún viður- kennir stjórn Pereda. Helztu spurningarnar munu verða þessar:Hyggst stjórnin efna Banzer og Pereda fyrir kosningarnar. til frjálsra kosninga? Veröur réttur stjórnarandstööuflokka viöurkenndur? Veröur haldiö áfram aö auka mannréttindi? Svari Pereda þessum spurn- ingum jákvætt, munu Banda- rikin sennilega viöurkenna stjórn hans. PEREDA mun sennilega ekki veitast erfitt að svara þessum spurningum. t fyrsta lagi mun hann benda á, aö hannhafi veriö innanríkisráö- herra siðustu tvö árin og hafi hann sem slikur haft forgöngu um aö leysa pólitíska fanga úr haldi, draga úr hömlum á stjórnmálastarfsemi og leyfa útlögum aö koma heim. Þessu muni hann halda áfram. Þá hefur hann gefiö til kynna, að hann geti hugsað sér aö efna til forsetakosninga 1980, en öllu fyrr geti þaö vart oröiö, þar sem nauðsynlegt sé aö setja áöur ný og fullkomnari kosningalög og byggja nýja og fullkomnari kjörskrá á þeim. Viö slik svör hans mun Banda- rikjastjórn sennilega sætta sig. Juan Pereda Asbún varö 47 ára fáum dögum eftir aö hann tók sér einræðisvald I hendur. Hann er kominn af ættum kaupsýslumanna. Móöir hans rekur ættir sinar til Palestinu- manna, sem fluttu til Bolivíu fyrir 50 árum og komu sér þar vel fyrir. Pereda ákvaöungur aö gerast hermaöur og gekk I flugherinn strax og hann fékk aldur til. Hann hófst þar til æöstu valda og þykir hafa sýnt röggsemi og stjórnsemi sem yfirmaður flughersins. Bandarikjamenn láta vel af samvinnunni við hann, þegar hann gegndi embætti innan- rikisráðherra. Þessi sam- vinna snerist einkum um þaö, aö hindra verzlun meö eiturlyf, en þau hafa komið i allrikum mæli frá Bolivíu til Bandarikjanna. Pereda hefur lýst yfir þvi, að hann muni fylgja allróttækri stjórnar- stefnu. M.a. muni hann láta verkamenn fá hlutdeild I stjórn námufyrirtækja rikis- ins. Þá muni bændur kvaddir til við mótun landbúnaöar- stefnunnar. Þá telur hann það mikið áhuga- mál sitt, að Bolívia fái aðgangaö sjó á þann hátt, aö Chile láti af hendi hluta lands, sem áður tilheyrði Boliviu, en Chilemenn hertóku fyrir um 100 árum. Þetta hefur veriö til umræðu millistjórna rikjanna siðustu árin. Chile hefur ekki þvertekiö fyrir þetta, en litiö hefur samt miöaö i samkomu- lagsátt. þ.þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.