Tíminn - 01.08.1978, Page 21

Tíminn - 01.08.1978, Page 21
Þriðjudagur 1. ágúst 1978 tíauiiijísf 21 Sigurður hefur haidið markinu hreinu í 836 mín iOOOOOOOQi KNATTSPYRNU PUNKTAR.... Sigurður Haraldsson, hinn snaggaralegi markvörður Vals- manna, hefur heldur betur verið i essinu sinu að undanförnu — hann hefur ekki þurft að hirða knöttinn úr netinu hjá sér siðan 19. júlí á Kópa- vogsvellinum. Sigurður hefur haldið markinu hreinu i siðustu 9 leikjum Vals — 7 leikjum i 1. deild og tveimur i bikarkeppninni. Hann hefur ekki fengiö mark á sig i 836 minútur, eða i 13 klukkustundir.og 56 min. Þessi árangur Sigurðar er mjög góöur og fer örugglega langt i það að verða heimsmet. Þá má geta þess, að aðeins 5 leikmenn hafa skoraö mark hjá Sigurði i 1. deildarkeppninni, en þeir eru — Ólafur Danivaldsson (FH), Arnór Guðjóhnsen (Vikingi), Gunnar örn Kristjáns- son (Vlkingi) — vitaspyrna, Einar Ásbjörn Ólafsson (Kefla- vik) og Sigurjón Rannversson (Breiðabliki), sem skoraði siðast mark hjá honum. — og Valsmenn hafa leikið 30 leiki í röð, án þess að tapa • VALSMENN . . .jöfnuðu met KR-inga á laugardaginn, þegar þeir unnu sinn 13. leik I 2. deildar- keppninni i röð. KR-ingar léku 13 sigurleiki i 1. deildarkeppninni á árunum 1958 og 1959 — skoruöu þá 50 mörk, ai fengu á sig 6. Vals- menn hafa nú unnið 13 leiki i röö — hafa skorað 35 mörk, en aðeins fengið á sig 5 mörk. Valsmenn hafa nú leikið 30 leiki i 1. deildar- og bikarkeppninni i knattspyrnu án þess að tapa. Þeir töpuðu siðast leik 12. mai 1977 — 0:2 gegn Akranesi á Laugardals- vellinum. Þeir hafa þvi verið ósigraðir í um 15 mánuði. • DIÐRIK ÓLAFSSON . . .mark- vörður Vikings varði vitaspyrnu frá Þór Hreiðarssyni, þegar Vik- ingar léku gegn Breiðabliki i Kópavogi. Þetta er önnur vita- spyrnan, sem hann ver i 1. deildarkeppninni i ár — hann varöi viti frá Inga Birni Alberts- syni (Val) fyrr I sumar. • PÉTUR PÉTURSSON . . .hinn mikli markaskorari frá Akranesi, sem var Markakóngurinn 1977, er nú markahæstur i 1. deildar- keppninni — hefur skorað 13 mörk, en næstir koma þeir Ingi Björn Albertsson (Val) og Matthias Hallgrimsson (Akra- nesi) — 11 mörk. Þrumuskot frá Albert — tryggði Valsmönnum sigur, 1:0, gegn Eyjamönnum Sigurganga Valsmanna heldur áfram, en þeir máttu þó hrósa happi að leggja Vestmannaey- inga að velli (1:0) á Laugardals- vellinum á laugardaginn. Það var AlbertGuðmundsson sem skoraði mark Valsmanna með þrumu- skoti, sem Arsæll Sveinsson átti ekki möguleika á að verja. Guðmundur Þorbjörnsson átti sendingu fyrir mark Eyjamanna, þar sem Albert kom á fullri ferð og skaut viðstöðulausu þrumu- skoti, sem hafnaðii hliðarnetinu á marki Eyjamanna. Eyjamenn veittu Valsmönnum harða keppni i leiknum og voru þeir óheppnir að skora ekki — i byrjun seinni hálfleiksins fékk Sigurlás Þorleifsson gullið tæki- færi til að skora, þegar hann lék skemmtilega á þrjá varnarleik- menn Vals — komst á auðan sjó og lét skot riða af. Sigurlás hitti knöttinn illa, og hafnaði hann á fæti Sigurðar Haraldssonar, markvarðar Yals. Sigurlás gerði oft usla i vörn Valsmanna, en hann fékk litla sem enga hjálp og átti þvi við ofurefli að etja. Valsmenn voru með daufara móti i leiknum, en nokkrum sinn- um brá þó fyrir skemmtilegu spili hjá þeim. Maður leiksins: Dýri Guðmundsson, hinn sterki mið- vöröur Vals. •ARNÓR GUÐ JOHNSEN . . . .mun ekki leika meira með Vikingum i sum- ar, þar sem hann hefur skrifað undir atvinnumannasamning við Lokeren i Berlgiu. Eins og kunn- ugt er fór faðir Arnórs, Eiður Guðjohnsen, til Bergiu fyrir helg- ina með undirritaðan samning. Raddir eru uppi um, að Arnór fái um 8 milljónir fyrir að skrifa und- ir samninginn, sem er til eins árs — og einnig er Lokeren skuld- bundiö til aðútvega Eiöi vinnu, en hann er múrari. —SOS SIGURÐUR HARALDSSON.. sést hér stökkva upp og góma knöttinn. Sigurlás Þorleifsson stekkur upp með honum. (Tfmamynd: Tryggvi). Þorbergur er tilbúinn í slaginn Youri! Þorbergur sýndi snilldarleik, þegar KA-liðið fékk óskabyrjun og skellti Fram 3:0 á Akureyri ÞORBERGUR.. kominn gamla, góða form. sitt KA-Iiðið fékk heldur betur óska- byrjun, þegar þeir unnu góðan sigur (3:0) yfir Fram á grasvell- inum á Akureyri á laugardaginn. Leikmenn liðsins, sem mættu tvi- efldir til leiks, gerðu út um leikinn á fystu 4 min. leiksins — skoruðu þá tvö mörk. Sigbjörn Gunnarsson skoraði fyrra markið á 2. min úrvita- spyrnu, sem dæmd var á Gústaf Björnsson fyrir að fella Gunnar Blöndal inni i vitateig. Það mun- aði ekki miklu að Guðmundur Baldursson markvörður Fram næði að verja spyrnuna — hann snerti knöttinn með hendi, en ekki nóg til að Icoma i veg fyrir mark. Óskar Ingimundarson bætti siðan við öðru marki — 2:0, eftir að hafa fengið sendingu frá Elmari Geirssyni. Óskar lék á Trausta Haraldsson og renndi knattinum fram hjá Guðmundi, markverði. KA-liðið, sem lék mjög vel i fyrra hálfleik, bætti siðan þriðja markinu við á 30. min. Það var Gunnar Blöndal sem skoraði markið með fastri spyrnu. KA-liðið fór sér að engu óðslega i seinni hálfleik og lét Jóhannes Atlason, þjálfari liðsins, leik- menn sina draga sig afturog leika , varnarleik. Það tókst mjög vel og náðu þeir að halda fengnum hlut. Framarar sóttu þá mikið, en þeim tókst ekki að koma knettin- um fram hjá Þorbergi Atlasyni, sem átti stórleik i marki KA-liðs- ins. Þorbergur. sem er nú orðinn eins góður og þegar hann var upp á sitt besta með Fram og lands- liðinu, sýndi mikið öryggi og greip hann mjög vel inn i leikinn. Þá var Haraldur Haraldsson sterkur I vörninni hjá Akureyrar- liðinu. Framarar voru lélegir og náðu sóknarleikmenn þeirra litið að ógna, eins og i undanförnum leikjum. Framhald á bls. 23 .Þetta gengur hálf erfiðlega • MHÍUttUUi; VCI'UUI' ctU Ulld a jaAUiiii og taka á öllum sinum kröftum.... AAAA —HA....” „Vertu ekki að fiækjast fyrir. Strákarnir i Val aðstoða mig við þetta. Þú ferð ekki að taka stein- inn af Dýra, —Já, farðu aftur upp I áhorfendabekki...” ....og eftir að Jói hafði stað- ið i ströngu með smá aðstoð vinveittra manna, tók hann ofan húfuna og hneigði sig fyrir áhorf- endunum, sem fögnuðu honum innilega — Já, fagnaðarbylgjan var gffurleg. f

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.