Tíminn - 02.08.1978, Page 11
Miðvikudagur 2. ágúst 1978
n
Dr. Euwe í viðtali við Tímann í gær
Framboðinu beint
gegn Mendes
MóL — „Ég stend sjálfur ekki
að baki þessarar hugmyndar”,
sagði Dr. Euwe, forseti alþjóða-
skáksambandsins, er Tlminn
ræddi við hann í gær um þann
möguleika að hann gæfi kost á
sér á ný til forsetaembættis
FIDE.
„Menn hafa komiö saman á
Fiíippseyjum, en þar fer einvigi
þeirra Karpovs og Kortsnojs
fram, og hafa þessir ákveðnu
aðilar sagt að þar sem Olafsson
á ekki neina möguleika á að
verða kosinn forseti FIDE, þá
yrði Mendes örugglega kosinn
og það mundi ekki skákheimin-
um llka, nema þá ef til vilf
þriðja heiminum. Þessir menn
hafa þvi farið fram á við mig, að
ég fari I framboð.”
Að sögn Dr. Euwe, þá eru
þessir ákveðnu aðilar Lym frá
Singapore og Campomanes frá
Filippseyjum, en ekki nefndi
hannHarry Golombeksem einn
þeirra, ai Golombek var eins og
kunnugt er einn þeirra manna
sem hvað ákafast hafa stutt
framboð Friðriks ólafssonar.
„Þegar þessir menn töluðu
við mig, þá hafnaði ég þegar til-
boði þeirra. Þá spurðu þeir mig
hvað ég mundi gera, ef þeir
gætu sent mér skeyti frá um 40
aðildarrtkjum FIDE þar sem
á mig yrði skoraö að fara I
framboð. Égsvaraðitil, að I því
tilfelli yrði ég að gefa kost á
mér.”
,,En ég hafði vonast til að
Friðrik ólafsson yrði kosinn
næsti forseti FIDE, og ég sagöi
þeim að ef þeir væru að reyna
að safna stuðningsyfirlýsingum
fyrir mig, þá mættu þeir ekki
gera það á svæðum eitt og tvö,
sem eru þegar búin að lýsa yfir
stuðningi við framboð Ólafsson-
ar. En hvort þeir gera það eöur
ei veit ég ekki. Allt sem ég veit
er að þessir ákveönu aöilar
segjast geta lagt fram áskorun
frá um 40 aðildarrlkjum FIDE
og þeirri áskorun gæti ég ekki
hafnaö.”
„Ég hef sagt þessum stuðn-
ingsmönnum mlnum, að ef þeir
ætla að reyna að taka atkvæöi
frá Ólafsson, þá verði þeir að
hafa samband við hann fyrst.
Dökka hliðin á þessum kosn-
ingum er að Mendes mundi
sigra þær auðveldlega. Fyrir
skömmu sagði hann á Filipps-
eyjum, að hann mundi fá I
fyrstu atkvæðagreiöslunni meir
en 50% atkvæöanna, og tel ég
það rétt hjá honum meöan
frambjóðendurnir eru einungis
þeir Mendes, Ólafsson og
Gligoric, Ef ólafsson vill halda
áfram, þá er það auövitað allt I
lagi, en hann mundi falla út
strax við atkvæðagreiðsluna.
Við Edmondson höfum farið I
Dr. Max Euwe, forseti FIDE.
gegnum alla hugsanlega mögu-
leika.”
„Varðandi mitt eigið framboð,
þá hef ég einungis sex daga til
að taka ákvöröun, því um-
sóknarfrestur rennur út n.k.
mánudag. Og svo hef ég það
vandamál, aðmérhafa einungis
borist fimm stuðningsyfirlýs-
ingaren ekki40.Einafþessum
stnðningsyfirlýsingum kemur
frá Evrópuriki, Itallu”, sagði
Dr. Euwe að lokum.
„Það vinnur enginn skák
með þvl að gefa hana”
— segir Einar S. Einarsson um horfur Friðriks
MóL — „Við samþykktum á
fundi stjórnar Skáksambands
Islands I gærkvöldi aö vinna af
öllum krafti að framboði Frið-
riks og núna I kvöld sendum við
skeyti til þeirra skáksambanda
sem hafa þegar lýst yfir stuðn-
ingi við framboð Friðriks. Það
vinnur enginn skák með þvl aö
gefa hana”, sagði Einar S.
Einarsson, er Tlminn ræddi við
hann I gær.
Að undanförnu hafa nokkrir
framámenn I skákheiminum
sent ýmsum aðildarrlkjum
FIDE, alþjóðaskáksambands-
ins, skeyti og farið fram á
stuðning við hugsanlegt fram-
boð Dr. Max Euwe, núverandi
forseta FIDE, en hann
hafði áður lýst þvl
yfir, að hann mundi
ekki gefa kost á sér
aftur. Meðal þessara manna
er Harry Golombek, formaður
svæðis eitt, sem hefur ásamt
svæði tvö lýst yfir stuðningi við
framboð Friðriks Ólafssonar.
Aðrir eru Edmondson, frá
Bandarlkjunum, Lym frá
Singapore og Campomanes frá
Filippseyjum. Eins og kemur
fram I viðtali sem Tlminn átti
við Dr. Euwe sjálfan I gær, þá
virðist framboð Dr. Euwe vera
stefnt fyrst og fremst gegn
Mendes frá Puerto Rico. Sú
skoðun virðist vera rlkjandi, aö
hann muni fara auðveldlega
með sigur af hólmi, þegar
atkvæði verða greidd á FIDE
þinginu I Argentlnu 7.
nóbember n.k.
„Ég talaði við Friðrik rétt I
þessu til að láta hann vita um
þessa óvæntu þróun mála og
sagði hann að það hefði komið
sér mjög á óvænt”, sagði Einar
S. Einarsson, en Friðrik er nú
staddur I Kanada. „Hann sagð-
ist þó ætla að standa fast á
framboði sinu. En nú er bara aö
taka á öllum okkar kröftum og
við væntum þess að fá þann
stuöning sem rikisvaldiö hefur
lofað okkur til að kosta þessa
kosningabaráttu. Hér er alls
ekki aðeins um einkamál
Friðriks að ræða, heldur er
þetta mál, sem snertir alla þjób-
Einar S. Einarsson.
ina. Betri sendiherra væri ekki
hægt að fá en Friðrik og miðað
við þann litla stuðning sem við
höfum farið fram á, þá er varla
hægt að gera betri fjárfest-
ingu”, sagði Einar að lokum.
Bragi Kristjánsson skrifar um heimsmeistaraeinvígiö:
Karpov með
unna biðskák
1 7. skák einvlgisins um
heimsmeistaratitilinn kom
Kortsnoj enn einu sinni meö
óvæntan byrjunarleik. Karpov
brást hraustlega við, fórnaði
fyrst peði og siöan skiptamun.
Staðan, sem upp kom var
vandtefld og tlmi keppenda
minnkaði.SIÖustu 10 leikinafyr-
ir tefldi Kortsnoj mjög illa, þótt
ekki væri hann I miklu tíma-
hraki og stendur áskorandinn
uppi með tapaða biðskák.
7. skákin.
Hvitt: Kortsnoj
Svart: Karpov
Nimzo-indversk vörn.
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rc3 Bb4
4. e3 0-0
t 3. og 5. skákinni lék Karpov c5 I þessari stöðu.
5. Bd3 6. d5? —c5
Staðan eftir 6. leik hvlts
Mjög óvæntur leikur. Venju-
lega er leikið hér 6. Rf3
6. b5?
Karpov bregst hraustlega við.
Hann fórnar peði til að ná góð-
um tökum á miðborðinu. Ekki
gengur 6.......exd5 7. cxd5
Rxd5?, 8. Dh5 f5, 9. Bc4 og hvlt-
ur vinnur.
7. dxe6
Ekki gengur 7. e4 bxc4, 8.
Bxc4 Bb7 og miðborð hvits
hrynur, t.d.9. Bg5 exd5,10. exd5
He8+ 11. Rge2 He5 o.s.frv.
7. fxe6
8. cxb5 Bb7
9. Rf3 d5
10. 0—0 Rbd7
11. Re2 De8
12. Rg3 e5
13. Bf5 eg6
14. Bh3 a6!?
Með siðustu leikjum slnum
hefúr Karpovstyrkt stöðu slða á
miðborðinu en I staðinn fórnar
hann skiptamun.
15. Rg5 axb5
16. Re6 c4
17. Bd8 Bc5
18. Rc7 De7
19. Rxa8 Hxa8
20. a3 Rb6
Þegar hér var komið hafði
Kortsnoj notað 75 mlnútur, en
Karpov 104.
Kortsnoj hefur skiptamun
yfir, en menn hans standa ekki
sérlega vel og hann verður að
gæta þess i framhaldi skákar-
innar að svörtu miðborðspeðin
komist ekki á skrið.
21. Dc2 Bc8
22. Bxc8 Hxc8
23. Ba5 Rbd7
Karpov leyfir ekki meiri upp- skipti en nauðsynleg eru
24. Dd2 Bd6
25. Bb4 Rc5
26. Bxc5 Bxc5
27. Khl Dd6
28. Hadl Kh8
29. Dc2 De6
30. Re2 Dc6
31. h3 32. b4? He8
Kortsnoj missir þolinmæðina.
Eftir þennan vafasama leik
verður framrás svörtu peðanna
á miðborðinu mun hættulegri.
Nái svartur að leika d5-d4 fær
hann tvö samstæð fripeð á d og c
llnunum. Auk þess fær hvttur
bakstætt peð á a-linunni.
32. Bb6
33. Db2 Kg8
34. Hfel Kf7
Staftan eftir 34. leik svarts
Þegar hér varkomiðáttihvor
keppenda 10 minútur til að leika
6 slðustu leikina fyrir bið. Ekki
getur það talist mikiö tlmahrak,
en nú missir Kortsnoj gjörsam-
lega tökin á skákinni og leyfir
andstæðing slnum að leika hinn
banvæna leik d5-d4.
35. Dc2? d4
36. Rg3
Auðvitað ekki 36. exd4 exd4
37. Rxd4 Hxel+ 38. Hxel Bxd4 og svartur vinnur.
36. Hd8
37. exd4 exd4
38. Dd2 d3
39. Dh6 c3
40. Re4 Rxe4
41. Dxh7 + Kf8
Biðstaðan
1 þessari stöðu lék Kortsnoj
biðleik og var búist við uppgjöf
hans án frekari taflmennsku.
Eftir 42. Dh8+ Kf7, 43. Dh7+
Ke8, 44. Dg8+ Kd7 45. Hxd3+
Kc8 hefur svartur tvo menn yfir
hrók og auk þess óstöövandi frl-
peð á c3.
Bragi Kristjánsson.