Tíminn - 02.08.1978, Side 13

Tíminn - 02.08.1978, Side 13
Miðvikudagur 2. ágiíst 1978 13 Neytendasamtökin í Borgarnesi: Nauðsynlegt að stofna deildir um allt land — tryggir betri vernd neytenda Kás — í april á þessu ári var stofnuð deild i Neytendasam- tökunum i Borgarnesi, og er það jafnframt fyrsta deildin sem stofnuð er úti á landi, en mikill áhugi er á að stofna fleiri deildir viðs vegar um landið, m.a. á Akranesi. Það er fljótt frá þvi að segja að fyrir stofnunina voru sex félagsmenn i Neytendasamtök- unum i Borgarnesi, en við deildarstofnunina hefur félög- um fjölgað heldur betur, þannig að nú eru þeir 95. Og það úr allri sveitinni. Timinn átti fyrir stuttu tal við Jóhannes Gunnarsson, formann deildarinnar i Borgarnesi, og innti hann eftir þvi i hverju starfsemin væri aðallega fólgin. Sagði Jóhannes að i fyrsta lagi væri um hefðbundna kvört- unarþjónustu að ræða, og hefði þeim hingað til tekist að af- greiða öll mál af þvi taginu þannig að neytendur hefðu kom- ið ánægðir út úr þeim. Jóhannes Gunnarsson, for- maður deildar Neytendasam- takanna i Borgarnesi. Hinn aðalþátturinn i starfsem- inni væri útgáfa mánaðarlegs fréttabréfs, sem sent væri i öll hús á verslunarsvæþi Borgar- fjarðar. t þessu riti, sem væri einblöðungur, væru fyrst og fremst niðurstöður verðkönnun- ar i verslunum á svæðinu, en einnig tilfallandi upplýsingar til neytenda, svo og greinar um þessi málefni. I siðasta mán- aðarriti hefði t.d. verið grein sem heitir „Grænmeti fleygt” i tilefni tómatastriðsins. Sagði Jóhannesað Verðlags- eftirlitið i Reykjavik hefði með Vesturland á sinni könnu og þaðan kæmi maður öðru hvoru. Með tilkomu fréttabréfsins hefði verið bætt að sumu leyti úr stopulum ferðum verðlagseftir- litsmanna, þannig að nú fylgd- ust þeir miklu betur með fyrir vestan, og gætu sent inn kvart- anir til Verðlagsstjóra, ef eitt- hvað bæri upp á. Hefði tekist þar á milli góð samvinna. Þá minntist Jóhannes á eitt vandamál sem þeir hefðu þurft aðglima við, þ.e . vörur sem komnar eru fram yfir siðasta leyfilegan söludag, en enn eru til sölu i verslununj. Þeim hefði tekist með sinum aðgerðum, að fá þessar vörur fjarlægðar. I flestum tilvikum hefði það gengið hljóðalaust fyrir sig utan i einu tilfelli. Að lokum sagði Jóhannes að nauðsynlegt væri að stofna neytendadeildir út um allt land, það gerði öllum hægara um vik . Neytendasamtökin byggðu sina starfsemi mikið til upp á félags- gjöldum, og þvi væri nauðsyn- legt að sem flestir væru innan þeirra. I annan stað fengju neytendur fyrir vikið miklu betri vernd, þvi það væri aug- ljóst mál, að margar deildir úti um allt land gerðu meira gagn en ein skrifstofa i Reykjavik. Nú væri ekki eftir neinu að biða. Neytendasamtökin væru tilbúin að rétta hjálparhönd strax og óskir bærust frá stöð- um á landsbyggðinni. Stefna yrðiaðþviaðnáyfir allt landið. VERÐKÓNNUN 11. JUhl 1978 Vörutegund Vörumark- aður KB Kjörbúð KB ' Neskjör Verslun Jóns Eggertssonar Hveiti 10 lbs. Robin Hood 862,- Robin Hood 955,- r Pillsburýs 780,- Pillsburys 780,- Sykur 2 kg. 297,- 340,- 299,- 330,- Hrísgrjón 454 gr. Coop 196,- Coop 217,- River Rice 184/- River Rice 185/- Appelsínudjús Flóra 1 1 343/- Flóra 1 1 394/- Egils 1,9 1 (945/-) pr. 1 497/- Egils 1,9 ll. (915/-) pr. 1 482/- Korn flakes Brugsen 500 gr. 382/- Brugsen 500 gr 450/- Kellogs 375 gr. (495/-) pr. 500 qr 660/ Dta 500 gr. 468/- Regin klósettpappír 92/- 103/- ' 82/- 93/- Þvol uppþvottalögur 2,2 kg. (525/-) pr. kq 239 2,2 kg. (586/) pr. kg. 266/- 600 gr. (182/-) pr kg. 303/- t lausu máli pr. kg. 190/ Sirkku molasykur 1 kg. 274/- 304/- 285/- 278/- Frón mjólkurkex 400 qr. 194/- . 223/- 220/- 218/- Holts mjólkurkex 250 gr. 172/- 198/- 198/- 195/- Frón kremkex 2bo/- 258/- 240/- 238/- Royal lyftiduft 450 gr. 352/- • 457/- 385/- 360/- Kakó 20 P Cirkel 3 gr. (725/ r. kg 3625/- Cirkel 500 gr. (2.200/-) •pr. kq. 4.400/ Rowntrees 250 gr. (864/-) pr. kq. 3456/- rrys 454 gr. (1295/-) >r. ):q 2582/ Flórsykur 500 qr. 128/- 142/- 138/- 132/- Ora fiskbollur stór dós 391/- 431/- 422/- — Ora fiskbúðinqur stór dós 473/- 622/- 510/- 505/- Tómatsósa 340 gr. Coop 250/- Libbys 292/- Libbys 248/- Libbys 210/ Kartöflumjöl 1 kg. 253/- 280/- 240/- 198/- Kókosmjöl 200 gr. 275/- 316/- 308/- 280/- Solgryn haframjðl 475 gr. 182/- 202/- 198/- 190/- Grænar baunir stór dós Coop 312/- Coop 359/- K. Jónsson 324/ K. Jónsson 321/- Púöursykur > Katla 1 kg 355/- Brun farin 500 gr. (187/-) pr. kg. 374/- 1 lausu máli pr. kg. 296/- Katla 1 kg. 378/- Vex þvottaefni P kg. pakki (1093/-) -. kq. 364/ 3 kg. pakki (1216/-) pr. kq. 405/- 700 gr. pakki (300/-) pr. kq. 429/- 1 lausu mál pr. kg. 390 Eggjasjampó KÓ iral 300 ml (201/-) >r. 1 670/- Kópral 300 ml. (199/-) pr. 1 663/- Man 340 ml. (325/-) pr. 1 956/- Man 340 ml. (325/-) pr. 1 956/- Vanilludropar — 90/- 90/- 97/- Kókómalt Top 1 kg. 1107/- ' Top 1 kg. 1466/- Hersheys 907 gr (1015/-) pr. kg. 1119/- Nesquick 400 gr(585/ pr. kg. 146. Ábvrnðarmaður fréttabréfsins: Áqúst Guðmundsson Sýnishorn af verðkönnun deildar Neytendasamtakanna i Borgarnesi. Þórshöfn A Þórshöfn er nú unnið að margvlslegum fram- kvæmdum. i gatnagerð á að leggja oliumöl á 1320 metra, við höfnina á að gera grjót- garð fyr'ir 40 milljónir króna. Hreppurinn byggir auk þessa 200 fermetra skólabyggingu, sem verða á fokheld I haust, og þrjár leigulbúðir. Kaupfélagið er að ljúka 600 fermetra bilaverkstæði i staö þess sem brann og auk þess er fyrirhugaö að gera stórbreyt- ingar á verslunarhúsnæði i sumar. Gtgerðarmál Þórshafnar- búa hafa lagast verulega. Fonti skuttogara þeirra gengur vel, en auk þess eru þar fjórir bátar yfir 30 tonn, 7-8 minni dekkbátar og 10-15 trillur. Mynd af gatnagerðinni. Grafa, og til hægri við hana sést eitt af þeim gömlu húsum, sem svo lagleg eru eftir að hafa fengið nýja klæöningu. K.Sn. Yokohama vörubílahjólbarðar á mjög hagstæðu verði Véladeild HJÓLBARDAR Sambandsins IPmTrTZ'^oo Hjólbarðar fyrir dráttarvélar Framdekk: 600x16 — 6 strigalaga með slöngu kr. 18.766. 650x16 — 6 strigalaga með slöngu kr. 21.397. 750x16 — 6 strigalaga með slöngu kr. 26.053. Afturdekk: 10x28 — 6 strigalaga kr. 58.753. 11x28 — 6 strigaiaga kr. 66.109. 12x28 — 6 strigaiaga kr. 78.600. Ath: Söluskattur er innifalinn i verðinu ÚTBOÐ Hitaveita Akureyrar óskar eftir tilboðum i smiði og fullnaðarfrágang á dælustöð Hitaveitu Akureyrar við Þórunarstræti. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Akureyrar, Hafnarstræti 88b, frá 4. ágúst n.k., gegn 30 þús. kr. skila- tryggingu. Tilboð verða opnuð á skifstofu Akureyrar- bæjar, Geislagötu 9, mánudaginn 14.^ ágúst, 1978, kl. 11 f.h. Hitaveitustjóri. Véladeild Sambandsins HJÓLBARÐAR BORGARTÚNI 29 SÍMAR 16740 OG 38900

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.