Tíminn - 11.08.1978, Qupperneq 5
Föstudagur 11. ágúst 1978
5
Eiður Guönason.
Af
hverju
fékk
Eiður
tvöföld
laun?
HEI — Alþýöuflokkurinn hef-
ur mjög gagnrýnt forréttindi
og friðindi ýmissa embættis-
manna.ekki kannski sist ráð-
herra og þingmanna. M.a.
skrifar Eiður Guðnason
alþingismaöur grein i Alþýðu-
blaöið i gær, þar sem hann fer
hörðum oröum um friðindi
þau, sem ráðherrar njóta
vegna bilakaupa, og telur
sjálfsagt að afnema þess kon-
ar forréttindi og friöindi.
Vegna þessa m.a. og eins
þess, að flokksbróöir Eiðs var
i samtali við Timann nýlega,
álika hneykslaður á Eiði sjálf-
um að notfæra sér þá aðstöðu
að geta þegið tvenn full laun
hjá rikinu s.l. mánuð, hafði
blaöið samband við Eið
Guðnason og spurði hann um
sannleiksgildi þeirrar fullyrö-
ingar.
Eiður sagði það rétt vera, að
hann hefði fyrir sl. mánuð haft
tvenn full laun, en þess bæri að
geta, að júlimánuður væri sitt
sumarfri, sem hann hefði
áunniö sér rétt til með starfi
hjá Sjónvarpinu allt s.l. ár.
Hins vegar sagðist Eiður vita
það, að hann færi á skert laun
um næstu mánaöamót, en sú
regla gilti að menn fengju 60%
af launum, væru þeir I ööru
starfi með þingmennsku. Þá
sagðist Eiður einnig hafa
marglýst þvi yfir, að hann
hyggðist hætta vinnu hjá
Sjónvarpinu með haustinu.
Um álit Eiðs á tvennum
launum, sagðist hann telja
eðlilegast, að menn hefðu
þingmennskuna að aðalstarfi,
en hins vegar væri oft erfitt að
koma I veg fyrir að menn
gegndu öörum störfum jafn-
hliða, t.d. þeir sem stunduðu
sjálfstæðan atvinnurekstur.
Störf hjá rikinu gætu einnig
verið þannig vaxin, að menn
gætu gegnt þeim áfram að
hluta til, þótt hann teldi þing-
mennsku vera þaö umfangs-
mikið starf, að mönnum veitti
ekki af öllum sinum tima til að
sinna þvi.
Þingmenn í ððru starfi
- fá 60% launa fyrir að klkja
inn daglega
HEI — Sem kunnugt er fá þing-
menn greidd laun allt árið eftir
þriðja hæsta taxta B.S.R.B., svo-
nefndum B 3. Samkvæmt upplýs-
ingum ólafs Ólafssonar, fulltrúa i
skrifstofu Alþingis, fá þingmenn
sem láta af störfum, laun til
næstu mánaðamóta eftir kjördag
og nýkjörnir þingmenn laun frá
sama tima, þ.e.a.s. að nýkjörnir
þingmenn hafa nú verið á launum
frá 1. júli s.l.
Ólafur sagði laun þingmanna
hafa veriö 279 þúsund fyrir sið-
asta mánuð. Auk þess fá þeir
greiddan ákveðinn ferðakostnað
og greiðslu á einum sima. Þing-
menn sem ekki geta búiö heima
hjá sér um þingtimann, fá auk
þess greitt upp i húsaleigu allt aö
40 þús. á mánuði og röskar 2.000
kr. á dag vegna dvalarkostnaöar.
En þessar greiðslur væru ákveðn-
ar i upphafi hvers þings.
Þá var ólafur spurður um laun
þeirra er jafnframt væru i ööru
starfi hjá rikinu. Sagöi hann, að
lögin hljóðuðu þannig, að starfs-
maður rikisins eöa rikisstofnun-
ar, sem væri alþingismaöur og
aðeins gæti gegnt starfi milli
þinga, fengi auk þingfararkaups
greidd 30% af launum fyrir annað
starf. En starfsmaöur, sem
gegndi starfi sinu meö þingset-
unni og mætti daglega til vinnu,
hann skuli njóta 60% af launum til
viðbótar þingfararkaupi.
ólafur taldi vafalaust aö þeir
nýju þingmenn, sem enn væru i
fullu starfi hjá rikinu, fengju nú
þegar skert laun, þvi menn ættu
ekki að geta fengiö full laun fyrir
tvö störf hjá rikinu.
Ekki sagðist ólafur geta um
það sagt, hvort svokölluð biölaun
13 til 6 mánuði eftir aö þingmaöur
lætur af störfum, hefði boriö á
góma að afstöönum kosningum
fyrr en nú, en það væri þingfarar-
kaupsnefndar og Alþingis að taka
ákvörðun I þvi máli.
íbúðarleiga
Höfum verið beðin um að útvega 2ja, 3ja,
4ra og 5 herbergja ibúðir.
Reglusemi og góðri umgengni heitið. Fyr-
irframgreiðsla og meðmæli ef óskað er.
Upplýsingar i sima 3-44-23.
CD
OPIÍUM IDAG.. .OPHUMIDAG... OPHUMIDAG..
KL.16:00
Landbúnaðarsýningin
á SELFOSSI1978
Rúmlega 200 sýnendur á 32000m2 sýningarsvæði
Vélasýning
B úfjá rrækta rsýnin g
Jarðræktarsýning
Þróunarsýning
Afurðasýning
NÝIUNG
Blómasýning
Heimilisiðnaðarsýning
Garðyrkjusýning
Tækjasýning
Byggðasafn
Sýningartorg með sérstökum kynningaratriðum. Dómhringur fyrir búfé.
Hestaleiga fyrir unglinga.
Glæsilegar tískusýningar á hverjum degi.
Sérstök dagsskrá með fræðslu- og skemmtiefni hvern
dag.
Veitingasalir. Sérstakt húsvagnastæði.
K vikmyndasýningar. Tjaldstæði.
Komið á Selfoss — Komið á Landbúnaðarsýninguna 1978.
11.-20. AGUST
Ævintýri fyrir alla !jölskylduna