Tíminn - 17.08.1978, Qupperneq 13

Tíminn - 17.08.1978, Qupperneq 13
Kiinmtudagur 17. ágúst 1978 liUJil'UI' 13 Séra Stefán Eggertsson Fæddur 16. sept. 1919 Dáinn 10. ágúst 1978. Aö morgni 10. ágústs barst okkur Þingeyrarhreppsbúum sú fregn, aft þá um ndittina heföi andast á Landspltalanum i Reykjavik sóknarprestur okk- ur, séra Stefán Eggertsson. Stefán var fæddur og uppalinn á Akureyri sonur hjónanna Eggerts Stefánssonar heildsala og frú Yrsu Jóhannesdóttur. Stefán varö stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri áriö 1940 ogguöfræöiprófi frá Háskóla Is- lands lauk hann 1944, hélt hann þá utan til frekara náms I guö- fræöum, og lagöi stund á helgi- siöafræöi og kennimannlega guöfræöi i Englandi og Dan- mörku, og siöan hélt hann til Uppsala þar sem hann kynnti sér ýmislegt varöandi byggingu og búnaö kirkna. Um tima var Stefan settur sóknarprestur í Staöarhrauns- prestakalli á Mýrum, en áriö 1950 var honum veitt Sanda- prestakall i Dýrafiröi meö aö- setri á Þingeyri. Þegar eftir komuna til Þing- eyrar hóf Stefán virka þá tttöku i félagsstarfi. Sat hann i mörg ár þing og héraösmálafundi Vestur-lsafjaröarsýslu, var i stjórn Prestafélags Vestfjaröa, prófastur Vestur-tsafjaröar- sýslu um skeiö og nú hin siöustu ár prófastur i Vestfjaröaum- dæmi. Auk þeirra starfa sem nú hafa veriö nefnd gegndi séra Stefán og fjölmörgum trúnaöar- störfum hér á Þingeyri. Má þar m.a. nefna setu hans i skóla- nefnd um 25 ár og þá lengst af sem formaöur, hann átti sæti i barnaverndarnefnd, sýslu- nefnd, og ýmsum öörum nefnd- um og ráöum, i stjórn Kaupfé- lags Dýrfiröinga átti hann sæti i mörg ár. En þrátt fyrir þaö, aö Stefán gegndi þannig fjölmörg- um störfum samkvæmt borg- aralegri skyldukvöö, þá gafst honum samt timi tilaö vinna aö sinum sérstöku áhugamálum, sem þó voru þess eölis aö þau snertu okkur ibúa þessa byggöalags, mjög mikiö. Er þar fyrst aö nefna afskipti hans af björgunar- og slysavarnarmál- um og sföan hiö mikla og óeigin- gjarna starf varöandi þaö aö tryggja á sem allra bestan hátt samgöngur viö Þingeyri meö flugvélum. Hætt er viö aö ekki nytihér á Þingeyri núllOO metra langrar flugbrautar, ef Stefáns heföi ekki notiö viö, þvi þaö vita allir sem honum kynnt- ust, aö þau verk sem hann tók aö sér voru i öruggum höndum, og engin hætta á aö hlaupiö yröi frá þó á móti blési. Aö siöustu vil ég svo litillega drepa á starf Stefáns aö loft- skeytamálum, en þau störf tengdust mjög áhuga hans á slysavarnamálum. 1 gegnum hinar ýmsu talstöövar og fjar- skiptatæki, sem hann haföi á heimili sinu, fylgdist hann meö vestfirska flotanum á hinum hættusömu miöum jafnt nótt sem dag, og ég veit aö ég mæli fyrir munn allra sjómanna á Vestfjöröum, er ég færi honum þakkir fyrir þau störf. 40 sidur sunnudaga Aö lokum viöég svo fyrir hönd okkar sóknarbarna séra Stefán- þakka honum hin fjölmörgu störf, sem hann vann fyrir byggöarlag okkar á þeim liö- lega 27 árum, sem hann þjónaöi hér sem sóknarprestur. Eftirlifandi konu hans Guö- rúnu Siguröardóttur frá Vogi á Mýrum, og börnum hans, tengdasyni og barnabarni færi ég mínar og okkar allra sóknar- barna hans i Þingeyrarsókn innilegar samúöarkveöjur. Guö veröi meö ykkur um ókomna tima. Þóröur Jónsson, oddviti, Múla. t Sr. Stefán Eggertsson prófastur Isafjaröarprófastsdæimi andaöisti Landsspitalanum i Reykjavik 10. ágúst s.l. Hann var fæddur á Akureyri 16. september 1919, sonur Eggerts verslunarmanns, Stefánssonar prests á Þóroddsstaö, Jónssonar prests á Mælifelli, en hann var sonur Sveins læknis Pálssonar. Móöir sr. Stefáns á Þóroddsstaö var Hólmfriöur dóttir sr. Jóns Þorsteinssonar sem Reykja- hliöarætt er frá komin, en kona hans og amma sr. Stefáns Eggertssonar var Anna Ingi- björg, dóttir K-ristjáns Jóhannes- sonar á Núpum, en hann var bróðir Sigurjóns á Laxamýri og er mörgum kunnur vegna kvæðis þess er Guömundur á Sandi orti eftir hann. Kona Eggerts Stefáns- sonar og móöir sr. Stefáns Eggertssonar var Yrsa dóttir Jóhannesar Hansen kaupmanns i Reykjavik. Stefán Eggertsson tók stúdentspróf á Akureyri 1940 og embættispróf I guöfræöí viö Háskóla Islands 1944. Hann var settur prestur I Staöarhrauns- prestakalli strax aö námi loknu. Þvi þjónaöi hann I 6 ár en var þó drjúgan hluta úr ári erlendis viö framhaldsnám og lagði þá stund á helgisiöafræöi og kennimann- lega guöfræöi i Lundúnum, en kynnti sér einnig byggingu og búnaö kirkna. Sr. Stefán kvæntist 29. mai 1950 oger kona hans Guörún Siguröar- dóttir, bónda i Vogi á Mýrum Einarssonar. En það sama vor var honum veitt Þingeyrar- prestakalli i Dýrafiröi og þvi þjónaöi hann slðan. Hann haföi námsdvöl i Bandarikjunum 1962 og kynnti sér þá kirkjulega sam- félagsaöstoð. Ariö 1966 var hann viö nám i enskukennslu I Sviþjóö. Þetta er sá ferill sem rakinn veröur ihandbókum. En margt er það fleira sem ástæöa er til aö minnast aö skilnaöi. Röskan aldarfjóröung var sr. Stefán prestur á Þingeyri. Siöari árin átti hann viö vanheilsu aö striöa svo aö hann naut sin engan veginn til fulls. Samt var hann sá atkvæðamaður, aö áhrifa hans á þróun mála I héraöi gætti svo að skylt er aö minnast hans þess vegna. Þegar sr. Stefán kom til Þing- eyrar 1950 var Eirikur Þorsteins- son mjög farinnaö beita sér fyrir þvi að Vestfiröir kæmust i sam- band viö akvegakerfi landsins. Hann fékk strax öruggan og ötul- an liösmann 1 þeirri baráttu par sem sr. Stefán var. Honum voru samgöngumálin hjartans mál. Seinna varö hann forgöngumaöur I flugsamgöngum viö Dýrafjörö. En þó aö hann ynni þar mikiö starf og merkilegt einskoröaöi hann sig engan veginn viö sam- göngumálin. Hann tók virkan þátt I félagsmálum sveitar sinnar og héraös. A sviöi félagsmálanna i Þing- eyrarhreppi hygg ég aö hæst beri starf sr. Stefáns aö slysavörnum. Hann var formaöur slysavarnar- deildarinnar Vörn á Þingeyri all- an þann tima sem hann var þar. Hann vann a aö málum hennar meö óþreytandi árvekni og alúö alla tiö enda margt til fyrirmynd- ar um starf og búnaö deildarinn- ar. Hann var mikill áhugamaöur um fjarskipti og fylgdist undra vel meö þvi sem bátar og bilar létu frá sér heyra. Hefur enginn mælt þá þjónustu og fyrirgreiöslu sem hann annaöist þar sem áhugamaöur. Sr. Stefán var árum saman i stjórn Kaupfélags Dýrfiröinga. Hann var skólanefndarformaöur og sýslunefndarmaöur og átti sæti i fræösluráöi sýslunnar. Hann var um skeiö i stjórn Prestafélags Vestfjaröa og tiu ár gegndi hann formennsku i skógræktarfélagi sýslunnar. Þetta yfirlit sannar, aö Vest- firöingar hafa margsaö minnast i sambandi viö sr. Stefán Eggerts- son. Þó er enn ónefnd prestsþjón- usta hans, en þar vil ég einkum nefna starf þeirra hjóna aö æsku- lýösmálum, enGuörúnkona hans reyndist Þingeyri vel I félagsmál- um. Mun hún og hafa verið manni sinum ómetanleg stoö i störfum hans oglifi yfirleitt, svo aö aldrei veröigreint hver þáttur hennar er i starfi hans, og er þaö raunar ekki annað en þaö sem titt er þar sem vel tekst til um sambúö og hjónaband. Sr. Stefán gekk fast fram i stuðningi viö áhugamál sin. Stundum fannst mönnum aö hann legði sig svo fram. viö þaö sem hann vann að hverju sinni aö hann gleymdi flestu ööru á meöan. Skaplyndi hans var þann- ig, aö honum var engin hálfvelgja eiginleg. Og hann var I hópi þeir ra manna sem þaö er gefiö að sjá stundum alls ekki þaö sem mælir gegn óskum þeirra. Nokkrum sinnum var ég nætur- gestur hjá sr. Stefáni. Þaöan á ég ýmsar ógleymanlegar minning- ar. Hannhafðiyndi af að ræöa viö gesti sina og sat gjarnan viö þaö langt fram á nóttu. Fjarri fór þvi aö viö værum alltaf sammála. Honum var ekki eiginlegt aö fela þaösem á milli bareöa sneiöa hjá þvi, enda baöst ég ekki undan rökræðum og þrefi. Fylgi sr. Stefáns við náttúru- vernd og landgræöslu leiddi til þessaö hann talaöi stundum gegn fjárbúskap og átti þá til aö kalla sauðkindur meindýr. Hann var hispurslaus og hreinskiptin í tali og dró rökréttar ályktanir af þeirri skoðun aö ofbeit spilli landkostum. Vist þarf aö nytja landiö meö gát, og þeir sem vara við beitinni hafa hlutverki aö gegna. Vandinn er sá aö láta landiö batna og nýta þaðog nytja svo aö þaö gefi meira af sér, þoli meiri og meiri beit. Sr. Stefán var einarður málfærslumaöur og i viöræöum hugsaöi hann sem mál- flutningsmaður fremur en dóm- ari. Hann var vel máli farinn, en enda flutti hann ræöur oft blaöa- laust og talaði vel og skipulega, en heföi kannski stundum mátt gera skarpari skil á aöalatriöum og hinu þýöingarminna. Sr. Stefán Eggertsson var holl- ur og trúr þjóðlegri, aldalangri hefö islenskrarkirkju á þann veg að hann tók af heilum huga þátt i menningarlifi og félagsmálum samtiöar sinnar utan kirkju- veggjanna. Þegar hanner kvadd- ur hinstu kveöju mjög fyrir örlög fram aö okkur finnst kveöjum viö meö þökkum sérstæöan mann sem okkur þykir gott aö minnast. H.Kr. Skólahjúkrunar- fræðingur Viljum ráða hjúkrunarfræðing að skólun- um á Sauðárkróki (1/2 staða) Upplýsingar veitir formaður skólanefndar i sima 95- 5600 eða 95-5544. Skólanefndin á Sauðárkróki. Skólastjóra vantar að barnaskóla Geitfellahrepps. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist til Svavars Þor- bergssonar, Hamarsseli, Geitfellahreppi eða Guðmundar Magnússonar fræðslu- stjóra Austurlands, sem gefa nánari upp- lýsingar. Umsóknarfrestur til 10. september. Byggingaverkfræð- ingur eða tæknifræðingur óskast til starfa á Verkfræðistofu Súður- lands, Selfossi sem fyrst. Upplýsingar i sima 99-1776. rf Innilegt þakklæti sendi ég vinum og vandamönnum fyrir heimsóknir, gjafir og kveðjur á áttræöisafmæli minu þann 7. ágúst s.l. Ennfremur fyrir alla tryggð mér sýnda I veik- indum minum. Ágústa Sigbjörnsdóttir, Ljósheimum 12. é1 V Hjartans þakkir til allra vina og vandamanna sem glöddu mig með heimsóknum og á annan hátt á áttræöis afmæli minu þann 4. ágúst s.l. Þorbjörg Benediktsdóttir Árbæ. t Ingimar Ingimarsson frá Hnifsdal, sem lést að heimili sinu, Bakkatúni 22, Akranesi, þann ni- unda þessa mánaðar veröur jarösunginn frá Fossvogs- kapellu mánudaginn 21. ágúst. Jarðarförin fer fram kl. 3 siðdegis. Þóra Einarsdóttir, Bjarni Ingimarsson, Margrét Ingimarsdóttir, Rósamunda Ingimarsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jarðarför sonar okkar og bróöur Hjartar Þórs Gunnarssonar Sléttahrauni 28, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir viljum viö færa starfsfólkinu i Reykia- dal og i Selbrekku 32, Kópavogi. Hadda Hálfdánardóttir, Gunnar Jóhannesson, Jóhannes Gunnarsson, Gunnar Gunuarsson.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.