Tíminn - 27.08.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 27.08.1978, Blaðsíða 6
6 Sunnudagur 27. ágúst 1978 r (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur. framkvæmdastjórn og’ auglýsingar Siftumúla 15. Simi 86300. • .... Kvöldsfmar biaftamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verft i lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á mánufti. Blaftaprenth.f. V Erlent yfirlit Japanir ætla að efla varnir sínar 1. september Næstkomandi föstudag kveða kjarasamningar svo á að bæði grunnkaupshækkun og visitöluhækk- un eigi að verða á öllu kaupgjaldi i landinu. Næstkomandi föstudag hafa fulltrúar atvinnu- veganna gefið til kynna að rekstrarstöðvun verði ekki lengur umflúin, ef ekki verður að gert, og að allar horfur séu á að allt atvinnulif landsins stöðv- ist siðan á einnar til tveggja vikna timabili. Næstkomandi föstudag mun enginn Islendingur lengur efast um það að um veruleg vandamál er að ræða i islenskum atvinnu- og efnahagsmálum. Þá mun enginn lengur fjasa um illvilja stjórnvalda eða fjandskap við vinnandi fólk. Næstkomandi föstudag fellur vixillinn sem sleg- ist var um siðastliðinn vetur og i kosningunum i vor. Forystumenn allra stjórnmálaflokkanna hafa nú að undanförnu viðurkennt hvað það verður sem dynur yfir þjóðina i upphafi septembermánaðar ef ekki verður að gert, og forystumenn fráfarandi rikisstjórnar hafa itrekað fyrri varnaðarorð sin. Það vakti athygli, þegar Lúðvik Jósepsson stöðvaði tilraunir sinar til stjórnarmyndunar, að hann lagði á það áherslu að hér væri allt að komast i þrot og strand og þvi yrði að hraða stjórnar- myndun. Benedikt Gröndal, formaður Alþýðu- flokksins, hefur tekið undir þessi ummæli Lúðviks. Þannig hafa þessir tveir stjórnmálaleiðtogar tekið undir margendurtekin varnaðarorð fráfar- andi rikisstjórnar. Auðvitað væri það fráleitt að fara nú að rifja upp öll þau orð og ummæli sem fallið hafa um vanda efnahagslifsins i sviptingum stjórnmálanna á þessu ári. Nú skiptir það öllu máli að menn taki höndum saman og snúist af alefli gegn vandanum. Það er ekki aðeins að félagshyggjumenn æskja rikisstjórnar vinstri aflanna. Það er ekki aðeins að öll þjóðin veit að engum manni er betur treystandi til styrkrar forystu en Ólafi Jóhannessyni. Það er ekki aðeins að umleitanir undan farinna vikna hafa sýnt að Framsóknarflokkurinn einn getur höggvið á hnútana sem reyrðir hafa verið i is- lenskum stjórnmálum. Það sem langsamlega mestu máli skiptir nú i þeirri viku sem er að renna upp er að ábyrg og samstæð rikisstjórn verði tekin til starfa fyrir næstkomandi föstudag og að fyrstu ákvarðanir hennar um efnahagsmál og atvinnuöryggi lands- manna taki gildi umsvifalaust. Það er eðlilegt að allir menn eigi sér sina óska- lista og framtiðarsýnir i stjórnmálunum. Að sinni höfum við Islendingar ekki efni á sliku. Nú verður að taka i taumana og tryggja rekstur atvinnulifs- ins i landinu, atvinnuöryggi fólksins og sæmilega afkomu eftir þvi sem þjóðarhagur leyfir heimilun- um annars vegar og fyrirtækjunum og hinu opin- bera hins vegar. Aðeins nokkrir dagar eru til stefnu ef ekki á að vera komið i ófyrirsjáanlegt óefni sem hlýst af þvi að atvinnulifið byrji að falla saman. Nú má engan tima missa. Þeir óttast Sovétrfkin og Kina Fukuda forsætisráftherra Japans. SA ATBURÐUR gerðist i Tókýó seint i júli mánuði að formaður japanska herráös- ins, Hiroomi Kurisu hers- höfðingi, sagði af sér for- mennskunni samkvæmt bein- um fyrirmælum varnarmála- ráðherrans, Shin Kanemaru. Tilefnið var það, að Kurisu hafði verið óspar á ýmsar yfirlýsingar, sem ekki þóttu samrýmast þeirri stefnu sem Japan hefur fylgt i varnar- málum eftir striðslokin 1945. Samkvæmt samningum, sem Japan gerði þá við Bandarikin mega Japanir ekki hafa nema litinnher, eingöngu til varnar. Til tryggingar þvi, aö þetta fyrirheit yrði haldið voru sett ákvæði i hina nýju stjórnar- skrá landsins sem sniöa vig- búnaði þess mjög þröngan stakk. Þessari stefnu hafa japönsk stjórnarvöld fylgt dyggilega til þessa og viröist hún hafa fallið almenningi vel i geð. Einkum hafði þess verið vel gætt, að ekkert frávik frá þessari stefnu kæmi fram i opinberum yfirlýsingum. Þess hafði Kurisu ekki gætt nægi- lega. Meðal annars lét hann svo ummælt snemma á þessu ári, að Japanir hefðu ekki nægilegan eða réttan vopna- búnað til að tryggja varnir landsins, en raunhæfustu varnirnar væru fólgnar i þvi að hugsanlegur árásaraðili gerði sér grein fyrir, að árás hans yrði endurgoldin og þvi treysti hann sér ekki til að gera hana. Þetta var ekki hægt að skilja ööru visi en að Kurisu teldi nauðsynlegt að búa japanska herinn árásar- vopnum. Nokkru siðar lét Kurisu þau orð falla að sam- kvæmt gildandi lögum mætti japanski herinn ekki snúast til varnar að eigin frumkvæði heldur yrði hann að biða eftir fyrirmælum aö ofan. Herinn yrði sjálfur að fá ákvörðunar- vald I þessum efnum. 1 júnimánuði bætti Kurisu svo við þriðju yfirlýsingunni, sem kom stjórninni verst. Hann skýrði frá þvi að Rússar væru að undirbúa miklar heræfing- ar á þeim hluta Kurileyja, sem þeir hafa haldið siðan siðari heimsstyrjöldinni lauk. Rússar mótmæltu þessu sem tilhæfulausu og varð varnar- málaráðherrann að biðjast af- sökunar á fréttaburði hers- höfðingjans, sem reyndist byggður á flugufréttum. Eftir það þótti ekki tilhlýðilegt, aö hann væri áfram formaður herráðsins. ÞEIR fréttaskýrendur er- lendir sem þykja fylgjast einna bezt með japönskum málefnum, telja að i reynd hafi Japansstjórn hér hengt bakara fyrir smið. Japönsk stjór narvöld haf i unnið að því i kyrrþey að efla herinn með þvi að búa hann nýjum og full- komnari vopnum. Að vissu leyti er þetta eðlilegt, þvi að flest vopn hans nú, séu að verða úrelt. En ótvirætt sé þó, að verið sé að efla hann með hinum nýja og fyrirhugaða vopnabúnaði. Þessi viðbrögð japanskra stjórnarvalda reki m.a. rætur til þess að þau hafi fram til loka Vietnam- sty rjaldarinnar treyst á varnarsáttmálann við Banda- rikin, sem heitir aöstoð við Japan, ef á það yrði ráðist. Trúin á þeim samningi hafi minnkað eftirþetta. Þá ýti það undir þennanóttaaðBandarik- in ráðgera að draga her sinn frá Suður-Kóreu. Japanir treysti af þessum ástæðum minna á aðstoð Bandarlkj- anna en áður og telji hyggileg- ast aðverðasem mest sjálfum sér nógir, hvað þetta snertir. Eins og er munu Japanir telja að þeim stafi mest hætta frá Sovétrikjunum eöa geti stafað þaðan enda eru Sovét- rikin nú eina herveldið á þess- um slóðum sem gæti sótt Japan heim, þegar Banda- rikjunum sleppir. En Kinverj- ar eru byrjaðir að vigbúast og gætu þvi ógnað Japan eftir nokkurntfma, þrátt fyrir hinn nýgerða friðar- og vináttusátt- mála. Japanir telja vigbúin risaveldi kommúnismans tor- tryggilega nábúa og álita þvi heppilegast að vera við öllu búnir i framtiðinni. Þess gæta þeir ekki, að bæði Rússar og Kinver jar kunna einnig að lita vigbúnað Japans tortryggnum augum, þvi' að Japanir hafa sótt báða heim og reynzt sigursælli. FYRIR vestræn riki valda vigbúnaðarfyrirætlanir Jap- ana nokkrum áhyggjum, þótt af öðrum ástæðum sé. I kjölfar þeirra ráðgera Japanir að koma fótum undir vaxandi hergagnaiðnað. Þeir hyggjast framleiða hergögn sin að verulegu leyti sjálfir, en jafn- framt myndu þeir einnig hefja sölu á hergögnum. Flest bendir til, að þeir yrðu fljótir að koma upp slikum iðnaði, þar sem þeir geta I mörgum tilfellum stuðzt við upp- götvanir og hönnun annarra en þurfa ekki aö byggja frá grunni. Sennilega yrðu þeir fljótir að bæta og fullkomna það, sem þeir fengju þannig upp i hendurnar. Vestrænir vopnaframleiðendurmunu þvi ekki að ástæðulausu vera farnir að óttast samkeppni við Japani á þessu sviði. Hefji Japanir vopnaframleiðslu og verzlun aö ráði gæti þess oröið skammt að biða að þeir næðu ekki lakari árangri þar en i framleiðslu bifreiða og sjón- varpa, þar sem þeir hafa reynzt hinir skæöustu keppi- nautar vestrænna framleið- enda. Þ.Þ. JS Japanskir hermenn á göngu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.