Tíminn - 27.08.1978, Síða 13

Tíminn - 27.08.1978, Síða 13
I „Þetta var mest ganga en litiö sem ekkert klifur”, segir Guöjón. „Viö vorum þó bundnir saman. Mestu erfiöleikarnir stöfuöu hins vegar af hinu þunna lofti og fékk einnokkar „hæöaveiki”. Hún lýsir sér i þviaö menn fá uppköst, svima og höfuöverk og stafar hún af súr- efnisskorti. Við hinir uröum lika hálf-slappir. Nú — svo komum við upp i birtingu næsta morgun um kl. 7.” A skólanum: Einn nemenda aö æfa sig aö klffa upp lóörétt berg. „Einn kennaranna haföi næstum hrifist með snjóflóöinu, þvi hann var ótryggður — þ.e.a.s. ekki i 1 bandi. Honum tókst þó að gripa i mig en annars heföi hann steypst niður hundruð metra og ltklega drepið sig. Við vorum ekki hræddir þrátt fýrir þennan háska þvl að kennararnir voru með eindæmum öruggir.” Á tindinum — Fóruð þið ekkert upp á eigin spýtur — „kennaralausir”? „Jú, jú”, flýtir Guðjón sér að segja .„Fyrst reyndum við að ganga á Eigertind, þann sama og Clint Eastwood kleif i kvikmynd sem sýnd var hérna fyrir nokkru, en urðum að gefast upp vegna veðurs. Þá héldum við á Mont Blanc og þar urðum við að biða i heila viku eftir færi”. — Hvernig gekk upp? „Þannig háttar”, segir Þór, „að við tókum lest upp í 2500 metra hæð og gengum slðan upp I skála nokk- urn sem er i 4000 metra hæð. Næstu nótt lögðum við á tindinn og geng- um þangað I einum áfanga, en hann er um 4800 metra hár.” — Af hverju á nóttu? „Þá er snjórinn harður og góður yfirferðar en á daginn bráðnar hann af sól og gerir það göngur erfiðar.” Sáu mann hrapa Nö verður stutt hlé á máli þeirra félaga og er Þór djúpt hugsi en seg- irsvo: „Viðsáummann hrapa þeg- ar við vorumá leiöinni upp og var það heldurdapurlegsjón. Hannvar á niðurleið og ætlaði að stytta sér leið yfir svellbunka en missti fót- anna og steyptist niður, því hann var ekki i bandi. Við vissum aldrei hvernig honum reiddi af, en þó finnst mér óliklegt að hann hafi lif- að þetta af, þvl hann steyptist niður mörg hundruð metra I loftköstum.” „Annars fannst mér menn fara ógætilega þarna”, gripur Guðjón inn í, „sérstaklega gagnvart öðr- um. Menn ruddust upp þannig að steinaflugið stóð afturúr þeim og fann maður stundum þytinn þegar grjótið flaug niður brattann”. — Nú svo komust þið upp —• og hvernig var þarna uppi? „Fjallasýn var við og fögur”, segir Þór og gerist skáldlegur, „og útsýnið frábært. Þannig sáum við Matterhorn risa upp úr mistrinu i u.þ.b. 100 km fjarlægð, en niðri i dölunum var mistur. „Annars er nú litið hægt að lýsa þessu i orðum”, segir Guðjón. „Það var svo hrikalegt útsýni þarna— svo héldum við niður og af þvi er nú litið að segja”. Löng þögn... Eftir að hafa heyrt þessa ferðasögu ákváðum við að skyggn- ast aðeins inn I hugskot þeirra f jall- göngugarpa og beindum þvi nokkr- um persónulegum spurningum til þeirra. — Eruö þið aldrei hræddir þegar þið dinglið svona I lausu lofti? Núvarðlöngþögnog fjallamenn- irnir sukkudjúpt iháleitar hugsan- ir sinar. „Ég skynja hættuna, en fer þó ekki að skjálfa”, segir Þór og leggur þunga i orðin. „Yfirleitt grípur mann ekki ofboð þegar maður finnur þessa hræðslutil- finningu hrislast um sig, heldur reynir að meta hættuna og Kimm Islendingar á Mont Blanc — taliö frá vinstri: Guöjón Magnússon, Kúnar Nordquist. Jón E. Kafnsson, Þór Ægisson og Óli R. Gunnarsson. Ilátindur Mont Blanc I baksýn. Torkennilegir tslendingar I forgrunni. bregðast við af yfirvegun þvi það versta sem getur hent mann er aö verða stjarfur.” „Núorðiðhefur maður þá reynslu tilaö bera að maðurþekkir sin tak- mörk og veit þá hvenær á að snúa við áður en út á hálan is er komið” bætir Guðjón við. — Hvað er það sem þið sækist eftir þegar þið klifiö fjöll? „Ég fer í tvenns konar tilgangi”, segir Þór. „Annars vegar til að njóta náttúrunnar og raunar byrj- aði þetta fjallasport þannig — hins vegar til aðöðlast reynslu og bæta við þekkingu mina. Ég skal þó ekki neita þvi að maður fer einnig til aö lenda I ævintýrum og spennu.” „Já ég held að maður vilji upp- lifa ævintýriog eitthvað nýtt,” seg- ir Guðjón og tekur undir orð Þórs: „Svo lærir maður á sin takmörk, hvað maður getur og hvað ekki. Einnig lærir maður aö treysta öðr- um.” „Þvi má ekki gleyma”, bætir Þór við, ,,að sem meðlimir i Flugbjörg- unarsveitinni verðum viö að halda okkur i þjálfun og reyna sem flest. Við verðum að vera viðbúnir að fara i erfiða björgunarleiðangra og verafærir um að mæta þeim erfið- leikum sem upp koma”. „Draumatindurinn” — Hver er draumatindurinn, hvað stefnið þið „hátt”? „Þessu er nú erfitt að svara”, segir Guðjón og berar tennurnar. „Við ætlum að ganga á Mt. McKin- ley i Alaska, en það er hæsta fjall Ameriku — rúml. 6000 metra hátt og eitt kaldasta fjall veraldar. Sú ferð er fyrirhugað á næsta ári. Þá erum við að hugsa um að ganga á skiöum yfir Kjölog fara i klifurferð til Grænlands”. Okkur veröur hroilkalt við til- hugsunina eina samanog ákveöum aðslita talinuáðuren þeim tekst aö „plata” okkur með. Við ósk- um þeim þó góðs gengis og þ(8ckum að lokum fyrir spjallið. FLUCFÉLAC LOFTLEIDIfí ISLAJVDS Tll NenYork að sjá þaö nýjasta Tækni — eöa tískunýj ungar, þaö nýjasta í læknisfræði eöa leiklist, þaö sem skiptir máli í vísindum eöa viðskiptum. Þaö er í rauninni sama hverju þú vilt kynnast - þú finnur þaö í Bandaríkjunum - þar sem hlutimir gerast, New York er mikil miöstöð hvers kyns lista, þar eiga sér staö stórviðburðir og stefnumótun í málaralist, leiklist og tónlist svo dæmi séu nefnd. Frá New York er ferðin greið. Þaöan er stutt í sól og sjó suður á Flórida — eöa í snjó í Colorado. Svo er einfaldlega hægt aö láta sér líða vel viö aö skoöa hringiðu fjölbreytilegs mannlífs. New York - einn fjölmargra staða í áætlunarflugi okkar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.