Tíminn - 27.08.1978, Page 18
18
Sunnudagur 27. ágúst 1978
„Viö förum út í löncT
í heimsókn hjá Jóhönnu Kristjónsdóttur blaðamanni og formanni
Félags einstæðra foreldra
— Við förum út í lönd svaraði Kolbrá sex ára dóttir Jóhönnu Kristjónsdóttur
blaðamanns/ þegar hún var spurð að þvi hvað hún og mamma gerðu þegar þær
ættu frí. I sumar fóru þær mægður ásamt yngsta bróður Kolbrár,Hrafni tólf ára,til
Italíu og dvöldust þar í tvær vikur. Jóhanna á tvö eldri börnjlluga átján ára og
Elísabetu tuttugu ára og eitt barnabarn.Kristjón tveggja ára.
— Tómstundastörf? — Ég hef
ekki gaman af garöyrkju. Þaö
sem gert er i garðinum gerir faöir
minn en garöurinn hans er orðinn
svo ágætur að hann hefur þar ekki
nóg verkefni.
Jóhanna minnist ekki á feröa-
lög en dóttir hennar hefur trúlega
lög að mæla. Blaöalesendum
munu kunnar frásögur i Morgun-
blaðinu af ferðum hennar, m.a. til
Israel i fyrra þegar friöarviö-
ræöurnar viö Sadat stóöu þar
yfir. Og friöarplakat sem gefiö
var út i Israel i tilefni heimsóknar
hans sómir sér vel i stofu fjöl-
skyldunnar. Ég minnist þess
einnig að Jóhanna hefur heimsótt
Grikkland og Portúgal á örlaga-
stundum i þjóðsögunni.
Jóhanna.og börn hennar búa i
Skálholti eða Drafnarstig þrjú
sem Vilhjálmur skáld var kennd-
ur við, litlu grænu timburhúsi
meö vinalegum garði.
— Mikið af stundum minum ut-
an vinnutima fara i störf fyrir
Félag einstæðra foreldra sagöi
Jóhanna. Félagiö var stofnað 1969
og ég er einn af stofnendum og hef
veriö formaöur þess siöan. Ég á
erfitt meö að hætta þessu starfi
enda þykir mér gaman aö þvi.
Húsiö okkar i Skerjafirðinum er
nú senn að komast i gagnið en viö
erum aö leita tilboða i innrétting-
ar o.fl.
Jóhanna les mikiö en viö ákváöum aö hafa þaö ekki meö I viötalinu til
þess aö vera ööruvisi en allir aörir.
— Mér finnst gaman aö sauma,
ég get ekki gert aö þvi, en ég kann
ekki að sauma föt,.
— Ég hlusta litið á tónlist.
— Einu sinni fór ég i sund
tvisvar á dag en núna er ég alltaf
aö hugsa um aö fara i sund.
— Ég hef afskaplega gaman af
myndlist, það er kannski minni-
máttarkennd af þvi ég hef aldrei
getað teiknað og sæki mikið mál-
verkasýningar.
— Þá hef ég gaman af hestum,
en ég stunda ekki hestamennsku
neitt aö ráöi. Ég átti hesta og
hafði þá á húsi i Kópavogi, en þaö
var svo dýrt að þaö endaöi með að
ég seldi veslings hrossin. Nú fer
ég bara á hestbak þegar mér
býöst þaö hjá öðrum.
— Það fara þá ekki allar fri-
stundirnar i Félag einstæöra for-
eldra?
— Nei, langt frá þvi, ég held ég
kunni bara vel aö nota timann.
Jóhanna Kolbrá og Illugi i skjóli heimilisins.
„Mér finnst gaman aö myndlist, en hef aldrei getaö teiknaö”.
„Það er himneskt yndi að
Kristinsdóttir og Guðlaugur Þorvalds
A málverkinu t.v. sjást Járngeröarstaöir æskuheimili Guölaugs I
Grindavlk og i horninu er kaktus sem fær vökvun einu sinni á ári
annars hvorki vott né þurrt, „til þess aö hann fari ekki upp úr loftinu
hjá okkur”.
— Að upplagi tel ég mig fremur vera mann tómstunda-
gamans en iðjusemi/ segir Guðlaugur Þorvaldsson há-
skólarektor/ sem að vori lætur af þvi starfi og tekur við
embætti sáttasemjara ríkisins. — Þó er það svo/ að ef
hægt er að segja að ég hafi átt eitthvert tómstundagam-
an síðustu f imm til tíu árin þá er það að sitja í nefndum.
Ég er orðinn hálfgerður nefndakóngur. Og það hefurver
ið skemmtilegt/ ég hef kynnst mörgum í gegnum
nefndastörfin.
Guðlaugur Þorvaldsson og
kona hans Kristln Kristinsdóttir
hafa búiö í sambýlishúsi við
Skaftahliö I 21 ár en veriö gift sjö
árum lengur. Viö getum þó vel
hugsaö okkur aö búa i einbýlis-
húsi og eignast þarmeð garö til
aö rækta og vera i. Viö fengum
einu sinni einbýlishúsalóö neöst i
Breiöholtinu, en atvikin höguöu
þvi svo aö viö skiluðum henni aft-
ur. Þaö er lika mikið átak aö ráö-
ast i húsbyggingu og okkur hefur
liöiö hér vel. Og Skaftahliöin er I
þægilegri nánd við skólana, bæði
Isaksskóla, Hliöa- og Hamra-
hliöarskóla.
— Þaö sem ég vildi nefna fyrst
af áhugamálum eru ferðalög,
segir Guölaugur. — Ég hef alltaf
frá þvi ég var strákur haft áhuga
á landafræöi og ferðalögum. Ég
fékk raunar námsstyrk að loknu
stúdentsprófi og ætlaði að leggja
stund á jaröfræöi og landafræði i
Sviþjóö. En striöiö varð til þess aö
ég frestaöi förinni og svo varð
aldrei úr henni, ég lagði fyrir mig
viöskiptafræði hér heima og skil-
aði styrknum aftur.
Viö hjónin bæöi höfum ákaflega
gaman af ferðalögum og höfum
feröast mikiö bæöi innanlands og
erlendis. Þaö er kannski llka
þessvegna sem viö höfum ekki
ráðist i húsbyggingu, viö eyöum
peningunum i feröalög. A siöari
árum hef ég fengið sifellt meiri
áhuga á ferðalögum innanlands
og i þau get ég mætavel hugsað
mér að eyða tómstundum kom-
andi ára.
— Svo eigum við yndislegan
sumarbústað uppi i Skorradal,
bætir Kristin viö. Við höfum haft
þar samastað siöan 1967 og
byggðum okkur kofa 1971. Hann
stendur við niöandi læk i skógi
vöxnu umhverfi, svo ekki þurfum
viö að gróöursetja hann heldur
fremur að grisja.
— Við hjónin höfum bæöi lagt
stund á badminton. Ég hef spilaö
það siöan 1949 alltaf með sömu
vinunum, segir Guölaugur. Viö
hittumst alltaf i hverri viku. 1
hópnum eru góöir hagyröingar og
yið styttum okkur oft stundir við
visnagerð i baðinu.
— Þá erum viö Sisi (Kristin)
mestu dansfifl og förum mikið út
aö dansa meö sama hópnum. Og