Tíminn - 27.08.1978, Page 23
Sunnudagur 27. ágúst 1978
23
Siglingar sem íþrótt
Siglingasamband islands var stofnað 25. október
1973 og var stofnfundur sambandsins haldinn i
húsakynnum Í.S.I. i Laugardal, þar sem samband-
ið hefur aðsetur, eins og önnur sérsambönd innan
i.S.i.
Stofnaðilar að S.i.L. voru fimm talsins, en til
stofnfundarins komu fulltrúar frá UMSK, IBR,
IBA, ÍBH og HSÞ.
i lögum S.I.L. segir að markmið sambandsins sé
aðefla og styðja siglingar sem íþrótt á þar til gerð-
um bátum í samræmi við alþjóðareglur um sigling-
ar. Siglingar eru íþrótt sem bæði má stunda á sjó og
vötnum og ennfremur segir, að S.i.L. leggi mikla
áherslu á að öllum öryggisákvæðum sé fylgt út i æs-
ar við allar siglingar, hvar sem svo þær eru stund-
aðar.
ieír siglt
ekki haft fjárhagslegt bolmagn til
þess að taka þátt i þeim erlendu
siglingamótum sem okkur hefur
staðið til boða að taka þátt i.
Af öðrum liðum má nefna, að
við fengum hingað til lands fyrir
nokkru skoska landsliðsþjálfar-
ann i siglingum, og vonum við að
við getum fengið hann aftur hing-
að til lands næsta sumar, en þess
má geta að við teljum að það hafi
haft gifurlega mikið að segja að
fá hingaö slikan mann til þjálf-
arastarfa og höfðum við mikið
gagn af.
Fyrst ég er farinn að minnast á
fræðslumálin er rétt að geta þess
að á starfsáætlun S.I.L. er gert
ráð fyrir þvi aö halda námskeiö i
siglingum hérlendis, og þá með
tilliti til Grunnskóla I.S.Í. í þvi
sambandi biöur okkar mikiö
verkefni við að semja kennslu-
gögn á islensku en þau hafa engin
verið fyrir hendi áður.
Þing alþjóöa siglingasam-
bandsins veröur haldið i
nóvember n.k., og eigum við aðild
að sambandinu, en hvort verður
af þátttöku okkar I þessu þingi,
það fer allt eftir fjárhagnum,
sagði Brynjar Valdimarsson að
lokum.
—ESE
Unglingar taka æ meiri þátt i siglingalþróttinni og jafnt af báðum
kynjum.
Ný bök:
Svartfugl Gunnars
Gunnarssonar ásamt
ritgerð eftir Sveín Skorra
Almenna bókafélagið hefur
sent frá sér nýja útgáfu af skáld-
sögunni Svartfugl eftir Gunnar
Gunnarsson —aðþessusinni sem
pappi'rskilju. Bókin er gefin út
með hliðsjón af notkun viö bók-
menntakennslu i skólum, og með
þaö i huga hefur Sveinn Skorri
Höskuldsson prófessor skrifað
um söguna ýtarlega ritgerð, sem
birt er hér sem eftirmáli. Hér er
um aö ræða sögugreiningu með
þeim aöferðum, sem nú eru not-
aðar i bókmenntakennslu. Auk
þessa hefur Eysteinn Þorvalds-
son menntaskólakennari samiö
orðskýringar við söguna, einnig
kafla, sem hann nefnir Nokkur
atriöi til ihugunar, og loks Verk-
efni varöandi söguna i heild.
Svartfugl fjallar, eins og kunn-
ugt er, um hin viðfrægu Sjöundár-
mál — er sakamálasaga i orðsins
fylistu merkingu, þvi aö auk þess
aö vera spennandi veröa áhrifin
af henni þannig aö þau knýja
lesandann til umhugsunar um
sálarlif, ábyrgð, sekt og sýknu.
Sveinn Skorri tekur skýrt fram
i ritgerð sinni, að túlkun hans sé
aöeins ein leið af fleiri til skiln-
ings á sögunni. Hann segir: ,,Ef
sú leið, sem hér er farin inn I ver-
öld Svartfugls, getur opnað les-
endum fleiri vegu til hugmynda-
vekjandi upplifunar á sögunni er
vel farið, en fyrir þvi skulu grein-
insjálfsem ogsagan, er hún f jall-
ar um, lesnar gagnrýnu auga að
endanleg bókmenntaskýring er
ekki til.”
Þessi nýja útgáfa Svartfugls er
270 bls. aö stærð, þar af er sagan
sjálf 225 bls., ritgerð Sveins
Gunnar Gunnarsson
Skorra 32 bls. og athugagreinar
Eysteins Þorvaldssonar 11 bls.
Bókin er unnin I Prentsmiðj-
unni Odda.
Sértilboð
meðan
birgðir endast
VERÐ
AÐEINS
66.322