Tíminn - 27.08.1978, Side 26

Tíminn - 27.08.1978, Side 26
26 Sunnudagur 27. ágúst 1978 Nútíminn ★ ★ ★ HE SHIRTS Eins og kunnugt er þá urðu miklar breytingar og afdrifarikar í popp- heiminum á síðasta ári, bæði vestan hafs og austan, þegar hið svo kallaða punk rock/new wave hélt innreið sina og var það sannkölluð trölla- reið. Miklar breytingar urðu á hugsunarhætti manna samfara þessari innreið og „nýjar" og gjörbreyttar lífsskoðanir voru allt í einu í hávegum hafðar. Það sem var nýtt í gær var orðið gamalt, staðnað og smáborgara- legt í dag i augum hinna nýju poppherra og fylgis- manna þeirra, en þeir sem voru gamlir í hett- unni blésu aðeins fyrirlit- lega á þessa tískubólu, sem þeir töldu bæði and- þjóðfélagslega og inni- haldslausa að öðru leyti og ekki þótti þeim hin nýja stefna líkleg til að lifa af veturinn. Svo hefur farið sem margir spáðu, að það afkáraleg- asta og oft á tímum léleg- asta sem rúmaðist innan marka þessara stefnu, lognaðist út af og einkum voru hinir svokölluðu „öskutunnuhljómlistar- menn' bráðfeigir, en það sem fáa grunaði var það að rjóminn af þessum listamönnum hélt velli og nú er það svo að hinir bestu meðal þeirra eru viðurkenndir sem bæði skapandi og sjálfstæðir listamenn og það er takið mark á skoðunum þeirra. Nægir í þessu sambandi að nefna menn eins og Tom Robinson Nick Lowe, Elvis Costello, Graham Parker, og lan Dury. Hljómsveitir eins og Clash, Stranglers, Jam og Bethenal. Mest áberandi urðu fyrrgn*ndar breytingar í Bretlandi þar sem segja má að orðið hafi bylting í tónlistarlífi. Einnig hafa orðið merkilegar breyt- ingar í Þýskalandi og víðar i Evrópu s.s. Hol- landi. Punk/new wave hafa ekki átt í eins mikl- um mæli upp á pallborðið i Bandarikjunum en samt hafa nokkrar hljómsveit- ir þar getið sér nafn sem slíkar, t.d. Tubes, Devo og hljómsveitin Shirts, sem nú þykir ein at- hyglí sverðasta hljóm- sveit sem komið hefur fram á síðari árum I dag er það ætlunin að kynna Shirts lítillega fyrir les- endum í tilefni af þvi að nýlega sendu þær (skyrt- urnar, sem ættaðar eru frá Brooklyn) frá sér sina fyrstu plötu. IMii 01*11 fio Ti clriTTti IITTIQI*” com fVÍlfÍQ liU ClU pdU ^ohjll U1 lld.1 oUlll gllUd Engir nýgræðingar Það verður ekki sagt um Shirts eins og svo margar aðrar nýbylgjuhljómsveitir, að hún sé komin beint upp úr öskutunn- Annie Golden — imynd sakleysisins? unni, eða utan úr buskanum, þvi að „Skyrturnar” hafa nú i ár haldið hópinn um sex ára skeið og er þeirra fyrsta alvöru hljómplata, ,,The Shirts”, árangur þessa 6*ira samstarfs, afrakstur mikiliar vinnu og svita i sama mæli. Það verður að segja eins og er að^söngkona hl jóm s veita r inna r, Annie Golden, á mestan þáttinn i þvi hvað oröið er úr hljómsveitinni i dag. Ekki er gott að segja hvernig farið hefði ef hún hefði ekki töfraö Breta upp úr skón- um og skyrtunum meö kyn- þokka sinum og leik sinum sem aðaistjarnan I nýrri kvikmynd Milos Koreman sem gerö er eftir söngleiknum „Hair”. Þetta tvennt hefur haft gifurlegt aug- lýsingagildi I för með sér og þaö að Shirts eru komnir á toppinn i dag er bein afleiðing þess. Annie Golden Eins og segir er Annie Goiden, aðalsöngvari The Shirts. Hún er fædd i Brooklyn I Bandarikjunum fyrir 26 árum og er hún komin úr irskri strangtrúaöri kaþólskri, barn- margri fjölskyldu þar fyrir vestan. Eftir gagn- fræða/menntaskóla vann hún sem ritari hjá tryggingarféiagi, en fljótiega eftir aö hún hóf störf þar hitti hún Artie Lamonica, sem nú er aðalgitarleikari The Shirts Shirts. Artie heyrði hana rauia „Gimme Shelter” með ein- hverjum giymskratta I ein- hverri veitingaholu og fékk hann strax mikinn áhuga fyrir Annie og taldi hana hafa mikla hæfileika. Fljótlega eftir þetta tókst samstarf með þeim sem leiddi til þess að Shirts var stofnuð fyrir sex árum. En svo aö vikið sé að öörum meðlimum hljómsveitarinnar, þá eru i henni auk Arties, sem er aðal- gitarleikar þeir Ronnie Ardito gitar/söngur, Bob Raciappo bassi/söngur, John Piccolo hljómborð og Zeek Chriscione. Allt saman undarleg og fram- andi nöfn. Misjafnt gengi i upphafi áttu Shirts misjafna daga eins og algengt er um minni háttar spámenn I þessu starfi, en þeirra stóra tækifæri kom er þeim var boöið að hita upp hjá hljómsveit Tor.t Verlaines, Television, i einum frægasta klúbbi New York borgar, CBGB, en fram- kvæmdastjóri klúbbsins sem bauð þeim starfið i upphafi er nú umboösmaður Shirts. A meðan Shirts léku i þessum klúbbi hijóðrituðu þeir nokkur lög og hefur lagið POE orðið einna frægast þeirra. Það lag er nú að finna á nýútkominni fyrstu eiginlegu plötu Shirts. Shirts voru fyrir nokkru á hljómleikaferöalagi i Bretiandi en þar njóta þeir almennra vin- sælda. A meðan á ferðalaginu stóö skrapp Annie Golden nokkrum sinnum I viku yfir til Bandarikjanna til að leika hlut- verk Jeannie i Hair og þykir hún hafa gert þvi hlutverki frábær skil. Þess má að lokum geta að aö öilum likindum birtist hljóm- plötudómur um allar skyrt- urnar i næsta Nútima, en þangað til ættuð þið aö hafa hneppt upp I háls. —ESE Stór brún augu og sakleysis- svipurinn setja svip á söng- stjörnuna Antiie Golden sem m.a. fer með aðalhlutverkið i söngleiknum Hair I nýrri kvik- mynd.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.