Tíminn - 27.08.1978, Qupperneq 27
Sunnudagur 27. ágúst 1978
27
♦Vf®’'
Hljómplötudómar
Kate Bush — The kick inside
EMC3223 /Fálkinn
Kate Bush er nýtt nafn í poppheimin-
um og þó að verða aliþekkt og lögin henn-
ar, „The man with the child in his eyes"
og „Wuthering heights", hafa náð hátt á
vinsældalistum í Evrópu.
Þótt Kate Bush sé aðeins 19 ára gömul og nýbúin
að gefa út fyrstu breiðskifuna sina með áðurnefnd-
um lögum m.a., er hún þó búin að vera rúm þrjú ár
á samningi hjá EMI. Kate Bush var raunar upp-
götvuð af Pink Floydmanninum David Gilmour en
siðan hefur henni verið gefinn góður tfmi til að full-
komna sig i faginu. útkoman, „The kick inside”, er
enda stórgóð plata, gripur ekki alveg strax en vinn-
ur siðan stöðugt á. Þaö væri og mjög ósanngjarnt að
telja tónlist hennar með algjöru afþreyingarpoppi.
Bush er alvara og hún vill vera listamaður, sem hún
er, og ætti að ná til flestra með persónulegum og
innilegum stil sfnum.
KEJ.
★ ★ ★ ★
Og hvernig er svo tónlistin? Svarið viö þvf er ein-
faldlega, — frábær — .Rokktónlist af bestu og
vönduöustu gerð, sem er viðeigandi við öll tækifæri.
— Óumdeilanlega besta platan sem ég hef heyrt
lengi —.
—ESE
Bob Seger and the Silver Bullet
Band-Stranger in Town
Capitol EA-ST 11698/Fálkinn
Það þarf í rauninni ekki að fara mörg-
um orðum um „Stranger in Town", nýj-
ustu plötu Bob Seger, hún mælir best með
sér sjálf. Þó get ég ekki stillt mig um að
fara nokkrum orðum um þessa frábæru
plötu og þann sem stendur á bak við
hana.
Detroitbúinn Bob Seger er langt frá þvi að vera
nokkur nýgræðingur innan poppheimsins, þvi að um
15 ára skeið hefur hann lifað og hrærst i tónlistinni.
Það tók hann langan tima aö hljóta náð fyrir augum
almennings og hins almenna gagnrýnanda þó að áð-
ur hafi hann hlotiö viöurkenningu þröngs hóps bestu
hljómlistarmanna Bandarikjanna. Það var ekki
fyrr en með útkomu „Night Moves” (næst siðustu
plötu Segers), aö hann sló I gegn og fáum er spáð
cins miklum frama á næstu árum og einmitt Bob
Seger.
Um „Stranger in Town” er það að segja, aö hún
þykir verðugur arftaki „Night Moves”. Aragrúi
frábærra hljómlistarmanna leikur með Seger á
plötunni og ber þar fyrst að nefna hljómsveit
hans, „The Silver Bullet Band”, sem auk Seger er
skipuð fimm frábærum tónlistarmönnum. Þar er
cinnig fimm manna „rythm section” Seger til aö-
stoðar og leysa þeir hlutverk sitt mjög vel af hendi.
Af öðrum sem aðstoða á „Stranger in Town” nægir
að nefna Eagles meðlimina, Glenn Frey og Don
Felder.
★ ★ ★ ★ ★
Brimkló - ...eitt lag enn
Steinar 024
...eitt lag enn er þriðja plata hljóm-
sveitarinnar Brimklóar, sem nú er skip-
uð þeim Björgvin Halldórssyni, Arnari
Sigurbjörnssyni, Ragnari Sigurjónssyni,
Haraldi Þorsteinssyni og Guðmundi
Benediktssyni.
Flest laganna á þessari plötu eru erlend að upp-
runa og hljóma kunnuglega I eyrum, enda hafa þau
flest verið flutt af listamönnum sem eru vel kunnir
hérlendis. Þrjú frumsamin lög eru á plötunni, tvö
eftir Björgvin og eitt eftir Arnar. Um þau er þaö að
segja, að þetta eru um margt ágætis^rokklög, t.d.
„Færeyjar”, sem ætlað er að komist á toppinn á
samnendum eyjum, en heldurfinnst mér textarnir
þunnir og á það við um plötuna i heild. Ekki eru
textarnir eftir þær Brimklær, heldur eru það leigu-
pennar sem þar eru að verki. Ekki skal hér fjölyrt
um textagerð heldur vikiö litillega aö vinnubrögð-
unum á ...eitt lag enn. Hljóðfæraleikurinn er mjög
góður, enda engir aukvisar að verki. Um sönginn
verður að segja það sama og hljóðfæraleikinn, að
hann er til fyrirmyndar I alla staði og ekki kæmi
mér á óvart þó aö Björgvin væri besti rókksöngvari
landsins og þó að víðar væri leitaö, og eru þá
Færeyjar meðtaldar.
Það hefur verið sagt um Brimkló að hún væri
besta „Country -rokk” hljómsveit landsins, og er
það orð að sönnu. A ...eitt lag enn.ber þó ekki mikið
á þeirri tegund tónlistar, en þess i stað meir'a af svo
kaliaðri stuðmúsik, en það er eins og sagt er, lengi
er von á einum.
—ESE
BRIMKLO
....eitt lag enn
B+
r
L.
Verslunarstjóri
Óskum eftir starfsmanni i stöðu
verslunarstjóra.
Sjálfstætt starf og húsnæði á staðnum.
Starfsreynsla og eða verslunarmenntun
æskileg.
Nánari upplýsingar i sima 99-7708.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist fyrir 1.
september til Kaupfélags Önfirðinga,
Flateyri.
Embætti óskast
Fyrrverandi sóknarprestur, sem er at-
vinnulaus en með viðskipta og kennara-
menntun, óskar eftir stöðu sóknarprests
einhvers staðar úti á landi, ásamt barna-
skólakennslu næsta vetur.
Áhugasamar sóknar- og skólanefndir geri
svo vel að kalla umsækjanda i R.vik i sima
2-13-34 og 1-36-64 á kvöldin vikuna 27. ág.
til 2. sept.
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖÐUR
Geðdeild Arnarholti
Staða aðstoðardeildarstjóra er laus til
umsóknar strax, einnig tvær stöður
hjúkrunarfræðinga.
Daglegar ferðir eru til og frá Reykjavik
kvölds og morgna, annars eru 2ja her-
bergja ibúðir til boða á staðnum.
Geðdeild Hvítaband
Staða aðstoðardeildarstjóra er laus til
umsóknar strax, einnig staða hjúkrunar-
fræðings.
Hjúkrunar- og endurhæfingar-
deild Heilsuverndarstöð
Staða hjúkrunarfræðings er laus til um-
sóknar strax.
Sjúkradeild Hafnarbúðum
Stöður hjúkrunarfræðinga eru lausar til
umsóknar.
Gjörgæsludeild
Hjúkrunarfræðingar óskast strax.
Skurðdeild
Hjúkrunarfræðingar óskast sem fyrst.
Upplýsingar veittar á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra i sima 81200.
Reykjavik, 27. ágúst 1978.
Borgarspitalinn