Tíminn - 27.08.1978, Page 28
28
Sunnudagur 27. ágúst 1978
í dag
Sunnudagur 27.ágúst1978
Lögregla og slökkvílíö
Reykjavik: Lögreglan
simi 11166, slökkviliðið og
sjúkrabifreið, simi 11100
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkviliðið og sjúkra-
bifreið simi 11100.
liafnarfjörður: Lögreglan
simi 51166, slökkvilið simi
51100, sjúkrabifreið simi 51100.
BilanatilkynningarJ
Vatnsveitubilanir simi 86577.
Sfmabilanir simi 05.
Bilanavakt borgarstofnana.
Simi: 27311 svarar alla virka
daga frá kl. 17 siödegis til kl. 8:
árdegis og á helgidögum er
svarað allan sólarhringinn.
Rafmagn: i Reykjavik og
Kópavogi i' sima 18230. t
Hafnarfirði i sima 51336.
Hitaveitubilanir: kvörtunum
verður veitt móttaka i sim-
svaraþjónustu borgarstarfs-!
manna 27311.
Heilsugæzla
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varsla apóteka' i Reykjavik
vikuna 25. til 31. ágúst er i
Holts Apóteki'og Laugavegs
Apóteki. Það apótek sem fyrr
er nefnt annast eitt vörslu á
sunnudögum, helgidögum og
almennum fridögum.
Slysavarðstofan: Simi 81200,
eftir skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifrcið: Reykjavik og
Kópavogur, simi 11100,
Hafnarfjöröur, simi 51100.
Hafnartjörður — Garöabær:
Nætur- og hclgidagagæzla:
Upplýsingar á Slökkvistöð-
inni, simi 51100.
Læknar:
Reykjavik — Kópavogur.
Dagvakt: Kl. 08:00-17:00
mánud.-föstudags, ef ekki
næst i heimilislækni, simi
11510.
Hafnarbúöir.
Heimsóknartirni kl. 14-17 og
19-20.
Heimsóknartiinar á Landa-
kotsspitala: Mánudaga til
föstud. kl. 18.30 til 19.30.
Laugardag og sunnudag kl. 15
til 16. Barnadeild alla daga frá
kl. 15 til 17.
Kópavogs Apbtek er opið öll
kvöld til kl. 7 nema laugar-
daga er opið kl. 9-12 og
sunnudaga er lokað.
Ferðalög
SIMAR. 11798 og 19533.
Sunnudagur 27. ágúst
Kl. 10.00 Gönguferð á Hátind
Esju (909 m) Gengið þaðan á
Kerhólakamb. Fararstjóri:
Böövar Pétursson.
Kl. 13.00 Gönguferöá Kerhóla-
kamb (851 m) á Esju. Farar-
stjóri: Tryggvi Halldórsson
Verö kr. 1500 i báöar feröirn-
ar. Gr. v. bilinn. Farið frá
Umferöamiðstöðinni að aust-
anverðu.
31. ág.—3. sept. Noröur fyrir
Hofsjökui. Ekiö til Hvera-
valla. Þaðan fyrir norðan
Hofejökul til Laugafells og
Nýjadal. Gengiði Vonarskarð.
Ekið suður Sprengisand. Gist i
húsum. Fararstjóri: Haraldur
Matthiasson. Farm. á skrif-
stofum.
Miövikudagur 30. ág. kl. 08.00
Þórsmörk. (siöasta miðviku-
dagsferðin á þessu sumri).
Ath. Ferö út i bláinn þann 17.
sept. Nánar auglýst siðar.
Feröafélag tslands.
UT VlSr ARM ^Ð!«
Sunnud. 27/8
Kl. 10 Djúpavatn — Mælifell.
Gengið um Grænavatnseggjar
og viðar. Fararstj. Haraldur
Jóhannsson.
Kl. 13 Húshólmi, Gamla
Krýsuvik og viðar, létt ganga.
Fararstj. Einar Þ. Guöjohn-
sen. Fariðfrá BSl, bensinsölu
(i Hafnarf. v. kirkjugaröinn).
tJtivist
Kirkjanp^-]
Dómkirkjan:Messakl. llárd.
Séra Hjalti Guðmundsson.
Organleikari Ólafur Finnsson.
Landakotsspitali: Kl. 10 árd.
Messa. Séra Hjalti
Guðmundsson.
Keflavikurkirkja: Guösþjón-
usta kl. 11 árd. Sóknarprestur.
Frikirkjan I Hafnarfiröi:
Messa fellur niöur vegna
sumarferöar safnaöarins.
Safnaðarstjórnin.
Filadelfiakirkjan: Safnaöar-
guösþjónusta kl. 11. Almenn
guðsþjónusta kl. 20. Ræðu-
menn: Helgi Jósefsson frá
Vopnafirði og Daniel Jónasson
söngkennari. Fjölbreyttur
söngur. — Einar J. Gislason.
Asprestakall:
Messa kl. 11 árd. aö Noröur-
brún 1. Séra Grimur Grims-
son.
Arbæjarprestakall:
Guðsþjónusta i safnaöarheim-
ili Arbæjarsóknar kl. 11 árd.
Séra Guömundur Þorsteins-
son.
Breiðholtsprestakall:
Guösþjónusta i Breiöholts-
skóla kl. 11 árs. Séra Lárus
Halldórsson.
Bústaðakirkja:
Messa kl. 11. Séra Ólafur
Skúlason.
Grensáskirkja:
Messakl. 11. Organleikari Jón
G. Þórarinsson. Séra Halldór
S. Gröndal.
Háteigskirkja:
Guösþjónusta kl. 11. Organ-
leikari Martin Hunger
Friðriksson. Séra Arngrimur
Jónsson.
Hallgrimskirkja:
Messa kl. 11 Séra Agúst
Sigurðsson prestur á Mælifelli
messar. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson. Lesmessa n.k.
þriðjudag kl. 10:30 árd. Beðið
fyrir sjúkum. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson.
Landspitalinn: Messa kl. 10
árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
Kópavogskirkja:
Guðsþjónusta I Kópavogs-
kirkju kl. 11 árd. Séra Arni
Pálsson
Langholtsprestakall:
Guðsþjónusta kl. 2. Séra
Ólafur Skúlason. Sóknar-
nefndin.
Laugarnesprestakall:
Guösþjónusta að Hátúni lOb
(Landspitaladeildum) kl. 10.
Messa kl. 11 Sóknarprestur.
Neskirkja:
Guösþjónusta kl. 11. Séra
Frank M. Halldórsson.
Minningarkort
Minningarkort Sambands
dýraverndunarfélaga tslands
fást á eftirtöldum stöðum:
1 Reykjavik: Loftiö, Skóla-
vöröustig 4, Versl. Bella,
Laugavegi 99, Bókav. Ingi-
bjargar Einársdóttur,
Kleppsv. 150, Flóamarkaði
Sambands dýraverndunar-
félaga tslands Laufásvegi 1,
kjallara, Dýraspitalanum,
Viðidal.
1 Kópavogi: Bókabúðin
VEDA, Hamraborg 5
í Hafnarfiröi: Bókabúð
Olivers Steins, Strandgötu 31.
A Akureyri: Bókabúð Jónasar
Jóhannssonar, Hafnarstræti
107.
1 Vestmannaeyjum: Bóka-
búöin Heiöarvegi 9
Tilkynningar
Fundartimar AA. F'úndartim-*
ar AA deildanna i Reykjavik
eru sem hér segir: Tjarnar-
götu 3c, mánudaga, þriöju-
daga, miðvikudaga, fimmtu-
daga og föstudaga kl. 9 e.h. öll 1
kvöld. Safnaðarheimilinu
Langholtskirkju föstudaga kl. >
9e.h. og laugardaga kl. 2 e.h. ;
Skrifetofa Ljósmæðrafélags
Islands er aö Hverfisgötu 68A. í
Upplýsingar vegna
..Ljósmæöratals” þar alla
virka daga kl. 16:00-17.00.
Simi 24295.
'Geövernd. Munið frimerkja-'
söfnun Geöverndar pósthólf
1308, eöa skrifstofu félagsins
^Hafnarstræti 5, simi 13468.
krossgáta dagsins
2842. Krossgáta
Lár étt
1) Bál 6) Eldiviður 8) Glái 10)
Æð 12) Forsetning 13) Kemst
14) Dreif 16) Skip 17) Mann 19)
Litið
Lóörétt
2) Röö 3) Lézt 4) Hvæs 5)
Smyrsli 7) Heil 9) Kveða viö
11) Kindina 15) Óhreinindi 16)
Flik 18) Stafur.
Ráðning á gátu No. 2841.
Lárétt
1) Dalur 6) Sól 8) Mók 10) Lág
12) Y1 13) AA 14) Nit 16) Arg
17) Ell 19) Hlass.
Lóðrétt
2) Ask 3) Ló 4) Ull 5) Imynd 7)
ógagn 9) óli 11) Aar 15) Tel
16) Als 18) La
Hall Caine:
| í ÞRIDJA 0G FJÓRDA LID
Bjarni Jónsson frá Vogi þýddi
Hann hikaöi við en stamaöi slöan: — Já — þaö held ég — mér
getur ekki skilist annaö.
Þolinmæöi min var á þrotum, þegar klerkur fór. Eg fylgdi
honum út og sá þá hvar maöur kom inn, hár vexti, sterklegur og
heröibreiður. Haföi hann veiöidýrakippu á baki og byssu i hendi.
Þetta var húsráöandi, Tyson aö nafni. Hann kastaöi kveöju á
okkur, er við fórumst á mis og sá ég þá, aö hann var maður glaö-
legur og einaröiegur I hátterni, og gatst mér vel aö honum. Ég
kvaddi nú klerkinn og fór meö húsráöanda inn I dagvistarstofu .
hans. Var hún rauðlituð og smá og lá fyrir innan veitingaher-
bergið. Hann fagnaöi mér hiö besta og sagöi nokkur spaugsyröi
um gest minn, kallaöi hann „himinhafnsögumann” og kvaö
þetta vera fyrsta sinn, aö sá velæruveröugi léti svo litiö aö koma
þar inn fyrir dyr.Hann sagöi mér enn aö presturinn væri ofsaleg-
ur bindindismaöur og aö menn teldu þaö aöalástæöuna til aö
hann heföi fengiö embættiö viö kirkjuna.
— O, jæja, sagöi Tyson, — þaö er ekki neitt undarlegt, þegar
hugsaö er til hvaöa sjón hún hefir haft fyrir augum alla daga,
vesalingur.
— Hvaöa sjón? spuröi ég.
— Hafiö þér aldrei heyrt talaö um George gamla Clousedale?
Mér kom i hug samtal námamannanna I lestinni. — Þennan
sem menn kalla George gamla þorstláta? sagöi ég.
— Þaö er sami maðurinn, sagöi veitingamaðurinn.
— Hún ætlar sér vist aö létta af álögunum.
— Hvaöa álögum? spuröi ég.
— Þér þekkiö þá ekki sögu þeirra Clousedalemanna?
Ég varö aö kannast viö aö ég bar engin kensl á ættina, þótt
jungfrú Clousedale væri vinkona mín og einkavin. Frú Tyson
haföi borið manni sinum mat, meöan viö töluðum þetta, en nú
tók hún fram i og mælti: —Æ, vertu nú ekki aö þreyta manninn
meö þessum gömlu kerlingabókum.
Ég dró stólinn minn aö eldinum: — Sögu um álög? mælti ég. —
Hana verö ég aö fá aö heyra.
Tyson hló: — Já ef þér viljiö gera yöur frásögn mlna aö góöu,
sagöi hann og tók til aö segja söguna, en tók og hraustlega til
matar sins um leið.
George gamli Clousedale var afi Lucy og hann var upphafs-
maöur aö auöi ættarinnar. Var hann maöur strangur og harö-
lyndur. ()m hann var þaö sagt aö hann ræki gamiar og hrörlegar
konur brott meö bölvi og ragni, er söfnuöu sér gjalli úr rauösuö-
unni til þess aö orna sér. Sunnudag einn, fyrri hluta árs komu
tveir námamenn hans heim frá kirkjunni niöri I dalnum. Þá er
þeir komu þar aö, sem gengiö var yfir lækinn, spyrntu þeir fæti
viö rauöum steini. Þetta var járngrýti gott og ákjosanlegt. Var
þvi sennilegt aö fundur þeirra mundi veröa affararlkur. Þeir
bundu þaö þvl fastmælum aö segja engum uppgötvun sina fyr en
sá tlmi kæmi, aö þeir gætu tekið blettinn á leigu og hafiö náma-
gröft á sinn kostnað. Annar þeirra efndi heit sitt, en hinn rauf þaö
meö launung. Hinn oröheldni reyndi aö fá sér peningalán áður
hann færi og talaði viö eiganda blettsins, en hinn fór til húsbónda
slns og sagöi honum frá og fékk tuttugu sterlingspund fyrir greið-
ann. Viku siöar haföi George Clousedale eignast blettinn og var
farinn aö vinna þar nýjan náma. Nú varö sá námamaöurinn af-
arreiður sem svikinn haföi verið. Hann leitaöi svikarann uppi og
baröi hann til óbóta. Siöan var hann tekinn höndum og var
George Clousedale formaöur I dómnum. Endirinn varö sá, aö
vesalings maöurinn var dæmdur till fangavistar um nokkra
mánuði.
Hann var ungur maöur og haföi veriö einkastoö móöur sinnar
þangaö til. En þegar fariö var burt meö hann, gekk gamla konan
upp aö húsi George Clousedale og geröi boö fyrir hann. Hann
kom til hennar út i anddyriö og hún atyrti hann og kallaði hann
svikara og haröstjóra. Aö lokum varö hann svo æfur af hermdar-
yröum hennar, aö hann þreif svipu sem hekk þar á vegnum,
lamdi I höfuö henni og sagöi henni að fara fjandans til og aldrei
framar gera sig svo djarfa aö koma þar. En hin fátæka kona
gekk til hans og æpti: — Þrælmenni, þitt hlutskifti veröur aö fara
til fjandans, en áöur skalt þú hafa helvitis eld I brjósti þinu og
kveljast af óslökkvandi þorsta. Þú skalt drekka og drekka þang-
aö til dauðinn leysir þig af hólmi. Börn þln skulu drekka og
barnabörn og þeirra börn um allan aldur.
,,Láttu þetta ekki sttga þér til höf-
uðs. Hann fer ekki i mann-
greinarálit”
DENNI
DÆMALAUSI