Tíminn - 19.09.1978, Page 5
Þriöjudagur 19. september 1978
5
Verkalýðsfélag Borgamess:
Samþykkir að fram-
lengja samningana
Fundur haldinn I Verkalýös-
félagi Borgarness laugardaginn
16. sept. s.l. lýsti ánægju sinni
meö aö barátta verkalýös-
hreyfingarinnar fyrir gildistöku
kjarasamninganna hefur lyktaö
meö sigri launafólks. Jafnframt
lýst félagið ánægju sinni meö aö
samningar skyldu takast á s.l.
vori milli Verkalýösfélagsins,
Borgarneshrepps, Kaupfélags
Borgfirðinga og fleiri atvinnu-
rekenda á félagssvæðinu um
óskertar verölagsbætur til
handa verulegum hluta lág-
launafólks. Telur fundurinn aö
þessir samningar hafi veriö
mikilvægur áfangi f þeim sigri
sem nú hefur unnist.
Fundurinn samþykkti aö
heimila stjórn og trúnaöar-
mannaráöi, aö framlengja
kjarasamninga Verkalýös-
félags Borgarness viö atvinnu-
rekendur, til 1. des. 1979, á
grundvelli ályktunar sem sam-
þykkt var á fundi Miðstjórnar
ASl og stjórna landssambanda
innan ASÍ, 31. ágúst s.l.
Hvað varð af ásetningi fóstranna?
FI — Fóstrunemar boöuöu þaö
f vor aö ráöa sig ekki á dag-
vistunarstofnanir rikis og
borgar vegna lélegra launa-
kjara. Viö forvitnuöumst um
þaö I gær hjá Bergi Felixsyni
hjá dagvistun barna I Reykja-
vfk, hvort eitthvaö heföi oröiö
úr þessum ásetningi fóstr-
anna.
Bergur kvaö ráöningar i
fóstrustöf hjá Reykjavíkur-
borg svipaöar aö tölu og
undanfarin ár. Ekki rikti al-
gjört neyöarástand, en þó væri
ljóst, aö mikiö vantaöi upp á
til þess aö þörfinni væri full-
nægt. Sérstaklega væri h'tiö
sótt i forstööumannastörfin og
allar mannaskiptingar eru
tiöar.
Sem dæmi um þetta sagöi
Bergur aö dagvistun Reykja-
vikurborgar heföi 500 manns i
starfi, en helmingi fleiri væru
á launaákrá. Hafa þvi veriö
tvær um hvert starf á einu ári.
A Vesturlandsvegi I framhaldi af „Sverrisbraut”:
Vikugamalt olíumalarslitlag stórgallað
ATA — Svo sem kunnugt er var
borin oliumöl yfir „Sverrisbraut-
ina” svokölluöu á Vesturlands-
vegifyrlr rúmriviku.Um leiö var
sett varanlegt slitlag á alllangan
kafla (um 5 km) i framhaldi af
Sverrisbraut.
A þessum nýja kafla fór þegar
sömu helgi og hann var tekinn i
notkun, aö bera á skemmdum. Og
nú rúmri viku eftir aö vegurinn
var tekinn i notkun eru margar
stórar holur 1 honum.
Timinn sneri sér til Snæbjörns
Jónasaonar, vegamálastjóra, og
spuröi hann álits á skemmdun-
um.
— Þaö hafa oröiö einhver mis-
tök viö verkiö, sagöi Snæbjörn. —
Viö vitum enn ekki hver mistökin
voru. Viö biöum eftir aö fá
skýringar á þessu.
— Verktakinn, Hlaöbær h.f., er
nú I vegagerö upp á Akranesi, en
mun ljúka framkvæmdum þar
einhvern næstu daga. Þá mun
verktakinn lagfæra kaflann á
Vesturlandsveginum og kanna,
hver mistökin voru.
— Ég vil taka þaö fram, aö
Vegageröin kom ekki nálægt
þessum framkvæmdum og
vegurinner enn i ábyrgö verktak-
ans, sagöi Snæbjörn Jónasson,
vegamálastjóri.
Verkfræði- og raunvisindadeild H.Í.:
Gífurlegt fall
á fyrsta ári
HR — Innan viö 50% af 1. árs nemum viö verkfræöi- og raunvlsinda-
deild H.t. ná upp á 2. ár.Þetta kemur fram f athyglisverörigrein sem
Siguröur V. Friöþjófsson deildarfulltrúi vérkfræöi- og rt.unvfsinda-
deildar, ritar I árbók Háskólans fyrir árin 1973-76.
Greinin fjallar um könnun á
námsárangri stúdenta i deildinni
sem innrituöust haustiö 1973.
Niöurstaöa könnunarinnar var sú
aö af 155 stúdentum sem skráöir
voru til náms allan veturinn náöu
aöeins 53 prófi upp á 2. námsár.
Þá er reynt aö kanna hvert sé
sambandiö á milli árangurs
stúdentanna á stúdentsprófi og
námsáranguns þeirra á 1. ári i
verkfræöi. Kemur þar fram aö
þeir stúdentar sem standast próf
upp á 2. námsár eru meö mun
hærri meöaleinkunn á
stúdentsprófi en hinir sem falla
eöa gefast upp viö nám. Þannig
nær aöeins fjóröi hver stúdent
meö III. eink prófi en rösklega
helmingur stúdenta meö I. eink.
1 niöurlagi greinarinnar er vik-
iöaö þvi hvernig koma megi i veg
fyrir þessa miklu timasóun
stúdenta á 1. ári og jafnframt
spurt hvort þessi sóun eigi aö fara
fram á 1. ári i háskólanum eöa i
menntaskólunum. Er þar taliö
æskilegast aö setja einhver
einkunnamörk varöandi inntoku i
deildina en einnig aö gefa
stúdentum, undir þeim mörkum,
tækifæri til aö endurtaka próf á
menntaskólastiginu ef vera kynni
aö þaö minnkaöi þá miklu tima-
sóun sem nú er raunin þegar 50%
þeirra falla.
Snæfellið náðist
á flot í gær
t gær tókst aö ná Snæfellinu
upp en þaö sökk sem kunnugt er
á Akureyri þann 7. september
þar sem þaö lá bundið viö hliö
gamla siöutogarans Haröbaks.
Aö sögn Þorsteins Þorsteins-
sonar, verkstjóra hjá Slippstöö-
inni, gekk seint aö ná skipinu
upp. Ennþá á eftír aö þurrka
upp skipiö og þétta þaö.
Snæfelliö hefur legiö viö
bryggju á Akureyri I mörg ár.
Blaöiö hefur heyrt aö nú liggi
næst fyrir eftír aö búiö er aö
þurrka upp skipiö og þétta þaö
aö sigla þvi á hentugan staö og
sökkva þvi siöan.
býður þilplötur
í þúsundum!
Þilplötuúrvalið hjá okkur hefur aldrei verið annaö eins, og þá
er mikið sagt.
Þú kemur aðeins með málin og færð þá þilplöturnar afgreiddar,
beint úr upphituðu húsnæðinu, í þeim stærðum sem þú óskar.
Úrval og þjónusta sem fagmenn meta mikils.
Þvi er þér alveg óhætt.
BYGGINGAVÖRUVERSLUN KÓPAVOGS SF. SÍMI 41000