Tíminn - 06.10.1978, Blaðsíða 5
Föstudagur 6. október 1978
5
Sendiherraskipti
USA á íslandi
Jimmy Carter skipaði I gær
Richard Ericson til að gegna
störfum sendiherra Bandarikj-
anna á tslandi i stað James
Blake, er nú lætur af störfum.
Aö sögn Harðar Helgasonar,
skrifstofustjóra í utanrikisráðu-
neytinu, hefur Ericson starfað
mikið iKóreu og Japan, en kemur
hingað frá störfum i Bandarikj-
unum.
James Blake tekur viö störfum
forstöðumanns námskeiðahaids
fyrir háttsetta bandariska dipló-
mata.
Húsið við Skeljanes 6, þar sem einstæðir foreldrar I húsnæðisvandræð-
um munu eftir áramótin fá inni þar til úr málum þeirra rætist.
Timamynd Róbert
Sjónvarpstæki
og sófasett
á flóamarkaði hjá einstæöum foreldrum
í Fáksheimilinu um helgina
Um næstu helgi, laugardag og
sunnudag 7. og 8. október, heldur
Félag einstæöra foreldra árlegan
flóamarkað sinn og verður hann i
Fáksheimilinu eins og i fyrra.
Markaðurinn verður opnaöur kl.
2. e.h. báða söludagana. Flóa-
markaðir FEF eru löngu orönir
árviss viðburður og vinna félagar
mikið sjálfboðastarf við undir-
búning hans. Allur ágóði af
markaðnum rennur til að kaupa
innréttingar o.fl. i húsið að
Skeljanesi 6, sem tekur til starfa
um áramót ef allt fer að likum.
Flóamarkaöurinn er mjög fjöl-
breyttur. A boðstólum er nýr og
glæsilegur fatnaður, mikið af
notuðum fatnaði, leikföng, lukku-
pakkar, sjónvörp, svefnbekkir,
barnarúm, skápar, sófasett,
plötuspilari, matvæli, búsáhöld,
skrautmunir, saumavél og
prjónavél, og er þá aðeins fátt
eitt upp talið.
Geta má og þess að jólakort
FEF i ár verða fimm og eru i
vinnslu i Kassagerðinni að venju.
þá hafa veriö myndaðir starfs-
hópar vetrarins og er starf sumra
hafið.
Líðan gömlu
konunnar
skárri
— Drengurinn, sem
varfi fyrir bll á Sel-
fossi er enn ekki kom-
inn til meðvitundar
ATA — Liðan gömlu konunnar,
sem slasaðist i umferöinni á
þriðjudagskvöldið, var heldur
skárri i gær.
Hún hlaut mikið höfuðhögg er
bill ók á hana á Snorrabrautinni.
Hún var flutt á slysadeild Borgar-
spitalans og þaðan á gjörgæslu-
deild. Hún mun hafa fengið heila-
hristing. 1 gær var hún flutt af
gjörgæsludeild, enda liðanin
betri.
Drengurinn, sem lenti fyrir bil
á Selfossi á mánudaginn, er enn
ekki kominn til meðvitundar.
Hann liggur á gjörgæsludeildinni
og að sögn lækna er liöan hans
eftir atvikum.
Færð ótrygg á
Breiðdalsheiði
og Botnsheiði
ATA — Sem betur fer er lítið að
frétta héðan, sagði Sigurður
Sigurðsson, lögreglumaður á tsa-
firði. Lifið hefur gengið frekar ró-
lega fyrir sig siðustu daga hér.
— bað hefur snjóað talsvert á
Breiðdalsheiði og Botnsheiði og
þessir fjallvegir hafa verið ófærir
við og við. Sem stendur eru veg-
irnir færir en þeir gætu sem best
orðið ófærir aftur hvenær sem er.
Vegagerðin hefur staðið sig ágæt-
lega það sem af er haustinu og
hefur meðal annars verið að
vinna við að hækka upp veginn
yfir Botnsheiði til Súðavikur. Sú
framkvæmd ætti að gera veginn
greiöfærari á veturna.
— Við erum farnir að finna fyrir
návist vetrarins, sagði Sigurður
Sigurðsson, enda er jörð farin að
grána alveg niður i byggð.
Leiðrétting
Sú meinlega villa var I grein
um starfsemi Flugleiða i Luxem-
borg sem birtist i Timanum á
fimmtudag að talað var um Air
Viking þar sem augljóslega var
átt viö Arnarflug. betta leiöréttist
hérmeð ogþeirsem máliö snertir
beðnirafsökunar. KEJ
Hraðskreiðir bílar
ekki bannaðir
í bráð
HEI— Vegna þess að nú þykir
miklu varða að banna sölu á geri
til að fólk lendi ekki I þeim slysum
aö brugga of sterk vin, datt okkur
á Timanum i hug aö spyrja Ölaf
W. Stefánsson í dómsmálaráð-
neytinu, hvort næst gæti ekki
komið til mála að banna innflutn-
ing á bilum, sem kæmust yfir 70
km hraða.
„bað má kannski nefna þetta i
sömu andránni”, sagði Ólafur,
,,þó ég vilji nú ekki bera þetta
alveg saman. En þetta er eins og
gengur og gerist að hegöun
manna getur veriö með ýmsum
hætti. Viö t.d. leyfum fólki að eiga
byssur, þó við ætlumst ekki til að
þaðskjótiannaöfólkmeðþeim. A
sama hátt leyfum viö fólki að eiga
bfla, þótt þeirséuþannig búnir aö
beita megi þeim meö öörum hætti
en reglur segja til um”.
— Hafa mörg bruggmál komiö
upp?
,,Ég held að ekki hafi komið
mörg slik mál til kasta lögregl-
unnar, þótt alltaf komi einstöku
mál fýrir, en þau eru mjög fátiö”.
Einsöngstónleikar
á laugardaginn
A laugardaginn klukkan 2:30
verða haldnir tónleikar I Austur-
bæjarbiói á vegum Tónlistarfé-
lagsins. Ingveldur Hjaltested
syngur viö undirleik Jóninu
Gisladóttur.
A efnisskránni verða lög eftir
Franz Schubert, Johannes
Brahms, Richard Strauss, Pál
tsólfsson, Edvard Grieg, Jean
i Sibelius og G. Puccini.
Ingveldur Hjaltested hóf söng-
feril sinn i bjóðleikhúskórnum en
lærði siðan bæöi hérlendis og i
Englandi, býskalandi og Belgiu.
Jónina Gisladóttir stundaði
nám I pianóleik við Tónlistarskól-
ann i Reykjavflc hjá Herminu
Kristjánsson og Arna Kristjáns-
yni. Hún hefur einnig sótt náms-
keið i Belgiu.
Óskum að ráða
tVo verkamenn til starfa i verksmiðjunni
Akranesi.
Sementverksmiðja rikisins.
Með Ferðamiðstöðinni
IGEDO
DUSSELDORF
Alþjóðleg
tískusýning
22.-26. október
KANARIEYJAFERÐIR
í allan vetur
■
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9, simar 28133 — 11255
LOIMDOIM
Næsta ferð
21. október
NORFISKING
OSLÓ
Alþjóðleg
fiskiiðnsýning
20.-26. nóvember
Seljum farseðla
um allan heim
á hagkvæmasta verði
■
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9, simar 28133 — 11255