Tíminn - 06.10.1978, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.10.1978, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 6. október 1978 á víðavangi „Gestaleikur ” a la Benedikt Gröndal Nokkrar umræöur hafa átt sér staö aö undanförnu um mögulega tilvíst kjarnorku- vopna á tslandi i tengslum viö varnarliðiö á Kefiavikurflug- velli. Gunnlaugur Stefánsson, al- þingismaöur (A), sagöi um þetta máliviötali viöTimann fyrir skömmu, aö sér fyndist einkennilegt, ef varnarmáttur hersins byggöist ekki á nýj- ustu tækni i vopnabiinaöi, þ.e.a.s. kjarnorkuvopnum. Þessi skoöun Gunnlaugs er ekkert óeöliieg, þegar tillit er tekiö til þess mikilvæga hlut- verks, er ráöamenn NATO álfta að island gegni i varnar- keöju hins vestræna heims. Engin kjarnorku- vopn á íslandi Benedikt Gröndal, núver- andi utanrikisráðherra, var siöan inntur álits á ummælum samflokksmanns sins og sagöi þá m.a.: „ícger þeirrar skoö- unar, aö engin kjarnorkuvopn séu geymd hér, enda teldi ég aö þaö væri útilokaö aö fela þaö fyrir islendingum ef svo væri. Þaö eru geröar þaö mikiar öryggisráöstafanir þegar um svona „ófreskjur” er aö ræöa, þannig aö ég tel aö þaö myndi ekki dyljast nein- um ef kjarnorkuvopn væru geymd hér”. t framhaldi af oröum utan- rikisráöherra er full ástæöa til aö rifja upp umræöur á Al- þingi islendinga I. april 1976. Þá fluttu Svava Jakobsdóttir og Magnús T. ólafsson þings- ályktunartillögu um bann viö geymslu kjarnorkuvopna á is- lensku yfirráöasvæöi. Nokkru áður haföi veriö fullyrt I þremur timaritum, aö hér á landi væru kjarnorkuvopn til staðar. Alltaf rétt að vera tortrygginn i umræðum um fyrrnefnda þingsályktunartillögu tók Benedikt Gröndal til máls og farahérá eftirglefsur úrræöu hans: „Þegarspurningin um hvort hér séu kjarnorku vopn án okkar vitundar eöa ekki hefur komiö upp höfum viö (þing- menn Alþýöufl.) tekiö trúan- leg orö islenskra yfirvalda og íslenskra utanríkisráðh. sem lengi vel voru úr okkar eigin flokki. Viö sjáum ekki ástæöu til að byrja skyndilega að vé- fengja orö þeirra þegar utan- rikisráðh. er úr öörum flokki. Það er aö vísu alltaf rétt aö vera tortrygginn i málum eins og þessu og raunar I utanrfkis- og öryggismálum öllum”. .r.þó að mig skorti þekkingu... Þá ræöir Benedikt um þær fyrirferðarmiklu öryggisráö- stafanir, sem viðhaföar séu i kringum kjarnorku vopn, en segir svo: „Nú hcfur tækninni fleygt fram, og þaökann aö vera svo, þó aö mig skorti þekkingu til aö dæma um þaö, aö vopnin séu oröin þaö miklu minni, léttari og aö öryggisráöstaf- anir séu nú á dögum fyrir- ferðarminni heldur en áöur voru, þannig aö þessar rök- semdir fái ekki lengur staöLst, og ég sé ekkert á móti þvl aö Alþingi láti kanna þetta mál mjög vel og taki sinar ákvarö- anir aö þvl loknu”. Einni veigamestu hættunni sleppt Þá segist Benedikt undrast, aö flutningsmenn þingsálykt- unartillögunnar skuli hafa sleppt „einni veigamestu hættunni á þvi aö kjarnorku- vopn komi hér I nágrenni viö okkur og springi e.t.v. f loft upp I fanginu á okkur, en þaö eru kjarnorkuvopn um borö I skipum”. Siöar segir hann: „...erlend herskip hafa veriö hér t.d. á ytri höfninni i Reykjavik og lagst upp aö bryggju, fjöldamörg skip frá ýmsum löndum sem vel gætu veriö meö þessi vopn innan- borðs”. Og hann ítrekar þetta f lokin :.hér kunna aö koma skip aö landi sem hafa þessi vopn innbyröis”. Af þessum umræðum á Alþingi 1. april 1976 má glöggt greina, aö þeir Benedikt Gröndal eru ekki á sömu skoðun, Bene- dikt Gröndal alþin gismaöur og Benedikt Gröndal utan- rikisráöherra en þaö er vlst, aö Gunnlaugur Stefánsson hefur fullan rétt á aö finnast það „skrýtiö ef ekki eru kjarn- orkubomburá Keflavikurflug- velli”, þvi eins og einhver sagöi: .alltaf rétt aö vera tortrygginn i máium eins og þessu”. Hnýsnir íslendingar Viöbrögö blaöafulltrúa varnarliösins viö frekjulegri afskiptasemi tslendinga, þeg- ar þeir leyfa sér aö spyrja hann út i tiivist kjarnorku- vopna á islandi, eru kapftuli út af fyrir sig. Hann telur sig ekki hafa heimild til aö játa tiiveru þeirra hér á landi né neita. Hvaö þýöir þetta? Af hverju s varar hann þessu ekki neitandi, ef geymsla slikra vopna á tsiandi er óheimil? Liggur ekki beinast viö aö álykta, aö ef Bandarikjamenn vildu hafa hér kjarnorkuvopn, þá myndu þeir ekki leita heimildar hjá islenskum yfir- völdum? Svar blaöafulltrúans vekur ekki aöeins eölilega tor- tryggni, heldur vitnar þaö um siöleysi og dónaskap. —SS Tvimenningskeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar Næstkomandi mánudag (9. október) hefst aöaltvimennings' keppni Bridgefélags Hafnar- fjarðar. Ætlunin er aö hún standi I Ragnar H. Ragnar. 4 kvöld og eru menn hvattir til aö taka þátt í keppninni. Ailtaf er spilaö á mánudögum aö Hjalla- hrauni 9 i Hafnarfirði. Afmælistónleikar til heiðurs Ragnari H. Ragnar A morgun verða haldnir á tsafiröi tónleikar til heiöurs Ragnari H. Ragnar skólastjóra tónlistarskólans á ísafiröi, en hannn varð áttræöu. 28. september s.l. A efnisskránni veröa eingöngu islensk kammerverk og sönglög eldri og yngri og er þaö aö ósk afmælisbarnsins. Meöal höfunda verka þeirra er flutt veröa má nefna, Jón Nordal, Jón Þdrarinsson, Þorkel Sigur-. björnsson, Atla Heimi Sveinsson, Sigurö Egil Garöarsson, Jónas Tómasson og Hjálmar Ragnars- son. Stjórn BH er nú þannig skipuð : Sævar Magnússon, formaöur, Björn Eysteinsson, varafor- maöur, Hörður Þórarinsson og Ægir Magnússon, gjaldkerar, Stefán Pálsson, áhaldavörður og Guðni Þorsteinsson, ritari. Ný ljóðabók Komin er út ljóöabók, sem heitir Flóöhestar í glugga. Undirtitill: Kveðskapur. Höf- undur er Jónas Friðrik Guðnason, og hann gefur sjálfur út bók sina. Ljóðin eru með ýmsu sniöi, rimuð og órimuð, alvarleg og gaman- söm. Hér er litiö sýnishorn af siðast töldu gerðinni. Þaö er visa sem heitir Trimm: Linurnar eru óöum aö skýrast og árangur næsta lokkandi: Þeir, sem voru feitir i fyrra, eru farnir til himna - skokkandi. Flóðhestar i glugga er 71 blaö- siöa að lengd. Bókin er prentuö i Prentiön, Garöabæ. Rússar eiga sér skopblaö sem heitir Krókódfll. Arum saman hefur þaö reynt aö vekja fólk til vitundar og hugsunar um þaö hver vitleysa vodkadrykkjan er 0g áhrif hennar óskapleg. Þessi mynd af „sjálfsmorösneytandanum” birtist i Krókodilnum. Þeir sem komnir eru nokkuð á efri ár muna vel hvaðýmsir róttækir menn sögðu um áfengismálin á fjórða tug aldarinnar. Þá heyrðum við oft að i Sovétrikjunum væri ekki neitt áfengisvandamál. Drykkjuskapur væri einkenni hrörnandi þjóðskipulags og ætti allar sinar orsakir i þvi að Sovétmenn þyrftu enga bindindis- hreyfingu og þekktu þó ekki áfengisböl, nema úr fjarlægð i rúmi og tima. 1 sam- ræmi við þetta bæri islendingum að hverfa frá vonlausri ogþrákelknislegri bindindisboðun en byggja upp nýtt þjóð- skipulag, sem tæki frá mönnum sjúklega fýsn til sterkra drykkja. Það var nú þá. Nú virðist reynslan fyrir löngu hafa leitt i ljós að þessar björtu vonir byggðust ekki á raunsæi. 10%rýmuní framleiðni Næst á eftir krabbameini og hjartasjúkdómum er drykkju- skapur algengasta banamein i Sovétrikjunum. Sjónvarpið var- ar menn kröftuglega við of- drykkju og leiötogar flokksins þruma um þjóöarböliö. Fréttaritari norska blaösins Aftenposten i Moskvu sendi blaöi sinu nýlega grein um áfengismálin austur þar. Mikiö er þar talaö um aö eitthvað verði að gera til aö minnka áfengisneysluna,en henni er nú kennt um að framleiðni sé 10% minni enella, auk þess sem hún eigi sök á helmingi allra um- ferðarslysa og fullum þriöjungi allra afbrota. Sumir vilja taka upp áfengisskömmtun, en aðrir vilja banna alla brennivinssölu. Héraða- bönn hafa verið reynd Einskonar héraðabönn hafa veriö reynd. Nýju , borgirnar meðfram járnbrautinni milli Bajkal og Amur hafa veriö bannbæir. Þegar Kamaz, vöru- bílaverksmiöjan mikla var I smiöum var bærinn, en ibúar hans eru um 38 þúsund, næstum þurrkaöur svo aö verkiö gengi greitt. 1 tæp sjö ár var áfengis- sala næstum engin i bænum. Verkiö sóttist vel, afbrot voru fá og heilsa verkamanna se'r- lega góö. Hjartaáföllum, maga- nýrna- og lifrarsjúkdómum fækkaðiogtaugaveiklunar gætti litiö og vinnuslys voru miklu færri en titt var á sambærileg- um stööum. Þegar verksmiðjan var full- byggð i fyrra og framleiöslan hófst var banninu aflétt. Drykkjuskapur i bænum er þó enn minni en i meðallagi. Ur vöndu að ráða Þrátt fyrir þessa góöu reynslu i Kamaz telja margir að ekki veröi unnt að sigrast á drykkju- bölinu með banni. Hér skipti mestuaðbrjótaniðurhina fornu drykkjutisku og venja menn af þvi að þykja þaö karlmennska að hvolfa i sig hverju vodka- glasinu af öðru. Kenna þurfi þjóöinni aödrekka i hófi og með menningarbrag, segja sumir. 1 staö þess að selja brennivin i svo tíl hverri matvörubúð eigi aö koma upp finum vinstofum og veitingahúsum. Aörir segja að meira beri að treysta á fræðsluna, þrátt fyrir það að sjónvarpið hefur flutt fræðsluþætti siðustu árin á besta sjónvarpstima án þess aö æskilegur árangur sjáist. Nú eigi að fræða menn enn betur um áhættu og afleiöingar drykkjunnar, t.d. i sambandi við hjúskap og fjölskyldumál. Drykkjuskapur á mikinn þátt i þvi að þriðja hvert hjónaband i Sovétrikjunum leysist upp. Neyðaróp gömlu konunnar Oldruð kona skorar á rikis- valdiö að hætta áfengissölu:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.