Tíminn - 06.10.1978, Blaðsíða 19

Tíminn - 06.10.1978, Blaðsíða 19
Föstudagur 6. október 1978 19 Hvað varð um „stj órana” f rá HM í Argentínu? — fáir menn eru eins valtir í sessi og landsliðsþjálfarar, eins og reynslan eftir HM hefur sýnt Framkvæmdastjórar landsliða eru sennilega valtari i sessi en nokkrir aðrir menn á jarðriki. Annaðhvort eru þeir dýrkaðir sem þjóðhetjur, eða þeim er bölvað út i ystu myrkur. Það er gamalt máltæki i knattspyrnunni sem segir, -ef þú ert I vafa, rektu þá framkvæmdastjórann. Þetta máitæki virðist enn vera l fullu gildi þvi framkvæmdastjórar fjúka að segja má i hverri einustu viku. Það er ærið fróðlegt að skoða hvað orðið hefur um fram- kvæmdastjóra þeirra 16 liða, sem léku til úrslita i HM i Argentínu nú s.l. sumar. Sumir halda enn stöðum sinum, en þeim sem ver gekk var kastaö i burtu um leið og þeir stigu fótum sinum aftur á fósturjörðina. Cesar Luis Menotti, stjórnaði argentinska landsliðinu og leiddi það til sigurs i heimsmeistara- keppninni í sumar. Þrátt fyrir þennan stórkostlega árangur hans og leikmannanna, er fram- tið hans enn á huldu. Menotti var og er dýrkaður, sem hetja i heimalandi sinu, Argentinu, en engu að siður eru knattspyrnu- yfirvöld i landinu ekki- viss um hvort þau eigi að bjóða honum langtimasamning. Það kemur lika inn i dæmið, að Menotti sjálfur virðist ekki vera allt of ginkeyptur fyrir langtima- samning. Helmut Seqekowitch sem var á bak við velgengni austrriska landsliðsins I undankeppninni fyrir HM stjórnaði landsliði sinu i úrslitakeppninni og þrátt fyrir ágætan árangur, þ.á.m. sigur yfir V-Þjóðverjum, neyddist hann til að segja af sér. Framtið Claudio Couthinos hjá Brözzunum er enn óráöin og ólik- legt er að hann haldi mikiö lengur áfram með landsliðið. Frakkar eru ekki eins kröfuharðir og flestir nágrannar þeirra og þeir virðast hafa meiri þolinmæöi og biðlund. Þeirra „stjóri” er Michel Hidalgo og hann var meö liðiö i Argentinu þrátt fyrir töluverð vonbrigði var honum boðiö að halda áfram með liðið og mun hann annast framkvæmdastjórn a.m.k. fram yfir Evrópukeppni landsliða 1980. Ernst Happel, sem stjórnaði landsliði Hollands, sem hirti silfurverðlaunin i Argentinu sagði af sér er heim var komið og kom afsögn hans mjög á óvart. Jan Zwartkruis tók við stöðu hans og grenilegterá öllu að hann hyggst feta ífórspor fyrirrennarra sinna. Lajos Baroti.sem var með Ung- verjana var rekinn um leið og sást til hans á flugvellinum, en Ungverjarnirvoru mjög óheppnir i keppninni og voru t.d. tveir leik- manna þeirra reknir út af i keppninni gegn Argentinu- mönnum fyrir ómerkileg brot. Liöiö brotnaði mikið niður við þetta áfall og að sjálfsögðu fékk höfuö Baroti að fjúka. Enginn fékk þó eins slæma Ut- reiö og landsliðsþjálfari Mexikó- manna, JoseAntonio Roca.Hann var nánastdýrlinguri heimalandi sinu eftir að Mexikanar höfðu Arni Indriðason hefir hér stungið sér inn I vörn Þróttar. Sami haustbragurinn — á Reykjavikurmótinu i handbolta 1 gærkvöldi voru leiknir þrir leikir i Reykjavfkurmótinu i h andknattleik. Fyrsti ieikur kvöldsins var á milli Vikings og Þróttar. Þróttarar áttu sigurvon I riðlinum ef þeir naÆu aö sigra Viking, en það var aldrei spurn- ing um það, heldur aöeins hversu stór sigur Vikinga yröi. Vikingarnir höfðu undirtökin frá upphafi til enda og Þróttarar eygðu aldrei glætu i leiknum. Greinilegt er á öllu, að pólski þjálfarinn hjá Viking er þegar farinn að setja mark sitt á leik þeirra. Staðan i hálfleik var 12:7 og i siðari hálfleik breikkaði bilið stöðugt og lokatölur urðu 25:15 fyrir Viking. Með sigri sinum i kvöld má eiginlega segja aö Vik- ingar séu öruggir upp úr slnum riðli, en tvö lið fara upp Ur hverj- um riöli. Næsti leikur á eftir var viður- eign Vals og IR. ÍR-ingar hafa i gegnum árin veitt Valsmönnum harða mótspyrnu og svo var einn- ig i kvöld, en mótspyrnan entist aðeins fram að hálfleik, þá var úthaldið á þrotum. 1 hálfleik skildi aðeins eitt mark og var staðan 11:10 Val I hag. I seinni hálfleik var aðeins eitt lið á vellinum — Valur — og bilið breikkaði stöðugt og i lokin mun- aði 9 mörkum 25:16 Val I hag. Slöasti leikur kvöldsins var sá allra slakasti og var þó ekki úr háum söðli aö detta. Þar áttust við „liö” Leiknis og lið Fram. Blm. leyfir sér að setja gæsalapp- ir utan um LIÐ Leiknis, þvi þar stóö ekki steinn yfir steini. Til marks um getuleysið má geta þess, að Fram komst i 10:01 hálf- leik var staöan 15:5 Fram i hag. Seinni hálfleikurinn var alger leikleysa og i lokin var leikurinn eins og sirkus á aö horfa. Lokatöl- ur urðu32:17Framihagogeitt er vist, að áhorfendur önduðu léttar þegar leiknum lauk. Það hlýtur að vera umhugsun- arefnifyrir félögin að Reykjavik- urmótið einkennist nú ár eftir ár, af vitleysu og mistökum. Leik- menn leggja engan metnað í mót- ið — taka þaö nánast sem æfinga- mót. Handknattleikurinn batnar ekki, nema hugarfarið breytist og ættu liöin að reyna að sýna mót- inu örlitið meiri virðingu. _ssv_ Cesar Luis Menotti — maðurinn á bak við velgengni Argetinumanna. tryggst sér réttinn til að leika i Argentinu, en þegar liðinu gekk siðan herfilega i úrslitakeppninni var honum fagnaö með tómata- kasti á flugvellinum og þegar hann kom inn i flugstöðvarbygg- inguna beið hans skrifleg upp- sögn. Aðrir „stjórar” hlutu misjafnar móttökur i heimalöndum sinum og framtið Gmoch, hjá Pól- verjum var lengi I vafa, en hann virðist ætla aö halda áfram meö landsliöið. Engin ákvörðun kom þó eins mikið á óvart og uppsögn landsliös þjálfara TUnisbúa. Landsliö Túnis kom mest á óvart af öllum liðunum i Argentinu og sýndi á köflum mjög skemmti- lega knattspyrnu. Enginn skildi neitt I neinu þegar hann lagði fram uppsögn sina, en sagöi sjálfur aö persónulegar ástæöur lægju að baki ákvörðuninni. Af framangreindumáráða það, að það er ærið margt sem spilar inn í hjá þessum mönnum, sem sjá um landsliðin. Ábyrgðin, sem þeir axla er gifurleg og staða þeirra er siöur en svo öfundsverð, en engu aö siður viröast alltaf vera menn til staðar, sem eru reiðubúnir aö hætta lifi og limum i þágu knattspyrnunnar. _ssv— Einliðamót TBR Sunnudaginn 15. október verö- ur haldið opið badmintonmót á vegum TBR. Mótið verður haldið i húsi féiagsins að Gnoðarvogi og hefst ki. 14. Keppt verður i einliðaleik karla og kvenna. Þeir sem tapafyrst leik fara I sérstakan aukaflokk. Mótsgjald hefur veriö ákveöið kr. 2000. Þátttökutilkynningar frá félögum skulu hafa borist til TBR eigi siðar en miðviku- daginn 11. okt. n.k. Hausthátið TBR lauk um siðustu helgi og var þátttaka mjög góö i öllum flokkum. í meistaraflokki karla sigraði Sigfús Ægir Arnason Jóhann Kjartansson 15:10 og 15:10, en i meistaraflokki kvenna bar Kristin Magnúsdóttir sigurorð af Hönnu Láru Pálsdóttur 11:5 og 11:4. Nánar veröur sagt frá mótinu á morgun. —SSv— Heimamenn stálu senunni Um siðustu helgi hélt Golf- klúbbur Hornafjarðar svonefnt haustmót og var það opið mót. Þátttaka var mjög góð i mótinu og komu um 40 aðkomukylfingar til mótsins, en keppendur voru tæplega 60 talsins. Veörið var einstaklega gott fyrridag mótsins en siöari daginn tók upp afspyrnurok og rigningu, en keppendur létu þaö ekki á sig fá.enda er völlurinn á Hornafirði að sögn mjög skemmtilegur. Heimamenn komu heldur betur á óvart i keppninni og aðeins 14 ára gamall piltur frá Hornafirði, Hermann Erlingsson sigraöi i keppninni, en hann er mjög efni- legur kylfingur. Ennfremur má geta þess, aö annar Hornfiröing- ur, Halldór Tryggvason fór holu i höggi á 8. braut. Almennt voru menn mjög ánægöir meö allan aöbúnað og vakti völlur þeirra Hornfirðinga veröskuldaða athygli. _sSv— Frá opna mótinu á Hornaiiroi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.