Tíminn - 06.10.1978, Blaðsíða 24
Gagnkvæmt
tryggingafélag
Föstudagur 6. október 1978 — 221.tölublað — 62. árgangur.
sími 29800, (5 línur)
Verzlið
í sérverzlun með
litasjónvörp
og hljómtæki
Formaður Alþýðuflokksins:
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
hamast við að stela
málefnum jafnaðarmanna
SS—,,Ég tel aö þetta sé alrangt
og að i' stefnuskrá núverandi
rikisstjórnar sé fjöldinn allur af
málum, sem er frá okkur kom-
inn og eru þau mál, sem viö
lögðum mesta áherslu á”, sagöi
Benedikt Gröndal, formaður
Alþýöuflokksins, um þá gagn-
rýni sem ýmsum hefur verið
töm aö undanförnu, aö Alþýðu-
flokkurinn hafi svikiö kjósendur
sinar og i raun kastað stefnu
sinni fyrir róöa meö rikisstjórn-
arþátttöku.
„Hitt er að visu rétt, aö
— síðan Olafur Thors snéri honum við
stefnuskrá er eitt og hvernig
tekst til um framkvæmd hennar
er annaö. Hvaö yngri stjórn-
málamenn varöar, þá þurfa
þeir kannski nokkurn tima til aö
átta sig á þvi, að þaö þarf vissan
aðdraganda aö þvi, að koma
fram þjóðfélagsbreytingum. Ég
tel sem sagt að þessir palladóm-
ar um einhver svik af okkar
hálfu, séu ekki á neinum rökum
reistir”.
— Sjálfstæðismenn segja, aö
þið Alþýöuflokksmenn hafiö
stoliö stefnu þeirra og siðan
svikið hana.
,,Það má segja, að siöan Ólaf-
ur Thors sneri Sjálfstæðis-
flokknum viö, þannig að hann
fór aö ganga inn á hugmyndir
velferöarrilcisins, þá hafi Sjálf-
stæöisflokkurinn veriö aö ham-
ast viö aö stela málefnum jafn-
aðarmanna, en siöan oft veriö
fljótur aö bregöast þeim, þegar
vindurinn blés á annan hátt.
Þetta er stjórnmáladeiluefni
sem hefur fleiri en eina hlið”.
— Það rikir þá einhugur inn-
an þingflokks ykkar?
>>Við erum einhuga um okkar
grundvailarstefnu, en eins og
komið hefur fram, eru dálitið
mismunandi skoöanir um ein-
stök mál og það er ekkert óeöli-
legt. Það er ekki hægt að kefla
heiia flokka, enda er þaö sist af
öllu min ósk að þaö sé gert. Ég
tel að þeir menn sem hafa unniö
mikiö starf við þjóöfélagslega
gagnrýni eigi aö halda þvi
áfram, þegar þeir koma inn á
þing”. ,
Benedikt Gröndal.
Fyrsti fundur visitölunefndarinnar:
„Ræddum
málin almennt”
— segir Jón Sigurðsson formaður nefndarinnar
ESE — Nefnd sú er rikisstjórnin
skipaði til endurskoöunar á viö-
miðun launa viö visitölu kom
saman til sins fyrsta fundar s.l.
mánudag.
Timinn snerisér af þessu tilefni
til Jóns Sigurðssonar forstjóra
Þjóöhagsstofhunar, sem er for-
maður nefndarinnar og var hann
aö þvi spuröur hvaö rætt hefði
veriö á þessum fyrsta fundi
nefndarinnar.
Jón sagöi aö þaö væri ekki hægt
aö segja mikiö um þaö ennþá.
Þeir heföu rætt erindisbréf
nefndarinnar og hvernig ætti aö
skilja það og eins þá hefði visi-
tölugrundvöllurinn veriö ræddur
nokkuö og þaö hvort þörf væri á
aö endurskoða hann. Ekki sagöi
Jón nefndina vera byrjaöa aö
ræöa viömiðun launa viö visitölu,
þannig aö ótímabært væri aö
segja til um þaö á þessu stigi
málsins hver aöalatriöin i endur-
skoðun visitölunnar yröu.
Jón Sigurösson var aö lokum aö
því spuröur hverjar horfur hann
teldi á þvi aö nefndin gæti skilaö
fyrsta áliti fyrir 20. nóvember
eins og ætlast er til i skipunar-
bréfi nefndarinnar. Jón svaraöi
þvi til aö hann gæti ekkert um þaö
sagt annaö en aö stefnt yröi aö þvi
aö svo gæti orðiö, en ekki væri
timabært aö segja til um þaö nú,
hvort aö þaö tækist eða ekki.
Þegar oliumöl var lögö á afleggjarann niöur i Voga frá Keflavlkurveg-
inum hækkaö vegurinn svo aö lágmarkshæö undir raflinu varö of litil.
Fyrir skömmu unnu starfsmenn rafveitunnar aö þvi aö hækka Hnuna
en spennan á henni er 66 þús. volt. K s
Halldór Laxness
um Isaac
Bashevis Singer
„Ágætt
að þeir
skuli
finna
svona
mann”
Sumarið var gjöfult á
jarðargróða
VS — Jón Guölaugsson, Lauga-
bóli Isafirði, lét Timanum eftir-
farandi upplýsingar i té, þegar
hann var spuröur frétta af heima-
slóöum:
— Sumariö kom eiginlega ekki
fyrr en meö júlímánúöi, en eftir
þaö var tlö meö eindæmum hag-
stæö, hvort heldur til heyskapar
eöa annarra útiverka. Gras-
spretta varö næstum I meöallagi,
og nýting heyja sérlega góö. Þaö
sem helst háöi sprettunni voru of
miklir þurrkar, og þess voru
dæmi, aö harölend tún „brunnu”
sem kallað er. Óvenjumikiö var
af berjum hér um slóöir, og þaö
svo, aö roskiö fólk man vart ann-
aö eins. Og þar sem næturfrost
hafa veriö mjög óveruleg fram aö
þessu, þá má heita aö ber séu
óskemmd enn. Þannig má I raun-
inni segja, aö sumariö hafi veriö
gjöfult á jaröargróöa.
I sumar var haldiö úti vinnu-
flokki á vegum húsageröarsam-
bands, sem er starfandi hérna.
Byggöar hafa verið heyhiööur á
þremur bæjum og fjárhús á ein-
um.
Slátrun hófst á isafirði 20.
september, og gert er ráö fyrir aö
hún standi i u.þ.b. einn mánuö, en
erfiölega gengur aö manna
sláturhús hér til fullra afkasta.
Þess vegna hefur orðiö að yfir-
bjóöa fólk frá öörum starfsgrein-
um. Fallþungi er yfirleitt meiri
en i meöallagi, en tölur um
meöalvigt ekki fyrir hendi.
Um heimtur er ekki hægt aö
segja meö neinni vissu enn, þar
sem aöeins er lokiö fyrstu göng-
um, og sums staðar varla þaö.
I sumar var reist myndárlegt
veiöihús viö Langadalsá, og þar
sem veiöi er stunduö i ám hér viö
Djúp, var hún meö betra móti á
þessu sumri.
AM — 1 gær úthlutaði sænska
akademian Nóbelsverölaun-
unum til Isaac Bashevis
Singer. Blaöiö innti Halldór
Laxness eftir hinum nýja
Nóbels verölaunahafa.
,,Ég er honum ókunnur og
hef ekki lesið bækur eftir
hann”, sagöi Halldór. „Þaö er
ágættaöþeir skuli finna svona
mann, þeir hafa ekki annað aö
gera i Stokkhólmi, en leita aö
einhverjum svona mönnum.
Einu sinni fundu þeir mig og
þá sagöi náttúrulega allur
heimurinn: „Hvaöa andskot-
ansmaöurerþetta?” Og þetta
segir maöur enn. Ég vona
bara aö þeim þarna hjá aka-
demiunni takist aö hafa
heppnina með sér áfram”.