Tíminn - 03.11.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 03.11.1978, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 3. nóvember 1978 iútgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gisiason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og' auglýsingar Siöumúla 15. Sfmi 86300. ' . Kvöldsimar blabamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 110.00. Askriftargjald kr. 2.200 á mánuöi. Blaöaprent h.f. ________________________________I___________V Stjórnarandstaðan og fj árlagaf rumvarpið Viðbrögð forustumanna Sjálfstæðisflokksins og aðalmálgagns hans, Morgunblaðsins.við fjárlaga- frumvarpinu fyrir 1979, bera þess glögg merki,að þessir aðilar hafa ekkert lært siðan þeir voru siðast i stjórnarandstöðu. Þeir sjá hvergi neitt nýtilegt og hafa allt á hornum sér. Jafnframt láta þeir stjórn- ast af óskhyggju um ósamkomulag milli stjórnar- flokkanna sem geti leitt til falls rikisstjórnarinnar, og Sjálfstæðisflokkurinn fái þá að taka við og fram- kvæma sjálfur margt af þvLsem hann gagnrýnir nú einna mest. Ef foringjar Sjálfstæðisflokksins hefðu brugðist rétt við, hefðuþeirátt að fagna þeirri meginstefnu, sem fjárlagafrumvarpið byggist á,þ.e. að afgreiða fjárlögin með greiðsluafgangi og greiða jafnframt þann halla sem verður á þessu ári. Ásamt vixl- hækkanakerfinu ,varð það fyrrverandi rikisstjórn mest að falli, að f jármálaráðherra hennar náði ekki tökum á rikisrekstrinum og halli varð þvi verulegur flest árin. Að sjálfsögðu ýtti þetta undir þenslu,sem varð vatn á myllu verðbólgunnar. Það er stefna hins nýja fjármálaráðherra að koma i veg fyrir að þessi saga endurtaki sig. Það sjónarmið ætti Sjálf- stæðisflokkurinn að styðja, þótt hann sé i stjórnar- andstöðu. Hann getur fengið ýmis önnur tilefni til ádeilna á rikisstjórnina ef hann telur neikvæða gagnrýni henta sér bezt. Um það sjónarmið ætti hins vegar ekki að vera ágreiningur milli stjórnar og stjórnarandstöðu, að það er frumskilyrði þess að hamla gegn verðbólgunni, að rikisbúskapurinn sé hallalaus. Forustumenn Sjálfstæðisflokksins halda þvi mjög á loft, að ágreiningur sé milli stjórnarflokkanna um viss atriði fjárlagafrumvarpsins. Þess vegna sé tæpast hægt að telja það stjórnarfrumvarp. Þetta eru blekkingar, sem furðulegt er að jafn þingvanir og lögfróðir menn og leiðtogar Sjálfstæðisflokksins ættu að vera.skuli leggja sér i munn. Fjárlagafrum- varpið er lagt fram sem stjórnarfrumvarp með samþykki allrar rikisstjórnarinnar. Jafnframt er tekið fram i greinargerð þess, að ágreiningur sé um viss atriði þess. Það er algengt,að stjórnarfrumvörp séu lögð fram á þennan hátt. Það er i raun ákaflega fátitt,að rikisstjórn leggi fram frumvarp, þar sem flokkar rikisstjórnarinnar eru búnir að ganga svo frá öllum meginatriðum þess, að engu megi breyta. Þá er raunverulega búið að taka löggjafarvaldið af Alþingi og afgreiðsla þess væri orðin lik þvi,sem viðgekkst i borgarstjórn Reykjavikur meðan Sjálf- stæðisflokkurinn var þar i meirihluta. Alþingi hefur enn það vald,að það breytir iðulega stjórnarfrum- vörpum meira og minna. Það er ekki stefna núver- andi rikisstjórnar að reyna að taka þetta vald af Al- þingi. Það verður verkefni fulltrúa stjórnarflokkanna á Alþingi að jafna þann ágreining varðandi viss atriði fjárlagafrumvarpsins, sem enn er óleystur. Engin ástæða er til að ætla annað en að það takist,ef nægur vilji er fyrir hendi til þess að halda stjórnarsam- starfinu áfram. Á þessu stigi er engin ástæða til að efast um,að þessi vilji sé fyrir hendi. Foringjar Sjálfstæðisflokksins ættu þvi ekki að láta stjórnast af óskhyggjunni. Þeir ættu þvert á móti að reyna að eiga sinn þátt i þvi,ásamt stjórnarflokkunum, að fjárlögin yrðu afgreidd hallalaus. Það yrði þeim til sóma öfugt við það<að þeir geta ekki annað en tapað á þvi neikvæða nöldri sem þeir ástunda nú. Þ.Þ. Erlent yfirlit Hörð barátta Janata- manna gegn Indiru Desai og Ram eiga líka synduga syni Indira meöal fylgismanna INNAN fárra daga fer fram aukakosning til indverska þingsins i kjördæmi I Karna- taka-fylki i Suöur-Indlandi. Venjulega er slikum auka- kosningum I Indlandi litil at- hygli veitt, en I þetta skipti hefur brugöiö frá þeirri venju. Kosningabaráttunni I um- ræddu kjördæmi hefur ekki aöeins veriö veitt mikil athygli i gervöllu Indlandi, heldur viös vegar um heim. Ástæöan er sú, aö Indira Gandhi hefur boöiö sig fram fyrir flokk sinn og hyggst taka viö forustu hans á þingi. Indira Gandhi féll i þingkosningun- um, sem hún efndi til í marz 1977, og hefur ekki aftur viljaö taka sæti á þingi fyrr en nú, þött hún hafi átt kost á þvi. Hún hefur taliö hyggilegt aö kynna sér áöur hvert fylgi hennar væri meö þjóöinni. Hún telur sig hafa komizt aö raun um, aö hún njóti vaxandi fylgis, og þvi muni henni heppilegt til þess aö láta bera enn meira á sér aö taka for- ustu stjórnarandstööunnar á þinginu. 1 kjördæmi þvi, sem hér um ræöir, vann flokkur Indiru mikinn sigur i þingkosningun- um 1977, og hún ætti þvi örugglega aö geta náö kosn- ingu. Janata-flokkurinn, sem fer nú meö rikisstjórn i Ind- landi, hefur samt ákveöiö aö láta sigurinn ekki veröa henni auöveldan um of. Hann hefur teflt fram til stuönings fram- bjóöanda flokksins öllum helztu leiötogum hans og þó einkum þeim, sem Indira lét hafa I haldi meöan hún lét eins konar herlög gilda I landinu. Þá hafa þeir fengiö stuöning þess flokks kommúnista, sem hallast aö Kinverjum. Hinn kommúnistaflokkurinn, sem hallast aö Rússum, styöur Indiru. Sitthvaö þykir benda til, aö Janata-flokkurinn hafi heldur unniö á I kosningabar- áttunni, þótt Indira hafi tekiö hraustlega á móti. Samt þykir liklegt, aö hún nái kosningu, en ekki meö eins miklum meirihluta og spáö var I upp- hafi. Fyrir Indiru yröi þaö nokkurt áfall, ef henni tækist ekki aö vinna sæmilegan sigur. ÞAÐ styrkir Indiru, aö rikisstjórn Janata-flokksins hefur hingaö til tekizt miöur en stuöningsmenn hans geröu sér vonir um, þegar þeir veittu honum brautargengi. Þá hafa komiö upp hneykslismál, sem valda þvi, aö Janata-mönnum tekst verr en áöur aö deila á Indiru fyrir ýmiss konar brask, sem Sanja sonur henn- ar hefur veriö talinn viöriöinn. Þaö hefur komiö á daginn, aö synir tveggja helztu leiötoga Janata-flokksins eru siöur en svo syndlausir. Annar þeirra er Kantital, sonur Desai for- sætisráöherra, en hinn er Kumar, sonur Ram varnar- málaráöherra. Þegar deila reis slöastliöiö sumar milli Desai og Charan Singh, þáv. innanrikisráöherra, kom Singh þeim orörómi á kreik, aö sitthvaö væri aö athuga viö fjárreiöur Kantitals. Hann varö ungur flugmaöur hjá ind- verska flugfélaginu (Air India), en þótti launin lág, og geröist þvi kaupsýslumaöur og haföi einkum veröbréfasölu meö höndum. Hann er oröinn rikur maöur. Singh hélt þvi fram aö Kantital heföi oft notiö faöernis slns óeölilega og heimtaöi þvi rannsókn á fjár- reiöum hans. Desai snerist i upphafi gegn slikri rannsókn og ýtir þaö undir grun manna. Siöar féllst hann á rannsókn- ina en of seint. Mál þaö sem hefur komizt á kreik I sambandi viö Kumar Ram er talsvert annars eölis. Andstæöingar hans innan Janata-flokksins hafa komizt yfir mynd og sýha hana óspart, en á henni sést Kumar I bólinu hjá tvltugri blómarós og leynir sér ekki hvaö þar er aö gerast. Kumar viöurkennir aö myndin sé ófölsuö en segir hana hafa oröiö til á þann hátt, aö andstæöingar hans hafa tekiö bæði hann og stúlkuna nauöug og neytt þau til þeirr- ar athafnar, sem sýnd er á myndinni. Kumar er giftur. MAL þeirra Kantitals og Kumars hafa oröiö til þess, aö Sanja Gandhi ber miklu minna á góma en ella. And- stæöingar Indiru deila mest á hann fyrir þaö ofriki, sem hafi rikt I landinu meöan hún lét herlögin vera I gildi. Slikt ástand muni koma til sögu aftur, ef hún kæmist til valda. Indira svarar meö þvi, aö benda á vaxandi stjórnleysi, aukin verkföll og stóraukna veröbólgu siöan rikisstjórn Janata-flokksins kom til valda. Af þvl megi bezt ráöa, aö þjóöin þarfnist traustari forustu, sem aöeins hún og flokkur hennar geti veitt. Þaö er nokkuö dregiö I efa, aö rétt sé ráöiö af Indiru aö taka viö forustu stjórnarand- stööunnar á þingi. Hún veröi aö mæta á þingfundum og fái minnitima til feröalaga. Óvist sé aö hún njóti sin eins á þing fundum og á stórum útifund- um, þar sem hún þarf ekki aö mæta andstæöingum. Indira telur þaö vega á móti þessu, aö hún veröi meira I sviösljós- inu, geti haldiö uppi andstööu gegn rlkisstjórninni jafnt inn- an þings sem utan. Þá benda fylgismenn hennar á, aö innan þingsins eigi flokkur hennar nú engan forustumann, sem veki verulega athygli, en mikil athygli beinist aö Indiru hvar sem hún fer og fjölmiðlar grlpa á lofti flest sem hún segir. Þ.Þ. Desai og Kantital sonur hans

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.