Tíminn - 03.11.1978, Blaðsíða 17

Tíminn - 03.11.1978, Blaðsíða 17
FÖstudagur 3. nóvember 1978 l 'l 'l! <1 <t '[‘H i 17 Frá athöfn'nni 9. september. Séra Sigurður Pálsson flytur blessunaroró og bæn. Kirkjudagur Selfosskirkju á sunnudag Þann 9. sept siðastliðinn var hafist handa um að byggja turn og safnaðarheimili viö Selfoss- kirkju. Formaöur byggingar- nefndar Steingrimur Ingvars- son tók fyrstu skóflustunguna eftir að Sigurður Pálsson vigslubiskup hafði flutt bæn og blessun. Viðstaddir þessa at- höfn voru byggingarnefnd og sóknarnefnd Selfosskirkju en formaður sóknarnefndar er Bjarni Dagsson. Bjarni Pálsson hefur teiknað þessa viöbót við kirkjuna en hann teiknaði kirkjuna i upphafi. Þegar er lokið við að steypa sökkla undir helming byggingarinnar en byggingarmeistari er Guö- mundur Sveinsson. Sunnudaginn 5. nóv. verður haldinn kirkjudagur Selfoss- kirkju. Við hátlðamessu kl. 2 mun sr. Auöur Eir Vilhjálms- dóttir predika en sóknar- presturinn Sigurður Sigurðar- son og Sigurður Pálsson vigslu- biskup munu þjóna fyrir altari. Á samkomu kl. 8.30 um kvöld- ið mun Clafur Skúlason dóm- prófastur flytja erindi. Kirkju- kórinn syngur undir stjórn Glúms Gylfasonar sem einnig mun leiða almennan söng. Strax að lokinni messunni kl. 3 hefst kaffisala i Tryggvaskála á veg- um kvenfélags kirkjunnar en kvenfélagið hefur um nokkurra ára skeið haft forgöngu um fjár- söfnun til byggingar safnaðar- heimilis. Basar og veislukaffi hjá Kvenfélagi Bústaöasóknar Strax að lokinni messu i Bú- staðakirkju á sunnudaginn kemur, opnar Kvenfélag Bú- staðasóknar sali kirkjunnar báða og herbergi safnaðar- heimilisins önnur upp á gátt. Þar gefst á að llta margt merki- legt og fagurt. Konurnar eru búnar að vera að undirbúa þennan dag alveg siðan I fyrra- vetur og kennir þar margra grasa og eigulegra. Er þar um að ræða alls kyns fatnað og saumaðar flíkur, veggteppi og skrautmuni og sumt hvað með sérstöku tilliti til jólahalds heimilanna. Þá eru einnig „lukku-pokar” á boðstólum og - fjölbreytt sýnishorn af alls kon- ar kökum, sem konurnar hafa verið að baka og bjóða kaupend- um á þessum degi. Til þess að enginn þurfi að sætta sig við „reykinn af réttun- um”, meðan gengið er á milli borða og herbergja við að skoöa og kaupa, bjóða konurnar einnig upp á kaffi og með þvl eða þá gos og mjólk og margs konar meölæti. Er ekki að efa það að þeir munu fjölmargir, sem vilja leggja leið slna inn I Safnaöar- heimili Bústaðakirkju á sunnu- daginn kemur til þess að sjá allt þetta meö eigin augum og festa kaup á mörgum þarflegum hlut og eigulegum um leið og gott málefni er styrkt. En starfsemi sóknarfólksins er alltaf að verða fjölbreyttari meö hverju starfs- ári. Guösþjónustan á sunnudaginn hefst kl. 2 að venju og þaö verð- ur þvl um 3 leytið sem salan hefst og kaffiveitingarnar biða. -0— Einar Gerhardsen rekur æskuminn- ingar sínar i Norræna húsinu Reykjavlkurdeild Norræna félagsins er nú að hefja vetrar- starfsemi sina. Fyrsta verkefni deildarinnar er að efnt verður til samkomu I Norræna húsinu sunnudaginn 5. nóvember kl. 20:30. Þar mun Einar Gerhardsen fv. forsætisráðherra Noregs verða gestur deildarinnar og segja endurminningar frá æsku — ogbernskusinni. Þá mun Ólöf Harðardóttir syngja islensk og norsk lög við undirleik Kristinar Cortes. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Þá er hugmyndin siðar I þess- um mánuði eða i byrjun desem- ber að efna til kynningarfundar þar sem norrænir sjóðir verða kynntir og möguleikar á styrk- veitingum úr þeim. Síðar I vetur er ætlunin að efna til nýs kynningarfundar og kynna þá möguleika skólafólks til náms á Norðurlöndum. Þá má geta þess aö Reykja- vikurdeildin hefur mikinn áhuga á að efna til nánari sam- skipta Reykjavikur við hinar höfuðborgir Norðurlanda, en Reykjavik hefur verið nokkuð afskipt I þvl samstarfi. Höfuð- borgirnar mynda sérstaka vina- bæjakeöju. Núverandi formaöur Reykja- vlkurdeildar Norræna félagsins er Gylfi Þ. Glslason prófessor. Viðskiptavinir matsöluhúsa greiða einir söluskatt al mat Aðalfundur Sambands veit- inga- og gistihúsaeigenda var haldinn föstudaginn 27. október. Voru þar mættir fulltrúar viðs vegar að af landinu, þótt veður hamlaði komu nokkurra. Stjórn sambandsins var endurkjörin en I henni eiga sæti Bjarni I. Arnason, formaður, Einar Olgeirsson, Emil Guð- mundsson, Jón Hjaltason, Skúli Þorvaldsson, Steinunn Hafstaö og Tómas Guðnason. Fram- kvæmdastjóri er Hólmfriöur Arnadóttir. A dagskrá fundarins »oru ýmis þau mál er snerta hótel- og veitingarekstur á Islandi. Hæst bar þó söluskattsmál matsölu- húsa og kom fram mikil óánægja fundarmanna meö það aö viðskiptavinir matsoluhúsa skuli einir neytenda þurfa aö greiða söluskatt af mat. Srm- þykkti fundurinn áskorun til fjármálaráðherra þess efniíi að samræmd verði söluskattsinn- heimta af þeim er neyta matar I heimahúsum eða mötuneytum og hinum sem skipta viö mat- söluhús. Sýning á merkum sögu* legum ljósmynd- um á Akureyri Laugardaginn 4. nóvember verður opnuð I Amtsbókasafn- inu á Akureyri sýning á ljós- myndum Hallgrlms heitins Einarssonar ljósmyndara. Það er Akureyrarbær sem stendur fyrir sýningunni I minningu Hallgrlms á hundraðasta af- mælisári hans. Uppistaðan I sýningunni eru myndir I eigu Akureyrarbæjar, sem eru i vörslu Minjasafnsins. Hefur Hallgrlmur tekið þær við ýmis tækifæri úr bæjarlifinu af bæjarbúum við störf sln og af einstaka húsum og bæjarhlut- um. Einnig hafa verið fengnar aö láni myndir frá einstakling- um t.d. myndir af fjölskyldu Hallgrims heitins og af honum sjálfum á ýmsum aldrei. Er skemmtilegt og fróölegt að skoða þessar myndir Hallgrims sem eru ómetanlegur þáttur I sögu Akureyrar. t sýningarskrá verða raktir ævi og starfsþættir Hallgrfms I grófum þáttum, sem Haraldur Sigurðsson bankafulltrúi hefur tekiö saman. Sýningin verður opin fram til sunnudagsins 12. nóvember. Um helgar verður hún opin frá 14:00-22:00 en á virkum dögum á afgreiðslutíma safnsins frá 13:00-19:00 Undirbúningsnefnd fyrir sýninguna skipa: Sigurður Jóhannesson formaður, Óttar Einarsson og GIsli Sigurgeirs- son sem kom I stað Sverris Pálssonar seinni hluta undir- búningstlmans. Uppsetning sýningarinnar og myndasöfnun hefur að mestu hvllt á Haraldi Sigurgeirssyni starfsmanni nefndarinnar. TRUCKS M . Seljum í dag: Tegund: árg. Ch. Nova sjálfsk. ’77 Taunus20MXL ’69 Mazda 818 station ’76 Opei Rekord Coupe ’72 Ch. Blazer6cyl beinsk. ’73 Ch. Blazer Cheyenne ’74 Fiat 127 C-900 ’78 Opel Record ’76 M. Comet 4d sjálfsk. ’73 Saab 99 L 4d. sjálfsk. ’74 Ch. Nova 4 dyra sjálfsk. ’74 Bronco6cyl ’74 Ch. Malibu Sedan ’78 Volvo 144 DL ’74 Chevrolet Malibu ’72 Ford Econoline sendif. ’74 VauxhalIViva ’75 Opel Rekord 4d. ’71 Bronco V-8 beinsk. ’74 Saab 95 station ’74 Ch. Nova4rad. ’73 Ch. Nova Conc. 4 d. ’77 VauxhaiIViva ’73 G.M.C. Rallý Wagon ’78 Scout II DL Rally ’76 Plymouth Fury station ’75 Scout I Traveller m/öllu ’78 Morris Marina 4d ’74 M. Benz diesel sjálfsk. ’74 Chevrolet Impala ’78 G.M.C. Vandura sendib. ’78 Ch. Blazer diesel ’73 Scout II V-8 sjálfsk. ’72 Vauxhall Viva de luxe ’74 G.M.C. Jimmy v-8 ’76 SimcaGLS ’75 Ch. Malibu Classic ’78 Samband Véladeild Verð 4.200 1.050 2.600 1.100 2.900 4.200 2.200 2.900 1.950 2.800 2.500 2.400 4.800 3.100 1.700 1.950 1.500 1.100 2.750 1.950 1.950 4.700 1.050 7.200 5.500 4.400 7.500 1.100 3.700 5.200 5.000 3.800 3.000 1.300 5.900 1.600 5.300 ÁRMÚLA 3 - SÍMÍ 38900 . . Staður hinna vandlátu HIN FRÁBÆRA SÖNGKONA ANNE BRIGHT KEMUR FRAM í KVÖLD Lúdó Stefán Gömlu og nýju dansarnir FJÖLBREYTTUR MATSEÐILL Borðapantanir i sima 23333 Opið til kl. 1 Spariklæðnaður eingöngu leyfður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.