Tíminn - 19.11.1978, Blaðsíða 1

Tíminn - 19.11.1978, Blaðsíða 1
AÐ 2 Anna Polla hjá mömmu sinni i stofunni viö Þrastargötu Rætt við Sigriði Ellu Magnús- dóttur söngkonu, sem kemur fram á a.m.k. fernum tónleikum hér á næstu mánuðum Syngur do re mí fa hástöfum og þá sofnar dóttirin strax — Við, mæðgur, erum búnar að vera hér I tíu daga og kunn- um vel við okkur, sagði Sigriður Ella Magnúsdóttir söngkona, þegar Timinn heimsótti hana á nýtt heímili fjölskyldunnar á ts- landi, en það er vestur á Grims- staðaholti, nánar tUtekið við Þrastargötu. HeimUisfaðirinn, Simon Vaughan söngvari, var nýiega farinn tU London og Parisar, þar sem hann kemur fram á tónleikum á næstunni og æfir auk þess aðalhlutverkið I óperunni Don Giovanni eftir Mozart. — Mér finnst hálfvegis að ég sé stödd I litlu sjávarþorpi Uti á landi þegar ég kem hér út Ur dyrunum, segir Sigriður EUa. — Hér er lika mikið af þröstum, og nágrannarnir sjá um að þeir liði ekki skort. 1 næstu húsum búa elskulegar gamlar konur. Þeim finnst dálitiö dularfullt, aö eitt af þrem nöfnum, sem viö gáfum dóttur okkar skuli vera Solveig, þvi húsmóðirin, sem bjó hér sið- ast á undan okkur var norsk og hét einmitt Sólveig. — Hvað heitir dóttirin? — Hún heitir Anna, sem okk- ur fannst vera nafn, sem enginn brenglaði þótt I ólíkum löndum væri, Leópoidina eftir mömmu minniogsvo fylgdi Solveig með, það hefur. norrænan blæ, ég þekki margar ágætiskonur með þvi nafni, t.d. heitir ljósmóðirin min, mikill herjans forkur, Solveig. Hef staðið í flutningum Þrastargatan kemur til meö að vera annað tveggja heimila þeirra Sigriöar Ellu, Simonar Vaughan og litlu dótturinnar. — Viö höfum verið I stööugum flutningum að undanförnu, þvi við vorum lika að færa okkur um set i London. Viö erum ný- flutt i einbýlishús i Harrow en áttum áður heima I Hampstead i ibúð á annarri hæð. Eg vildi fá hús með garði þvi ég læt önnu sofa úti að hérlendum sið brezk- um húsmæðrum til mikillar undrunar. Við deilum nýja hús- inu með ungum islenzkum hjón- um, þar sem viö erum mikiö að heiman. Þaö eru Arni Haröar- son pianóleikari og Karitas tvarsdóttir kona hans sem er að lesa undir stúdentspróf. — Þetta hús hér á Grims- staöaholtinu keyptum við 14. maiivor. Viðhöfðumekkiefni á aö byggja nýtt einbýlishús og það er vandkvæöum bundið fyr- ir okkur að búa i sambýli með öörum, þar sem viö þurfum að hafa talsvert hátt þegar við æf- um okkur. Okkur fannst þvi sannkallaö þjóöráð að kaupa þetta hús hér. Ég komst að þvi, að sú sem fyrst fékk leyfi til að byggja hér var einmitt nafna min SigrBur Magnúsdóttir. Þaö var 1923 að hún fékk leyfi til að reisa bráöa- birgöaskúr, og hann hefur sennilega verið upphafiö aö þessu húsi. Hér er lika mikill söngandi, þvi hér bjó um skeiö mikill karlakórsmaður og siðan afkomendur hans. Óperuflutningi frestað — kom samt — Eg er hér eiginlega alveg óvart, segir Sigriður Ella. — Ee 6

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.