Tíminn - 19.11.1978, Síða 5
Sunnudagur 19. nóvember 1978
25
bamatíminn
Umsjón: Sigrún Bjðmsdóttir
Getur þú hjálpað mýslu litlu?
Hún er sársvöng, en hún veit hvar hún getur fengið ost. Vandinn er, að það eru tvær
hættur á leiðinni, köttur og gildra. Strikaðu nú réttu leiðina að ostinum.
Þetta indiánatjald getið þið dregið upp|á stífan pappír. Þið getið notað þetta
mynstur og líka útbúið ykkar eigið. Þið notið 3 eldspýtur í toppinn á tjaldinu. Svo
er bara að lita tjaldið skrautiega.
Bömin
hans
Bamba
- eftir Felix Salten, þýö. Stefán Júlfusson
Nanna tók nú upp nýja siði. Hún vakti á daginn og
svaf á nóttunni. Hún baðaði sig í sólskininu. Skrýtni
vínviðurinn verndaði hana gegn allri hættu.
Samt langaði hana heim í skóginn. Hana dreymdi
um laufbyrgi með mjúku grasi, döggvot blóm og
kliðandi lindir. í draumi heyrði hún þungt fótatak
Búa bróður síns og mjúka, hlýja rödd Falínar'
móður sinnar. Og þegar hún vaknaði, var hún svo
ieið og hrygg,að lævirkinn einn gat huggao hana meö
fagra söngnum sínum. En gamla hornugglan hafði
alls ekkert söngeyra. Hún var búin að vera of mörg
ár í haldi. Hún átti sér enga von framar.
Nanna sleppur.
I skóginum gerðust þau tíðindi, að Falín kom
aftur heim í litla laufbyrgið þar sem hún hafði
skilið við þau Búa og Nönnu. Þar fann hún Búa
einan, hryggan og kvíðafullan, og svo nágranna
þeirra, uggluna, Ugglan hafði fréttir að færa. Hun
hafði þorað að elta skógarvörðinn heim til hans.
—Og hún hafði átt tal við vin sinn, uggluna í búrinu.
„Kæra uggla," hrópaði Falín. „Er Nanna á lífi:
Góða, segðu mér það fljótt."
Þá sagði ugglan þeim, að Nanna væri fangi
MANNSINS:
Falín gat nú ekki á heilli sér tekið fyrir kvíða og
áhyggjum. Hún var sífellt að hugsa um, hvort
Nanna hefði nægilegt að borða, hvort hún væri veik
eða í hættu. Ugglan hughreysti hana.
Hún sagði: „Bambi er að leita Nönnu".
Framhald í næsta Barna-Tíma
Hvers virði er lífið
fyrir þig
eða fjölskyldu þína?
Secumar Björgunarvesti
eru samanbrotin, fyrirferðalítil og létt, en blásast út
sjálfkrafa, þegar notandinn fellur í vatn.
Secumar halda höfðinu upp úr vatni og þvt ekki hætta á
drukknun.
Secumar ætti hver maður að nota daglega við sjó-
mennsku, vinnu í höfnum, brúarsmiði,vatnavörzlu.
Secumar eru viðurkennd af Siglingamálastofnuó ríkisins
á skuttogara.
utiriai Sfygeiióóan k.f.
Reykjavfk, sími 35200.