Tíminn - 24.11.1978, Blaðsíða 3
Föstudagur 24. nóvember 1978
3
aniMii'ií
t tilefni af hundruðustu ártlð
Jóns Sigurðssonar, sem er i
desember 1979, hefur Hrafns-
eyrarnefnd látið slá minnispen-
ing, sem nii er boðinn til sölu.
Minnispeningurinn veröur seldur
i öllum rikisbönkunum,
sparisjóðum á Vestfjörðum og
hjá myntsölum f Heykjavik.
Ágóði af sölu peningsins á að
renna til framkvæmda á fæð-
ingarstað f orsetans, en um þær er
einkum þetta að segja:
A sinum tlma var ráðgert aö
byggjaá Hrafnseyri hús, sem átti
að vera prestsetur og barnaskóli
með heimavist fyrir börn úr
sveitum beggja megin Arnar-
fjarðar. Meirihluti þessa húss var
byg^Jur.
Siðan hafa mál skipast svo, að
prestakallið er sameinaö ööru og
skólamál leyst á annan veg en þá
var hugsað.
Hrafnseyrarnefnder nú að láta
ljúka byggingu hússins og er
viðbótin komin undir þak. 1 nýja
hlutanum er kapella, sem jafn-
framt er þó miðuð við almenn
fundahöld. En jafnframt þessu er
stefnt að þvi að koma upp á
Hrafnseyri minjasafni um Jón
Sigurðsson og ltfsstarf hans. Er
ætlast til, að þessum fram-
kvæmdum verði lokið 17. júni
1980.
Peninginn teiknaöi Jörundur
Pálsson arkitekt og er mynd af
Jóni Sigurössyni á framhlið hans
en á bakhlið er mynd af innsigli
hans, sem nú er geymt i
þjóðminjasafni.
Slegnir veröa eitt þúsund silfur-
peningar og 2500 bronspeningar.
Þvermál peningsins er 55 mm. 1
rönd peningsins er slegið númer
hans og upplag.
Kjördæmaþing Framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi:
Minnis-
Frá félagi íslenskra sérkennara:
Mísskilningur,
sem hlýtur að
verða leiðréttur
Nýlega barst landsmönnum
frétt þess efnis að kennaradeil-
an værileyst. I tilefni þessa vilj-
um við, kennarar barna sem
eiga rétt á sérstakri kennslu
vegna einhvers konar fötlunar,
vekja athygli á eftirfarandi:
1. Til þessað geta sinnt kennsiu
þessara barna höfum við far-
iö i eins til f jögurra ára fram-
haldsnám að loknu kennara-
prófi. Aðeins er unnt aö vera
eitt ár i sliku námi hérlendis,
þannig að mörg okkar hafa
farið utantil náms. Námsárin
eru ekki metin sem starfsár
ogtveggja ára tekjutap kenn-
ara er nú á 6. millj. kr.
2. Nú er staðan sú að tveggja
ára framhaldsnám i
sérkennslu veitir ekki launa-
hækkun skv. núgildandi röðun
I launaflokka. Jafnvel getur
kennari að loknu framhalds-
námi lent I lægri launaflokki
en sá sem á meðan vann á
fuDum launum viö kennslu-
störf.
3. Eftirfarandi dæmi um náms-
kostnað má taka af
einstaklingi sem hóf tveggja
ára framhaldsnám erlendis
haustið 1976:
Skuldv. námsláns og visitölu-
tryggingarþess kr. 1.800.000,-
Framlag einstaklingsins
sjálfs sértilframfærslu kr.
300.000,-
Tekjutap kennara þessi tvö
ár kr. 2.400.000,-
Samtalskr. 4.500.000,-
Þarna hefur hann þvi
kostaö til 4 1/2 millj. kr. sem
hann fær ekki endurgreiddar
að neinu leyti og er jafnvel
refsað fyrir með þvi að vera
settur i lægri launaflokk en
hann værikominn I heffii hann
setið heima og kennt.
4. Þar sem skortur er á
sérmenntuðum kennurum á
þessu sviöi lýsum viö áhyggj-
um okkar af þessari ji-óun
mála og óttumst að sá skortur
veröi áfram, og þau börn sem
lögum samkvæmt eiga rétt á
slikri kennslu fái ekki nauð-
synlega þjónustu. Tæpast er
að vænta þess að nokkur
kennari fari i framhaldsnám
upp á þessi býti, og eina leið
þeirra sem þegar hafa lokiö
námi til aö endurheimta
eitthvað af útlögðum kostnaði
er aö hverfa tfl starfa erlend-
is.
Við teljum vist að hér sé um
einhvern misskilning aö ræöa
sem leiöréttur verði snarlega og
trúum þvi ekki að óreyndu að
okkar mál og nemenda okkar
hafi verið fellt út f þessari um-
ræddu samningagerö Sambands
grunnskólakennara og Lands-
sambands framhaldsskóla-
kennara við fjármálaráöuneytið
nú í nóvember. Höfum viö þvi
gripið til þess ráðs aö skrifa
fjármálaráöherra og
menntamálaráðherra í von um
skjótar úrbætur.
21. nóvember 1978
Launa- og kjaranefnd
Félags islenskra sérkennara.
N
Námsmögu-
leikar
fullorðinna
HEI — Fræðsiuskrifstofa
Reykjavikur veitir upplýsingar
um námsm öguleika og
menntunarkröfur til ákveöinna
starfa, sérstaklega með hliðsjón
af þvi námi, sem fram er boðiö I
Námsflokkum Reykjavikur, en
einnigverður leitast viðað veita
upplýsingar um fleiri þætti
fullorðinsfræðslu og framhalds-
náms, segir i fréttatilkynningu
frá fræðslustjóra.
Þessi þjónusta er miðuö við
fólk á ýmsum aldri, sem ekki
stundar lengur nám i 1.-8. bekk
grunnskóla. Er Anna G.
Jónsdóttir, námsráðgjafi, til
viðtals i fræðsluskrifstofunni á
virkum dögum kl. 13-15. )
Sigurðsson
1 miðstjór n Framsóknar-
flokksins voru kosnir eftirtaldir 8
menn:
Jón Skaftason, Kópavogi,
Guðný Magnúsdóttir, Hafnar-
firði, Gunnar Sveinsson, Kefla-
vik, Sveinn V. Jónsson, Kópavogi,
Einar Geir Þorsteinsson, Garða-
bæ, Jóna Hjaltadóttir, Njarövik,
HaUgrimur Bogason, Grindavik
og Magnús Gunnarsson, Kefla-
vik.
I stjórnmálaályktun þingsins
segir m.a.:
„Kjördæmisþing Framsóknar-
manna I Reykjaneskjördæmi
haldið i Hafnarfirði sunnudaginn
19. nóvember treystir þvi aö á
grundvelli samstarfs rikis-
stjórnarinnar og aðUa vinnu-
markaðarins, megi takast að
draga verulega úr þeirri óðaverö-
bólgu sem rikt hefur i landinu nú
um langan tima. Fari svo að ekki
náist samstaöa á næstunni um
gerbreytta efnahagsstefnu og
samkomulag um að rikis-
búskapurinn verði rekinn með
greiðsluafgangi, þá ber Fram-
sóknarmönnum að hætta þátttöku
i núverandi rikisstjórn”.
Um verðbólgumál segir i álykt-
uninni:
„Enn sem fyrr er veröbólgan
höfuðvandi islensks efnahagslifs.
Meðan verðbólgan er I landinu
verður hún stöðugt vaxandiógnun
viö atvinnuvegi og lifskjör
þjóöarinnar. Auk þess fylgir
henni óþolandi félagslegt mis-
rétti. Stöðvun verðbólgunnar er
þvi brýnasta verkefni rikis-
stjórnarinnar og takist það ekki
verða aðrar úrbætur til litils
gagns. Stöðvun veröbólgunnar
veröur að byggjast á samræmd-
um aðgerðum á sviði rikis-
reksturs, fjárfestingarmála, pen-
ingamála og kjaramála. Eitt
hinna öflugustu vopna eru f járlög
rikisins, sé þeim beitt rétt. Fjár-
lög með verulegum rekstrar- og
greiösluafgangi og miklum tima-
bundnum samdrætti opinberra
framkvæmda er nauðsynlegur
liöur i' þessum aögerðum.
Þvi miöur gengur frumvarp
það til fjárlaga sem nú liggur
fyrir ekki nógu langt i þessa átt.
Þeim mun alvarlegra er aö gagn-
rýni sú sem komið hefur fram af
hálfu samstarfsflokka Fram-
sóknarflokksins I rlkisstjórn
beinist I aöra átt, þ.e. I átt til
aukinnar þenslu.
Jafnframt þvi sem aögeröum
er beitt til að stöðva verðbólguna
Svipmyndir frá kjördæmisþingi Framsóknarmanna I Reykjaneskjördæmi. — Timamyndir Tryggvi.
Framsóknarmönnum
ber að hætta í nú-
verandi ríkisstjórn
— náist ekki samstaöa um gerbreytta efnahagsstefnu og samkomu-
lag um aö ríkisbúskapurinn verði rekinn með greiðsluafgangi
Kjördæmisþing Framsóknar-
manna i Reykjaneskjördæmi 1978
var haldið I Hafnarfirði 19. nóv
s.l. Þingið sátu 130 fuDtrúar úr
öllum byggðum kjördæmisins.
Forsetar þingsins voru Eirikur
Pálsson i Hafnarfirði og Ragnar
S. Magnússon, Kópavogi.
Þingiö samþykkti itarlega
stjórnmálaályktunog einnig voru
ýmsar aðrar ályktanir gerðar.
M.a. samþykkti þingið tillögu
Jóns Skaftasonar um að viðhaft
skyldi prófkjör til ákvörðunar
framboðslista flokksins i kjör-
dæminu fyrir næstu Alþingis-
kosningar.
Einnig var samþykkt áskorun
til þingmanna Framsóknar-
flokksins um aö þeir beiti sér
fyrir samþykkt tillagna Jóns
Skaftasonar frá siöasta þingi um
persónukjör til Alþingis, eða beiti
sér ella fyrir þvi að sétt veröi lög-
gjöf um prófkjör, sem veiti kjós-
endum tækifæri til þess að hafa
áhrif á uppstillingu fyrir alþingis-
og sveitarstjórnarkosningar, þó
aðeins á einn lista I hvert sinn.
Hákon Sigurgrimsson I Kópa-
vogi var endurkjörinn formaður
kjördæmissambandsins og aörir i
stjórn voru kosnir Kristján S.
Krist jánsson, Keflavik, Jón
Grétar Sigurðsson, Seltjarnar-
nesi, Haukur Nielsson, Mosfells-
sveit og Sveinn Ellsson, Hafnar-
firði.
þarf að undirbúa nýja sókn til
aukinnar framleiöslu og bættra
lifskjara. Mikil fjárfesting hefur
átt sér stað á undanförnum árum
i opinberum mannvirkjum og at-
vinnufyrirtæki búa yfir mikilli
tækni- og rekstrarþekkingu, sem
hefur þó komið að minni notum en
Framhald á bls. 23.
peningur
um Jón