Tíminn - 24.11.1978, Síða 6

Tíminn - 24.11.1978, Síða 6
6 Föstudagur 24. nóvember 1978 íiaiíííM'í Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og- auglýsiiigar Siöumúla 15. Simi 86300. " t Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir ki. 20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 110.00. Askriftargjald kr. 2.200 á mánuöi. Blaöaprent h.f. í eindaga Þegar þetta er ritað hefur rikisstjórnin enn ekki birt tillögur sinar um efnahagsráðstafanir fyrir 1. desember næstkomandi. Alþýðuflokkurinn og Al- þýðubandalagið hafa að vanda sinum básúnað sér- tillögur út um borg og bý en forsætisráðherra og aðrir forystumenn Framsóknarflokksins hafa unnið af kappi að þvi að finna sameiginlegar lausnir sem almennt samkomulag gæti náðst um;vinnufriður i þjóðfélaginu og áframhaldandi rekstur atvinnuveg- anna. Það liggur alveg fyrir að nú er ekki um góða kosti að velja. Það virðist þvi miður augljóst, að forystu- menn verkalýðsfélaganna eru ekki reiðubúnir til að taka af alefli á verðbólguvandanum að þessu sinni og sjálfsagt gegnir sama máli um marga af tals- mönnum atvinnuveitenda þegar um alvarlegar að- gerðir er rætt. Hins vegar hefur rikisstjórnin gefið það fyllilega i skyn að hún er ekki reiðubúin til þess að beita þvi skæða vopni sem hún reyndar hefur á valdi sinu, en það er harkalegur niðurskurður opin- berra framlaga og framkvæmda, harðsnúinn sam- dráttur lánafyrirgreiðslu af hálfu opinberra sjóða og lánastofnana eða aðrar slikar miskunnarlausar hjöðnunaraðgerðir, enda er vitað að þess háttar vinnubrögð njóta hvergi stuðnings i islenskum stjórnmálum. Á siðustu dögum og vikum hefur það aftur á móti greinilega komið fram,að almennt samkomulag á að geta tekist um það að vinna á óðaverðbólgunni með hófsamlegri málamiðlun og i áföngum. Um það munu forystumenn flestra stéttasamtaka og at- vinnuvega sammála rikisstjórninni. Sjálfsagt yrði það launþegunum til mestra hags- bóta miðað við flesta aðra kosti, að einhverju af þeim hækkunum,sem visitöluskrúfan hefur fest við 1. desember, yrði hreinlega frestað um eitthvert skeið;t.d. uns visitölunefndin hefði skilað störfum. Með slikum hætti á að geta unnist nokkurt svigrúm til að hamla gegn verðhækkunum á næstu mánuðum. En eftir öllum sólarmerkjum að dæma er ekki við slikt komandi i viðurvist forystumanna launþegasamtakanna. Sumir þeirra hafa meira að segja i dagblöðum mótmælt hugmyndum um að hinir lægst launuðu verði látnir sitja i fyrirrúmi þegar ákvarðanir verða teknar um aðgerðir. Nú er komið i eindaga að ná saman endunum i sameiginlegar tillögur um efnahagsráðstafanir fyrir 1. desember. Nú er ekki lengur eftir neinu að biða;og góðu heilli er það ljóst að stjórnarflokkamir eru um það sammála að ótækt sé að visitöluskrúfan fái að fullu að ráða ferðinni nú um mánaðamótin. Um þetta munu reyndar allir sammála,ýmist upp- hátt eða i hljóði,og þvi hlýtur að verða unnt að ná starfhæfu samkomulagi án ófriðar á vinnu- markaðinum. Þvi verður ekki trúað að farsæld íslendinga sé ekki meiri en svo að þeir láti ekki segjast fyrr en al- mennt atvinnuleysi og gjaldþrot fyrirtækja hafa dunið yfir. Við verðum að reynast menn til þess að leysa málin áður en i algert óefni er komið. Það yrðu og ólýsanleg vonbrigði ef núverandi rikisstjórn auðnaðist ekki að vinna verulegan sigur á verðbólg- unni þegar á næsta ári. Nái rikisstjórnin ekki árangri i þessu meginmáli er óvist að vita nú hvar þeir aðilar, sem eitthvað megna,sitja á fleti fyrir. JS Mao gagnrýndur í fyrsta sinn SIÐUSTU veggspjöldin, sem hafa veriö hengd upp í Peking, þykja benda til, aö Hua Kua-feng sé engan veginn eins öruggur i sessi og haldið hefur verið til þessa. Veggspjöldin þykja bera merki um að ný „hreinsun” sé i undirbúningi og eig i nú að losna við alla þá, sem á einhvern hátt hafi haft sam- starf viö „óþokkana fjóra”, sið- ustu æviár Maos formanns. Verði hafin hriö að þessum mönnum, getur Hua oröiö hætt. Undanfarin misseri, eöa siðan Teng varaforsætisráðherra hófst til valda aftur, hefur verið unnið kappsamlega að þvi að vikja til hliðar öllum þeim, sem voru yfirlýstir stuðningsmenn „óþokkanna fjögurra” á timum menningarbyltingarinnar svo- nefndu, þegar Teng og félagar hans voru sviptir völdum i fyrra sinn. Þessari hreinsun er nú að mestu eða öllu lokið. Nú viröist eigaaö beina svipaðri hreinsun gegn þeim, sem studdu „óþokk- ana fjóra”, þegar Teng var vik- ið frá siðara skiptiö. Þar getur Hua átt eftir aö koma viö sögu. Eins og áöur segir, var Teng og félögum hans ýtt til hliðar á timum menningarbyltingarinn- ar. Það var eitt af siðustu verk- um Chou En-lais að koma þvi til vegar, aö Teng væri endurreist- ur og skipaður varaforsætisráð- herra, en Chou hafði verið for- sætisráöherra Kina frá stofnun kinverskaalþýðuveldisins. Þeg- ar Chou féll frá i ársbyrjun 1976, var almennt búizt viö þvi', aö Teng yröi eftirmaöur hans sem forsætisráðherra. Þaö dróst þó álanginn,að hann yröi skipaður i stööuna og gætti þar vafalítið andspyrnu frá „óþokkunum fjórum”, sem höfðu mikil áhrif á Mao. Hinn 5. april 1976 kom til allmikils uppþots á einu aðal- torginu i Peking. Það er enn nokkuö á huldu hver var til- gangur þess, eöa hverjir voru þar að verki. „Óþokkarnir fjór- ir” notuðu þetta tilefni til að kenna Teng um og átti það sinn þátt i þvi, aö Teng var sviptur embætti varaforsætisráöherra og var það gert að tillögu Maos aö þvi sagt var. Nokkru siöar var Hua tilnefndur forsætisráð- herra. Þegar Mao lézt siöar á árinu, var Hua einnig valinn formaöur Kommúnistaflokks- ins. Sagt er, aö Hua hafi verið valinn til beggja þessara starfa aö tillögu Maos. VALIÐ á Hua i þessar stöður, kom flestum á óvart, en hann hafði verið litið þekktur fram að þessu. Það kom þó enn meira á óvart, þegar hann var upphaf- lega valinn forsætisráöherra. Ljóst virðist nú, aö þaö hafi ver- Hua ið gert meö samþykki og jafnvel stuðningi „óþokkanna fjög- urra”. Þeir hafi ekki haft nægi- legt bolmagn til að koma að manni úr sinum hópi, en stutt Hua i trausti þess, að hann myndi koma til liðs við þá. Það gerði Hua hins vegar ekki, þeg- ar eftirmaöur Maos var valinn, heldur samdi við andstæðinga þeirra og tryggði sjálfum sér þannig formannsstöðuna. _ Nýju veggspjöldin eða vegg- ' blöðin, sem nú vekja athygli I Peking, beinast öll að uppþotinu þar I aprilmánuöi 1976, en það leiddi til þess, eins og áður seg- ir, að Teng var ýtt til hliöar og Hua varð forsætisráðherra. Aöalefni veggspjaldanna er þaö, að Mao hafi skjátlast fyrir aldurs sakir og af öðrum ástæð- um, þegar hann fór að ráðum „óþokkanna f jögurra” og notaði þettatilefni til að vikja Teng frá völdum. Þessi ádeila á Mao hefur að sjálfsögðu vakiö sérstaka athygli, þvi að þaö hefur ekki komið fyrir áöur að Mao væri þannig gagnrýndur opinberlega I Kina. Yfirleitt er talið, aö þaö séu stjórnarvöld, sem standi á Teng bak við veggspjöldin. Þau virð- ast oftast notuð til að boöa atburði, sem séu i vændum. Þannig voru veggspjöld notuö til árása á Teng eftir uppþotiö i Peking i april 1976. Veggspjöld- in, sem núhafaverið hengd upp og notuð eru til að gagnrýna Mao, eru ekki færri en sextán talsins, þviaðhérerum alllangt mál að ræða. Þau hafa ekki ver- ið tekin niður aftur og ber það merki þess, að þau njóti vel- þóknunar stjórnvaldanna. Opin- ber fréttastofa Kfna, Hsinhua, hefur lika fylgt þeim eftir með þvi aö lýsa tildrögum uppþots- ins 1976. Margt manna hafi komið á torgið til aö leggja þar blómsveiga til heiöurs Chou En-lai, en lögreglan hafiskorizt i ieikinn og reynt að fjarlægja blómsveigana. Þáhafikomiö til óeirðanna, sem leiddu til þess að 388 borgarar voru handtekn- ir. Þeir hafa nú allir fengið sak- aruppgjöf. Taliö er, aö þaö hafi verið fylgismenn Tengs, sem komu meö blómsveigana, og hafi þeir viljað minna á, að sæti Chou væri enn ófyllt. SÚ KRAFA er borin fram á umræddum veggspjöldum, aö þeim, sem báruábyrgö á því, að til uppþotsins kom, verði refsað vægöarlaust. Mörgum finnst að böndingeti borizthéraöHua, en hann var ráðherra innlendra öryggismála á þessum timum og þvi æðsti maður lögreglunnar. Hann var lika maöurinn, sem mest græddi á þessum atburði. Það þykir þó ekki liklegt, að þetta tilefni verði notaö til aö víkja Hua frá völdum, a.m.k. ekki að svo stöddu. Hitt þykir liklegra að völd hans verði skert og áhrif Tengs fari enn vaxandi, en þau hafa aukizt jafnt og þétt siðan hann var endurreistur i annað sinn á siöastl. ári. Hann hefur. vafalitiö sterka stuðnings- menn bæði i flokkskerfinu og rikiskerfinu. Sennilega munar þar mest um þann stuðning, sem hann hefur innan hersins. Þ.Þ. Erlent yfirlit Veggspjöld í Peking höggva nærri Hua

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.