Tíminn - 24.11.1978, Blaðsíða 24
Sýrð eik er
sígild eign
&CiÖCiii
TRBSMIDJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Gagnkvæmt
tryggingafé/ag
Skipholti 19, R.
sími 29800. (5 linur)
Verzlið
buðTn ' sérverzlun með
litasjónvörp
og hljómtæki
Föstudagur 24. nóvember 1978 262. tölublað 62. árgangur
———— Borgarlæknir hvetur fullorðið fólk og ferðamenn---
til þess að athuga sinn gang
Bóinsetningarefnið gegn mænuveiki
var gallað og ófullnægjandi
AM — A fundi heilbrigOis-
ráðs nýlega var aö þvi
vikið að nú væri brýnt að
þeir sem væru komnir
yfir 25 ára aldur og ekki
væru fullvissir um að
hafa hlotið nægiiega bóhi-
setningu gegn mænu-
veiki, sneru sér til Heilsu-
vernarstöövarinnar og
fengju að ráðgast viö
spjaldskrá stöðvarinnar
um ástand sitt.
Blaðið ræddi viö Skúla
G. Johnsen borgarlækni i
gær um þetta mál og
sagði Skúli að það bólu-
á árunum 1956
S3
efni, sem notað hefði ver-
iö á árunum 1956-1960,
hefði reynst alls
ófullnægjandi og þvi
mikilvægt aö fólk bólusett
á þeim tima kæmi til þess
að fá sig bólusett að nýju.
Bólusetningin fælist í
grunnbólusetningu, sem
er tvær bólusetningar
meö 2-6 vikna millibili og
loks ein bólusetning að ári
liðnu. A þá i flestum
tilfellum að vera fengið
tryggt ónæmi. Sem aö
ofan segir er ekki siður
mikilvægt að það fólk,
sem ekki er fullvisst um
sig I þessu efni, snúi sér
til Heilsuverndarstöðvar-
innar. Þvi skal strax
komiö að,að nú er gefiö
tækifæri til þessa i
klukkustund i hverri viku
i stöðinni, á mánudögum
frá kl. 16.-30-17.30.
Skúli sagði að fúllnægj-
andi og nýtt bóluefni hefði
komiö til sögunnar árið
1960 og þvi senniiegt aö 25
ára fólki og yngra ætti að
vera óhætt, vegna bólu-
setningar á vegum skóla.
1970 og siðan hefði verið
gert mikið átak i þvi
skyni að fá fuilorðna til
þess aö koma til bólusetn-
ingar og endurbólusetn-
ingar og i þvi skyni var
bólusetning framkvæmd
árlega um mánaöarskeið,
þar til I fyrra, þegar
ákveðið var að taka upp
þessaföstu klukkustund á
mánudögum, en þá var
talið að svo mikill hópur
fólks hefði veriö bólusett-
ur aö ekki væri ástæöa til
þess að hafa opið þennan
mánuð, enda aðsóknfar-
in að réna mikið.
Enn sagði Skúli G.
Johnsen að á fundinum
heföi veriö lögð fram
skýrsla um þátttöku
fullorðinna i bólusetning-
unni og á grundvelli
hennar séö að brýnt væri
að hvetja fullorðna til
þess að athuga sinn gang
sem skjótast og alveg
sérstaklega þá, sem ferð-
ast til suðurlanda, þar
sem veikin er fyrir hendi,
sem og til annarra landa,
en aðeins eitt mænuveiki-
tilfeiiikann aö hafa mikla
hættu og ófyrirsjáanlegar
afleiöingar I för meö sér.
Þá væri á það að lita aö
fjölmargir hefðu flutst til
Reykj avikur og væru ekki
vegna þess á skrám
Heilsuverndarstöövar og
yröi það fólk að koma og
fá sig bólusett, væri þaö
ekki þvi öruggara um sig,
en Bta verður á að til þess
að bólusetningin sé
fullkomin, þarf hún að
hafa verið framkvæmd á
þann hátt, sem um getur
fyrr i þessari frétt.
Reykskynjarinn fór
í gang
— og gerði viðvart
ESE — Laust fyrir kl. 18 I gærdag
var Slökkvilið Reykjavlkur kvatt
að húsi við Bogahlið 15, en þar
höfðu ibúar orðið varir við
reykjarlykt úr einni Ibúð hússins
og hljóömerki frá reykskynjara
sem komið hafði veriö fyrir i
Ibúðinni.
Ekki reyndistbráð hætta vera á
feröum, aöeins hafði gleymst að
slökkva á eldavélarhellu með
potti á, en reykskynjarinn var
hlutverki sinu vaxinn og gaf þvi
viðvörunarhljóö frá sér þegar
reyk tók að leggja um ibúðina.
Að sögn varöstjóra I slökkviliö-
inu er þetta gott dæmi um þaö
gagn sem tiltölulega ódýrt verk-
færi eins og reykskynjari, sem
kostar á milli 10 og 12 þúsund
krónur, getur gert, ef hann er á
annað borð til staðar. Sérstakiega
er mikil vörn í þvi að hafa reyk-
skynjara I gangi aö næturlagi er
hættan væri mest og fólk i fasta
svefni.
Blindhríð á
Hellisheiði
Umferðin í
Reykjavík:
14 árekstrar
ESE — Frá þvi um kl. 6 i
gærmorgun fram til kl. 18 urðu
alls 14 árekstrar I umferöinni i
Reykjavik.
Engin slys uröu á mönnum I
þessum árekstrum, enda mun i
flestum tilfellum hafa verið um
smá aftanákeyrslur að ræöa.
A.B sögn varðstjóra hjá
Lögreglunni i Reykjavik i gær
var ástandiö með þolanlegra
móti I gær miöað viö aöstæöur,
en siöari hluta dagsins var snjó
tekið að skafa og þæfingsfærð
á götum, sérstaklega I úthverf-
um.
Færð utan borgarmarkanna
er liða tók á daginn var slæm og
m.a. varófærtum Hellisheiði og
\Þrengslaveg. j
ESE — Siðdegis I gær var skollið
á hiö versta veöur á Hellisheiöi og
IÞrengsIum og varð af þeim sök-
um að loka veginum á báðum
þessum stöðum.
Aö sögn vegaeftirlitsmanns var
ekki vinnandi vegur að ryðja veg-
inn um heiðina i gær, enda blind-
hrib þar efra og veður hið versta.
Þá var fastlega búist viö þvi aö
færö tæki að versna I nágrenni
Reykjavikur I gærkvöldi, enda
var snjó vföa tekið að skafa.
kL,
Bdlu Hjálmar, Kvæða
Anna og Jón Indiafari
kynntust öll snjó og
hrið sem reifastrang-
ar á kalsömum
ferðalögum milli
bæja. Sá eða sú sem
við gerum ráð fyrir að
sé i vagninum þeim
arna verður kannske
enn éinn stólpi
islenskra bókmennta,
þegar fram liða
stundir.
• m
■
Leggst hjúkrunarnám niður í Háskólanum?
HEI — Kjaradómur hefur
nýlega dæmt I máli hjúkrunar-
fræðinga með BS próf (4 ára
nám) frá Háskóla lslands.
Niöurstaða dómsins varð sú að
hjúkrunarfræðingar með BS
próf og niu mán. starfsreynslu
skyldu taka laun eftir launa-
flokki 103.
í fréttatilkynningu frá BHM
segir, aö háskólamenn með
sambærileg próf taki almennt
ekki laun eftir lægri launaflokki
en 107. BHM mótmælir úrskurði
dómsins og telur hann fela 1 sér
vanmat á menntun og störfum
BS hjúkrunarfræðinga.
Þá segir að verði starfssviö
BS hjúkrunarfræðinga ekki
skýrar markað og launakjör
þeirra samræmd kjörum
annarra háskólamanna megi
búast við aö háskólanám i
hjúkrun leggist niður, þar sem
völ sé á mun styttra námi með
launum á námstlma, sem gefi
sömu réttindi.
Hjúkrunarnám frá
Hjúkrunarskóla Islands tekur 5
ár en i háskóla 8 ár eftir
gru nnskóla.