Tíminn - 08.12.1978, Blaðsíða 9
Föstudagur 8. desember 1978
9
----------alþingi
Vandamál Suðurnesja:
9-11 frystíhús skipta höfuðmáli
— af 24, sem
starfrækt eru
á svæðinu
Vandamál frystihúsa á Suöur-
nesjum voru rædd f fyrir-
spurnartima á Alþingi fyrir
skömmu
Karl St. Guönason (A) spuröi
um, hvaö liöi ilttekt þeirri 6
vandamálum frystihúsanna,
sem sérstakur starfshópur
vinnur aö á vegum sjávarút-
vegsráöherra. Sagöi hann, aö
útgerö og fiskvinnslaá Suöur-
nesjum stæöi afar illa. Astæö-
urnar væru margar og flóknar,
en hæst bæru minnkandi afla-
brögö og óhagstæö samsetning
afla. „Aöur fyrr eöa allt til 1971
var atvinnulif á Suöurnesjum
eöa Suövesturlandi afar blóm-
legt og lagöi jafnframt mikiö
fram í þá sjóöi, er voru til
styrktar þeim landssvæöum, er
þá áttu viö staöbundin vanda-
mál aö stríöa. 1 vor og sumar
var hagur fiskvinnshi á Suöur-
nesjum svo bágborinn, aö
frystihúsin hættu um skeiö
starfsemi og atvinnuleysi var
verulegt af þeim sökum. Þegar
ný rikisstj. tók viö völdum fóru
hjól atvinnulifsins aö snúast á
nýjan leik”. ,,AÖ undanförnu
hafa borist fréttir um, aö enn.
sæki i sama horf og fyrr i at-
vinnumálum Suöurnesjamanna
og má geta þess, aö nú fyrir
helgina var á annaö hundraö
manns sagt upp störfum i frysti-
húsunum”.
Eirikur Karl St.
Kjartan Jóhannsson sjávarút-
vegsráöherra sagöi sjávarút-
vegsráöuneytiö hafa sett á lagg-
irnar starfshóp til aö gera at-
hugun á stööu fiskvinnslufyrir-
tækja, sem búa viö svæöisbund-
in vandamáloggera tillögur um
úrlausn þeirra. Fyrsta verkefni
starfshópsins var vandi frysti-
húsanna á Suöurnesjum. Sér-
staklega værikannaö mikilvægi
fyrirtækjanna i atvinnulifi á
hverjum staö, fjárhagsstaöa
fyrirtæk janna, rekstrar-
árangur, tæknibúnaöur, af-
kastageta og nyting.
„Starfshópurinn hefur skilaö
fyrstu tillögum sinum og þar
kemur m.a. fram, aö starfs-
hópurinn telur, aö af þeim 24
frystihúsum á svæöinu, þá
skipti 9-11 þeirra höfuömáli,
bæöi aö þvl er varöar atvinnulif
og framleiöslu. Fyrirtækin 11
eru meö nálægt 80% af freöfisk-
framleiöslunni á svæöinu
þannig aö atvinnulega séöskipt-
ir höfuömáli, aö þau séu starf-
rækt og séu þau ekki starfrækt
er atvinnu sérstök hætta búin”.
Þá sagöi ráðherra, aö hópur-
inn legöi til, aö komiö yröi á fót
sameiginlegri reiknistofu
Kjartan Halldór
frystihúsanna á svæöinu, sem
m.a. fylgdist meö héáefnisaukn-
ingu og vinnulaunakostnaði
frystihúsanna. Einnig teldi
starfshópurinn þýöingarmikiö,
aö togaraaflinn gegni veiga-
meira hlutverki í hráefriisöflun
frystihúsanna en nú er. Togara-
útgerö tryggöi öruggari og
jafnari hráefnisöflun allt áriö en
bátaútgerö megnaöi.
Unnið væri aö tillögu hópsins
um aö styrkja fjárhagsstööu
fyrirtækjanna meö breytingu á
lausaskuldum I lán.
Eirikur Alexandersson (S)
sagöi svör ráöherra all loöin og
„svona eins konar heimspeki-
legar hugleiðingar um þaö, sem
þurfi aö gera þegar tíl lengri
tíma er litið, en ekkert beint og
bitastætt, hvorki um þaö sem
veriö er aö gera eöa búiö er aö
gera eöa þaö sem þarf aö gera
núna á næstu vikum tíl þess aö
bjarga þvi alvarlega ástandi,
sem rikir nú suöur á Suöur-
nesjum”.
Karl St. Guönasonsagöi m.a.:
„Ég legg áherslu á þaö, aö þaö
sem út úr þessu kemur veröi á
þann hátt, aö lifvænlegar
rekstrareiningar skapist, aö
mögulegt veröi aö reisa at-
vinnuliliö úr þeim rústum sem
þaö var i og bægja frá þvi at-
vinnuleysi sem hefur reyndar
veriö viöloöandi og er kannske
aö koma á ný. Éghygg.aöaörir
landshlutar geti beöiö nokkuö
meö úrbætur i þessum efnum,
þar sem ástandið er hvaö best,
afkoman hvaö best. Lands-
hlutar, þar sem fjöldi eöa tugir
Astraliumannaerunotaöir til aö
fylla upp i vinnumarkaöinn”.
Halldór Asgrimsson (F)sagði
þaö aðalatriöi, aö fyrstihúsin al-
mennt i landinu heföu bærileg
rekstrarskilyröi, en ekki hvaöa
rikisstjórn væri viö völd.
Þá sagöist Halldór vilja gera
athugasemd viö eitt atriöi i
ræöuráöherra: „Ef ég hef skiliö
hann rétt, þá gat hann þess, aö
þessi starfshópur heföi komist
aö þeirriniöurstööu,aöþaö væri
rétt aö auka togaraútgeröina á
Suöurnesjum á kostnaö bátaút-
geröarinnar. Ég reikna meö aö
þaö mundi vera svo viöar um
landiö, ef menn hafa rekstur
frystihúsanna i huga, aö þetta
væri rétt niðurstaöa. En ég vil
vara viö þessu vegna þess aö
hér er um timabundið vanda-
mál aö ræöa og gæti haft mjög
alvarlegar afleiðingar varöandi
nýtingu fiskistofnanna. Þetta
þurfa menn aö hafa I huga.
Þessi vandi er m.a. upp kominn
vegna þess aö saltfiskfram-
leiöslan stendur mjög höllum
fæti og afli bátaflotans á vetrar-
vertíö fer aö miklu leyti i salt,
vegna þess aö þaö eru þaö
miklir toppar i þeirri vinnslu, en
mér finnst ástæöa til þess aö
vara viö þvi aö staöan eins og
hún er I dag á mörkuöunum leiöi
tíl þess aö menn fari út i ein-
hverja stökkbreytingu I fiski-
skipaflotanum, þ.e.a.s. leggja
niöur verulegan hluta af báta-
flotanum til þess aö geta bætt
viö togurum. Þetta mun örugg-
Framhald á bls. 21
Verðjöfn-
unargjaldið
1. um-
ræða
í efri
deild Steingrlmur
SS — Steingrimur Hermannsson
iandbúnaðarráöherra mælti I
efri deild I fyrradag fyrir laga-
frumvarpi um greiöslu
veröjöfnunargjalds af sauöfjár-
afuröum. Frumvarpiö er flutt til
aö framkvæma þaö ákvæöi I
samstarfsyfirlýsingu stjórnar-
flokkanna, aö endurgreiöa þaö
veröjöfnunargjald, sem
Framleiösluráö landbúnaöarins
ákvaö aö ieggja á sauöfjár-
afurðir s.l. vor tii jöfnunar á út-
flutningsveröi sauöfjárafuröa.
Aætlaö er, aö gjald þetta muni
nema samtals um 1300 millj. kr.
JOLABÆKURNAR 1978
Á öllum borðum
í Unuhúsi
200 ÚRVALSVERK
A KR. 1.500.- TIL KR. 15.000.-
Hér veröur aöeins fátt taliö:
Sjömeistarasagari/ nýjasta Laxnessbókin.
I túninu heima.
Ungur ég var
Or fórum fyrri aldar. úrval heimslistar, valið og þýtt af
aldamóta-snillingunum, Þorsteini Erlingssyni, Matthíasi,
Hannesi Hafstein, Steingrími, Páli Olafssyni og fleirum.
Ferðalok, skáldsaga eftir Kristján Albertsson
Heim til þín Island, nýjasta Ijóðabók Tómasar Guðmundsson-
ar. Besta bók skáldsins.
Hagleiksverk Hjálmars í Bólu, eftir dr. Kristján Eldjárn.
I verum, snilldarverk Theodórs Friðrikssonar
Ljóðasafn Sigurðar frá Arnarholti,
Æviþættir eftir Jóhann Gunnar Ólafsson, vin skáldsins.
Allar þýðingar Magnúsar Ásgeirssonar í tveim stórum bind-
um.
Steinn Steinarr I jóðasaf n og greinar ásamt Tfmanum og vatn-
inu
Þorsteinn Erlingsson, Þyrnar og Eiðurinn
Tvö listaverk fyrir unglinga, Berjabitur og Dimmalimm
og sjö þjóðsagnabækur.
KAUPID BÆKURMAR í UNUHUSI,
HELGAFELL
HELGAFELLf,
VEGHÚSASTfG 7, SfMf f6837