Tíminn - 01.02.1979, Blaðsíða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 ■ Afgreiðsla og óskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Rafbílar
enn ekki
nógu
hagi
kvæmir
í rekstri
Niðurstöður
könnunar um
notkun rafbíla í
stað venjulegra
bíla í rekstri
borgarinnar
Kás — Á borgarráðs-
fundi á þriðjudaginn
var lögð fram merki-
leg skýrsla um hugsn-
lega notkun rafbfla i
rekstri borgarinnar.
Er hún samin i fram-
haldi af tillögu sem
samþykkt var i
borgarstjóm Reykja-
vikur6. april á siðasta
ári, en i henni var
borgarráði falið að
láta kanna hvar unnt
sé að koma við notkun
rafbila i stað bensin-
og disilbila í rkestri
borgarinnar.
Niðurstaöa skýrslunnar er
sú, að ekki verði um villst að
fjárhagsleg hagkvæmni fyrir
rekstri rafbíla sé enn ekki til
staðar. Það eru þeir ög-
mundur Einarsson, forstööu-
maður Vélamiðstöðvar, og
Þorleifur Finnsson, tækni-
fræðingur hjá Rafmagnsveit-
unni, sem unnu skýrsluna.
Helsti annmarki á rekstri
rafbíla er hinn geysihái fram-
leiðslikostnaður þeirra. Hins
vegar er búist viö þvi að hann
muni lækka verulega á næstu
árum. Viö skoðun á orku-
kostnaði kemur i ljós, að orku-
kostnaöur rafbils er 50% af
orkukostnaði bensinbils og er
þá vegaskattur rafbils talinn
með orkukostnaði. Það er þvi
ljóst, aö jafnskjótt og stofh-
kostnaður lækkar kemur notk-
un rafbila vel til álita.
----Ráðherranefndin skilaði af sér f gærkvöldi:-
Fulltrúar f lokkanna sammála
um mðrg veigamikil atriði
SS — Svo sem kunnugt er bar hinni svoköiluðu ráð-
herranefnd/ sem að undanförnu hefur starfað ötui-
lega að mótun langtímastefnu í efnahagsmálum, að
skila af sér fyrir 1. febrúar.
Blaðið hafði tal af Steingrími Hermannssyni ráð-
herra, formanni nefndarinnar, i gærkvöldi og innti
hann eftir störfum nefndarinnar:
,,Þessum tillögum okkar skilum við ekki í frum-
varpsformi heldur sem „skýrslu um efnisatriði í
frumvarpi og samþykktir um langtímaaðgerðir í
efnahagsmálum", sem ríkisstjórnin vinnur væntan-
lega úr frumvarpi og ýmisskonaraðraraðgerðir t.d.
getur hún sett í gang ýmsar athuganir, sem ekki þarf
lög til. ( þessari skýrslu okkar er að finna ail heillega
kafla um ríkisfjármál, fjárfestingarmál og peninga-
mál svo dæmi séu nefnd.
Þarna eru þau atriði, sem fulltrúar f lokkanna urðu
sammála um og svo athugasemdir þeirra við hvern
kafla, þar sem fram koma viðbótartillögur, sem ein-
stakir fulltrúar kunna að hafa.
Fulltrúar f lokkanna urðu sammála um mörg veiga-
mikil atriði. Hins vegar eru jafnframt í hinum með-
fylgjandi athugasemdum einnig mjög mikilvægar til-
lögur.
Mín persónulega skoðun er sú, að upp úr þessu megi
semja mikilvægt frumvarp um langtímaaðgerðir i
ef nahagsmálum, sem hef ur það í fyrsta lagi að mark-
miði að koma verðbólgunni niður f yrir 30 af hundraði í
lok þessa árs og áframhaldandi hjöðnun á næsta ári,
niður í þetta 15—20%, í öðru lagi að styrkja atvinnu-
vegina og halda fullri atvinnu, í þriðja lagi að varð-
veita þann kaupmátt launa, sem um hef ur verið samið
og i f jórða lagi að auka félagslegt öryggi. Ég tel það
mjög mikilvægt að við leggjum fram sameiginlega
skýrslu."
„ÖKUKONA
ÁRSINS”
,,ökumaður ársins 1978 var ný-
lega valinn og viö vonum að
kvenþjóðin taki það ekki nærri
sér þótt við stingum upp á að
þessi hérna hljóti titilinn „öku-
kona ársins” — (Tímamynd
Róbert)
Vopnað rán á Pósthúsinu í Sandgerði:
Hótaði að drepa stöðvarstjórann
— ef hann fengi ekki peningana
ESE — Vopnað rán
var framið á Póst-
húsinu í Sandgerði
laust fyrir klukkan 9
í gærmorgun og
komst árásar-
maðurinn sem var
einn sins liðs undan
með um 300 þúsund
krónur í þúsund og
fimm þúsund króna
seðlum.
Stöðvarstjóri Pósts og
sima, sem er kona, var
ein mætt i vinnu er ránið
var framiö og komst
árásarmaðurinn inn I
húsið með þvi að banka
að dyrum. Er stöðvar-
stjórinn lauk upp dyr-
unum, beindi maðurinn,
sem var klæddur dökkri
hettuúlpu, vasaljósi að
andliti hennar, þannig að
hún blindaðist og hafði
maðurinn i hótunum um
að hann myndi skjóta
hana ef hún afhenti hon-
um ekki peningana. Að
sögn rannsóknarlögregl-
unnar i Keflavik sem
stjórnar rannsókn máls-
ins, otaði maðurinn ein-
hverjum hörðum hlut I
bak konunnar, sem eins
heföi getað verið skot-
vopn og þorði konan þvi
ekki annaö en að láta pen-
ingana af hendi.
Maöurinn komst siðan
út án þess að konan fengi
færi á þvi að sjá andlit
hans og eina lýsingin sem
hún gat gcfiö lögreglunni
var sú, að ránsmaöurinn
hefði verið meðaimaöur
að hæð, klæddur dökkri
hettuúipu og með hanska.
Viðtæk leit var gerð á
Suðurnesjum að ráns-
manninum i gær, en hún
hafði, er blaðið hafði
samband við rannsóknar-
lögregluna I Keflavik f
gærkvöidi, engan
árangur borið.