Tíminn - 01.02.1979, Blaðsíða 13

Tíminn - 01.02.1979, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 1. febrúar 1979 13 (OOGOOQOOi Hverjir eru bestir? VALUR Hverjir eru bestir? Valur. Hverjir eru bestir? Valur. Þessi hróp heyrbust oft I Hagaskóianum s.l. sunnudagskvöld, er Valsmenn iögðu KR-inga í körfunni, 80:77, i afar spennandi leik. Eftir leikinn tóku Valsmenn þjálfara sinn, Tim Dwyer, og toIleruOu hann viO mikinn fögnuO viOstaddra. Tryggvi náOi þessari skemmtilegu mynd af Dwyer i tolleringunni. Stuart Pearson borinn af leikvelli — f bikarleik Fulham og United I gærkvöldi Fulham tókst i gærkvöldi aO ná jafntefii viO Manchester United i 4. umferö enska bikarsins á Craven Cottage, heimavelli sinum. Gamia kempan Jimmy Greenhof náöi forystu fyrir United á 39. min og staöan var 1:0 fyrir United á leikhiéi. John Margerrison jafnaöi metin fyrir Fulham snemma i seinni hálfleik. Seint i leiknum varö Stuart Pearson fyrir þvi óhappi aö mieiftast illa og varO aö bera hann af leikvelli. Pearson var rétt orö- inn góöur af öörum meiöslum og var þetta annar leikur hans eftir aö hann var tekinn af sjúkralista United fyrir skömmu. Ferill hans hefur veriö ein hrakfallasaga og hefur hann eiliflega átt viö meiösli aö strlöa. i deildarkeppninni léku Ever- ton og Aston Villa á Goodison og ÍS - UMFN í kvöld 1 kvöld veröur einn leikur I úr- valsdeiidinni I körfuknattleik. Þá leika kl. 20 I Kennaraháskóianum liö IS, meö Trent Smock I farar- broddi, og Njarövikingar. Bæöi liöin hafa veriö i mikiili framför aö undanförnu þótt þau skipi ólik- an sess I deildinni. Um skemmti- legan leik ætti aö geta oröiö. varö jafntefli — 1:1. Dave Thomas skoraði jöfnunarmark Everton rétt fyrir leikslok. Þá lék einnig Norwich og QPR i 1. deild- inni og þar varö einnig jafntefli — 1:1. önnur úrslit: Skoski bikarinn: Clyde —Kilmarnock ........1:5 Clydebank —Queen’sPark . ..3:3 Meadowbank — Spartans.....2:1 Montrose — Celtic.........2:4 England, 4. deild: Torquay — Barnsley........3:2 —SSv— Fjögur stór- liðEvrópu 1 eitt mót Stórliöin Ajax, Bayern Munchen og AC Milan tóku I gær- kvöldi boöi Real Madrid um aö keppa I sérstöku 4-liöa vináttu- móti, sem hefst 7. mars. Móts- fyrirkomulag veröur þannig aö allir leika viö alla tvöfalda um- ferö og veröa þetta þvi alls 12 leikir. Mótiö er háö til aö minnast fyrrverandi forseta Real Madrid, Santiago Bernabeu og mun bera nafn hans. Vföa er nú kuldaiegt um aö litast á knattspyrnuvöllum I Evrópu. Þessa skemmtilegu mynd sáum viö I „Kicker” og er hún táknræn fyrir þaö ófremdarástand, sem hefur veriö aö undanförnu. LIAM BRADY er hann milljón punda virði? Frægir kappar segja álit sitt Liam Brady hefur í vetur og Jim Blyth, markvöröur Coventry, fyrravetur veriö einn mest um- á 400.000 pund tel ég alls ekki talaði knattspyrnumaöur Bret- . óeölilegt aö borga milljón pund landseyja. Brady, sem leikur meö fyrir Brady. Arsenal, er aöeins 22 ára gamall Kon Atkinsson, framkv. stj. en þegar margfaldur landsliös- WBA: — Brady er besti miövall- maöur meö írska lýöveldinu. arleikmaöurinn I Englandi, — Brady er hæglátur ungur piltur og þ.e. á vinstri vængnum. — Við er ekki vanur aö viöra skoðanir höfum hins vegar einn betri, sinar, en þegar sú spurning var á Laurie Cunningham, á hægri borö borin fyrir hann, hvort hann vængnum. — Viö fengum Cunn- teldi sig vera milljón sterlings- punda virði, brást hann hart viö og sagði: — Ég get ekki séð aö nokkr knattspyrnumaður geti verið svo verðmætur — hvorki ég né aörir. — Ég á nógu erfitt með aö imynda mér hvernig félög megna aö snara 200.000 sterlingspundum á borðiö fyrir leikmann, hvaö þá þeirriupphæð, sem áður er nefnd. Almenningur I Englandi virðist þó ekki vera á sama máli og telja að hann og Trevor Francis hjá Birmingham séu báðir, hvor um sig, milljón punda virði. Hér á eftir fara nokkur svör kunnra kappa, er þeir voru spurðir hvort þeir teldu Brady vera milljón punda virði. Tony Book, framkvæmdastjóri Manchester City: — Verð leik- manna fer að sjálfsögðu nokkuð eftir framboði og eftirspurn. — Væri leikmaður i gæðaflokki Brádys til sölu og ég teldi hann geta styrkt lið mitt verulega, væru milljón pund ekki svo fráleit upp- hæð. — Brady er heimsklassa- leikmaður og hann er aðeins 22 ára gamall. Lawrie McMenemy, framkv.stj. Southampton: — Fyrir mitt leyti myndi ég ekki borga milljón pund fyrir Brady né aðra leikmenn, þvi ef ég gerði slíkt yrði að veðsetja félag mitt, Southampton. — Brady er tvi- mælalaust besti leikmaður Bret- landseyja og ef félag, meö næga peninga, teldi að hann gæti gert liðið enn betra, tel ég ekki vitlaust að borga þessa upphæð. Alan Mullery, framkv.stj. Brighton:— Brady er besti knatt- spyrnumaður Evrópu. — Ef hann væri maðurinn, sem ég væri að leita að og ef Arsenal krefðist milljón punda fyrir hann, hikaöi ég ekki við að borga þá upphæð. Jim Smith, framkv.stj. Birm- ingham: — Við höfum sjálfir hjá okkur leikmann, sem er milljón punda virði. — Það er að sjálf- sögðu Trevor Francis. — Brady er heimsklassaleikmaöur, á þvi leikur enginn vafi. — Þegar Steve Daley er metinn á 650.000 pund og ingham á hlægilegu veröi og hann, ásamt Brady eruvel nrilljón punda viröi. Kevin Keegan, Hamburger SV: — Brady er besti knattspyrnu- maöur, sem ég hefi séð um ævina. — Brady er sannkallaður knatt- snillingur og hann skorar mikið af mörkum. — Já, hann er milljón punda virði og vel það, sagði Keegan. —SSv— Hafnarfjarðarlið sam- an í bikarkeppninni ★ Týr fékk íslandsmeistara Vals 1 fyrrakvöld var dregiö I 16 liöa úrslit bikarkeppni HSÍ og fór drátturinn fram, án þess að fjöl- miðlum væri gefinn kostur á aö fylgjast meö, hvað þá að sagt væri frá honum að fyrra bragöi. Stórleikur umferöarinnar er tvi- mælalaust viöureign Hafnar- fjarðarliðanna, FH og Hauka, en þessi liö hafa marga hildi háð um ævina og leikir liðanna hafa ætlð verið skemmtilegir á að horfa. Tveimur leikjum er enn ólokið úr undankeppninni en þeir verða leiknir við fyrstu hentugleika. Drátturinn varð annars þessi: KR/Þór,Ak — Armann Fram — HK Týr — Valur FH — Haukar UBK — Vikingur IR — Gróttaj|Afturelding Fylkir — Þróttur KA — Stjarnan I flestum tilvikum verður væntanlega um mjög jafna leiki að ræöa og aöeins Vikingar og Valsmenn ættu að geta bókað sér fyrirfram sigur gegn sinum and- stæðingum. Týr úr Vestmanna- eyjum, sem leikur i 3. deildinni, datt svo sannarlega I lukkupott- inn er þeir fengu Valsmenn á heimavelli slnum og verður það vafalitiö skemmtileg viðureign. Þá ættu Víkingar aö fara létt meö 3. deildarlið Breiðabliks. Leikur Fram og HK ætti að veröa mjög jafn, sömuleiðis leikur KA og Stjórnunnar. _ssv— Benedikt með ÍA Allt er nú I óvissu meö þjáifara- mál Skagamanna fyrir sumariö og er alisendis óvist hvort Jo Jan- sen, sem reyndar hefur þegar skrifaö undir samning hjá Skaga- mönnum, komi til landsins. Fram aö þessu hefur gamli baráttujaxl- inn Benedikt Valtýsson séö um þjálfun meistaraflokksins og mun gera áfram þar til úr málum ræt- ist.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.