Tíminn - 01.02.1979, Page 17

Tíminn - 01.02.1979, Page 17
Finimtudagur 1. febrúar 1979 17 Leirskáldin í Laugar nesi ÍFtM-salnum viö Laugarnes- veg hafa nú verið haldnar nokkrar sýningar, en sam- kvæmt yfirlýsingum á sinum tima.erþessu afdrepi islenskra myndlistarmanna ætlaö aö skápa aöstööu til þess aö haida sýningarog eins til aö pakka list sem er aö fara i feröalag. Þarna hafa veriö haldnar ágætar sýningar. Fyrst hin ár- lega haustsýning, sem var aö þessu sinni innanfélagsmót, smámyndir eftir nokkra menn, og siöan hefur hver sýningin rekiö aöra. Sýning Kristjáns Daviössonar og Hjörleifs Sigurössonar eru undirrituöum minnisstæöar, svo eitthvaö sé nefnt. Salurinn hefur lifaö góöu lífi, meöan þögn og kuldi hefur leikiö um Kjarvalsstaöi vegna deilna. Þaö var álit margra aö FIM salurinn væri ekki ákjósanlegur salur fyrir myndir. Stór búöar- gluggi, eöa gluggaveggur til vesturs veldurþvi aö kvöldsólin flæöir eins og stormur gegnum salinn, og myndlistin fær sam- keppnifrá hringspili sólarinnar, sem er of ákveðin blanda af feg- urðog trega til þess aðeiga allt- af við það sem inni er sýnt. Lif i leir Á hinn bóginn virðast vissar tegundir sýninga henta þarna mjög vel, og á ég þar við t.d. sýninguna sem nú stendur Llf I leir, en aö henni standa þau Sigrún Guðjónsdóttir — Rúna — og Gestur Þorgrimsson, ásamt fjórum ungum konum, þeim Jóninu Guönadóttur, Steinunni Marteinsdóttur, Elisabetu Haraldsdóttur og Guðnýju Magnúsdóttur, ai allt eru þetta listamenn sem fást við aö brenna leir. Það er einkenni á fornleifa- fræði Islands, aö þar finnast ekki leirmunir, nema út úr búö. En leirker og brot úr þeim eru látin segja sögu horfinna þjóöa semenginnstafkrókurertil um, fram aö þvi. Islendingar hafa ekki gert leirker I fornöld (mér vitan- lega). Sá leir sem i landinu finnst frá fornsögulegum tima, hefur verið keyptur i búö i inn- kaupaferðum til Glasgow og Kaupmannahafnar. Islenski leirinn er vondur. Ekki aöeins i skáldskap, heldur llka i leir- muni. Þess vegna hefur hann aöeins veriö notaöur i hina fyrr- nefndu listgrein. Leirmunagerð er á hinn bóg- inn talsvert mikiö stunduö á ís- landi i dag, bæöi sem fram- leiðslugrein i iönaöi, einkum handa ferðamönnum, og sem listgrein. Þaðer á ýmsan hátt æskilegt aö þessar greinar séu samferöa gegnum lifið. Gott dæmi um þaö var t.d. þegar hir.ar Norðurlandaþjóö- irnar sýndu gler i Norræna-hús- inu fyrir nokkru slðan. Þar var sýnd munaöarvara úr gleri, sem siöan tryggir framvindu i glerblæstri á framleiöslustigi: Vatasglösin fá nýtt form og nýja gleöi. Þannig yfirfærast framfarir og nýtt formskyn af listrænu plani i' glervörubúöir heimsins. Lif i leir, er einmitt svona sýning. Leirmunir á listrænu plani, en þaö sem á vantar er þó, aö framleiösluréttur, eöa framleiösluáform eigi kost á eölilegu framhaldi. Vasar biða blóma Það er ekki unnt aö ætlast til þess aö á listrænni leirmuna- sýningu sé notagildiö ofarlega á blaöi. Allt hefur þetta þó sin áhrif. íslendingar eru t.d. ekki Búddatrúar, þótt heimspeki og hugsun búddismans grasseri um Vesturlönd. I Lifi i leir er teflt fram sex af ágætustu myndlistarmönnum okkar. Fólki sem hefur valiö leirmunasmiöi sem framhald af vel grunduðu listaámi heima og erlendis. Ifám orðum sagt, er þetta ein besta myndlistarsýning sem undirritaður hefur séö lengi. Sýningar af þessu tagi örva imyndunarafliö og miðla ljósi i skammdeginu. Þaðer klassi yfir þessari sýn- ingu, eins og sagt er á vondu máli, og listin öðlast nýjar von- ir. Ég ætla mér ekki aö geta um eistaka muni hér. Bæöi af þvi aö þetta er fjölefli, þar sem jafn- ingjar leika. Auövitaö erusumir jafnari en aörir, en þaö skiptir ekki máli hér og nú. Myndir eru á vegg, fuglar hanga i loftinu. Smámyndir biöa stækkunar, vasar biða blóma og skálar ávaxta. Sumt verður ekki i askana látiö og leirskáldin i Laugarnesi hefja köpuryrðin (leirskáldin) á nýtt svið. • Þessi sýning er i senn ánægju- efni og staöfesta þess aö hér i landi sé leirkerasmiði og postu- linssmi'öi á háu listrænu plani, þrátt fy rir enga sögu, sem heitið getur. Heimspekingar halda þvi fram —, og geta sannað þaö — aö allir hlutir hefjist á heim- speki, sem upphaf á þróun i hugsanalifi manna og þjóöa. Þessvegna er maður svo viss aö góðir hlutir i listunum viti einnig á gott. Vil ég hvetja almenning og framleiðendur til þess aö skoöa Lif I leir í Fim salnum viö Lsugarnesveg, en sýningin mun standa til 11. febrúar n.k. Þar er aö finna 112 verk, eftir sex höfunda, en sumar mynd- irnar hafa Gestur og Rúna gert saman, þannig að segja má aö þar komi fram sjöundi höf- undurinn. fólk í listum Jónas Guömundssor

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.