Tíminn - 16.02.1979, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 16. febrúar 1979
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurósson. Augiýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og augiýsingar Slóumúla 15. Sfmi
86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir ki.
20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 125.00. Askriftargjald kr.
2.500.00 á mánuöi. Biaöaprent
Nú er spurt
Mánuðum og reyndar árum saman hefur verið
um það rætt og ritað, að til þess að brjótast út úr
vitahring óðaverðbólgunnar þyrfti alhliða, sam-
ræmda og róttæka stefnu. Það hefur verið rakið
hvað eftir annað, að óhjákvæmilegt væri að taka
ákvæði um vexti, rikisfjármál, peningamál, fjár-
festingarsjóði og launamál til gagngerrar endur-
skoðunar ef þetta mætti takast, og fyrr nefndu
atriðin hafa hlotið sérstaka áherslu m.a. til þess að
itreka að byrðarnar eiga ekki aðeins að leggjast á
bök launþeganna.
Um þessi mál hefur verið rætt og ritað mánuðum
og árum saman, og allar helstu röksemdir raktar
fram og aftur. Sem dæmi má nefna það að i störfum
visitölunefndarinnar komu i rauninni aðeins fram
upphaflegar tillögur nefndarformannsins, byggðar
á rækilega kynntum og viðurkenndum sjónarmið-
um.
Launþegaforystan hefur látið sér nægja að segja:
— Ha og uss og pú og kannski og seisei —. En þegar
forsætisráðherra leggur siðan fram tillögur sinar
um þessi efni og lætur þess: getið að þær standi til
umræðu og breytinga i samræmi við niðurstöður
nefndarinnar, þegar þær yrðu tiltækar, þá lýsa for-
ingjar launþegasamtakanna furðu og undrun og
ótta og skelfingu og hneykslun — og guð má vita
hverju öðru, eins og forsætisráðherra landsins leyf-
ist hreinlega alls ekki að gera tillögur um þvilikt
efni.
Er það furða að ihaldið skemmtir sér þessa dag-
ana yfir viðbrögðunum? Er það að undra að laun-
þegarnir séu farnir að sjá i gegnum þetta sjónarspil
sem jafnvel Þjóðviljinn lýsir svo sl. miðvikudag:
,,Þegar Alþýðubandalagið er með múður, þá er það
múður”.
Vonandi eru viðbrögð þessi, slikur óvinafagnaður
sem þau eru, aðeins múður sem gengur yfir. Sann-
leikurinn er sá, að frumvarp forsætisráðherra um
efnahagsmálin er einmitt sú alhliða, samræmda og
róttæka efnahagsstefna sem hér verður að móta og
framkvæma til að komast út úr öngþveiti verðbólg-
unnar. Þetta frumvarp er alls ekki gamlar lummur
eða ihaldsúrræði eins og sumir hafa viljað vera
láta. Það felur i sér ferska og nýja stefnu, sem hnig-
ur að þvi að leggja byrðarnar á þá sem geta borið
þær og eiga að bera þær, en ekki aðeins á herðar
lágtekjumanna. Það felur i sér þann uppskurð á
verðbólgukerfinu sem braskarana mun sviða und-
an, um leið og skipan verður komið á náin og marg-
þætt samráð rikisvaldsins við aðila vinnumarkað-
arins.
Vitanlega geta menn haft ólikar skoðanir á ein-
stökum atriðum, og vitaskuld verða þau rædd til að
samræma sjónarmiðin. Forsætisráðherra hefur
beinlinis itrekað vilja sinn til þess. En grundvallar-
atriðið er þó hitt, að hin róttæka meginstefna haldist
óbreytt og að ekki verði vikið frá þvi meginsjónar-
miði að leysa málið með tilliti til hagsmuna launa-
fólksins.
1 raun og veru er nú spurt um vilja launþega-
forystunnar og Alþýðubandalagsins til þess að tak-
ast á við vandamálin. Er Alþýðubandalagið fært um
að taka ábyrgt á slikum stórmálum eða verður
ævintýramennskan ofan á? Vill Alþýðubandalagið
brjótast út úr feni verðbólgunnar eða unir það
sér vel meðan hún æðir yfir þjóðina?
Nú eru nýjar blikur komnar á loft, oliuverðs-
hækkun og dökkar horfur i fiskveiðimálum. Þeim
mun meira varðar samstaðan um efnahagsmála-
stefnuna. JS
Erlent yfirlit
Suarez og Gonzales keppa
um forustuna
Verður litil þátttaka i spænsku kosningunum?
Carillo
FYRSTI marz næstkomandi
getur oröiö sögulegur kosninga-
dagur. Þá fara fram fyrstu
þingkosningar á Spáni eftir aö
nýja stjórnarskráin tók gildi. Þá
fara fram þjóöaratkvæöa-
greiöslur meöal Skota og Vales
búa um heimastjórnarlög þau,
sem brezka þingiö hefur sam-
þykkt. Veröi lögin staöfest getur
þaö leitt til sögulegrar þróunar.
Heimastjórn I Skotlandi gæti
t.d. oröiö til þess aö auka sam-
skipti Skota viö Noröurlanda-
þjóöirnar og jafnvel ekki sizt viö
tslendinga. t alþjóölegum fjöl-
miölum eru þaö þó þingkosning-
arnar á Spáni sem draga aö sér
mesta athygli. Orslit þeirra
geta ráöiö miklu um þaö.hvort
lýöræöislegt stjórnarfar nær aö
festa rætur á Spáni. Ef vel væri,
þyrfti Spánn aö búa viö trausta
og samhenta stjórn.sem yki trú
manna á lýöræöiö. Miklar
flokkadeilur og sundrung gætu
oröiö til þess, aö ýmsir færu aö
óska eftir nýjum Franco, þvi að
hvaö sem um Franco veröur
sagt, tryggöi hann festu og
stööugleika i spænskum
stjórnarháttum.
Eins og nú horfir, er erfitt aö
spá þvi hvers konar stjórn þaö
veröur, sem Spánverjar fá eftir
kosningarnar, eöa hvernig sam-
búö flokkanna veröur háttaö.
Mest mun velta á þvi hvernig
tveimur stærstu flokkunum
kemur saman, hvort heldur sem
annar þeirra eöa báöir veröa i
næstu stjórn.
ALLT bendir til þess, aö
annaö hvort veröi þaö Miö-
flokka-bandalagiö, sem er undir
forustu Suarez forsætisráöherra
eöa Sósíallski verkamanna-
flokkurinn sem er undir forustu
Gonzales, sem hreppa stjórnar-
forustuna aö kosningum lokn-
um. I þingkosningunum, sem
fóru fram i júni 1977, fékk Miö-
flokkabandalagiö 34% greiddra
atkvæöa, en Sósialiski verka-
mannaflokkurinn fékk 29%.
Sföan hefur þaö gerzt, aö litill
sósialiskur flokkur, Sósialista-
flokkur alþýöunnar, sem fékk
4% greiddra atkvæöa, hefur
sameinast Sósialiska verka-
mannaflokknum. Samanlagt
fengu þessir flokkar 33% at-
kvæöanna 1977, en Miöflokka-
bandalagiö 34%, eins og áöur
segir. Þaö getur þvi oröiö mjótt
á mununum. Skoöanakannanir
benda til þess, aö Sósialiski
verkamannaflokkurinn, fái
fleiri atkvæöi nú en Miöflokka-
bandalagiö.en þaö þarf ekki aö
þýöa, aö hann fái fleiri þingsæti,
þvi aö fámennari fylkin fá
heldur fleiri þingmenn en þau
sem fjölmennari eru. Miö-
flokkabandalagiö nýtur meira
fylgis I fámennari fylkjunum.
Þannig fékk þaö í þingkosning-
unum 1977 47% þingsætanna,
þótt þaö fengi ekki nema 34%
atkvæöanna.
Auk tveggja framangreinda
flokka.koma tveir flokkar aörir
verulega viö sögu,en allmargir
flokkar taka þátt I kosningun-
um. Annar þessara tveggja
siöarnefndu flokka, er
Kommúnistaflokkurinn. Hann
fékk 9% greiddra atkvæöa i
kosningunum 1977 og er ekki
reiknaö meö þvi,aö hann geri
betur en aö halda þvi fylgi. Hinn
flokkurinn nefnir sig lýðræöis-
bandalagiö sem er myndaö af
ýmsum Ihaldssömum samtök-
um, en kjarni þess er ihalds-
flokkur Manuels Fraga, fyrrum
upplýsingamálaráöherra hjá
Franco en hann fékk um 9%
greiddra atkvæða I kosningun-
um 1977. Nú hafa komiö til liös
viö hann ýmsir þekktir menn.
sem taldir hafa verið frjálslynd-
ari en hann.t.d. Jose-Maria de
Areilza, fyrrv. utanrikis-
ráðherra. Þvl þykir ekki ólik-
legt aö þetta nýja bandalag fái
öllu meira fylgi en flokkur
Manuels Fraga fékk I þing-
kosningunum 1977.
Meöal stóru flokkanna ríkir
nokkur ótti viö þaö aö þátttakan
I kosningunum veröi ekki mikil
og gæti þaö oröiö vatn á myllu
minni flokkanna, þvl aö fylgis-
menn þeirra þykja llklegir til aö
skila sér betur. Einkum er taliö,
aö þetta gildi um kommúnista.
ÓLIKLEGT þykir aö
Sósialiski verkamannaflokkur-
inn eöa Miöflokkabandalagiö fái
meirihluta á þingi. Sá flokkur-
inn, sem hlýtur stjórnarfor-
ustuna, verður þvi aö leita sér
stuönings annarra flokka. Ef
þaö fellur i hlut Gonzales aö
mynda stjórn, þykir óllklegt aö
hann leiti stuönings kommún-
ista. Gonzales hefur tekiö ein-
dregna afstööu gegn þeim og
segist engan trúnaö leggja á
Evrópukommúnismann, en
Santiago Carillo foringi
kommúnista er einn helzti tals-
maöur hans og hefur til árétt-
ingar þvi,hvað eftir annaö gagn-
rýnt rússneska kommúnista.
Þaö þykir ekki útilokað aö Gon-
zales reyni aö fá einhvern hluta
Miðflokkabandalagsins til liös
viö sig,en þaö er ekki taliö fast I
reipunum, ef Suarez missir
stjórnarforustuna. Hljóti Suarez
hins vegar stjórnarforustuna
þykir ekki óliklegt að hann leiti
stuönings Fraga, þótt þeim hafi
falliö illa persónulega. Carillo
hefur boöaö haröa andstööu
kommúnista gegn slikri stjórn.
Á sama hátt hefur Fraga boöaö
haröa baráttu gegn stjórn undir
forustu Gonzales. Þaö getur
oröiö tíöindasamt á Spáni aö
kosningunum loknum.
Þ.Þ.
Gonzales og Suarez.