Tíminn - 20.02.1979, Blaðsíða 2
2
Þriðjudagur 20. febrúar 1979.
Talið að Kínaher sé að
draga sig út úr Víetnam
— ekkert útlit fyrir afskipti Sovétmanna og Bandaríkjamanna
Bangkok-Peking/Reuter — Fréttir frá átökum Vietnama og
Kinverja i gær voru ósamhljóða I grundvallaratriðum, en i
fréttum frá Peking var sagt að Kinverjar væru að draga sig til
baka að eigin landamærum, en fréttir frá Vietnam hermdu að
enn væri barist i fimm landamærahéruðum landsins.
Kína lét þá frétt út ganga á laugardag-
inn, aö her landsins heföi gert árás inn i
Vietnam til aö svara á viöeigandi hátt
áreitni Vietnama á landamærum rikj-
anna. I gær var svo haft eftir Deng
Xiaoping (Teng Hsiao-Ping) aö árásin
væri mjög væg, og um refsiaögerö væri
eingöngu aö ræöa en ekki varanlegt striö.
Hins vegar lagöi hann áherslu á, aö héldu
Vietnamar áfram aö fara sinu fram og
neituöu sáttum mundi Kina ekki þola
þeim þaö og Kina gæti ekki heldur látiö
þaö liðast, að þjööir heimsins fengju þaö
álit á þeim aö smáþjóö eins og Vietnam
gæti farið meö þá eftir eigin höföi. Veröa
þessi orö Dengs ekki túlkuö ööru visi en
sem aövörun til Vietnama um að hafa sig
hæga þegar Kinverjar hverfa aftur til
sinna heima. Spurningin er aöeins hversu
þægir Vietnamar þurfa aö veröa.
Dtvarpiö i Vietnam sagöi i gær, aö Viet-
namher heföi fellt 3500 kínverska her-
menn og hertekiö 80 skriödreka á fyrstu
tveimur dögum átakanna. Ennfremur
sakaði útvarpið Kinverja um aö nota
kemisk vopn i árásunum og heföu margir
ERLENDA R FRÉTTIR
lllSi Umsjón: Kjartan Jónasson
HANOI*
Chinese
troopsJ
Sovlet
shlps
CAMBODIA
PHNOM
PENH •
Gulfof
Thailand
South
China
Sea
• HO CHI MINH CITY
•(SAIGON)
MILES
200
Kort af Indókina. Ot af ströndum Vietnam
eru nokkur sovésk herskip.
óbreyttir borgarar falliö af völdum slikra
efna.
Aöstoðarutanrikisráöherra Bandarikj-
anna lét þaö álit i ljós i gær, aö striöiö i
Vietnam kæmi Bandaríkjunum ekki viö,
en Bandarikjamenn óttuöust þó aö þaö
kynni aö breiöast út. Af ummælum hans
mátti ennfremur skilja, aö Bandarikja-
menn legöu mikiö á sig á bak viö tjöldin
viö aö setja deilurnar niöur og fá Kinverja
til aö draga her sinn til baka. Opinberlega
hafa stjórnvöld I Bandarfkjunum ekki
tekið neina afstööu aöra en þá aö Kinverj-
um beri aö draga her sinn til baka, svo og
Vietnamar frá Kampucheu. Ennfremur
hefur Carter skorað á stjórnVIetnam aö
sýna stillingu ef og þegar Kinaher hverfur
á brott, en sumir óttast aö Vietnamar vilji
þá hefna sin, en þeir eru bundnir Sovét-
mönnum meö vináttu- og varnarsáttmála
og Sovétmenn þvi i raun skuldbundnir til
aö veita þeim alla aöstoð I striöinu viö
Kina.
Sovétrikin hafa ekki sýnt neinn lit á aö
blanda sér inn i stríðið, en hafa hins vegar
deilt harkalega á Kina fyrir árásina og
segja hana koma rækilega upp um heims-
valdastefnu Kinastjórnar. Tveir áhrifa-
miklir sovéskir þingmenn hafa hins vegar
varað viö hættunni á þriðju heimstyrjöld-
inni yröu Sovétmenn við hjálparbeiöni frá
Vietnam.
Andreotti
Andreotti að
gefast upp við
stjómarrayndun
— kosningar að verða eina leiðin
Róm/Reuter — Áreiðanlegar heimildir i Róm
hermdu i gær að leiðtogi kristilega Demókrata-
flokksins og núverandi forsætisráðherra ítaliu,
Giulio Andreotti, hefði ákveðið að hætta stjórnar-
myndunartilraunum sinum.
Sé þetta rétt mun Pertini
forseti fela öörum flokksleiðtoga
stjórnarmyndun og sennilega
Ugo La Malfa formanni
Republikanaflokksins.
Stjórnarkreppan á Italiu aö
þessu sinni hefur staöiö i 19 daga
og sér ekki fyrir endann á henni
jafnvel þó annar flokksleiötogi
taki aö sér stjórnarmyndun.
Kommúnistar setja þaö nú sem
algjört skilyröi fyrir stuöningi viö
komandi stjórn, aö þeir eigi ráö-
herra i þeirri stjórn. Kristilegir
demókratar taka þetta aftur ekki
i mál og þar viö situr i dag og all-
ar likur eru á aö boöa þurfi til
kosninga. Segja heimildir
Reuters að eina leiöin til aö forö-
ast kosningar nú sem flokkarnir
eru raunar sammála um aö æski-
legt sé,er aö Sósialistaflokkurinn
fallist á aö styöja núverandi
stjórnarsamstarf meö þvi aö
greiöa ekki atkvæöi á þingi. Þar
sem kommúnistar hafa yfirgefiö
stjórnina er hún oröin aö litilli
minnihlutastjórn, og jafnvel þó
Sósialistaflokkurinn veitti henni
hlutleysi yröi hún ekki til stórræö-
anna.
Talið er að Andreotti muni til-
kynna Pertini forseta ákvöröun
sina um aö hann hætti stjórnar-
myndunartilraunum á fimmtu-
dag eöa föstudag i þessari viku.
Flugher Rodesíu kom-
inn í kosningaslag
Salisbury/Reuter — Flugher Rodesiu gerði i
gær sprengjuárás i annað skipti á þremur dög-
um á ródesiska skæruliða, i fyrra skiptið i S-
Zambiu er skæruliðar voru að búa sig undir að
fara inn á rodesisk landsvæði, en i gær var gerð
árás á skæruliða i Mózambik.
Talið er aö þessar árásir
Ródesiuhers sé fyrsta lota vax-
andi hernaðarumsvifa til aö
tryggja að kosningar geti fariö
fram með eölilegum hætti 1 april
næstkomandi, en eftir þær kosn-
ingar má búast viö að meiri-
hlutastjórn blökkumanna taki
við stjórn landsins.
Geröi flugherinn i gær árás á
bækistöðvar skæruliöa 80 kiló-
metra inni i Mózambik. Leiötogi
skæruliöanna þar er Mugabe en
hann ásamt Nkomo hafa hótaö
aö koma i veg fyrir kosningarn-
ar I Ródesiu.
Sjálf kosningabaráttan i
Ródesiu fer harönandi og berast
fréttir af gagnkvæmum ásökun-
um milli bráöabirgöastjórnar-
leiötoganna Muzorewa og
Sithole. Haft er eftir Muzorewa,
að flokkur Sithole, Zanu, beiti
„hitleriskum” aðferöum til aö
fá blökkumenn til þátttöku I
kosningastarfi.
Hin fullkomna Harrier-þota
Bretar hætta ekki
við Harrier-söluna
London/Reuter — Bretar eru enn tilbúnir til að
selja Kinverjum háþróaðar Harrier — orrustu-
þotur sinar, sem geta tekið sig lóðrétt upp og
munu ekki láta innrás Kinverja i Vietnam hafa
nokkur áhrif þar á, sögðu talsmenn stjórnar-
innar 1 gær.
Iönaðarmálaráðherra Breta,
Eric Carley, lagöi einmitt i gær
af staö til Kina til undirskriftar
samninga um stóraukin viö-
skipti landanna á hernaöar-
varningi sem öörum.
Þó er sagður ótti I Bretlandi
viö þaö að erfitt verði aö halda
jafngóöum samskiptum viö
Sovétmenn og stórauka þó við-
skipti viö Kina. Sovétmenn hafa
nú þegar gagnrýnt þessa stefnu
Breta, og búast má við að hugur
þeirra þyngist enn i ljósi siöustu
viðburöa. Hinir vinstrisinnaöri i
Verkamannaflokknum eru
einnig gagnrýnir á þessar ráöa-
geröir. Og sumir þeirra, eins og
Frank Allaun formaöur þing-
flokksins, segja, aö sala á
Harrierþotum sé oröin óverj-
andi I ljósi árásar Kinverja á
Vietnam.
Bretar hafa varið sölu á
Harrier til Kina með þvi, að um
væri aö ræöa varnarvopn miklu
fremur en árásarvopn, og enn-
fremur að vopnasala til Kina sé
ekki nema lágt hlutfall af heild-
arsölunni.
Taliö er vist aö Kinverjar
staösetji Harrier-vélarnar viö
landamæri sin aö Sovétrikjun-
um, og hafa Sovétmenn varaö
Breta viö alvarlegum afleiöing-
um sem sala á þotunum kunni
að leiða til.