Tíminn - 06.05.1979, Síða 9
Sunnudagur 6. mal 1979.
9
80 ARA I DAG:
Margrét Þórðardóttir
1 dag er Margrét Þórðardótt-
ir. fyrrum læknisfrú Vik i Mýr-
dal áttræð/fædd að Kömbum i
Stöðvarfirði tí. mai 1899,dóttir
Þórðar Arnasonar. útgerðar-
manns og konu hans, Sigur-
bjargar Sigurðardóttur. hin
fimmta i röðinni átta systkina.
Er Margrét var 10 ára fluttist
fjölskvldan til Fáskrúðsfjarðar
og var þar stundaður sjórinn þvi
mikils þurfti að afla til fram-
færis svo stórri fjölskvldu, þótt
evðslu væri stillt i hóf. svo sem
kostur var. Eigi voru þar
menntunarskilyrði utan barna-
skóli og urðu þvi námfúsir ung-
lingar þess tima. að bæta sér
það upp með lestri góðra bóka
og fá tima i skrift og reikningi
hjá skólamönnum er þá þjón-
ustu veittu. Það notaði Margrét
sér eftir föngum. sem kom sér
harla vel siðar er hún varð. ung
að árum. húsmóðir á stóru em-
bættismannsheimili er mikiar
kröfur voru gerðar til á þeim
tima.
t júli 1921 kom ungur og nýút-
skrifaður læknir til Fáskrúðs-
fjarðar, Guðni Hjörleifsson,
glæsilegur mannkostamaður af
gildum bændaættum undan
Eyjafjöllum, 27 ára gamall og
ókvæntur. Að sjálfsögðu hafa
blómarósir staðarins litið þenn-
an unga menntamann hýru
auga en Margrét hin 22ja ára
sjómannsdóttir var sú útvalda
og giftust þau 23. júli 1922. Guðni
var svo um skeið héraðslæknir i
Vopnafjarðarhéraði en 15. mai
1926 var hann skipaður héraðs-
læknir i Vik i Mýrdal. þar sem
hann starfaði meðan ævin entist
eða til 23. júni 1936. er hans
missti við svo langt um aldur
fram.
Engin orð fá lýst svo hörðum
örlögum. að þurfa að sjá á bak
slikum eiginmanni og sex barna
föður, hið elsta þrettán ára og
hið vngsta á fyrsta ári.en hin
unga kona lét ekki bugast en
axlaði ein byrðina sem tvö höfðu
áður borið. Er þar skemmst af
að segja að með Guðs og góðra
manna hjálp tókst móðurinni að
halda ölíum vel gefna hópnum
saman og kom þeim hverju og
einu til manns eins og best
verður á kosið. Þar hefur enginn
legið á liði sinu. Saman hafa þau
staðið i bliðu og striðu og stutt
hvert annað með ráðum og dáð.
Börn þeirra Guðna og Mar-
grétareru þessi: Sigurbjörg bú-
sett i Bandarikjunum gift M.
Leonard Mike, blaðamanni og
eiga þau þrjú börn. Hjörleifur
verslunarmaður. kvongaður
Onnu Sigriði Ingólfsdóttur og
eiga þau fjögur börn. Þórir
læknir i Stuttgart er kvæntur
þýskri konu og eiga þau tvö
börn. Daniel læknir við Borgar-
sjúkrahúsið, kvæntur Gerði
Birnu Guðmundsdóttur og eiga
þau fjögur börn. Sigurður bók-
bindari. kvæntur Magneu Jóns-
dóttur og eiga þau þrjú börn og
svo eru barnabarnabörnin orðin
fjögur. Það er friður og föngu-
legur niðjahópur.
Við þessi timamót getur Mar-
grét horft með reisn vfir langan
og ánægjulegan en sjálfsagt oft
strangan vinnudag og þó aldrei
hafi hún hlift sér, en unnið svo
sem kraftarnir levfðu og þá ekki
siður kennt börnunum að vinna
og bjarga sér. vitandi sann-
leiksgildi hins fornkveðna.vinn-
an göfgar manninn,er hún enn
sem fvrr glæsileg kona. létt i
spori. glaðleg og hress. enda við
góða heilsu sem betur fer.
Vonandi eigum við vinir henn-
ar og vandamenn eftir, enn um
langtskeið aðheimsækja hana á
hennar fallega heimili og njóta
þeirrar gestrisni»sem henni er
svo eðlileg.
G.B.
Vandaðar vélar
borga
sig
HEUfnn hel £zt
Bensínsala 1978: 121.5 milljónir lítra
SS — Bensinsala 1978 varð 121,5
milljónir litra, aö þvi er fram
kemur i skýrslu samgönguráö-
herra um framkvæmd vega-
áætlunar .1978. Er þaö 6,2%
aukning frá árinu áöur.
Ef hins vegar er miðaö viö
meðaleyðslu á bifreið, þá er hún
Bílaeign landsmanna
um 83.700 bifreiðar
— 1978 voru innfluttar 8.862 bifreiðar
SS — A árinu 1978 voru fluttar inn 8.862 bifreið-
ar, og er það 1.080 bifreiðum fleira en árið áð-
ur. Heldur dró úr innflutningi siðustu mánuði
ársins, og má búast við, að á árinu 1979 verði
flutt inn heldur minna af bifreiðum en árið
1978.
heldur minni en árið áöur eöa
1.670 ltr. á móti 1.685 árið 1977.
Þess má geta, aö 1971 varö
bensínsalan 77,5 m. Itr., 1974
104,4 m. ltr. og 1977 er hún kom-
in upp i 114,4 m. ltr. Meðal-
eyðsla á bifreið var 1.756 ltr.
1971,1.7361974 og 1.685 árið 1977.
Þessar upplýsingar koma
fram i skýrslu samgönguráð-
herra um framkvæmd vega-
áætlunar 1978. Þar segir enn-
fremur:
Mest var flutt inn af fólksbif-
reiðum eða alls 8.096. Innflutn-
ingur vörubifreiða var alls 368,
þar af 162 meö yfir 10 tonna
leyfðum heildarþunga. Sendi-
bifreiðar voru 345 og sérsmiðaö-
ar bifreiðar til ýmissa verkefna
53. Aætlað er, að bifreiðaeign I
lok árs 1978 hafi verið orðin um
83.700 bifreiðar. Fjölgun frá ár-
inu áður er um 7,3%.
LITAVER • LITAVER • LITAVER ■ LITAVER ■ LITAVER ■ LITAVER • LITAVER ■ LITAVER • LITAVER
Stök gólfteppi
Gólfteppi
Gólfdúkur því það
_ ... nefur
V eggstngi ávaiit
Veggfóður bor9slg
MÁLNINGAR
MARKAÐUR
Litavers-kjörverð
Grensásvegi ■ Hreyfilshúsi
Sími 8-24-44
LITAVER • LITAVER ■ LITAVER • LITAVER ■ LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER
■ LITAVER • LITAVER\\;AVER ■ LITAVER •