Tíminn - 06.05.1979, Page 27

Tíminn - 06.05.1979, Page 27
Sunnudagur 6. mai 1979. 27 STUTTAR FRÉTTIR Tónleikar til styrktar Amnesty Inter- national Á morgun, sunnudag, verða haldnir kammertón- leikar í Norræna húsinu til styrktar Amnesty Inter- national. Þaðeru 15 hljóðfæraleikarar úr Sinfóniuhljómsveit íslands sem standa fyrir tónleikunum og verða leikin verk eftir Mozart, Svendsen, Debussy, Rust, Rossini og Ibert. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 og verða aðgöngumiðar seldir við innganginn. íslands- kynning í Norður- Finnlandi Norræna félagið i Finnlandi beitir sér fyrir viðtækri kynn- ingu á hinum Norðurlöndunum um allt Finnland nú i ár. Það hefur um hana samvinnu við héraðs- og sveitarstjórnir landsins. Allt frá þvi i ársbyrjun hefur Island verið kynnt i skólum Lapplandsléns nyrsta hluta Finnlands. Nefnd hefur verið starfandi á vegum Norræna félagsins hér á landi, sem lagt hefur þessari kynningu lið. í henni eiga sæti Anna Einarsdóttir, Jónas Eysteinsson og Hjálmar Ólafs- son. Sendar hafa verið bækur, litskyggnur og kvikmyndir til Finnlands. Þakkar nefndin fyrir þá ágætu fyrirgreiöslu sem hún hefur fengið. A sunnudag 6. mai nk. verður svo íslandskynningin formlega hafin með hátiðasamkomu i glæsilegum húsakynnum Lappia-hússins i Rovaniemi sem er stærsta borgin i Lapp- lands-léni. Þar mun forsætis- ráðherra ólafur Jóhannesson halda ræöu, svo og formaður Norræna félagsins Hjálmar Ólafsson, ennfremur syngja og leika þrjú á palli, en það eru þau Edda Þórarinsdóttir, Halldór Kristinsson og Troels Bendtsen. Þá mun verða opnuð sýning á vegum Heimilisiðnaðafélags Is- lands og hefur Gerður Hjörleifs- dóttir framkvæmdastjóri veg og vanda af henni. A sama tima verður opnuð isl. málverkasýning i borginni Kemi, sem er næststærsta borg Lapplands og stendur við Bott- neska flóann. Þeir sem taka þátt i þeirri sýningu eru: Hring- ur Jóhannesson, Jóhannes Geir, Jón Reykdal, Þórður Hall, Bragi Ásgeirsson, Gunnlaugur Stefán Gislason. Þeir sýna sam- tals 36 myndir. Ennfremur er sýning á málverkum Sigriðar Björnsdóttur, 24 myndir, svo og ljósmyndasýning. Þessar sýn- ingar eru allar i listasafni Kemiborgar. Þau Hjálmar Ólafsson og Þrjú á palli ferðast svo um Lappland næstu viku og kynna ísland á 7-8 stöðum. Norræna félagið vill færa þakkir öllum þeim sem hér hafa átt hlut að, ekki sist myndlistar- mönnunum og stjórn félags is- lenskra myndlistamanna sem undirbjuggu sýninguna á lista- verkunum á undraskömmum tima. Þá hafa Flugleiðir veitt frá- bæran stuðning. ■ éwm I * || .J v:S Hfe íb& æ Landsþing SVFI var sett í gær. Setningarræðu hélt Gunnar Friðriksson, forseti félagsins, en meðal við- staddra var forseti Islands, Kristján Eldjárn, og frú. Þingið, sem er mjög f jölmennt, stendur fram á sunnu- dag og verða því gerð nánari skil i blaðinu eftir helgi. — Tímamynd: Tryggvi. Ahugamenn stofna samtök Ný samtök áhugamanna um bættan hag þeirra, sem eiga við um bættan geðræn og sálræn vandamál að striða boða til stofnfundar sam- takanna i Safnaðarheimili Lang- holtskirkju i kvöld klukkan 21. hag sál- og A fundinn mætaaðstandendur, læknar, sálfræðingar, félagsráð- gjafar, hjúkrunarfólk og fulltrúar þingflokkanna og allt annað geðsjúkra áhugafólk er hjartanlega velkom- ið á stofnfundinn sem hefst eins og áður segir klukkan 21. D R E K I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.