Tíminn - 08.05.1979, Page 6

Tíminn - 08.05.1979, Page 6
6 Þriöjudagur 8. mal 1979 r v Wmwm Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Sfmi 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasöiu kr. 150.00. Askriftargjald kl. 3.000.00 — á mánuöi. Blaöaprent Japanir ófáanlegir til samninga við Bandaríkin Óhagstæður viðskiptajöfnuður orsök þvingaörar sambúðar Grundvöllur samstarfsins Það er öllum i fersku minni við hvaða aðstæður núverandi rikisstjórn var mynduð, og hver að- dragandi stjórnarmyndunarinnar hafði verið. Meginatriðið sem stjórnarsamstarfið hvilir á er samráð við aðila vinnumarkaðarins, einkum sam- tök launafólks, og samstaða um aðgerðir i barátt- unni við verðbólguna ásamt vinnufriði i landinu. Þetta grundvallaratriði stjórnarsamstarfsins hefur verið itrekað aftur og aftur. Eins og rikis- stjórnin var mynduð og hefur starfað er þessi samstaða og vinnufriður forsenda stjómarinnar. Bregðist þessi forsenda er sá grundvöllur, sem lagður hefur verið, brostinn. Hvað við tæki við slikar aðstæður, ef upp koma, er auðvitað ekki fyrirsjáanlegt nú, en það liggur sem sé alveg fyrir að þá verður að leggja nýjan grundvöll að starfi rikisstjórnar i landinu, hvort sem hún yrði saman- sett af sömu aðilum og nú er eða öðrum. Með þessum orðum er hreint ekki verið að segja lesendum nein ný tiðindi. Samráð, samstaða i baráttunni gegn verðbólgunni ásamt vinnufriði hafa aftur og aftur verið tekin fram sem grund- vallaratriði stjórnarsamstarfsins og sjálft vinnu- svið rikisstjórnarinnar! 1 samræmi við þessa margboðuðu staðreynd segir Steingrimur Hermannsson ráðherra i viðtali við Timann sl. laugardag: „Eigi nokkur árangur að nást i þessum efna- hags- og verðbólgumálum á þessu ári verður það að standa sem að var stefnt þegar rikisstjórnin var mynduð, að engar grunnkaupshækkanir verði á þessu ári, fyrr en þá eftir 1. desember”. Steingrimur benti enn fremur á að: „Verði grunnkaupshækkanir hjá einhverjum þá hlýtur það að ganga i gegnum alla linuna. Þá verð- ur ekki um 35% verðbólgu að ræða, heldur 45-50%. Þetta þýðir ekki að það sé allt launahækkunum sem slikum að kenna, heldur er visitalan þannig að launahækkanimar hljóta að vinda upp á sig. Það er þvi ljóst að eigi að ná verðbólgunni niður, verður að takmarka hækkanir”. í viðtalinu kemur fram að ráðherrann telur óhjákvæmilegt að lögbindingu verði beitt til þess að stjórn efnahagsmálanna fari ekki úr böndum. Lögbinding sé, þegar á allt er litið, eina færa leiðin til þess að koma i veg fyrir að stefna rikisstjómar- innar i efnahags- og verðbólgumálum renni i reynd út i sandinn að mjög verulegu leyti á þessu ári, en slikt jafngildir þvi að gmndvöllur stjórnar- innar bresti eins og áður segir. Nú hefur stjórn Farmanna- og fiskimannasam- bandsins látið frá sér fara mjög harðorða yfirlýs- ingu þar sem ummælum ráðherra er svarað á mjög hvatskeytlegan hátt. Án þess að dómur sé á farmannadeiluna lagður verður að segja að þessi yfirlýsing kemur öllum þeim mjög á óvart sem hafa i huga þann grundvöll sem rikisstjórnarsam- starfið hvilir á. Hvað svo sem stórorðum fullyrðingum liður verða forystumenn launþegasamtakanna að sæta þvi, að til þeirra eru þær kröfur gerðar að þeir muni þau orð og þá skilmála sem voru og hafa til þessa verið forsenda og grundvöllur rikisstjómar- innar. Að sama skapi er ábyrgð þessara manna ekki litil. JS Masayoshi Ohira forsætisráð- herra Japan kom i sina fyrstu opinberu heimsókn til Banda- rlkjanna f nýliöinni viku síðan hann tók viö embætti forsætis- ráöherra eftir stormasamar kosningar i Japan fyrir um þaö bil fimm mánuðum. Og enda þótt heimsókn hans til Washing- ton hafi ekki verið ýkja storma- söm erunúmiklarblikur álofti i viöskiptum Bandarikjanna og Japan, ogúr þeim viröist ekkert hafa greiðst við heimsókn Ohira. Gifurlegur viðskiptahalli Bandarikjanna gagnvart Japan er ástæöa þvingaörar sambúöar rikjanna og hin herskáa öldungadeild bandarlska þings- ins vill nú grlpa til verndarað- geröa gegn japönskum innflutn- ingi fáist Japanir ekki til samn- inga um jöfnun hallans, sem á siðasta ári einusaman nam 11.6 billjónum Bandarikjadala. Eftir viðræður, sem Robert Strauss aðalviðskiptasamn- ingamaöur Bandarikjastjórnar átti við Ohira í siðustu viku, sagði hann við fréttamenn aö lokatilboð Japana væri ófull- nægjandi. Hinn 68 ára gamli Ohira svaraöi um hæl og sagði: „Við gerum ekki frekari tilslak- anir.”Er það ogskoðunhans að nú þegar miði svq. vel i jöfnunarátt aö ekki sé um neitt frekar að semja. Bandarikja- merin þurfi aðeins að notfæra sér aðstööu slna á japönskum mörkuðum til þrautar til að ná fullum jöfnuði. Ef Bandarikjastjórn, og þá ekki síður öldungadeildin, er ekki á sama máli. Stjórnin viðurkennir að visu að miöað hafi i rétta átt i upphafi þessa árs, en bendir á aö það sé vegna timabundinnar viöleitni Japana til að minnka útflutning sinn til Bandarikjanna en auka inn- flutning. Dæmið gæti snúist viö þá og þegar, bendir hún á, þar sem ekki hefúr veriö samið um máliö og framhaldið þvi algjör- lega á valdi Japana. Samningamenn Bandarlkja- stjórnar leggja þvi mikla áherslu á að opna leið fyrir bandariska framleiöslu á jap- anska markaöi, vitandi það að I Japan viðgangast dulbúnar verndaraögerðir gagnvart er lendum innflutningi meö þvi aö ríkisafskipti eru mikil I landinu og rikisfyrirtæki hafa sinar rlkishollu starfsaðferðir. Höfuöáherslu leggja Banda- rlkjamenn á að koma inn á japanskan markað tölvuiönaöi og tækniþróuðum rafeindaiðn- aði ýmiss konar, en á þvl sviði stenst enginn þeim snúning I gjörvallri veröld. 1 Japan er og að hefjast mikil uppbygging og endurnýjun I simaþjónustu þar sem Bandarikjamenn sjá sér leik á borði meö þessa háþróuðu vöru slna. En þar hittir andskot- inn vlst ömmu sina, þvi einmitt á þessu sviði hyggjast Japanir nú ná sér betur á strik og hafa verndað þennan iðnað með lagasetningum á þeim grund- velli að um sé að ræða iðnaö á frumstigi. En einmitt þannig, segja Bandarikjamenn og eöli- Strauss berst viö japanska iega nokkuð bitrir, hafa Japanir alla tíö hagaö sér. Þeir vernda iðngreinar si'naruns þæreruvel samkeppnisfærar, og von bráð- ar þýðir ekki fyrir nokkurn dauðlegan mann að keppa við þá. Og það er óneitanlega stað- reynd að á þennan hátt hafa Japanir leikið ýmsa grátt og náð yfirhöndinni I hvers kyns útvarps og sjónvarpsfram- leiðslu, framleiðslu á mynda- vélum, bilum og I óteljandi öðr- um atvinnugreinum. A móti flytja þeir helst ekki annaö inn en matvöru og hráefni. Og af þvl er stórkostlega hagstæður við- skiptajöfnuður þeirra kominn, ekki aðeins gagnvart Banda- rikjunum heldur einnig Efna- hagsbandalagi Evrópu og fjöl- mörgum öörum þjóöum. Og þvi sárar sviöur Bandarikjamönn- um að hafa ekki markað fyrir háþróaðan tölvu og rafeinda- iðnað sinn I Japan að markaöur- inn þar mun tvímælalaust vaxa stórkostlega i náinni framtið. Og ennfremur er allt útlit fyrir að Bandarlkjamenn hafi spilað verndarstefnu. úr höndum sér þennan markaö I Sovétrikjunum, þar sem hann mun einnig vaxa margfaldlega á næstunni, er Carter bannaði sölu á fullkomnum tölvuútbún- aði til Tass fréttastofunnar. So vétmenn sneru sér við svo bú- iðtil Frakka oghafa gert samn- inga viö þá I þessum efnum sem hljóöa upp á risavaxnar upp- hæðir. Tilraunir Bandarfkjamanna undanfarnar vikur við að ná samingum við Japani um að komast inn á markað hjá þeim meö tölvuiðnað og háþróaðan rafeindaiðnað hafa mættsterkri mótstöðu og jafnframt vel rök- studdri þar sem Japanir hafa einmitt kjörið sérþetta svið sem framtiöarvettvang sinn. Þeir hyggjast, svo sem Bandarikja- menn hafa bitra reynslu af, verða miklir útflytjendur á þessu sviði innan fárra ára. A meðan þeir eru að ná þvi stigi að slikt reynist þeim unnt, hafa þeir alls ekki i hyggju aö láta skemma fyrir sér meö þvi að leyfa innflutning á þessari vöru til Japan. Framhald á bls. 23. Viðskiptajöfnuöur Bandarikj- anna við Japan hefur aldrei ver- ið eins óhagstæður og áriö 1978 eða um 11.6 billjónir dollara. Siöan hefur ástandið mikiö lag- ast en Bandarikjamenn eru þó ekki ánægðir og búast við að minnsta kosti 6 bQljón doliara ó- hagstæöum viðskiptajöfnuði á þessuári. A skýringarmyndinni sýnir efri brúnin innflutning Bandarlkjanna frá Japan en hin lægri útflutning þeirra tð Japan I billjónum dollara á lóðrétta ásnum. Bilið á milli er það sem Bandarikjamenn þurfa að greiða á milli. MAMJJASONDJ F 1978 ______ 1979 _

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.