Tíminn - 08.05.1979, Qupperneq 10

Tíminn - 08.05.1979, Qupperneq 10
10 ÞriOjudagur 8. mal 1979 Hvar er ráðhúsbyggingarsjóðurinn? spyr Albert „Ihaldið búið að eyða honum” Kristján Benediktsson Kás — Á fundi borgar- stjórnar sl. fimmtudag endurflutti Albert Guðmundsson tillögu sina sem visað var frá borgarráði nýlega, um byggingu ráðhúss fyrir borgina. — sagði í tillögunni segir m.a., að borgarstjórn samþykki aö skipa byggingarnefnd til fram- kvæmda við byggingu á nýju ráðhúsi. Störfum nefndarinnar verðihraðaðsvo að ráðhús, sem fullnægi þörfum borgarinnar og stofnunum hennar, verði full- byggt á 200 ára afmæli Reykja- vikurborgar árið 1986. Vakti Albert athygli á þvi, að fyrir mörgum árum hefði verið stofnaður ráðhúsbyggingar- sjóður, og spurði hvort hann væri ekki til lengur, og hve mik- ið fjármagn væri til i honum. Kristján Benediktsson sagði að augljóslega væri um hreina sýndarmennsku að ræða hjá Albert með flutningi þessarar tillögu. Ihaldið, þ.e. fyrrverandi meirihluti i borgarstjórn, er fyrir löngu búið að eyða þeim fjármunum sem til voru i þeim sjóði. Sagðist Kristján halda að til hefðu verið i sjóðnum allt að 50millj. kr. á sinum tima og það væri stór fjárhæð i dag ef til væri. Sagði Kristján það einum of ódýrt fyrir Albert, að reyna að gera ráðhúsmálið að einhverju stórmáli. Hér væri fyrst og fremst um óábyrgan málflutn- ing að ræða, og það hlytu allir að sjá i gegnum þennan skripaleik. Tillagan var felld með 8 atkv. gegn 2. - Svona eiga sin- fóníur að vera A tónleikum Sinfóniuhljóm- sveitar Islands 26. april voru flutt Concerto Grosso I G-dúr op. 6 nr. 1 eftir Handel (1685-1759), Exuítate, Jubilate K 165 eftir Mozart (1755-1791), og 4. sinf- onia Mahlers Í1860-19HX Ungur Hollendingur Hubert Soudant, stjórnaði, en Sieglinde Kah- mann söng i Mózart og Mahler. Það er mjög sjaldgæft að barokk-tónlist takist hér al- mennilega, og ennþá sjaldgæfara að Mózart takist vel: yfirleitter þetta ekki tækni- lega vandasamt fyrir hljóðfæra- leikarana og með þvi að litill timi gefst til æfinga, má liklegt telja, að meiri áherzla sé lögð á að æfa hin „viðameiri” verk. Verk fornmanna á að leika með ýktum áherzlum: fortissimó pianissimó, yfirfjörlega, óum- ræðilega rómantiskt. Deyfð, geðleysi, leti og slappleiki eru viss með að kála flutningnum i barokk-tónlist. A fimmtudaginn var Handel ekki eins góður og hann gæti verið — kannski Jacquillat hefði getað æst hljómsveitina til verðugra átaka. Guöný Guðmundsdóttir og Helga Hauksdóttir léku ein- leik með prýði, og Lawrence Frankel knúði sembalinn. Um Exultate, Jubilate segir svo i skránni: „Exultate, Jubil- ate er mótetta I þrem þáttum, sem talið er að Mozart hafi skrifað i Milano I janúar 1773, þá aðeins 17 ára að aldri. Að formi til er verkið mjög hliðstætt itölskun. forleik og er söngröddin notuð á ekki ósvipaðan hátt og um einleiksrödd i konsert væri aö ræða. Taliö er, að Mozart hafi skrifað verkið fyrir karl- sópran söngvarann (castrato) Venanzio Rauzzini, sem frum- flutti verkið sama ár, en Rauzzini var á þeim tíma heimsþekktur söngvari. Siöasti þáttur verksins er án efa ein- hver þekktasta tónsmið Mózarts.” tónlist Mörgum þótti þetta „góður Mózart”, en nær væri, aö hann hafi verið allgóöur: snerpan heföi mátt vera meiri. Sieglinde Kahmann er hin ágætasta söng- kona og dugmikil að auki, þvi hún er alls staöar syngjandi með miklum glæsibrag: Skráin segirfrá þvi, að hún sé nýkomin úr tónleikaferð i Noregi, þar sem hún hafi sungiö i Bergen undir stjórn góðvinar vors Karstens Andersen. En ég held. Exultate, Jubilate, mundi taka sig ennþá betur út i flutningi geldings, en við þvi er ekki gott aö gera, það eru vist svo fáir sem vilja fórna öllu fyrir listina nú til dags. Hápunktur tónleikanna var Mahler-sinfónían, samin áriö 1900. Þetta er léttasta og að- gengilegasta sinfónia skáldsins, afskaplega skemmtileg, og lokakaflinn er sunginn: það er kvæði, sem lýsir I Gullna-hliðs stil verunni hinum megin. Kvæðið hefði að sjálfsögðu átt að vera i tónleikaskránni, bæði á þýzku og i þýðingu einhvers góðskálds. Þetta söng Sieglinde Kahmann mjög skemmtilega, og raunar tókst flutningurinn allur meö miklum ágætum. Hljómsetning sinfóniunnar er mjög litrik, rétt eins og hjá Beethoven, með miklum blásarasólóum og almennt stórri hljómsveit. Þarna voru, auk ofvaxins strengjahluta, 5 horn, 3 fagott, 3 óbó, 4 flautur, 3 klarinettur, 5 menn I slagverki auk Patreks Neubauers á pák- um, 3 trompetar. Þarna var sem sagt öllu til tjaldað — við ráðum ekki við stærri verk en 4. sinfóniu Mahlers. Og hún tókst alveg sérlega vel. Þvi miður geröi skúr meðan á Gustav Mahler 1. og 2. þætti stóð, og engum tog- um skipti að bióiö fór að leka. Þetta er grátlegur fjári, og Friðfinnur segist vera búinn að láta gera allt, sem verkfræöing- um og byggingarmeisturum geti til hugar komið til að þétta þakið. Sá dagur veröur mikil- vægur i islenzkri byggingarlist þegar arkitektar og verkfræð- ingar fá epli i höfuðið og fara að átta sig á þyngdaraflinu, en það afl veldur þvi, að vatn leitar alltaf undan halia léttustu leið- ina, og sezt fyrir þar sem lægst er. En þangað til þetta gerist verður bara að notast við bala áfram — mér er sagt að húsnæði Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins sé 118 bala hús. 30. 4. Sigurður Steinþórsson ^1' l'.lifelr IíB.1 [í t!!5 m |J5feI [iiiij 1 II ll ffi * „ . . -X. M*Tl Danska listiðnaðarsafniö. Húsið er byggt 1755. Þetta er hinn gamli konunglegi Friðriksspltali, þar sem Jónas Hallgrlmsson dó. Sýning á frábærum dönskum listiðn- aðarmunum í Norræna húsinu í dag verður opnuð sýning á dönskum listiðnaði i Norræna húsinu og verða sýndir munir sem eru i eigu Danska listiðnaðarsafnsins i Kaupmannahöfn og þvi framúrskarandi fagrir og vandaðir. I tilefni af þessari sýningu er hér nú staddur forstjóri Danska listiðnaðarsafnsins, Erik Lassen og Charlotte Portman, starfs- maður þess. Frumkvæðið að því að fá sýninguna hingað til lands hefur Bændur Dýravinur, strákur á 13 ári, óskar að kom- ast i sveit. Simi: 91-36489. félagsskapurinn Listiðn átt og þá einkum ritari þess, Finnur Fróðason. Er von aöstandenda sýningarinnar sú, að hún megi auka þekkingu í sambandi við listiðnað á tslandi og veita samanburð, til þessaö metaeigin stöðu I þessu tilliti. Sveitastarf 12 ára drengur óskar eftir að komast i sveit. Upplýsingar i sima: 91-73672.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.