Tíminn - 18.05.1979, Side 1

Tíminn - 18.05.1979, Side 1
Ræður úr eldhúsinu - Bls. 9,10 og 11 Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 „Það situr allt fast” Lítið um lána- beiðnir til fjárfestingar í bönkum Meiri varfærni gætir nú en undanfarin ár Flokksstjórnin styður viðhorf þingflokksins AM — Minni Asókn virðist í bönk- um i fjárfestingarlán um þessar mundir og yfirleitt sýnist gæta meiri varfærni i þeim sökum en elia aö þvi er Magnús Jónsson bankastjóri við Búnaöarbankann, sagði blaðinu I gær. Magnús sagði að þess i stað gætti meira að menn sæktu eftir rekstrarlánum og áleit að skýringarinnar kynni að vera að leita i þvi' að menn réðust ekki i nýbyggingar, vegna nýbygg- ingargjaldsins og svo hins aö staða fyrirtækja'nna sé erfið. Annars kvað hann ekki skorta lánbeiðendur og þyrfti síst að auglýsa eftir þeim i blöðum. En ánægjulegast þætti sér sem bankastjóra aðmiðað væri nú i þá átt að tryggja hag sparifjáreig- enda betur en verið heföi og væri nú loks hægt með hinum nýju vaxtaaukalánum að hvetja fólk meðsæmilega góðri samvisku til þess aö leggja inn fé. ,,Við í bönk- unum höfum fundið sárast til þess á undanförnum árum, hvernig verðbólgan eyðileggur fé spari- fjáreigenda, því auðvitaö eru það sparifjáreigendur, sem halda þjóðfélaginu gangandi en ekki hinir, sem festa allt sitt i stein- steypu”. Kás — Flokksstjórnarfundi Al- þýðuflokksins lauk á áttunda timanum f gærkvöldi. Á fundinum samþykkti flokksstjórnin yfir stuðningi sfnum við viöhorf þing- flokksins til kaup-og kjaramála. 1 samþykkt fundarins segir m.a.: „Flokksstjórn Alþýöu- flokksins lýsir stuðningi við þau viðhorf þingflokks Alþýðuflokks- ins að lausn efnahagsmálavand- ans felist ekki i þvi að skipa kaup- gjaldsmálum almennt I landinu einhliða með lögum. Slík aðgerð er i andstöðu við steftiu og störf Alþýðuflokksins og grundvallar viðhorf verkalýðshreyfingarinn- ar um frjálsan samningsrétt og skipan launamála i landinu. Flokksstjórnin Itrekar andstööu sina viö einhliða almenna lög- skipan kaupgjaldsmálanna og minnir á ólög rikisstjórnar Geirs Hallgrimssonar sem viti til varnaðar”. Akveðiövar á fundinum aö visa framkomnum tillögum innan rlkisstjórnarinnar til fram- kvæmdastjórnar flokksins til úr- vinnslu en slðan verður fram- haldsfundur flokksstjórnar nk. sunnudag. „Meö þessari sam- þykkt erum við I fullri vinsemd að biðja samstarfsfbkka okkar I ríkisstjórninni að átta sig á þvi inn á hvaða braut menn eru að fara og láta það í ljós að viö erum ekki sáttir viö það að það sé úr- ræði I efnahagsmálum aö fara að skipa kaupgjaldsmálum I landinu almennt með lögum”, sagöi Sig- hvatur Björgvinsson I samtali við Tímann i gærkveldi. Þriggja herbergja ibúð í Mjóumýrinni á 22 milljónir, tilbúin undir tréverk: Byggingafyrirtækin taka 40% verðbólguspá inn í verðútreikninginn AM — „Það er óhætt að segja að framboö á ibúðum er afar lltiö þessa stundina fólk er hrætt og heldur að sér höndum og auk þess selur enginn án þess að hafa eitt- hvað tryggt um leiö þegar svona árar”, sagöi Agnar ólafsson hjá Fasteignahöllinni i viðtali við Tímann I gær. Agnar sagöi aö þess væri ekki aö dyljast að feiknaleg „skrúfa” uppávið I verði fasteigna væri aö hefjast, og sagðist hann óttast aö erfiðir tlmar væru framundan I fasteignasölu. Um þessar mundir sagði hann að ýmsir aöilarse, væru að byggja i Mjóumýrinni i Breiöholti gerðu ráö fyrir 40% veröbólgu I veröútreikningum, þannig að 3ja herbergja ibúð mundi ekki kosta færri en 22 milljónir, tilbúin undir tréverk við afhendingu á næsta ári en 4 herbergja Ibúðin 24 milljónir „Ég ætla að þessi ágiskun þeirra um verðbólguþróunina sé sist ofreiknuð”, sagöi Agnar. Hvaö framboð á skrifstofuhús- næði varöaði sagði hann aö þar væri hins vegar um offramboö að ræða, en mikið af sliku heföi veriö byggt á sl. tveimur árum. Ættu menn margir I erfiöleikum með að leigja út slikt húsnæði af þeim sökum og taldi hann ekki fráleitt aö samdráttur fyrirtækja ætti hér einhvern hlut að málinu. Stund milli stríða 1 gærkvöldi komu yfirmenn á farskipum saman til gleö- skapar i Glæsibæ, enda um að gera að nota timann vel á meðan sem flestir eru i landi af völdum verkfallsins. — Það voru mörg hressileg dans- sporin stigin I gærkvöldi eins og meðfylgjandi mynd Tryggva, Ijósmyndara Tim- ans ber með sér og sumir yfir- mannanna voru jafnvel með tár I glasi. Eldhúsdagsumræðurnar á Alþingi I gærkvöldi: „Ríkisstjórnin á að stjórna enekki láta stjórna sér” — sagði Tómas Arnason Kás — „Þau viðhorf sem blasa við I efnahagsmálum þjóðar- innar kalla á skjótar og hik- lausar aðgerðir. Rikisstjórn og Alþingi er kosið til að stjórna landinu. Rikisstjórnin á þvi að stjórna, en ekki að láta stjórna sér. Ef hún ekki getur stjórnað á hún að fara frá”, sagði Tómas Árnason, fjármálaráðherra, við almennar stjórnmálaumræður, sem fram fóru I Sameinuðu Al- þingi i gærkveldi Sjá nánar bls. 9. „Framsóknarflokk- urinn mun láta á það reyna — hvort ríkisstjórnin hefur kjark og vilja til að taka á efnahags- og kjaramálunum”, sagði Steingrimur Hermannsson dómsmálaráðherra Kás — „Hlýtur fljótlega á þaö að reyna, hvort samkomulag næst eða rlkisstjórnin hefur kjark til að taka á þeim mál- um”, sagöi Steingrimur Her- mannsson, dómsmálaráðherra við almenna stjórnmálaum- ræðuna á Alþingi i gær, þegar hann ræddi um kaup- og kjara- mál. „Það er prófsteinninn á vilja og getu rikisstjórnarinnar til þess að hafa hemil á verð- bólgunni. Á það mun Fram- sóknarflokkurinn láta reyna ef nauðsynlegt verður”. „Framsóknarflokkurinn telur að forðast beri i lengstu lög bein afskipti rikisvaldsins af vinnu- deilum. Rikisvaldið veröur þó að gripa i taumana þegar I al- gjört óefni stefnir”, sagði Stein- grimur. Sjá nánar bls. 10 og 11. — sagði Sigurður Runólfsson, formaður Mjólkurfræðingafélagsins um sáttafundinn i gær ESE — „Það viröist allt sitja fast f okkar málum”, sagði Sigurður Runólfsson, formaður Mjólkurfræðingafélags islands i samtali við Timann f gær, en Sigurður var þá ásamt fieiri úr stjórn Mjólkurfræðingafélags- ins á fundi með nýskipaðri sáttanefnd. Siguröur sagði að mestur timi fundarins i gær heföi farið I að ræða skólaprósentuna en sem kunnugt er þá hafa mjólkur- fræöingar krafist hækkunar fyrir menntun sina, en ekkert heföi þokast i áttina með það mál i gær. Aöspurður hvenær Mjólkur- fræðingafélagið myndi taka endanlega afstööu til tilmæla ríkisstjórnarinnar, sagöi Siguröur að þaö yrði væntan- lega gert eftir helgi, en þá myndu mjólkurfræðingar koma saman til fundar>og ræða kjara- málin á breiöum grundvelli.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.