Tíminn - 06.07.1979, Page 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Strandar á þingmönnum Alþýðuflokksins:
Ekkert borað við Kröflu í ár
KEJ — Samkvæmt þeim heimild-
um sem blaðið hefur aflað sér er
nú allt útlit fyrir að ekkert verði
af borun við Kröflu þetta árið.
Væntanleg eru innan skamms
bráðabirgðalög frá rikisstjörn-
inni um lántökuheimildir til fjár-
mögnunar framkvæmda á sviði
orkumála sem ekki hafði verið
ráð fyrir gert i fjárlögum og láns-
Líklegt að norska
stjórnin falUst á
samstarfsnefnd
um loðnuveiðarnar
AM — Norska stjórnin ræddi
loðnuveiðimálin á svæðinu milli
islensku efnahagslögsögunnar
og Jan Mayen á fundi sinum i
gær, en sem kunnugt er hafnaði
utanrikisráðherra lslands hug-
myndum þeim sem Knut Fryd-
enlund sendi simleiðis á mið-
vikudag.
Þegar Timinn fór I prentun
höfðunorskstjórnvöldekki sent
frá sér tilkynningu um niður-
stöður rikisstjórnarfundarins,
en búist við tilkynningu um þær
i dag. Spáðu fréttamenn þvi að
stjórnin mundi leggja til að við-
ræðum við íslendinga yrði hald-
ið áf ram og samstarfsnefnd sett
á laggirnar sem fyrst. Þá var
reiknað með þvl að stjórnin
myndi samþykkja að veiðar
Norðmanna byrjuðu ekki fyrr
en 23. júli.
Loks var talið að stjórnin
samþykkti að láta fylgjast mef
þvi að loðnustofninum yrði ekki
stefnt I hættu með ofveiði og aC
hún mundi áskilja sér rétt til aC
grip a inn I ef nauðsyn þætti.
Svo sem kunnugt er strönduðu
viðræðurnar i Reykjavik helstá
rétti Islendinga til að hafa af-
skipti af hugsanlegum loðnu-
veiðum þriöju þjóðar á svæðinu,
en sllk afskipti vildu Norðmenn
einir hafa rétt til og halda þann-
ig uppi norskri löggæslu á
svæði, sem enn er ágreiningur
um. Þar með ónýttist og að úr
samkomulagi yrðium 90 þúsund
tonna hámarksafla Islendinga
og Norðmanna á svæðinu sem
viöræðunefndunum hafði komiö
ásamt um.
Norski loönuflotinn er þess al-
búinn að halda til veiöa, en for-
stöðumenn Norsk Fiskerlag
hafa sagt að þeir muni ekki
sætta sig við neinar aflatak-
markanir, fyrr en norsk efna-
hagslögsaga hefur tekið gildi.
Með þvi að fresta að hefja
veiðarnar til 23. júli mun norska
stjórnin væntanlega vilja gefá
ráðrúm til frekari samkomu-
lagsviðræðna.
r-------------------------------------■
— Bráðabirgðalög væntanleg um
dreifikerfi, hitaveitur og fjarvarma-
v veitur en ekkert um Kröflu_________
fjáráætlun ársins. Áætlað hafði
verið að meðal þessara fram-
kvæmda yrði borun nýrra hola
við Kröftu en þar sem þingmenn
Alþýðuflokksins setja sig á móti
þeirri framkvæmd verður vænt-
anlega hætt við hana.
Er þetta i samræmi við yfirlýs-
ingu rikisstjórnarinnar þess efnis
að engin bráðabirgðalög verði
gefin út sem ekki er fyrirfram -
tryggt að njóti fulls meirihluta á
Alþingi.
Þessar umframframkvæmdir i
orkumálum sem bráðabirgðalög
eru nú væntanleg um eru til-
komnar vegna breyttra aðstæðna
i orkumálum eða hinnar gifurlegu
hækkunar á oliu sem orðið hefur
og væntanleg er siðar á árinu.
Var upphafleg áætlun rikis-
stjórnarinnar að taka 2,6 mill-
jarða króna lán i þessu skyni
samkvæmt þeim upplýsingum er
blaðið hefur aflað sér en þar sem
nú er ekki útlit fyrir að neitt verði
af Kröfluframkvæmdum mun sú
lánsfjárhæð væntanlega lækka
um rúmanhálfanmilljarö. Helstu
framkvæmdirnar veröa væntan-
lega i linulögnum á Austur og
Norðurlandi, styrkingu dreifi-
kerfa i sveitum og ýmsum fram-
kvæmdum við hitaveitur og f jar-
varmaveitur. Er reiknað meö að
þessar framkvæmdir muni skjót-
lega borga sig vegna oliusparnað-
arins sem af þeim hlýst.
Dómsmálaráðuneytið setur nýjar reglur um veitingatíma áfengis:
Miðvikudagur ekki
lengur „þurr”-dagur
— Veitíngaliús opin tíl
kL 3 að nóttu um helgar
Kás — Frá og með öðrum mánu-
degi héðan i frá taka gQdi nýjar
reglur um veitingatima áfengis,
þ.e. 16. júli nk. Heimilt verður að
láta skemmtanir um helgar, eöa
kvöldið fyrir almennan fridag,
standa til kl. 03 eftir miðnætti.
Veitingahúsum veröur heimilt að
hafa opið svo lengi sem húsrúm
leyfir, en verða ekki að loka 23.30,
eins ogskilyrt hefur verið hingað
tO. Þá verður heimilt að veita á-
fengi á miðvikudögum jafnt sem
virka daga.
Steingrimur Hermannsson,
dómsmálaráðherra, kynnti hinar
nýju reglur á fundi með blaða-
mönnum I gær, en af þeim hefur
verið unniö siðan hann tók við
embætti. Sagði hann að meö þess-
um breytingum væristefnt aö þvi
að færa áfengislöggjöfina i frjáls-
ara form, en þó án þess að það
leiddi til aukinnar áfengis-
drykkju. Tók hann það skýrt
fram, að hann væri fylgjandi þvi
að sporna við óhóflegri neyslu á-
fengra drykkja. Hér væri um til-
raun að ræða, og færi hún úr-
skeiðis væri hann tilbúinn að
endurskoða afstöðu sina.
Helstu nýmæli sem felast I hin-
um nýju reglum auk þeirra sem
nefndarvoruiupphafi, eru þauað
hér eftir má aðeins veita áfengi til
matargesta i hádeginu miQi kl. 12
— 14.30. Vínstúkur mega þó að-
eins vera opnar á milli 12 og 13.
Aður var heimilt að veita áfengi I
hádegi án sérstakra takmark-
ana. Sá háttur verður framvegis
aðeins leyfður laugardaga,
sunnudaga og almenna fridaga.
Afengisveitingar verða sem
fyrr bannaðar siðdegis að öðru
Framhald á bls 19
Nú verður hægt að sitja á barnum frá kl. 18 til 3 á föstudögum og laug-
ardögum en hádegisbarinn veröur aðeins opinn i klukkutima á virkum
dögum. (Ljósm.: eik)
H. McCartan frá Bel-
fast á N-írlandi
kvaðst vera orðinn
leiður á rigningunni
en lét sig þó hafa það
að drekka kaffi sitt
við fótstall Kristjáns
konungs niunda fyrir
framan Stjórnarráð-
ið. Timamynd:
yjryggvi- J
Borgarstarfsmenn
á eftirlaunaaldri:
Engum
sagt upp
Kás — t gær urðu nokkuð snarp-
ar umræður f borgarstjórn um
tillögu fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins i borgarstjórn um
hvort framfylgja eigi reglum
um uppsagnir aldraðra starfs-
manna borgarinnar, sem náð
hafa eftiriaunaaldri. Nú vinnur
nefnd á vegum borgarinnar að
endurskoðun á reglum um ald-
urstakmörk borgarstarfs-
manna.
Borgarráð visaði tillögu Sjálf-
stæðisflokksins frá i borgarráði
sl. þriðjudag á þeirri forsendu
að óhjákvæmilegt sé að hafa
mótaðar reglur um starfslok
fastráðinna starfsmanna borg-
Framhald á bls 19