Tíminn - 06.07.1979, Blaðsíða 9

Tíminn - 06.07.1979, Blaðsíða 9
Föstudagur 6. júli 1979 9 Volkmar Kallenbach þar af 4 meö aukaa&ild. Hefur SUF veriö eitt þessara fjögurra sl. 9 ár. Þau V-Evrópulönd, sem enn standa utan EFLRY eru Portúgal, Grikkland og Tyrkland, en gott samband er þó viö bæði Pretúgal og Grikkland. í stjórn EFLRY sitja sjö manns oger alþjóöaritarinn sænskur, en aðrir eru frá Belgiu, Italiu, Finnlandi og Spáni. EFLRY nýtur öflugs stuðnings ýmissa aðila, svo sem European Youth Foundation, sem starfar i tengslum við Evrópuráðið, European Youth Center og Friedrich Neumann Foundation, svo nokkrir séu nefndir. Gjöld aðildarfélaga til sambandsi'ns eru aðeins takmarkaður hluti tekna þess, en það er eigi að siður fært um að kosta ferðir og uppihald fulltrúa frá þeim á ráðstefnur og sumarbilðavist á ári hverju. Gerir þetta það aö verkum að aðilar getaauöveldlega komið þvi við að vera virkir þátttakendur i þessu starfi og öðlast bæði mjög Framhald á bls 19 Listasafn fslands boð- aði blaðamenn á sinn fund, til þess að skýra frá stórgjöf, sem safninu hefur borist, og jafn- framt til kynningar á sýningu sem opnuð verður almenningi 8. þessa mánaðar, en sýn- ingin stendur til 29. júli nk. í fréttatilkynningu frá dr. Selmu Jónsdóttur, forstjóra listasafnsins, segir á þessa leið: Gaf 50 grafisk verk A siðastliðnu sumri kom sænski listmálarinn Bengt Lindström hingað til lands, en hann er bú- settur i Paris. Flutti hann safninu skilaboð frá Bram van Velde list- málara þess efnis að hann hefði hug á að bjóða Listasafni tslands að gjöf 50 grafisk verk eftir sig. Forstöðumanni safnsins fannst þetta svo merkilegt tilboð að hann fór þegar i stað til Parisar á fund listamannsins. Varð að ráði að Bram gaf Listasafninu þá þegar 51 verk og seinna hefur hann tvi- vegisbættviðgjöf sina, þannig að hann hefur alls gefið safninu 65 myndir. Athugasemd frá Flugleiöum Pétur fór óbókaður frá íslandi VEGNA greinar i dagblaðinu Timanum 4. júli, um erfiðleika farþega við að komast frá Glas- gow til Reykjavikur, skal eftir- farandi tekið fram. 1) 1 ljós hefur komið að far- þegar þeir sem hér um ræðir, fóru frá Islandi án þess að bóka ferð sina til baka. Slikt er að sjálfsögðu mjög óráðlegt, þvi nú er mesti annatiminn á flugleið- unum til og frá Evrópu, eins og reyndar á öllum leiðum. 2) Enda þótt farseðill viðkom- andi fólks hljóðaði upp á leiðina Glasgow/ Reykjavik, var þvi samt boðið að fljúga frá London að til tilskyldu að það sæi sér fyrir fari Glasgow/ London. Fólkinu var ennfremur boðið, enda þótt flugferð London/ Keflavik sé dýrari en flugferð Glasgow/ Keflavik, þá þyrfti ekki að koma til aukagreiðslu til Flugleiða. Aður hafði verið á- kveðið að hafa tvo vörupalla i flugvélinni London/ Keflavik, þar sem vörur biðu flutninga til Islands. Vegna fólksins var hætt við að hafa vörupalla i vélinni og sett inn sæti sem hefðu rúm- að allan hópinn. Aðeins átta úr hópnum þágu þetta boð og voru þvi allmörg sæti laus á leiðinni frá London til Keflavikur þenn- an dag. 3) Viðmælandi Timans, mið- vikudaginn 4. júli, Pétur Pét- ursson, Mosgerði 9, segist hafa fengið þær upplýsingar að ör- uggt væri að þau kæmust til Is- lands 29. júni eða 1. júli. Ef Pétur Pétursson hefur fengið slikar upplýsingar eru þær ekki á ábyrgð Flugleiða, enda mundi enginn starfsmaður félagsins hafa lofaðsliku. Ferðaskrifstofa sú sem hann skipti við neitar einnig algjörlega að hann hafi fengið slikar upplýsingar. Allir sem við ferðamál vinna vita að á þessum tima er óráðlegt að ferðast á opnum miðum, þ.e. miðum án dagsetningar. 4) Eins og alþjóð er kunnugt hefur orðið mikil röskun i ferða- málaheiminum vegna kyrrsetn- inga DC-10 þotanna. Þetta hefur einnig komið við okkur tslend- inga, en i minna mæli en ýmsa aðra. Margir hafa orðið fyrir töfum og einungis með mikilli endurskipulagningu og auka- vinnu sem og sérstakri tilhliðr- unarsemi af hálfu ýmissa starfsmanna Flugleiða hefur reynst unnt að standa við gerða samninga um flutning fólks. Að fara með opinn farmiða að heiman á mesta annatimanum er meiri bjartsýni en tali tekur. 5) Fúkyrði Péturs Pétursson- ar i garð Flugleiða og starfs- fólks félagsins i Glasgow dæma sig sjálf. Allt var gert sem i mannlegu valdi stóð til að hjálpa fólkinu sem þvi miður, var eins og áður er fram tekið, með ódagsetta heimferð og lenti þess vegna i erfiðleikum. Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi. LISTASAFN ÍSLANDS FÆR VEGLEGA GJÖF Selma Jónsdóttir forstöðumaöur listasafnsins við eitt verkanna sem safninu barst að gjöf. Timamynd Tryggvi. Bram van Velde er einn af fremstu listamönnum núlifandi. Hann er fæddur i Hollandi árið 1895, en hefur lengst af verið bú- settur i Paris. Sem málari hefur hann staðið nærri Cobrahópnum og er stundum talinn einn úr þeirra hópi. Góð vinátta hefur æ- tið verið og er enn milli hans og Cobra-málaranna, m.a. skrifaði Asger Jorn oft i sýningarskrár hans, einnig Alechinsky. Irska leikritaskáldið Samuel Beckett er vinur Bram van Velde og mikill aðdáandi verka hans og hefur oft skrifað um Bram og list hans. A einum stað segir Beckett eitthvað á þá leið að Bram van Velde hafi orðið fyrstur til aö seil- ast eftir þvi sem aldrei verður höhdlað, fyrstur til að viðurkenna þá staðreynd, að það að vera Framhald á bls 19 Nyttiítibií á Svalbarðseyri Samvinnubankinn hefur yfirtekið starfssemi Sparisjóðs Svalbarðsstrandar og Innlánsdeildar Kaupfélags Svalbarðseyrar og opnað nýtt útibú á Svalbarðseyri. Útibúið mun annast öll almenn bankaviðskipti og trygginga- þjónustu fyrir Samvinnutryggingar og Líftryggingarfélagið Andvöku. Afgreiðslutími: Mánud. - föstud. kl. 9.15 og 13.00 12.00 16.00 □ Sanwinfiubankinii w® Samvinnubankinn útibú Svalbarðseyri, sími 96-21338.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.