Fréttablaðið - 22.12.2006, Page 45
Perurnar flysjaðar en stöng-
ullinn skilinn eftir á perunni.
Soðið í einn og hálfan klukku-
tíma. Potturinn tekinn af og
perurnar látnar kólna í pottin-
um.
Þegar perurnar eru orðnar
kaldar eru þær settar á bök-
unarpappír og látið renna af
þeim. Súkkulaðið brætt yfir
vatnsbaði, möndlurnar létt
ristaðar í ofni og svo er súkk-
ulaðið sett með matskeið ofan
á hverja peru fyrir sig, möndl-
unum er stráð yfir og svo er
beðið eftir því að súkkulaðið
harðni.
Borið fram með þeyttum
rjóma eða vanilluís. Njótið!
Þessa uppskrift er einnig
hægt að framreiða með því að
sjóða perurnar í rauðvíni, en
fyrir sex persónur hentar að
nota hálfa rauðvínsflösku og
þrjár matskeiðar af hunangi.
Ofninn er settur á 150, per-
urnar skrældar og stöngull-
inn látinn halda sér. Vínið sett
í pott með hunanginu og hitað
þar til hunangið bráðnar. Þá
eru perurnar lagðar upprétt-
ar í eldfast mót, vín og hun-
angsblöndunni hellt yfir og
svo er þetta hulið vel með
álpappír.
Látið standa í ofninum í
fjóran og hálfan til fimm
klukkutíma. Perurnar látnar
kólna og svo er þetta borið
fram með þeyttum rjóma og
skreytt á sama hátt og í hinni
uppskriftinni.
uppskrift Dittu }
Krydd og ávextir ásamt in-
dælum mat fylla heimilin af
jólaangan.
Rauð epli og mandarínur eru
ávextirnir sem umfram aðra
minna okkur á jólin. Í hugum
margra er ilmur þeirra nátengdur
þeirri miklu hátíð. Eldra fólkið
man þá tíma er epli voru einungis
fáanleg fyrir jólin og sköpuðu
jólastemninguna öðru fremur. Í
seinni tíð hefur gildi þeirra sem
jólaávaxta minnkað en lyktin af
þeim er ómissandi enn. Kanill og
negull eru líka þær kryddtegundir
sem einkum framkalla hinn lokk-
andi og ljúffenga hátíðarilm sem
við sækjumst eftir. Lykt af negul-
nöglum sem stung-
ið er í appelsínu eða
mandarínu er alltaf
jólaleg. Vanillu-
stöngin gefur mjólk-
urgrautnum einstak-
lega góðan keim og
hún ber líka með sér
ljúfan ilm í eldhúsið. Fleiri
tegundir matarilms
koma okkur vissulega í
jólaskap og meðal
þeirra er lyktin sem
berst um húsið þegar
rauðkálið er soðið með
sykri og ediki. Þegar hún
fyllir vitin er von á góðri
máltíð.
Jólailmurinn berst um bæinn
Skötuveislan
Ævint‡ralegar fiskbú›ir
Hamraborg 14a • Skipholti 70 • Höf›abakka 1 • Vegamótum (Nesvegi 100) Sundlaugavegi 12 • Háaleitisbraut 58-60
er byrju› hjá okkur. Komdu og sko›a›u
fiskbor›i› okkar fullt af ilmandi
tindabykkju og skötubör›um, hno›mör,
hamsatólg og flrumara me›.
fiskisaga.is