Fréttablaðið - 12.02.2007, Page 30
fréttablaðið fasteignir 12. FEBRÚAR 2007 MÁNUDAGUR8
Hvern dreymir ekki um að
geta skellt sér í sund hvenær
sólarhringsins sem er, allan
ársins hring?
Á okkar farsælda Fróni er ekki
algengt að fólk sé með einkasund-
laugar við heimili sín eins og tíðk-
ast í Evrópu, Bandaríkjunum og
víðar.
Auðvelt aðgengi okkar að
almenningslaugum og fyrir-
myndaraðstöðu þeirra spilar
eflaust inn í að hér á þessu kalda
landi, þar sem heita vatnið kraum-
ar undir yfirborðinu, skulum við
ekki nýta okkur þessa náttúru-
auðlind meira á eigin forsendum.
Reyndar eiga margir heita
potta, hvort sem er við sumar-
bústaði eða eigin heimili og þar er
gott að sitja bæði vetur, sumar,
vor og haust, en fæstir ráðast í
það að láta steypa inni- eða úti-
laug við heimili sitt.
Halldór Laxness var einn fárra
Íslendinga sem gerðu undantekn-
ingu á þessu á sínum tíma þegar
hann lét gera sundlaug við
Gljúfrastein, en þetta fjármagn-
aði hann með ritlaunum sem hann
fékk frá kommúnistunum í
Austur-Þýskalandi. Skáldið synti
oft og iðulega í lauginni sinni og
hefur vafalítið haft gott og gaman
af. Enda örugglega yndislegt að
geta svamlað frjáls í eigin laug án
þess að hafa vörð á bakkanum
sem rekur mann upp úr þegar
lauginni lokar.
mhg@frettabladid.is
Svamlað án sundskýlu
Zen-stemning í lítilli innilaug í einbýlishúsi í Tókýó.
Ætla má að þetta smekklega hús í Hollywood hafi verið byggt í kringum 1955 en
sundlaugar voru mjög algengar í kringum hús efri stéttarinnar á þeim árum. Eflaust
hefur það líka verið kærkomið þar sem hitinn í Kaliforníu getur oft stigið hátt.
Nýtískulegt hús á Miami í Flórída. Takið eftir lýsingunni í lauginni og trépallinum við svaladyrnar. Vatnið, steinninn í húsinu og
viðurinn í pallinum mynda skemmtilegt samspil andstæðna.
Hér renna hafið og sundlaugin nánast saman í eitt. Þótt mörgum þyki það kannski sérstakt þá er nokkuð algengt að lúxusvillur
sem reistar eru við strendur séu einnig með sundlaug. Þetta fallega hús er í Suður-Afríku.
Einstaklega rómantískur og fallegur garður með heitum potti og lítilli sundlaug.
Þetta fallega hús er í Stonehenge á Englandi en það fylgir ekki sögunni hver er svo
heppin að búa þarna.
Guðný Gestsdóttir, safnstjóri á Gljúfrasteini, við sundlaugarbakkann þar sem nóbel-
skáldið tók eflaust margan sundsprettinn hér á árum áður.