Fréttablaðið - 05.03.2007, Blaðsíða 43
fasteignir fréttablaðið
Maríubakki - 3ja herb.
Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja 88,4 fm íbúð á 2 hæð. Eldhús með hvítri innréttingu og flís-
um á milli eftir og neðri skápa, keramik helluborð og góðum borðkrók við glugga. Inn af eldhúsi er
þvottahús og geymsla með hillum á vegg. Eikarparket er á holi, eldhúsi og stofu. Rimlagardínur í
öllum gluggum. Suður svalir. Verð 18,2 millj.
Jörfabakki - 4ra herb.
Mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð ásamt aukaherbergi og sér geymslu í kjallara.
Eldhús með nýlegri fallegri eldhúsinnréttingu. Þvottahús og geymsla innaf eldhúsi. Salernisaðstaða
fylgir aukaherberginu. Parket er á öllum gólfum nema baðherbergi og anddyri er flíslagt. Sameign
til fyrirmyndar. Verð 20,9 millj.
Hofteigur- 4ra herb.
Mikið endurnýjuð og björt 4ra herbergja, 97fm íbúð í kjallara (lítið niðurgrafin). Parket og flísar á
gólfum. Mjög rúmgóð svefnherbergi með stórum skápum. Fallegur og vel gróinn garður, hellulögð
aðkoma með ljósum. Íbúðinni fylgir sér geymsla og sameiginlegt þvottahús í sameign. Íbúðin getur
losnað innan 3ja mánaða. Verð 22,9 millj
Dalbraut - Eldri borgarar
Glæsileg 3ja herb. 82,9 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi fyrir eldri borgara, ásamt stæði í upphitaðri
bílageymslu. Eldhús er opið við stofu, parket á gólfi, falleg innrétting úr kirsuberjaviði, þvottahús
innaf eldhúsi. Stofan er rúmgóð, parket á gólfi, útgengt á stórar suð-vestur svalir með fallegu út-
sýni yfir borgina. Í kjallara er sér geymsla og innangengt í upphitað bílahús. Öll sameign sérlega
falleg og snyrtileg og lóðin í góðri umhirðu. Verð 28,8 millj.
Hagamelur- Sérhæð
Glæsileg hæð, í fallegu húsi, á eftirsóttum stað, í vesturbænum. Hæðin er 4ra herb. 97. fm Húsið
og íbúðin hafa verið í góðu viðhaldi og endurnýjun á liðnum árum. Parket og flísar á gólfum. Verð
30,7 millj.
Vesturtún - Endaraðhús
Vorum að fá í einkasölu glæsilegt 5 herbergja, 112 fm, endaraðhús á einni hæð. Eignin skiptist í
forstofu, 4 svefnherbergi m. góðum skápum. þvottahús, geymsluloft, baðherbergi,eldhús með fal-
legri hvítri innréttingu og góðum borðkrók við glugga og stóra stofu með stórum glugga og út-
gengi á steypta afgirta verönd. Snyrtileg aðkoma að húsinu, góð afgirt timburverönd. Geymsluskúr
í garði. Verð 32,5 millj.
Markarvegur - einbýli
Glæsilegt einbýlishús við Markarveg í Fossvogi. Húsið er á tveimur hæðum og bílskúr stendur sér.
Sérlega falleg arkitektahönnuð lóð með lágvöxnum gróðri, lýsingu og pöllum. Náttúrusteinflísar á
gólfum og falleg innrétting í eldhúsi. Ásett verð 75 millj.
Skráð eign er seld eign
— Sími 565 8000 — Fax 565 8013
5. MARS 2007 23
Þegar fasteignir eru auglýstar
til sölu skiptir máli að mynd-
irnar af þeim séu fallegar svo
fasteignirnar virki aðlaðandi
á væntanlega kaupendur.
Hörður Ellert Ólafsson fast-
eignaljósmyndari getur gefið
góð ráð um hvernig best er
að undirbúa fasteignir fyrir
myndatökur.
H örður er einn eigenda margmiðlunarfyrirtækis-ins Kubbs sem sérhæfir
sig í auglýsingum fyrir fasteigna-
markaðinn. Fasteignaljósmyndun
er stór þáttur í starfi Kubbs og
segir Hörður að nauðsynlegt sé að
undirbúa allar myndatökur vel.
„Fyrir flesta er mikilvægt að fast-
eignirnar seljist sem fyrst og því
skiptir framsetningin máli. Undir-
búningur fyrir myndatökurnar er
lykilatriði til þess að myndirnar
verði góðar. Ef ekki er búið að
undirbúa komu ljósmyndarans og
allt er í drasli verður bara allt í
drasli á myndunum og það viljum
við ekki.“
Hörður segist alltaf fara yfir
það með fólki sem hann myndar
fyrir hvernig best sé að haga undir-
búningnum áður en hann kemur á
staðinn. „Við bendum til dæmis
öllum á að skoða heimasíðuna
okkar, www.kubbur.is, því þar er
hægt að finna mörg góð ráð.“
Almenn tiltekt er undirstöðu-
atriði að sögn Harðar en margt
fleira er hægt að gera til þess að
fasteignin verði aðlaðandi á mynd-
unum. „Sniðugt getur verið að
vera með ávexti í skál inni í eld-
húsi og gott er að draga frá gard-
ínur í stofunni og kveikja á ljós-
um, lömpum og kertum. Þó að
kertin auki ekki birtuna verður
allt meira kósý. Best er að athuga
fyrirfram hvort að allar perur séu
í lagi því það er atriði sem skiptir
máli. Ágætt getur verið að fjar-
lægja eitthvað af dóti því þeim
mun fleiri hlutir sem eru á mynd-
inni, þeim mun minna virkar
rýmið.“
Hörður segir að til þess að fá
sem bestar myndir af fasteignun-
um sé gott að láta fagaðila um að
mynda. „Við erum til dæmis alltaf
að taka að okkur svona myndatök-
ur og svo eru fleiri fyrirtæki í
þessu líka.“
Góðar myndir selja betur
Mikilvægt er að allt sé hreint og snyrtilegt.
Kertaljós gera allt meira kósý.
Ávextir í skál í eldhúsinu virka aðlaðandi.
Hörður segir að framsetningin skipti máli þegar selja á fasteign. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM