Fréttablaðið - 25.03.2007, Blaðsíða 31
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 70
6
0
5
TM Software er alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki með skrifstofur í 11 löndum og um 450 starfsmenn. Fyrirtækið þjónar
yfir 1.800 viðskiptavinum í fleiri en 20 löndum í fjórum heimsálfum. TM Software er í fremstu röð við þróun
hugbúnaðar, ráðgjöf og rekstur upplýsingakerfa og býður fjölbreyttar lausnir í nánu samstarfi við helstu upplýsinga-
tæknifyrirtæki heims. TM Software hefur undanfarin sex ár hlotið viðurkenningu sem eitt af 500 framsæknustu
fyrirtækjum Evrópu.
Vef- og sérlausnasvið TM Software vinnur náið með viðskiptavinum sínum við að uppfylla þarfir þeirra og styrkja
samkeppnisstöðu. Á sviðinu starfa nú um 40 starfsmenn sem hafa frumkvæði að því að skapa virðisaukandi notkun á
upplýsingum og upplýsingakerfum viðskiptavina. Við búum yfir sérþekkingu á uppbyggingu umfangsmikilla veflausna
og gagnagrunnskerfa og sinnum þróun og þjónustu fyrir mörg af stærstu og framsæknustu fyrirtæki landsins. Verkefni
okkar snúast einnig um samþættingu lausna við hin ýmsu upplýsingakerfi með það að markmiði að ná fram
hnökralausum samskiptum. Við fylgjum Agile hugbúnaðarferlum, s.s. Scrum og MSF Agile.
Nýlega unnu verk okkar til verðlauna fyrir vefsvæði Icelandair. Vefsvæðin voru valin í flokknum „Best hannaða veflausn
ársins“ (Best Website Design of the Year) á hinni alþjóðlegu ráðstefnu Technology For Marketing & Advertising. Veitt
voru verðlaun í tólf flokkum en Icelandair bar sigur úr bítum í sínum flokki en í honum voru fyrirtækin Orange, Dabs,
Odeaon og Xchange Wales. Að auki hafa vefsvæðin hlotið vefverðlaunin sem Samtök vefiðnaðarins og Ímark standa
fyrir: „Besti íslenski vefurinn“ og „Besti fyrirtækisvefurinn“ fyrir árið 2006.
Við óskum eftir að ráða fleiri úrvals liðsmenn til að vinna til fleiri verðlauna með okkur og
sinna fjölbreyttum og spennandi verkefnum. Getum bætt við okkur sérfræðingum á sviði:
• Verkefnastjórnunar
• Hugbúnaðarþróunar í .NET
• Hugbúnaðarþróunar í Delphi
• Hugbúnaðarþróunar í Java – unnið er með Spring, Hibernate, JSR-168 o.fl.
• Innleiðingar MS lausna, s.s. SharePoint og BizTalk
• Vefforitunar – s.s. Ajax, javascript, xml/xsl, Flex og annarrar Web 2.0 tækni
• Hugbúnaðarprófunar - gerð prófanatilvika og framkvæmd þeirra,
sjálfvirkar prófanir, álagsprófanir og skjölun prófana
Hæfnis- og menntunarkröfur
Háskólamenntun á sviði tölvunar-, kerfis-, verk- eða viðskiptafræði og/eða sambærileg
reynsla. Við leitum að einstaklingum sem vilja takast á við ný og krefjandi verkefni í öflugum
og framsæknum hópi.
Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi allar umsóknir og fyrirspurnir.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon, starfsmannastjóri í síma 545 3000 eða torfi@t.is.
Umsóknir með ferilskrá sendist til starfsmannastjóra torfi@t.is, fyrir 10. apríl nk.
Viltu vera í sigurliðinu?
Vegna vaxandi umsvifa og fjölbreyttra framtíðarverkefna
leitum við að lykilfólki í hugbúnaðarþróun
Við bjóðum og leggjum áherslu á:
• Frábæran starfsanda og liðsheild
• Góða starfsaðstöðu
• Sveigjanlegan og fjölskylduvænan
vinnutíma
• Símenntun í starfi og virka endur-
menntunarstefnu
• Fjölbreytt, spennandi og krefjandi verkefni
• Margvísleg tækifæri til starfsþróunar
• Laun og önnur starfskjör eftir samkomulagi
• Gott mötuneyti
Origo
Suðurlandsbraut 4A
108 Reykjavík
www.lh.is
Sími: 585 1500
Fax: 585 1501
lh@lh.is
ISO 9001
ISO 14001